Morgunblaðið - 26.02.2021, Page 10
Aron Freyr Eiríksson, löggiltur fasteignasali á
ÁS fasteignasölu, segir að Skarðshlíð í Hafn-
arfirði sé spennandi kostur fyrir þá sem vilja
splunkunýja íbúð. Hann segir að húsnæð-
isskortur setji svip sinn á markaðinn.
Marta María | mm@mbl.is
Fimmmínútnahverfið eins og það er kallað, við Hraunin í
Hafnarfirði er einnig komið langt í ferlinu en þar eru 490 íbúðir
að fara af stað í byggingu með haustinu. Við Flensborgarhöfn
er einnig verið að skipuleggja nýja glæsilega byggð. Þá er Ásl-
and 4 og Ásland 5 komið í rammaskipulag og því nóg fram und-
an, og þá líka talsvert af sérbýlum. Hér hafa verið nefnd heilu
hverfin sem eru væntanleg. Þar fyrir utan er fjöldi smærri ein-
stakra verkefna eins og litlar íbúðir við Skipalón 3, raðhús og
einbýlishús við Hjallabraut og fleiri eignir sem teljast undir
þéttingu byggðar,“ segir hann.
Hverju finnst þér fólk vera að leita eftir núna?
„Í dag má segja að fólk sé að leita að öllu íbúðarhúsnæði. Allt
frá stúdíóíbúðum upp í stór einbýlishús og penthouse-íbúðir.
Eftirspurnin í sérbýli hefur aukist gríðarlega síðustu mánuði en
eftirspurnin hefur verið góð í minni eignir flest síðustu ár svo
það má segja að í dag sé eftirspurnin orðin mikil í allar eignir.
Eftirspurnin var minni í sérbýli í samanburði við annað fyrir
ekki svo löngu síðan.“
Hvað mælir þú með að fólk geri ef það vill flytja? Á það að
byrja á því að finna sér eign og setja sína á sölu eða selja sína
eign og finna sér síðan íbúð?
„Fólk á að gera það sem því líður vel með. Það er stór ákvörð-
un að selja eignina sína án þess að vera búinn að festa aðra eign
en það getur aftur á móti komið aðilum í gríðarlega góða stöðu
lendi fólk í samkeppni um fasteign í tilboðsgerð. Fyrir fólk sem
hefur samastað annars staðar en í fasteigninni sem þarf að selja
þá ættu þeir aðilar alvarlega að hugsa um að selja fyrst. Margir
hafa einnig farið þá leið í dag að setja á sölu án þess að vera með
annað og ef það kemur gott tilboð í eignina þeirra þá hefur það
verið samþykkt með fyrirvara um að seljandi nái að festa sér
aðra fasteign innan mánaðar frá samþykki kauptilboðsins.
Finni seljandinn ekki fasteign á þeim tíma hefur hann heimild
til að rifta sölunni. Þessi leið hefur reynst alveg gríðarlega vel
en það heyrir til algerra undantekninga að sölu sé rift eftir
svona samning. Langflestir finna sér aðra eign á tímanum,
semja um lengri frest til að leita eða endursemja um góðan af-
hendingarfrest og dæmið þannig látið ganga upp. Fólk virðist
sýna hvert öðru extra mikinn skilning í þessu ástandi sem nú
ríkir hvað varðar skort á framboði, enda allflestir af vilja gerðir
til að láta dæmin ganga.“
Hvernig verður 2021 á fasteignamarkaðnum?
„2021 verður gott ár á fasteignamarkaðnum. Það munu
margar eignir koma á sölu en við höldum áfram að sjá það sem
hefur verið að gerast, framboðið á hverjum tímapunkti er lítið.
Ástæðan er sú að eignirnar seljast nánast jafnóðum. Þegar sal-
an er eins hröð og hún er í dag þá er alltaf eins og ekkert sé á
sölu en þeir sem fylgjast vel með markaðinum og skoða fast-
eignavefina daglega þeir munu finna eign sem hentar. Það þarf
bara að bregðast hratt og vel við þegar rétta eignin kemur og
þar getur undirbúningurinn skilað miklum árangri. Þá stefnir
líka í að árið fari í sögubækurnar tæknilega séð þegar fyrsta
rafræna kaupsamningnum verður þinglýst, nái markmið þeirra
aðila sem koma að því fram að ganga.“
Í
Skarðshlíð í Hafnarfirði er talsvert af nýjum íbúðum á leið
á sölu á næstu vikum og mánuðum. Við Geislaskarð og Há-
degisskarð eru að koma tvö meðalstór fjölbýli og einnig eru
minni fjölbýli við Stuðlaskarð að koma á sölu með vorinu.
Þá hefur verið að koma eitt og eitt sérbýli í hlíðinni sjálfri
og má vænta þess að fleiri slíkar eignir komi á sölu á næstu
mánuðum,“ segir Aron Freyr og bætir við að þessar íbúðir
henti stórum hópi.
„Þetta eru sambærilegar íbúðir og áður hafa komið á sölu á
svæðinu, þ.e. 2ja, 3ja og 4ra herbergja en nú bætast einnig örfá-
ar 5 herbergja íbúðir í flóruna. Lyftur eru í stærri fjölbýlum og
minni fjölbýlin eru með íbúðum sem hafa sérinngang. Það má
því segja að íbúðirnar henti öllum sem eru í fyrstu kaupum, að
stækka eða minnka við sig og eins fyrir fólk með dýr,“ segir
hann.
Hefur verið mikill íbúðaskortur í Hafn-
arfirði?
„Já, það hefur verið talsverður
íbúðaskortur í Hafnarfirði síðastliðin
ár sem sýnir sig best á söluhrað-
anum á þeim fáu nýbyggingum sem
hafa komið á sölu undanfarin ár.
Mér er sérstaklega minnisstætt
þegar Bjarkavellir 1B fóru á sölu
2014 en það voru 25 íbúðir sem seld-
ust upp á einum sólarhring. Sami verk-
taki byggði svo þrjú svipuð hús til við-
bótar á árunum 2015-2017 og þau seldust öll
án þess að við næðum að setja þau í auglýsingu,
eftirspurnin var slík. Sama átti við um megnið af
fjölbýlunum við Kirkjuvelli 8-12 sem byggð voru í kringum
2018. Nýjustu dæmin eru svo við Brenniskarð 1 þar sem allar
íbúðir seldust á fimm dögum og svo við Hraunskarð 2-8 og Há-
degisskarð 4-6 nú í byrjun þessa árs en þau fjölbýli voru seld
upp áður en auglýsingasíðan fyrir húsin var tilbúin til birtingar.
Þessi dæmi sýna svart á hvítu hversu mikill íbúðaskorturinn
hefur verið en vonandi munu nýbyggingarnar sem koma inn
næstu mánuði og ár hjálpa til við að ná betra jafnvægi á mark-
aðinn í Hafnarfirði,“ segir hann.
Hvernig er útlitið með nýbyggingar í Hafnarfirði ef horft er
lengra fram í tímann?
„Á næsta ári má búast við fyrstu íbúðunum á sölu í Hamra-
nesi, sem er næsta hverfi við Skarðshlíðina, en þar tók Bygg-
ingarfélag Gylfa og Gunnars fyrstu skóflustunguna fyrir nokkr-
um dögum. Í því hverfi verða byggðar 1.200 – 1.500 íbúðir.
Húsnæðis-
skortur í
Hafnarfirði
Aron Freyr
Eiríksson.
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021
Það sem heillar á heimilum fólks
eru oft og tíðum sniðugar hug-
myndir. Hér er ein afar góð í íbúð
í Toronto í Kanada. Til þess að
nýta hvern fermetra sem best er
búið að setja vinnuaðstöðu undir
stiga. Þetta pláss hefði án efa ekki
nýst í neitt nema fyrir drasl. Í
stað þess settu húsráðendur borð-
plötu, skápa og hillur þannig að
börnin geta lært eða litað. Hægt
er að útbúa svipað horn með ein-
ingum úr eldhúsdeild IKEA.
Nýttu
plássið
undir
stiganum
Hér er rýmið undir
stiganum nýtt á
heillandi hátt.
MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR
Hafðu samband
info@husavidgerdir.is - Sími 565-7070
Finndu okkur á
ALHLIÐAMÚRVERK
ÞAKVIÐGERÐIR
GLUGGASKIPTI