Morgunblaðið - 24.02.2021, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2021
Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
ÖFLUGAR
ÞVOTTAVÉLAR OG ÞURRKARAR
Verkstæði Heilbrigðis-stofnanir
Fiskvinnslu-
fyrirtæki
Hótel og
gistiheimili
Leikskólar
og skólar
Íþróttafélög
og sundlaugar
Efnalaugar
og þvottahús
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG HELD AÐ ÉG SÉ AÐ LANDA STARFINU.
HRINGDU Í MIG EFTIR FIMM MÍNÚTUR.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hafa hann í
bænum sínum.
ÉG ER ORÐINN
LEIÐUR Á AÐ
HANGA INNI
SKELL!
HVER FÓR AÐ KALLA
ÞIG „heppna edda”?
MÓÐURBRÓÐIR
MINN. HANN
ER MJÖG
MÆLSKUR!
HANN SÉRHÆFIR SIG Í MÓTSÖGNUM!
ÞÚ HLÝTUR AÐ
VERA KLIKKUÐ. EKKI
DÆMA MIG.
ingunni til töluvert fjármagn í
reksturinn og er Getspá mikilvæg-
asti stuðningsaðili íþróttastarfsemi
á landinu í dag. Árið 2014 steig ég
svo inn á vettvang stjórnmálanna
þar sem reynslan úr íþróttahreyf-
ingunni nýttist vel.“ Pétur hefur
verið oddviti Samfylkingarinnar í
Kópavogi síðastliðin sex ár og er
nú jafnframt formaður sveitar-
stjórnarráðs Samfylkingarinnar og
situr í stjórn flokksins.
Helstu áhugamál Péturs eru
íþróttir, útivist og ferðalög innan-
lands sem utan í góðum hópi vina.
Fjölskylda
Eiginkona Péturs er Sigrún
Jónsdóttir, f. 22.8. 1960, fram-
kvæmdastýra hjá Tryggingastofn-
un ríkisins. Þau eru búsett í
Fögrubrekku í Kópavogi. For-
eldrar Sigrúnar voru Jón Andr-
ésson, f. 4.12. 1921, d. 13.7. 2003,
sjómaður og sundlaugavörður í
Kópavogi, og Jóna S. Sigurðar-
dóttir, f. 30.5. 1925, d. 16.7. 1979,
verkakona í Kópavogi, þau skildu.
Börn Péturs og Sigrúnar eru: 1)
Sigurður Hrafn, f. 11.10. 1988, tölv-
unarfræðingur, þróunarstjóri út-
gáfulausna hjá Valitor, kvæntur
Svanhvíti Sigurðardóttur, f. 21.3.
1988, þroskaþjálfa hjá Ás styrkt-
arfélagi. Börn þeirra eru Arnar
Logi og Einar Hrafn, f. 2014, og
Viktoría Mjöll, f. 2019; 2) Arnar, f.
12.3. 1991, maraþonhlaupari; 3)
Jóna Þórey, f. 8.6. 1995, laganemi
og fv. forseti Stúdentaráðs HÍ.
Bróðir Péturs er Guðmundur
Ragnar Sigurðsson Kemp, f. 20.3.
1965, trésmiður og stjórnar-
formaður Stíganda, búsettur á
Blönduósi.
Foreldrar Péturs: Sigurður
Kristinsson, f. 6.3. 1938, d. 18.1.
2020, fulltrúi í Reykjavík, og Þórey
S. Kemp Guðmundsdóttir, f. 24.11.
1934, íþróttakennari og fyrrverandi
lektor við Kennaraháskóla Íslands,
búsett í Reykjavík. Þau skildu.
Pétur Hrafn
Sigurðsson
Elísabet Kemp Stefánsdóttir
húsfreyja á Illugastöðum í Laxárdal, Skagafirði
Lúðvík R. Kemp
bóndi á Illugastöðum,
vegavinnuverkstjóri og skáld
Ragna Kemp
húsfreyja á Akureyri og síðar saumakona,
stofnfélagi ferðafélagsins Útivist
Guðmundur Tómasson
forstjóri kexverksmiðjunnar
Lorelei á Akureyri
Þórey S. Kemp Guðmundsdóttir
íþróttakennari og fyrrv. lektor KHÍ
Þórey Sigurlaug Sveinsdóttir
húsfreyja á Bústöðum
Tómas Pálsson
bóndi og oddviti á Bústöðum í
Austurdal, Skagafirði
Ingibjörg Jónsdóttir
húsfreyja á Ríp í Hegranesi, Skagafirði
Sveinn Benediktsson
bóndi á Ríp
Ástþrúður Sveinsdóttir
húsfreyja á Akureyri
Kristinn Jónsson
umdæmisstjóri Flugfélags Íslands á Akureyri
Pálína Kristjánsdóttir
húsfreyja í Brekku
Jón Halldórsson
húsmaður í Brekku í Nauteyrarhreppi, N-Ís.
Úr frændgarði Péturs H. Sigurðssonar
Sigurður Kristinsson
fulltrúi í Reykjavík
Nú er komið í ljós, að landnáms-hænurnar verpa betur ef þær
hlusta á Bítlana en Mozart og er
það byggt á varprannsókn. Magnús
Halldórsson yrkir á Boðnarmiði:
Leggja þarf í lagasarp,
„let it be“ og fleira.
Bóndans pútur bæta varp,
ef bítlalög þær heyra.
Hallmundur Kristinsson yrkir:
Eitt og annað sniðugt í snilligáfu felst
er snerta kann við öfund.
Hér er lítil vísa, sem vissi þetta helst
og valdi réttan höfund!
Hólmfríður Bjartmardóttir yrkir
og kallar „Á elliheimilinu“:
„Ég sé varla út hérna enn,“
sagði Ella með gleraugun tvenn.
„Það er hengja á glugga
og helvítis mugga
en biðillinn birtist þó senn.“
Ella var alls ekki leið
en einstöku sinnum ögn reið
við alla sem hlógu
og aðra sem dóu
á meðan hún biðilsins beið.
Maðurinn með hattinn orti:
Basl er að hafa blíða lund
blási allt á móti.
Hrufluðust fætur, hlaut ég und
á hvössu lífsins grjóti.
Enn orti hann og nú á konudag:
Við göngum saman hönd í hönd,
heimsins fjarri raunum.
Bauð ég frúnni blómavönd,
bros ég fékk að launum.
Hjörtur Benediktsson orti „í til-
efni dagsins“:
Tími hjá karli var knappur
til kvenna var æði oft slappur.
Um ævina aleinn hann bjó
úr einmanaleika hann dó.
Greyið var geldingahnappur.
Úr annarri átt. Gísli Rúnar Jóns-
son yrkir og kallar „Kvenskör-
ungar“:
Þeir segja að Salka Valka
soldið sé farin að kalka
– og Gróa á Leiti
lögst sé í bleyti
með lánlausum dönskum alka.
Gömul vísa að lokum:
Þá þorratunglið tínætt er.
– Tel ég það lítinn háska –.
Næsta sunnudag nefna ber
Níu vikur til páska.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af landnámshænum
og gleraugun tvenn