Morgunblaðið - 26.02.2021, Side 20
Það er hægt að gera margt skemmtilegt með málningu eins og
sést á barnaherberginu.
K
ristjana býr ásamt eiginmanni sínum og
þremur börnum í Vesturbænum. Fjölskyldan
flutti fyrir ári síðan og gerði íbúðina upp á
mettíma eða á þremur vikum. Þeir sem hafa
staðið í svona brasi vita að þetta á eiginlega
ekki að vera hægt.
„Við fluttum fyrir ári síðan og fórum í töluverðar fram-
kvæmdir. Við færðum eldhúsið, stækkuðum fjölskyldu-
baðherbergi, skiptum um gólfefni, opnuðum á milli rýma
og breyttum skipulagi. Það má eiginlega segja að við höf-
um gert þetta á mettíma,“ segir Kristjana.
Þegar Kristjana er spurð að því hver galdurinn sé við
það að gera upp heila íbúð á þremur vikum segir hún að
það snúist um skipulag en játar að hún búi að því að vera
sjálf arkitekt og þekki því verkferla vel.
„Þetta snýst fyrst og fremst um að vera með iðnaðar-
menn sem maður treystir og þeir mæti á réttum tíma.
Við vorum búin að stilla öllu upp þannig að þetta gengi
eins smurt fyrir sig og hægt er. Á þessum tíma í fyrra
var óveður og alls konar sem setti strik í reikninginn og á
Hefur flutt tíu
sinnum síðan 2007
Kristjana M. Sigurðardóttir arkitekt hjá Tark arkitektum hefur flutt tíu sinnum
síðan 2007. Hún segir að það eina leiðinlega við að flytja sé að ferja kassa og
húsgögn á milli staða, allt annað við ferlið sé bara skemmtilegt og gefandi.
Marta María | mm@mbl.is
Íbúðin var búin að vera lengi á sölu
þegar Kristjana kom auga á hana.
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021
Dan V. S. Wiium
hdl., lögg. fasteignasali
sími 896 4013
Ásta María Benónýsdóttir
lögg. fasteignasali
sími 897 8061
Rakel Salóme Eydal
lögg. fasteignasali
sími 533 4040
Jón Bergsson
lögmaður og lg.fs.
sími 777 1215
Ármúla 21, 108 Reykjavík | sími 533 4040 | kjoreign@kjoreign.is | www.kjoreign.is
45 ára
Stofnað 1976
Vantar allar tegundir eigna á skrá