Morgunblaðið - 26.02.2021, Side 4
ingum sem búa erlendis við að finna heppilegt húsnæði hér heima.
Það má segja að ég sé oft talsmaður eða umboðsmaður við-
skiptavina minna gagnvart mögulegum kaupendum, seljendum,
úttektaraðilum og fasteignasölum. Það þýðir að ég er við hlið
þeirra alla leið í söluferlinu. Ég sé oftast um samskiptin og legg
mig fram um að fólkið skrifi undir sölusamning og kaupsamning í
öryggi og gleði,“ segir Elín.
Nú sérhæfir þú þig í gerð samninga eins og fjárskipta, kaupmála
og erfðaskráa svo eitthvað sé nefnt. Finnst þér fólk vera meðvit-
aðra nú en áður að gæta hagsmuna sinna?
„Já, það er a.m.k. fólkið sem leitar til mín. Ég hef mikið verið að
þjóna hjónum sem eiga það sameiginlegt að hafa gert erfðaskrá og
jafnvel kaupmála fyrir hjúskap og er nú á tímamótum, börnin flutt
að heiman, komið að því að finna húsnæði sem hentar betur og þá
fer fram samtal um hvernig þau vilja hafa hlutina til framtíðar.
Mjög algengt er að hjón sem eiga ekki sameiginlega öll börnin vilja
tryggja rétt eftirlifandi til setu í óskiptu búi. Þá eru mörg hjón sem
vilja tryggja að arfur barnanna verði þeirra séreign í hjúskap
þeirra. En ég hef áhyggjur af því að fólk í óvígðri sambúð þekki
ekki réttarstöðu sína í öllum tilvikum. Það vita ekki allir að maki í
óvígðri sambúð nýtur hvorki erfðaréttar né réttar til setu í óskiptu
búi. Ég hvet sambúðarfólk til að skoða möguleika sína, ef vilji er til
að gera breytingar þar á.
Þá veiti ég jafnframt aðstoð við að ganga frá uppgjöri dánarbúa,
þar nýtist vel reynsla mín af þjónustu við syrgjendur og af rekstri
lögfræðideildar útfararstofu,“ segir hún.
Hvað drífur þig áfram í starfinu?
„Ég hef svo sannarlega ástríðu fyrir verkefnum mínum. Ég nýt
þess að eiga samskipti við fólk. Þá finnst mér þjónustu- og fræðslu-
þátturinn í starfinu líka svo gefandi. Fólkið sem hefur leitað til mín
er einstakur hópur fólks sem er ekki sama um fjármál sín og bú-
setu. Þetta er fólk sem gerir kröfur um gæði og fagmennsku.“
Hvernig verkefni finnst þér mest spennandi?
„Ég nýt þessa nýja starfs ríkulega og er svo sannarlega í
skemmtilegasta starfi sem ég hef nokkurn tíma verið í. Verkefnin
eru öll svo spennandi, enda er fyrirtækið sérsaumað í kringum
reynslu mína, menntun og ástríðu. Markmið BÚUM VEL er m.a.
að gera ferlið við búsetuskipti að ánægjulegri upplifun sem
viðskiptavinir geta treyst frá upphafi til enda. Mér finnst dýrmætt
að sjá viðskiptavini mína búa vel. Það er markmið mitt að ég veiti
fólki öryggi til að taka skrefið. Ég hef svo gaman af að finna rétta
staðinn og stílinn fyrir fólkið sem ég þjóna. Nú eru þau farin að
bjóða mér í heimsókn til að þakka og sýna mér hve vel þau búa.
Það gleður mig innilega. Þau segja svo oft: „Ég vildi að ég hefði
gert þetta fyrir tíu árum“.
„Þá starfaði ég fyrir dómstólana í ein tíu ár og loks í útfararþjón-
ustu, þar sem ég m.a. rak lögfræðiþjónustu. Reynslan frá Eigna-
miðlun hefur alltaf verið mér mikilvæg og ég hef alla tíð fylgst vel
með fasteignamarkaðinum og viðskiptavinir, vinir og fjölskylda
hafa jafnan leitað til mín með aðstoð við að selja húsnæði, leita að
nýju hentugu húsnæði, gerð kauptilboða, yfirlestur kaupsamninga
og annarra löggerninga á sviði erfðaréttar,“ segir Elín.
Er algengt að fólk sé alveg týnt þegar það stendur í fasteigna-
kaupum og viti ekki í hvorn fótinn það á að stíga?
„Mér finnst óöryggið einkenna fólk í þessum sporum og það er
eðlilegt, við erum að höndla með lífsstarfið í flestum tilvikum og því
mikið í húfi. Mínir viðskiptavinir þiggja stuðning við þetta verkefni,
þróunin hefur orðið sú að ég er ekki bara að þjóna elsta aldurs-
hópnum á markaðinum, heldur einnig yngsta aldurshópnum, sem
ég hef mjög gaman af að þjóna, og jafnframt er ég að þjóna Íslend-
B
ÚUM VEL er ný þjónusta á íslenskum fast-
eignamarkaði, ekki fasteignasala, heldur er það sér-
hæfð lögmanns- og fjármálaþjónusta, með sérstakri
áherslu á fólk sem er komið yfir miðjan aldur. Elín
segir að fyrirtækið hafi orðið til í fyrra þegar hún stóð
á tímamótum.
„Ég stóð á tímamótum á síðasta ári, ég valdi heilsuna í stað þess
að vinna í óheilsusamlegu húsnæði. Tímamótin nýtti ég til að velta
vöngum yfir því við hvað mig langaði helst að starfa. Ég spurði mig
opinna spurninga á borð við: Hvað kann ég best? Hver er reynsla
mín og ástríða? Svarið kom til mín. Það var einkum reynsla af
þjónustu við tvenn hjón á síðasta ári sem mér þótti gefandi. Þar
fann ég vel hve vel öll starfsreynsla mín, menntun og hæfileikar
nutu sín.
Önnur hjónin voru að selja einbýlishús þar sem þau höfðu búið í
30 ár og voru að kaupa sér íbúð í nýbyggingu. Eldri hjónin voru að
selja sérhæð og kaupa sig inn í íbúð á hjúkrunarheimili. Ég fann í
báðum þessum tilvikum að þörf var fyrir þjónustu af þessu tagi.
Þau eru nú á draumastað miðað við aðstæður eins og þær eru í
dag. Þau treystu mér og vildu að ég aðstoðaði þau og þau hafa tjáð
mér hve mikilvæg þjónusta mín var þeim. Þarna gerði ég mér
grein fyrir því að með reynslu mína og þekkingu að leiðarljósi gæti
ég komið til móts við þarfir fólks við búsetuskipti.
Það má segja að brennandi áhugi minn á húsnæðismálum og
velferð fólks sé kveikjan. Ég íhugaði á menntaskólaárunum að fara
í innanhússhönnun en lögfræðin varð ofan á. Það hefur jafnframt
alltaf verið áhugamál mitt að fólki líði vel í húsnæði sínu, hafi fal-
legt í kringum sig og heiti fyrirtækisins tekur mið af því. Í því felst
áskorun um að við búum eins vel og aðstæður okkar leyfa okkur
hverju sinni,“ segir Elín.
Hún starfaði hjá Eignamiðlun eftir útskrift úr háskólanum og
fór síðan að vinna við lögmennsku. Hún var fyrsti forstöðumaður
Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna sem nú er Umboðsmaður
skuldara.
Elín Sigrún Jónsdóttir lögfræðingur stóð á
tímamótum í fyrra og ákvað að velja heilsuna í
stað þess að vinna í óheilsusamlegu húsnæði.
Þá stofnaði hún fyrirtækið BÚUM VEL sem
hjálpar fólki vegna búsetuskipta. Hún segir að
fólk sé oft óöruggt þegar það er að höndla með
aleigu sína eins og fasteignakaup eru.
Marta María | mm@mbl.is
Skipti um gír á tímamótum í lífinu
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Elín Sigrún Jónsdóttir lög-
fræðingur hefur brennandi
áhuga á húsnæðismálum.
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021
TIL SÖLU Við Hrólfsskálavör 8 á Seltjarn-
arnesi er að finna sérlega traust og fallegt
hús við sjóinn. Ef þú þráir að geta stundað
sjósund í garðinum heima hjá þér þá er þetta
hús eitthvað fyrir þig. Húsið var byggt 1979
og er 323 fm að stærð. Fasteignamat hússins
er 121.050.000 kr. en óskað er eftir tilboði í
eignina.
Í húsinu eru fjögur svefnherbergi og þrjú
baðherbergi en alls sjö herbergi allt í allt.
Hægt er að skoða eignina nánar á fast-
eignavef mbl.is.
Paradís
við sjóinn