Morgunblaðið - 26.02.2021, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021
Heimilisljósmyndir
eiga að veita
ákveðna upplifun
Gunnar Sverrisson er einn færasti heimilisljósmyndari landsins.
Hann hefur gefið út fjölmargar heimilisbækur ásamt eiginkonu sinni,
Höllu Báru Gestsdóttur húsahvíslara. Í dag gerir hann mikið af því að
taka fasteignaljósmyndir fyrir fólk sem hyggst selja eign sína.
Marta María | mm@mbl.is
Gunnar segir að heim-
ili Þórunnar og fjöl-
skyldu sé afar glæsi-
legt og það hafi verið
gaman að mynda það.
Gunnar myndaði
heimili Þórunnar
Anspach og fjöl-
skyldu 2018. Þá
bjó fjölskyldan í
New York en núna
búa þau í París.
H
vað finnst þér skipta mestu máli þegar
fasteignaljósmyndir eru annars vegar?
„Fyrir mér eiga þær að veita ákveðna
upplifun. Þær eiga ekki að reyna að sýna
allt rýmið. Frekar að reyna að leiða þann
sem skoðar myndirnar í einhvern sannleika um hvernig
allt er í raun. Það er meira spennandi að reyna að búa
til hughrif og upplifun af eigninni, svipað og þegar þú
ert að skoða hótel á ferðalagi, skilja smá spennu eftir
þegar þú kemur og sérð síðan í raun. Myndir hafa mikil
áhrif og þessi áhrif skipta máli þegar þú ert að selja
stærstu eignina þína, heimilið þitt – ég á erfitt með að
skoða myndir þar sem reynt er að búa til eitthvert
raunsæi í þessum efnum, því augað skynjar rými betur
en fiskaugalinsa,“ segir Gunnar.
Finnst þér fólk spá nægilega mikið í það að það séu
góðar myndir af fasteigninni?
„Ég vinn aðallega fyrir arkitekta og svo vinnum við
hjónin í okkar útgáfu, en það hefur færst í vöxt að ég
myndi fasteignir sem eru á leið í söluferli. Líklega vill
það fólk fá öðruvísi nálgun, svipaða og ég nefni hér að
framan, en með því er ég ekki að segja að mín nálgun
sé eitthvað betri en önnur, smekkur mun alltaf ráða för,
sem betur fer, upp á fjölbreytileikann. En mér finnst að
þeir sem eru að selja, og þeir sem vinna fyrir þá sem
eru að selja, megi hugsa meira um þennan hluta, því
Fyrir fólk á
fasteignamarkaði
Suðurlandsbraut 52, 108 Rvk.
Sími 533 6050 / Fax 533 6055
www.hofdi.is
Runólfur
Gunnlaugsson
lögg. fast.
Ásmundur
Skeggjason
lögg. fast.
Brynjar
Baldursson
sölufulltrúi
Jóhann Friðgeir
Valdimarsson
lögg. fast.
Kristinn
Tómasson
lögg. fast.