Morgunblaðið - 24.02.2021, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2021
✝ Gísli V. Hall-dórsson fædd-
ist á Staðarfelli í
Dalasýslu 19. sept-
ember 1943. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Brák-
arhlíð 16. febrúar
2021. Foreldrar
hans voru Halldór
E. Sigurðsson, f.
9. september 1915,
d. 25. maí 2003,
og Margrét Gísladóttir, f. 5.
júlí 1916, d. 9. nóvember 2004.
Árið 1955 fluttist fjölskyldan
frá Staðarfelli í Borgarnes.
Systkini Gísla eru Sigurður
Ingi, f. 2. mars 1952, og Sig-
urbjörg Guðrún, f. 4. júní
1955. Uppeldisbróðir Gísla er
Sveinn Hallgrímsson, f. 5. júlí
1936.
Gísli kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni Guðrúnu
Birnu Haraldsdóttur, f. 5.
mars 1955, á sumardaginn
fyrsta 1978. Foreldrar hennar
voru Haraldur Björnsson, f.
1912, d. 1973, og Sigrún Jóns-
dóttir, f. 1915, d. 2011.
Börn þeirra eru: 1) Margrét
júní 1997. Þau slitu samvistir.
Gísli kom að ýmsum at-
vinnurekstri í Borgarnesi og
var öflugur í félagsstarfi.
Hann lærði bifvélavirkjun og
starfaði lengi vel á Bifreiða-
og trésmiðju Borgarness og á
Prjónastofu Borgarness auk
þess sem hann sat í stjórn Vír-
nets um árabil. Hann stofnaði
og rak ásamt eiginkonu sinni
TÁP skóframleiðslu og GH
verkstæðið. Seinni ár starfaði
hann hjá Sólfelli og sem hús-
vörður bæði í Grunnskólanum
á Varmalandi og í Borgarnesi.
Gísli kom að margs konar
félagsstarfi og sinnti ýmsum
trúnaðarstörfum. Hann var
virkur félagi í Rótarýklúbbi
Borgarness, Framsókn-
arflokknum, UMSB, körfu-
knattleiksdeild Skallagríms,
Verkstjórafélaginu, kom að
skipulagningu og framkvæmd
Landsmóts UMFÍ í Borgarnesi
og Húsafellsmótunum svo eitt-
hvað sé nefnt.
Útförin fer fram frá Borg-
arneskirkju 24. febrúar klukk-
an 14 að viðstöddum fjöl-
skyldu og nánustu vinum.
Útförinni verður streymt á
youtube-rás Borgarneskirkju.
Stytt slóð:
https://tinyurl.com/6k2wel1o
Virkan hlekk á streymi má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Halldóra, f. 15.
febrúar 1978, gift
Hlyni Ólafssyni, f.
1978. Börn þeirra
eru Alexander
Gísli, f. 2000, og
Nína Björk, f.
2006. 2) Sigrún
Halla, f. 27. mars
1980, gift Ronny
Elvin Mathiasen, f.
1976. Synir þeirra
eru Sebastian
Gísli, f. 2011, og Benjamin
Hugi, f. 2014. 3) Kristín Heba,
f. 17. desember 1985, gift
Arnari Þór Arnarssyni, f.
1983. Sonur þeirra er Sigmar
Gísli, f. 2019. 4) Aðalsteinn
Hugi, f. 27. júní 1991. Sam-
býliskona Alexandra Arn-
ardóttir f. 1990. Dóttir þeirra
er Arnheiður Edda, f. 2020.
Áður átti Gísli dótturina Guð-
rúnu Dóru, f. 9. september
1963, gift Páli Snæbjörnssyni,
f. 1962. Börn þeirra eru Daði
Snær, f. 1988, og Arna, f.
1989. Barnsmóðir Gísla er
Soffía Jónsdóttir, f. 1939. Gísli
var kvæntur Svanhildi Tess-
now, f. 30. mars 1935, d. 7.
Þegar ástvinur kveður leitar
hugurinn til fortíðar og lífs-
hlaup þess sem genginn er rifj-
ast upp. Þó svo dauðinn sé hluti
af lífinu og hjá pabba hafi hann
verið ákveðin líkn þá er ekki
hægt að búa sig undir þær til-
finningar sem skjóta upp koll-
inum þegar ástvinur kveður.
Fjöldi minninga kemur upp í
hugann sem verða verðmætar í
sorginni. En minningarnar sem
hafa rifjast upp og vitjað okkar
systkinanna eru góðar, þær
hafa gefið tilefni til hláturs og
hlýrra hugsana um pabbann
sem við minnumst.
Pabbi var góður maður, blíð-
ur, hrifnæmur, fylginn sér,
ráðagóður, forvitinn, áhugasam-
ur, mikill snyrtipinni, forfallinn
bílaáhugamaður, framsóknar-
maður, Rótarýfélagi og svo
margt fleira.
Á þessum þungbæru tíma-
mótum er tími til að rifja upp
og velta fyrir sér hvernig minn-
ingu við munum halda á lofti og
hvaða eiginleika, siði og venjur
við höfum fengið í arf og viljum
að lifi. Eitt af því sem einkennir
okkar uppvöxt er hversu auð-
velt var að leita ráða hjá for-
eldrum okkar, þar sem þau
sögðu okkur ekki hvað við ætt-
um að gera heldur var rætt
fram og til baka um kosti og
galla þess að taka ákvörðun.
Við eigum öll dýrmætar minn-
ingar af líflegum umræðum við
eldhúsborðið þar sem var talað
við okkur sem jafningja. Pabbi
var áhugasamur um það sem
við tókum okkur fyrir hendur,
hrósaði þegar vel gekk og stóð
með okkur þegar illa gekk.
Þessi samtöl og stuðningur er
veganesti inn í framtíðina og lit-
ar uppeldi okkar systkinanna á
eigin börnum.
Síðan eru ótal sögur sem lifa
með okkur og lýsa svo vel
hvernig pabbi var. Til dæmis
hvernig pabbi vildi ferðast um
landið. Hann hafði engan áhuga
á náttúrunni heldur vildi kom-
ast á milli bæja á sem stystum
tíma. Fara niður á bryggju,
þrífa bílinn á bílaþvottaplani
bæjarins, leita uppi heimafólk
og yfirheyra það um íbúafjölda,
íbúaþróun, hversu mörg börn
væru í leikskóla og grunnskóla
og hverjir væru helstu atvinnu-
vegir.
Þá var tímabært að halda
beinustu leið í næsta pláss og
endurtaka leikinn. Áhugi pabba
á samfélagi þeirra sem hann
gerði sér far um að hitta á ferð-
um sínum um landið er ágætur
vitnisburður um þann áhuga
sem hann hafði á eigin sam-
félagi.
Einnig hefur eitt og annað
sem einkenndi pabba rifjast
upp seinustu daga og þar á
meðal framúrskarandi röðunar-
hæfileikar hans. Ef haldin hefði
verið keppni í að pakka í bíl þá
er hægt að fullyrða að pabbi
hefði sigrað. Það skyldi ekkert
drasl vera inni í bílnum og hann
gat komið ótrúlegu magni af
farangri í skottið. Sá böggull
fylgdi þó skammrifi að oft og
tíðum passaði nestistaskan best
innst í skottinu og var þá ekki
fyrir neinn annan en pabba að
ná aftur úr skottinu. Það sem
skipti höfuðmáli í þessu sam-
hengi var að bíllinn væri snyrti-
legur og algjört aukaatriði
hvort það kostaði að nánast allt
þyrfti upp úr skottinu við næsta
nestisstopp.
Í dag kveðjum við pabba eftir
löng og ströng veikindi. Pabbi
skilur eftir sig ótalmargar
minningar, hefðir og venjur
sem lifa áfram með okkur. Hvíl
í friði elsku pabbi.
Margrét Halldóra,
Sigrún Halla,
Kristín Heba
og Aðalsteinn Hugi.
Elsku bróðir
Nú er komið að kveðjustund-
inni. Gísli var tólf ára og ég
þriggja ára þegar fjölskyldan
fluttist frá Staðarfelli í Borg-
arnes. Sigurbjörg systir fæddist
á öðrum degi okkar í Borg-
arnesi. Gísli var minn stóri
bróðir og móðir okkar sagði
mér að hann hefðir verið ein-
staklega góður og þolinmóður
við litla bróður sinn.
Gísli hefur síðan búið í Borg-
arnesi og verið stoltur af sínum
heimabæ og látið sig hag bæj-
arfélagsins skipta. Gísli lét fé-
lagsmál mikið til sín taka, hann
var í Rotaryklúbbi Borgarness,
tók þátt í starfi Ungmenna-
félags Borgarfjarðar, var dygg-
ur stuðningsmaður körfubolta-
deildar Skallagríms, í
Verkstjórasambandi Íslands og
sat í stjórn Vírnets.
Þá var Gísli mjög pólitískur
og ákafur stuðningsmaður
Framsóknarflokksins, hann tók
þátt í starfi flokksins í sinni
heimabyggð og var fulltrúi á
flokksþingi um árabil. Við
bræðurnir ræddum oft um póli-
tík og var sýn Gísla að hlutverk
þeirra sem helguðu starfkrafta
sína pólitíkinni væri einna helst
að koma af stað arðbærum
framkvæmdum við innviðaupp-
byggingu, s.s. vegagerð, svo
ekki sé nú talað um brúargerð,
til að skapa atvinnu og annan
ávinning til skemmri og lengri
tíma.
Gísli veitti forstöðu rekstri
fyrirtækja í Borgarnesi um ára-
bil. Hann var verksmiðjustjóri
hjá Prjónastofu Borgarness og
framkvæmdastjóri Bifreiða- og
trésmiðju Borgarness og rak
síðan sjálfur GH bifreiðaverk-
stæðið. Rekstri þessara fyrir-
tækja fylgdu mannaforráð
fjölda starfsmanna, sem fórust
honum vel úr hendi þar sem
hann átti mjög létt með öll
mannleg samskipti.
Á yngri árum skipti Gísli ört
um bíla, móður okkar þótti nóg
um þessi tíðu bílaskipti Gísla
því hún vissi aldrei hvaða bíla-
tegund hann átti og var farin að
spyrja eingöngu hvernig er nýj-
asti bíll Gísla á litinn.
Í fjölskyldu okkar Gísla er
talan 66 mjög vinsæl. Þetta
byrjaði hjá föður okkar en Gísli
bætti um betur. Um tíma áttum
við feðgarnir bíla með númer-
unum M-66, M-166 og M-1166.
Ég held að flest símanúmer
okkar innihaldi 66 og eflaust
fleiri númer sem nauðsynlegt er
að hafa. Ekki veit ég hvort
þurfi að hafa aðgangsorð að
Gullna hliðinu þegar þangað er
komið en fyrir Gísla ætti 66 að
gilda.
Gott var að leita til Gísla og
ræða málin þegar eitthvað stóð
til því hann var bæði áhuga-
samur og ráðagóður, einnig var
hann mjög greiðvikinn.
Veikindi Gísla hafa varað í
nokkur ár. Það hefur verið erf-
itt að fylgjast með heilsunni
gefa sig smátt og smátt. Fyrir
rúmum hálfum mánuði lét Guð-
rún okkur vita að stutt gæti
verið eftir hjá Gísla. Þann 12.
febrúar sl. fórum við Steinunn
upp í Borgarnes og heimsóttum
Gísla á elliheimilinu Brákarhlíð.
Við áttum fallega stund með
Gísla þar sem ég rifjaði upp
með honum sögur frá Staðar-
felli og úr Borgarnesi. Gísli
sýndi ótrúleg viðbrögð, tók und-
ir og bætti við af veikum mætti
en skiljanlega þó, brosti oft og
jafnvel hló. Þessi kveðjustund
var okkur ómetanleg og munum
við geyma hana í minningu um
yndislegan bróður og mág, sem
okkur þótti mjög vænt um.
Við Steinunn vottum Guð-
rúnu, börnum, tengdabörnum
og barnabörnum innilega sam-
úð.
Þinn bróðir,
Sigurður.
Kær bróðir minn Gísli er nú
fallinn frá allt of fljótt eftir erfið
veikindi.
Gísli var elstur okkar systk-
inanna en fjölskyldan bjó á
Staðarfelli í Dölum þar til hann
var 12 ára er flutt var í Borg-
arnes. Gísli bar ætíð mjög
sterkar taugar í Dalina. Á Stað-
arfelli var húsmæðraskóli og
var Gísli fljótur að koma sér í
mjúkinn hjá námsmeyjunum og
lét ekkert stoppa sig þar, skreið
undir hliðið heim að skólanum
þar til hann gat opnað það sjálf-
ur. Þriggja ára gamall drakk
hann kaffi með námsmeyjunum,
sem olli mömmu og ömmu
nokkrum áhyggjum, þær
brugðu á það ráð að setja salt í
sykurkarið, en Gísli hafði aldrei
bragðað eins vont kaffi, og
snarhætti allri kaffidrykkju.
Gísli lærði bifvélavirkjun á
BTB í Borgarnesi. Þrátt fyrir
vélavinnu var hann ætíð með
hreinar og fínar hendur, enda
mikið snyrtimenni, ef vatn og
sápa dugði ekki til að þrífa
hendurnar í lok vinnudags var
gripið til smjörlíkis svo unnt
væri að ná óhreinindunum burt.
Þeir voru ófáir bílarnir sem
Gísli átti um ævina, hann fékk
bílnúmerið M-66 á fyrsta bílinn,
gæti trúað að fastbílnúmera-
kerfinu hafi verið komið á svo
ekki þyrfti stöðugt að vera að
flytja M-66 á milli bíla. Ætíð
voru bílarnir tandurhreinir og
stífbónaðir.
Mikill dugnaður, verkstjórn
og skipulag einkenndi bróður
minn og nutum við systkinin og
foreldrar okkar þess oft, ekki
síst þegar framkvæmdir voru
við sumarbústað fjölskyldunnar,
hvort sem grisja þurfti gróð-
urinn eða laga húsið, þá tók
Gísli stjórnina og við hin reynd-
um að fara að fyrirmælum.
Félagsmál, samfélagsleg
ábyrgð, framsækið atvinnulíf og
framkvæmdir voru áhugamál
bróður míns, og líktist hann
pabba mikið þar. Gísli bar hag
Borgarness og nærumhverfis
ætíð fyrir brjósti. Hann var
mjög virkur innan Framsókn-
arflokksins, Skallagríms, UM-
Gísli V.
Halldórsson
Mig langar með
nokkrum orðum að
minnast Valrósar
Árnadóttur eða
ömmu Völu eins og
ég hef kallað hana frá því að ég
var lítið stelpuskott að leika
mér hjá henni í Torginu.
Ég var svo heppin að Óli son-
ur hennar og Inga systir mín
bjuggu í kjallaranum hjá henni
í Karlsrauðatorgi 12.
Hún á sérstakan stað í hjarta
mér þessi ljúfa og fallega kona
með hlýja faðminn sem kyssti
mig alltaf rembingskossi beint
á munninn þegar við hittumst.
Þegar amma
Vala var orðin veik og vitað í
hvað stefndi fór hugur minn
aftur í tímann. Þegar ég var
barn brölluðum við amma Vala
ýmislegt, margs er að minnast
og minnisstæðar eru samveru-
stundirnar við eldhúsborðið að
borða eitthvert kruðerí og Alla
kíkti kannski yfir í kaffi eða
einhver annar, því alltaf var
gestkvæmt í Torginu.
Á eldhúsborðinu var líka
karfa með alls konar litum
naglalökkum sem ég horfði
Valrós
Árnadóttir
✝ Valrós Árna-dóttir fæddist
3. ágúst 1927. Hún
lést 1. febrúar
2021.
Útförin fór fram
12. febrúar 2021.
aðdáunaraugum á
og auðvitað mátti
ég prófa þau öll.
Við skruppum
líka stundum upp í
bústað, það fannst
mér skemmtilegur
staður og ég tíndi
þar stundum fífur
sem uxu rétt hjá og
setti þær á leiðið
hjá Gandhi, litla
svarta púðluhund-
inum sem amma Vala hafði átt.
Amma Vala sagði mér líka
svo margt og ég treysti henni
fyrir leyndarmálum og við
sungum líka saman. Síðar rifj-
uðum við oft upp kvöldstundina
þegar ég sat upp á eldhús-
bekknum og söng inn á kass-
ettu jólalög í bland við önnur
lög.
Kassettuna sendum við til
Ingu og Óla þegar þau voru bú-
sett í Svíþjóð. Það var alltaf svo
gaman hjá okkur, amma Vala
var svo skemmtileg.
Það er gott að geta yljað sér
við góðar bernskuminningar.
Það sem stendur þó upp úr er
hversu hlý og góð hún amma
Vala var mér alla tíð, bæði þeg-
ar ég var barn og eftir að ég
varð fullorðin.
Með ást og kærleika kveð ég
þig, elsku amma Vala.
Þú munt alltaf eiga stað í
hjarta mínu.
Sunna Björk
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og bróðir,
SIGURÐUR KÁRI JAKOBSSON
leigubílstjóri,
Spóahólum 12, Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi 8. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sigrún K. Guðmundsdóttir
Jakob Sigurðsson Guðný Sigurðardóttir Njarðvík
Jenny Garate Sverre Lea
Kári Sigurðsson Arnór Ingi Þrastarson
Jóhann Ingi Þrastarson Viktor Máni Þrastarson
Sigrún Sól Njarðvík Kristín Birta Þrastardóttir
Svanhildur Jakobsdóttir
Elsku maðurinn minn og besti vinur, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi og bróðir.
TÓMAS JÓHANNES RUNÓLFSSON,
Þjóðbraut 1, Akranesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi föstudaginn 19. febrúar.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn
26. febrúar klukkan 13.
Athöfninni verður streymt á netinu frá vef Akraneskirkju,
www.akraneskirkja.is.
Kristrún Guðmundsdóttir
Fríða Björk Tómasdóttir Bjarni Friðrik Sölvason
Kristrún Sara Bjarnadóttir Pascal Scheffer
Heiðrún Ýr Bjarnadóttir
Tómas Bjarnason og Ari Friðrik Scheffer
Jón Rafns Runólfsson Inga Harðardóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HAUKUR JÓHANNSSON,
skipstjóri og útgerðarmaður
í Vestmannaeyjum,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja
fimmtudaginn 18. febrúar.
Útförin fer fram frá Landakirkju þriðjudaginn 2. mars klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur og vinir
viðstaddir útförina. Athöfninni verður streymt. Þeir sem óska
eftir aðgangi að streyminu eru beðnir um að hafa samband við
Hildi Dögg Jónsdóttur í póstfangið hildurdjons@gmail.com.
Emma Kristjánsdóttir
Kristján Hauksson Ída Night Ingadóttir
Guðrún Hauksdóttir Jón Gísli Ólason
Jóhanna Hauksdóttir
Sigurður Óli Hauksson Margrét Helgadóttir
afabörn og langafabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
VILBORG GUÐRÍÐUR JÓNSDÓTTIR,
Hrafnistu Laugarási,
áður Tangargötu 5, Stykkishólmi,
lést miðvikudaginn 10. febrúar á Hrafnistu
Laugarási. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 25.
febrúar klukkan 11.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Vitatorgs á Hrafnistu.
Hlekk á streymi er hægt að nálgast á mbl.is/andlat.
Gunnar Ólafsson Hrefna Jónsdóttir
Ingibjörg Ó. Hjaltalín Þórður H. Jónsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn