Morgunblaðið - 24.02.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.02.2021, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2021 Fermingar- myndatökur Einstök minning Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Við förum eftir öllum sóttvarnartilmælum Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Nú ætti allt að komast í fullan gang aftur,“ segir Þórarinn Finnbogason veitingamaður á Café Mílanó í Reykjavík. „Síðustu vikur hafa að- eins 20 manns mátt vera hér í húsi í einu en núna getum við verið með nánast fullan sal eða 50 gesti. Þetta er algjör bylting og strax og fréttir um rýmri fjöldatakmarkanir komu brá hér fyrir fastakúnnum sem ég hafði ekki séð lengi. Margir hafa haldið sig í kúlunni sinni í mjög lang- an tíma og fagna því nú að komast aftur á kaffihús.“ Í dag taka gildi nýjar reglur um fjöldatakmarkanir, byggðar á til- lögum Þórólfs Guðnasonar sótt- varnalæknis til Svandísar Svavars- dóttur heilbrigðisráðherra, sem ríkisstjórnin samþykkti á fundi sín- um í gær. Sagði Svandís eftir fundinn að Ís- lendingar ættu að geta glaðst yfir þeim tilslökunum sem nú taka gildi, en meginreglan er sú að 50 manns að hámarki mega vera á sama stað í einu. Í verslunum, á söfnum, kirkjum og tilteknum viðburðum mega vera allt að 200 manns. Sam- kvæmt þessu verða til dæmis jarðar- farir ekki háðar jafn ströngum fjöldatakmörkunum og verið hefur en síðustu misseri hefur reglan verið sú að aðeins nánasta fjölskylda hins láta hefur getað verið viðstödd. Áhorfendur aftur Í sundlaugum og á skíðasvæðum verður heimilt að taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Á líkamsræktarstöðvum mega mest vera 50 manns í rými. Á íþrótta- keppnum verður heimilt að hafa áhorfendur, samkvæmt fyrr- greindum reglum um hámarksfjölda í húsi hverju sinni. Reglur um grímunotkun verða óbreyttar og áfram verður tveggja metra nándarregla meginviðmið. Þetta er gerlegt vegna góðrar stöðu á kórónuveirufaraldrinum, smit eru fá og öflug gát á landamærum. Ekki er þó hægt að fullyrða að landið sé veirufrítt, og því verður þörf áfram á góðum smitvörnum, að sögn sótt- varnalæknis. Byrja á plokkfiski Margir munu efalaust fagna því að veitingastofa IKEA í Kauptúni í Garðabæ verður opnuð að nýju í dag eftir langt stopp. Þar verður salar- kynnum skipt í þrennt og í hverju rými verða sæti fyrir 50 manns. „Við byrjum á föstu réttunum; sænskum kjötbollum, kjúklingi og plokkfiski. Þegar svo líður lengra fram í vikuna verður úrvalið meira og matseðillinn fjölbreyttari,“ sagði Stefán R. Dags- son framkvæmdastjóri IKEA í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Raunar hafa síðustu vikur verið nýttar vel því nú er búið að skipta um gólfefni og húsgögn í veitingastofunni, mála veggi og færa sitthvað í nýjan bún- ing. Viðskiptavinir koma því á enn betri stað, hvort heldur er matsölu- stað eða kaffihús. Rýmri reglur í skólastarfi Hvað skólastarf áhærir er mesta breytingin í sóttvörnum sú að tveggja metra reglan er afnumin og nú mega 150 manns koma saman, það er frá og með komandi mánaða- mótum. Sé ekki unnt að halda eins metra fjarlægð skulu nemendur og starfsfólk nota grímu. Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi fram- haldsskóla, svo sem fyrirlestrar, ræðukeppnir og slíkt, eru heimilir í skólabyggingum með áðurnefndum fjölda- og nálægðartakmörkunum. Reglur fyrir háskóla eru í sama dúr. „Þessar opnanir eru mikið fagn- aðarefni. Nemendur og starfsfólk hér hafa farið mjög gætilega og gætt smitvarna, rétt eins og samfélagið allt. Sem betur fer sjáum við fyrir endann á þessu ástandi,“ segir Komast úr kúlunni á kaffihúsið  Slakað á sóttvarnareglum  Áfram grímur og fjarlægðarmörk  Í 50 manns úr 20  Veitinga- menn fagna  Aftur kjötbollur í veitingahúsi IKEA  Félagsstarf í framhaldsskólum hefst að nýju Ekkert kórónuveirusmit greind- ist innanlands síðasta sólar- hring. Í gær voru aðeins 17 í ein- angrun, sem er fækkun um átta frá því á mánudag. Níu voru á sjúkrahúsi rétt eins í fyrradag. Á landamærunum greindist einn með mótefni við veirunni. Tekin voru 1.447 sýni, þar af voru einkennasýnatökur 1.188 talsins. Aðeins 12 voru í gær í ein- angrun á höfuðborgarsvæðinu, tveir á Suðurnesjum, tveir á Norðurlandi eystra og einn á Suðurlandi. 14 daga nýgengi innanlandssmita á hverja 100 þúsund íbúa er komið niður í 1,4. Alls voru 24 í sóttkví og 882 í skimunarsóttkví. Aðeins 17 í einangrun EKKERT VEIRUSMITTilslakanir á samkomutakmörkunum vegna kórón u veiru Nándarregla verður áfram tveir metrar Áhorfendur mega vera allt að 200 manns Ef áhorfendur eru standandi er hámarksfjöldi 50 Heimilt er að hafa áhorfendur á íþróttaviðburðum Almennar fjöldatak- markanir verða 50 manns í stað 20 áður Heimilt verður að hafa að hámarki 200 viðskiptavini í verslunum, á söfnum, í kirkjum og á tilteknum viðburðum í stað 150 áður Sund- og baðstöðum og skíða- svæðum verður heimilt að hafa 75% af leyfi legum hámarksfjölda í stað 50% áður – einnig heilsu- og líkamsræktar- stöðvum en að hámarki 50 manns í rými Almennt verður heimilaður há- marksfjöldi nemenda 150 í hverju rými og blöndun milli sóttvarna- hólfa heimil á öllum skóla- stigum, líka í háskólum Regla um nándarmörk verður 1 metri í stað tveggja Aðeins þarf að bera grímur ef ekki er unnt að virða 1 metra regluna Á öllum skólastigum öðrum en á háskólastigi verður foreldrum og öðrum utan- aðkomandi heimilt að koma inn í skóla- byggingar Veitingastaðir með áfengisveitingar Hámarksfjöldi verður 50 manns. Heimilt er að taka á móti viðskiptavinum til kl. 22.00 en þeir skulu yfi rgefa staðinn fyrir kl. 23.00 Skóla- starf Morgunblaðið/Árni Sæberg Kaffihús Þórarinn Finnbogason á Café Mílanó segir að þar hafi brugðið fyrir fastakúnnum sem ekki hafi sést lengi eftir góðu tíðindin í gær. Steinn Jóhannsson Stefán Dagsson Steinn Jóhannsson rektor Mennta- skólans við Hamrahlíð í Reykjavík. Staðkennsla hefur verið með hefðbundnu sniði frá 1. febrúar síð- astliðnum; eins metra fjarlægðar- regla í stofum og allir með grímu. Svo verður áfram, en stóra breyt- ingin er sú að svigrúm verður fyrir félagslíf og samkomur í skólanum. Fleiri geta mætt í matsal og sömu- leiðis á viðburði í félagslífinu. Nefnir Steinn þar ræðukeppnina Morfís og Gettu betur á RÚV, hvort tveggja viðburði sem eru á dagskrá í vik- unni. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Létt á sóttvarnaaðgerðum Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti nýju tilslakanirnar í gær og sagði að Íslendingar ættu að geta glaðst. Um 850 manns voru bólusettir á Suðurlandsbraut 34 í gær með mjög góðum árangri, að sögn Ragnheiðar Óskar Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgar- svæðinu. Ragnheiði telst til að 80-90% ald- urshópsins, þ.e. eldri en 90 ára, séu nú bólusett. 750 komu í sína aðra sprautu í gær og teljast þar með ónæmir að viku liðinni, alltént að svo miklu leyti sem fullyrða má að ónæmi sé náð. 100 voru að koma í fyrri sprautuna og bíða því í þrjár vikur eftir þeirri seinni. Bólusett var með efni frá Pfizer. 80-90% búin í bólusetningu  90 ára og eldri fengu seinni sprautu í gær Morgunblaðið/Árni Sæberg Pfizer Eldri borgarar fengu sprautu fyrir Covid-19 á Suðurlandsbraut 34. ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.