Morgunblaðið - 24.02.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2021
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ísfélagið í Vestmannaeyjum tók í gær við
nýju uppsjávarskipi sem er keypt frá Nor-
egi. Skipið bar áður nafnið Hardhaus, en
fær nafnið Álsey VE 2. Það var smíðað í
skipasmíðastöðinni Fitjum í Noregi 2003 og
er 68,8 metrar á lengd og 13,83 m á breidd.
Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ís-
félagsins, segir að skipið sé vel búið, hafi
verið vel við haldið og gengið vel alla tíð.
Ekkert sé að vanbúnaði að halda til veiða á
loðnu til hrognatöku eftir helgi og verður
Jón Axelsson með skipið á vertíðinni.
Stefán segir að Ísfélagið sé búið að veiða
um tvö þúsund tonn af 13.700 tonna kvóta
og verði öll þrjú uppsjávarskip félagsins að
veiðum í næstu viku. Áhersla sé lögð á
loðnuhrognin á þessari snörpu vertíð. Hann
segir að loðna sé víða og gott ástand á
henni. Síðasta sunnudag hafi skip verið að
veiðum út af Grindavík, við Vestmanna-
eyjar og á Meðallandsbugt og alls staðar
hafi verið góður afli. Í gær hafi Geir á Polar
Amaroq orðið var við stóra torfu á Faxaflóa
og það séu ánægjuleg tíðindi. Greinilega sé
umtalsvert magn af loðnu á ferðinni.
Í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar er
haft eftir Geir Zoëga, skipstjóra á Polar
Amaroq, að í Jökuldýpi norðvestur úr Garð-
skaga hafi þeir komið í „svakalega torfu“,
sem nái frá kili og niður undir botn.
„Hér er sko alvöruvertíðarganga á ferð-
inni,“ sagði Geir meðal annars á heimasíðu
SVN. aij@mbl.is
Búa sig undir veiðar á loðnu til hrognatöku á þremur skipum á snarpri loðnuvertíð
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Umtalsvert
magn af loðnu
Til veiða Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélagsins, og Jón Axelsson
skipstjóri spjalla í brúnni á Álsey í gær. Jón verður með skipið út vertíðina,
en hann er annars annar tveggja skipstjóra á Sigurði VE. Þriðja uppsjávar-
skip Ísfélagsins er Heimaey VE. Til hægri sést Hardhaus koma til Eyja.
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Fyrirhugað íbúðahverfi á Ártúns-
höfða og Vogabyggð verður álíka
fjölmennt og Grafarvogur en sjöfalt
minna. Frumdrög að uppbyggingu á
þessum svæðum gera ráð fyrir að
um 20 þúsund íbúar rúmist á um 120
hektara svæði. Í Grafarvogi búa um
18 þúsund manns á tæplega 800
hektara svæði. Svokölluð forkynning
deiliskipulagstillagna verður haldin
á morgun, fimmtudag, en einnig má
nálgast frekari upplýsingar á kynn-
ingarvef Reykjavíkurborgar, skipu-
lag.reykjavik.is.
Ámóta þétt og aðrir reitir
Pawel Bartoszek, forseti borgar-
stjórnar og formaður skipulags- og
samgönguráðs Reykjavíkurborgar,
segir í samtali við Morgunblaðið að
svæðið sé ámóta þétt og aðrir þétt-
ingarreitir í borginni þar sem upp-
bygging íbúðarhúsnæðis sé þegar
hafin eða lokið.
„Vissulega, við erum að byggja
þéttar en þegar við vorum að byggja
Staðahverfið í Grafarvogi á sínum
tíma, eða þá þessi hverfi sem byggð-
ust upp um aldamótin,“ segir Pawel
og bætir við að mjög mikið af fólki
vilji búa í höfuðborginni, og því sé
þörf á fleiri íbúðum til að gera það
auðveldara.
Pawel segir að við uppbyggingu
nýs hverfis sé gert ráð fyrir þremur
skólum, einum safnskóla og sund-
laug. Þetta verði því hið bærilegasta
hverfi. Á myndum sem Reykjavík-
urborg hefur látið gera má sjá sér-
rými borgarlínu og græn svæði inn-
an um þétta byggð, verslun og
þjónustu. Segir Pawel að þegar
áfangar 1-7 verði kláraðir sé um
8.000 íbúðir að ræða, sem aftur þýði
um 20.000 manna byggð. Þá verði
hluti hverfisins byggður á landfyll-
ingu.
Einkabílnum ekki úthýst
Pawel segir að í nýju hverfi verði
ákjósanlegt fyrir íbúa sem lifa bíl-
lausum lífsstíl að búa, en gert er ráð
fyrir að ferðatími frá hverfinu og
niður á Hlemm með borgarlínu
verði um 10 mínútur og skal borg-
arlína ekki ganga sjaldnar en á sjö
mínútna fresti.
„Tengingin á að vera góð, þannig
að þeir sem búa þarna, hvort sem
það er fólk sem vinnur niðri í bæ,
fólk sem vinnur á Landspítalanum
eða fólk sem stundar nám við há-
skólann, geti þá allavega farið sinna
daglegu reglulegu ferða öðruvísi en
á bíl.“
Pawel segir að þrátt fyrir það
verði einkabílnum ekki úthýst, enda
sé stutt í bæði Gullinbrú og Ártúns-
brekku, sem og aðrar helstu stofn-
æðar höfuðborgarsvæðisins.
Álíka fjölmennt og í Grafarvogi
Borgin kynnir tillögu að deiliskipulagi íbúðahverfis á Ártúnshöfða og Vogabyggð á morgun
Gert ráð fyrir 20.000 manna hverfi á um 120 hektara svæði Ákjósanlegt hverfi fyrir bíllausan lífsstíl
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Nýtt hverfi Við Krossmýrartorg á að rísa hjarta nýs hverfis á Ártúnshöfða.
Lengri útgáfa af viðtalinu
verður birt á mbl.is.
mbl.is
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Formaður og varaformaður um-
hverfis- og samgöngunefndar Alþing-
is eru sammála um að bjóða ætti út al-
þjónustu póstsins sem í dag er veitt af
Íslandspósti, en nefndin hefur fjallað
um málið að undanförnu. Að sögn
Jóns Gunnarssonar, varaformanns
nefndarinnar, hafa helstu hagaðilar
verið kallaðir til ásamt fulltrúum
samgöngu- og sveitarstjórnarráðu-
neytisins.
Jón sagði í samtali við mbl.is í gær-
kvöldi augljóst að bregðast þurfi við
þeirri stöðu að ríkisrekið fyrirtæki
skekki samkeppnisstöðu annarra
dreifingaraðila, og hljóti til þess
myndarlegan styrk úr ríkissjóði.
Póst- og fjarskiptastofnun hefur
metið alþjónustubyrði Íslandspósts
fyrir síðasta ár upp á 509 milljónir, og
ber ríkinu að bæta fyrirtækinu þann
kostnað.
Jón bætir við að fyrirkomulag og
verðlagning Póstsins á alþjónustu
skekki samkeppnisstöðu annarra að-
ila umfram það sem menn gerðu sér
grein fyrir við breytingar á lögum
sem tóku gildi í fyrra. Hans grund-
vallarskoðun sé að eðlilegt sé að
bjóða þessa þjónustu út. „Ég tel að
það sé margt sem styðji við það að
með því fáist miklu eðlilegri sam-
keppnisgrundvöllur og hagkvæmasta
leiðin til að stuðla að öruggri dreif-
ingu til allra landsvæða,“ segir Jón,
og bætir við að Pósturinn sé í erfiðri
stöðu þar sem hærri verðskrá myndi
hafa neikvæð áhrif á samkeppnis-
stöðu Póstsins á höfuðborgarsvæðinu
og skilja fyrirtækið eftir með dýrasta
reksturinn.
Undirverðlagning blasi við
Bergþór Ólason, formaður nefnd-
arinnar, sagði í samtali við mbl.is í
gær að hann efaðist um að nokkrum
nefndarmanni hefði komið til hugar,
hvað þá hugnast, að verðlagning Ís-
landspósts á pakkasendingum um
landið allt yrði með þeim hætti að þau
fyrirtæki sem hafa sinnt flutninga-
starfsemi áratugum saman væru
skyndilega í þeirri stöðu að vera und-
irverðlögð með þeim hætti sem nú
virtist blasa við að væri raunin.
Bergþór segir að sér gæti vel
hugnast útboðsleið á alþjónustu.
Vilja bjóða alþjónustuna út
Íslandspóstur í sjálfheldu að mati varaformanns umhverf-
is- og samgöngunefndar Áhöld um lögmæti ákvörðunar