Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Síða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Síða 2
Hvenær byrjaðir þú að æfa körfubolta? Ég byrjaði í körfu átta ára en ég var ellefu eða tólf ára þegar ég fór að æfa hjá Brynjari Karli Sigurðssyni. Hvað er skemmtilegast við körfubolta? Að vera með liðinu, hjálpast að og skora. Hvernig er Brynjar sem þjálfari? Á æfingum getur hann verið mjög harður og öskrar á mann ef maður gerir mikið af mistökum. En þegar við erum ekki á æf- ingu er hann alveg andstæðan; mjög hress og segir brand- ara. Ég er mjög ánægð með hann. Hvað finnst þér þú hafa lært í gegnum æfingar, annað en körfubolta? Ég hef lært að vera ákveðnari, spila og vinna undir stressi, vera meiri leiðtogi innan og utan vallar og svo hef ég lært að þjálfa aðra. Í myndinni má sjá ykkur hafna gullverðlaunum, af hverju? Við vildum fá að spila við stráka, ekki bara til þess að fá meiri sam- keppni, heldur líka til að þeir lærðu að bera virðingu fyrir stelpum og sýna þeim að við erum jafningjar þeirra. Við vildum líka fá svör af hverju við máttum ekki keppa við stráka, en fengum það aldrei. Hvernig var að sjá myndina Hækkum rána? Mér fannst hún góð en það var skrítið að horfa á okkur en það var skemmtilegt líka. Hvað stefnir þú langt í körfunni? Ég væri til í að fara í háskóla í Bandaríkjunum og spila körfubolta þar og líka komast í landsliðið. Kannski fer ég í atvinnumennsku, við sjáum til. Ljósmynd/Helgi Kristjánsson EYBJÖRT ÍSÓL TORFADÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Að vera leiðtogi Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2021 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Fátt drífur á daga manns á þessum síðustu og verstu pestartímum; mað-ur fer lítið og hittir fáa, eins og aðrir löghlýðnir borgarar. Þá komadraumfarirnar í góðar þarfir enda veitir víst ekki af að lífga upp á grá- móskulega tilveruna. Almættið hefur verið svo almennilegt gegnum tíðina að senda mér reglulega áhugaverða gesti á þeim vettvangi sem margir hverjir hafa glatt mig og gert líf mitt innihaldsríkara. Nú síðast dreymdi mig einn slíkan, alræmdan matargagnrýnanda sem gekk undir nafninu Kokkblogg- arinn og hafði strokið úr söngleik sem Ívar Páll Jónsson, vinur minn og með- stjórnarmaður í ALAS-félaginu (Abraham Lincoln Appreciation So- ciety), er að semja – eða var að gera í draumnum. Þegar ég vaknaði bar ég þetta umsvifalaust undir Ívar og svo því sé til haga haldið þá er hann ekki að semja söngleik, þar sem þessi ágæti maður kemur við sögu. Alltént ekki enn. Kemst þó varla undan því úr þessu; ég gæti mögulega hjálpað að- eins til með söguþráðinn. Sé okkur félaga ljóslifandi fyrir mér prúðbúna á fremsta bekk í Borgarleikhúsinu á frumsýningunni með heilmynd af Abe gamla á milli okkar. Þriðji meðlim- urinn í ALAS-félaginu, Þóroddur Bjarnason myndlistarmaður, myndi að sjálfsögðu sjá um leikmyndina sem yrði kindarleg. Það sem Abe yrði stoltur af sínum mönnum. Kóngur vill sigla en byr hlýtur að ráða og áður en við förum lengra fram úr okkur þá skulum við staldra aðeins betur við drauminn. Kokkbloggarinn var sumsé sloppinn úr gæslu skapara síns og á reið að stöðva kappann áður en hann brenndi íslenskt veitingalíf til grunna með illmælgi sinni og eiturpenna. Fyrir lá að slóðin var eftir hann. Víða um lönd. Hvar er maður meiri hetja en í eigin draumum, þannig að ég gekk vita- skuld í málið. Mér var þó strax vandi á höndum; í fyrsta lagi var Ívar í baði, þannig að ég gat ekki látið hann vita, og í öðru lagi þá hafði elsti dvergur í heimi, ættaður frá Galapagoseyjum, komið sér makindalega fyrir í einu lyft- unni í þrjátíu hæða háhýsinu þar sem Ívar bjó, að því er virtist í Skerjafirð- inum – og harðneitaði að fara þaðan út enda biði hans þá bráður bani. Engu tauti varð við dverginn komið. Hann skyrpti bara tannholdi framan í lög- reglu. Inn í þennan trylli fléttuðust tvíburasystur sem bjuggu yfir vitneskju um ógurlegt leyndarmál sem gat komið Kokkbloggaranum á kné. Það vann þó gegn okkur að þær voru aðeins fjórtán mánaða og ekki enn farnar að tala. Annað var eftir þessu. Bíð spenntur eftir að mín verði vitjað á ný. Kokkbloggarinn leikur lausum hala Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Á reið að stöðvakappann áður en hannbrenndi íslenskt veitingalíftil grunna með illmælgi sinni og eiturpenna. Kristján Már Sæþórsson Alveg örugglega. Þónokkrar. SPURNING DAGSINS Ætlar þú að fá þér bollu um helgina? Kristín Eva Þórhallsdóttir Já. Bara eina. Jökull Jóhannsson Nei, ég er keto. Sigrún Thorarensen Örugglega. Tvær þrjár vatnsdeigs- bollur sem mamma bakar. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson Hækkum rána er ný íslensk heimildamynd eftir Guðjón Ragnarsson, framleiðandi Margrét Jónasdóttir og Sagafilm. Er hún um 8-13 ára gaml- ar stúlkur sem hafa sett markið á að brjóta niður menningarmúra körfu- boltahreyfingarinnar. Myndin er komin í Sjónvarp Símans Premium en verður einnig sýnd í opinni dagskrá sunnudaginn 14. febrúar kl. 20.35.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.