Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Qupperneq 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2021 Ég held að við eigum okkur flest ein-hverja svona minningu úr æsku. Þaðvoru að koma jól og við vorum búin að ákveða hvað við vildum fá í jólagjöf. Mögulega vorum við búin að gefa frá okkur skilaboð vikum og mánuðum saman um að þessi tiltekni hlutur væri nú allra hluta lík- legastur til að gera okkur glöð og kát. Það átti ekki að geta farið fram hjá foreldrum okkar að þetta væri lausnin á öllum vanda- málum lífsins. Stundum vissum við alveg að gjöfin væri kannski í stærra lagi og það var alltaf sá möguleiki að við myndum ekki fá hana. Það þarf náttúrlega að taka tillit til allra systk- ina og passa upp á efnahagsreikning jóla- gjafa til að valda ekki ójafnvægi. Það er aldrei gott þegar eitt barnið fær dýrari og fínni gjöf en öll hin. Þetta vitum við núna en þegar við erum börn þá gleymast stundum hlutir eins og jafnræði og jafnvægi. Börn eru ekki alltaf sérfræðingar í væntingastjórnun. Við verð- um bara að fá þennan pakka og því meira sem við hugsum um það, því eðlilegra verð- ur það. Smám saman erum við búin að selja okkur það að þetta bara hljóti að gerast. Jafnvel þótt pakkinn í geymslunni sé af stærð sem geti ómögulega innihaldið draumagjöfina. Börn eru svona. Þau hafa ekki enn þurft að velta svo mikið fyrir sér útgjöldum heim- ilisins, húsnæðislánum og allskonar óspenn- andi kostnaði sem fellur á stór heimili. Það er þeirra afsökun. Ég veit ekki alveg hvaða afsökun við höf- um, sem þjóð, yfir yfirspenningnum sem við fengum yfir risastóru Pfizer-jólagjöfinni. Sennilega þá að við urðum bara aftur börn að springa úr spenningi. Það lá aldrei fyrir að við fengjum þennan pakka og í raun var enginn búinn að segja neitt um það opinberlega. Það skipti okkur engu máli. Við létum okkur dreyma um heilbólusetta þjóð sem skoppaði um fjarlæg lönd á meðan ríkir útlendingar kæmu til Ís- lands og fylltu vasa okkar af peningum. Það hjálpaði svo sem ekki við væntinga- stjórn að margir voru með á hreinu ekki bara að við fengjum pakkann heldur líka hversu stór hann væri og hvenær hann kæmi. Fólk sem er venjulega ekki með neitt á hreinu lét sig ekki muna um að fara með flugnúmer og nákvæma staðsetningu á gjöf- inni sem væri fyrsta skref okkar til bólu- setts draumalífs. Síðustu vikur hefur varla nokkur rekið tá ofan í heitan pott án þess að þetta mál hafi komið til tals og alls stað- ar var fólk sem hafði „eftir áreiðanlegum heimildum“ að þetta væri klárt. Vissulega voru einhverjir sem fannst þetta aðeins of mikið iphone- ískóinn-mál og við hefðum líka engan rétt á að troða okkur fram fyrir röð. Við ættum bara að bíða róleg eftir því að röðin komi að okkur og sýna þolinmæði. Sem er vissulega sjónarmið en ekki þegar barn er á barmi sturlunar af spenningi yfir réttu jólagjöf- inni. En gjöfin kom ekki og við erum eins og vonsvikin börn. Faðir okkar, Kári Stef- ánsson, er búinn að segja okkur að við verð- um að sætta okkur við að þessi gjöf komi ekki þessi jól. Okkur finnst við svikin. Okk- ur finnst eins og hann hafi verið búinn að lofa þessu og við vorum orðin svo spennt og farin að hlakka svo mikið til. En stundum verðum við bara að sætta okkur við að við getum ekki fengið allt. En við vitum samt að innst inni eru margir að hugsa: En við eigum bráðum afmæli … ’Við létum okkurdreyma um heil-bólusetta þjóð sem skopp-aði um fjarlæg lönd á með- an ríkir útlendingar kæmu til Íslands og fylltu vasa okkar af peningum. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Gjöfin sem aldrei kom Samtök áhugafólks um spilafíkneiga óskipta aðdáun mína.Þau standa nú fyrir gríðar- lega öflugri vitundarvakningu um skaðsemi spilafíknar, hvernig hún hafi rústað lífi fjölmargra einstak- linga, sundrað fjölskyldum og valdið langvarandi vanlíðan og ógæfu. Og varla að undra, Alma Haf- steins, formaður samtakanna, hefur kynnt þjóðinni útreikninga sem sýna að á hverjum klukkutíma tapa spila- fíklar 434.063 krónum í spilakössum, það er að frádregnum vinningum. Og þegar þetta er margfaldað með klukkustundunum í heilu ári nemur þessi upphæð 3.721.000.000 krónum, þremur milljörðum, sjö hundruð tuttugu og einni milljón króna. Það eru miklir peningar þegar haft er í huga hve agnarsmátt hlutfall þjóðarinnar stundar þessar vél- ar, en samkvæmt ítarlegri könnun Gallup síðastliðið vor fara fáir í kass- ana. Af aðspurðum fóru aðeins 0,3% oftar en 11 sinnum á ári. En þeir fóru líka oft og töpuðu miklu. Rekstraraðilar spilakassanna höfðu hins vegar allt sitt á þurru, töpuðu engu nema ef vera skyldi ær- unni. Ekki kom æran þó til tals í spjalli Egils Helgasonar í bókaþætti hans, Kiljunni, í Sjónvarpinu í vikunni þegar hann rakti garnirnar úr Stef- áni Pálssyni, sagnfræðingi, sem kynnti nýja bók sína um sögu Happ- drættis Háskóla Íslands. Þar var vissulega, og réttilega, vísað til happdrættisins í árdaga þegar þjóðin sameinaðist um að kaupa miða til að styrkja uppbygg- ingu þjóðarháskólans. Sjálfur minn- ist ég þessa vel og er svo um marga enn að keyptir eru happdrættis- miðar gagngert til að styrkja gott málefni, hvort sem er Háskóla Ís- lands, SÍBS, Sjálfsbjörg eða önnur þjóðþrifasamtök. Inn í spilasali stígur hins vegar ENGINN til að styrkja gott málefni. Sumir rata þangað inn af rælni, aðrir forvitni en flestir vegna fíknar sinn- ar, sem hjá allt of mörgum gerist fyrr en varir sjúkleg í hæsta máta. Á þessa fíkn kunna framleiðendur kassanna að spila. Af vísindalegri nákvæmni – já vísindalegri, því að baki liggja miklar rannsóknir – eru hannaðir kassar sem tala til spilar- ans og æsa upp í honum langanir þar til hann missir stjórn á gjörðum sín- um. Heitin á svæsnustu búllunum, sem Happdrætti Háskóla Íslands rekur, eru Gullnáman og Háspenna. Nafngiftirnar segja sitt. „Nú eru 13 milljónir í pottinum“ er sagt undir blikkandi auglýsingu um „slot mach- ines“ Siðfræðistofnunar Háskóla Ís- lands! Að líkja þessari ósiðlegu starfsemi við gamla Happdrætti Háskóla Ís- lands er varla góð sagnfræði, og undarlegt að fjölmiðlamaður horfi í þögn fram hjá þessum staðreyndum sem augljósar mega vera. Hugaður einstaklingur, Guðlaug- ur Karlsson, reyndi að fara með mál sitt fyrir íslenska dómstóla, eftir að hann tapaði eignum sínum og heilsu, og síðan til Mann- réttindadómstóls Evrópu, en var vís- að frá. Það hygg ég að sé tímabundin afstaða dómstóla. Ásetningur rekstr- araðila spilakassa er nefnilega svo augljóslega til ills, að hafa fé af fólki, sem ekki er sjálfrátt gerða sinna, að varla getur verið að standist grund- vallarlög. „Einhvers staðar er réttur minn,“ sagði við mig magnaður maður, verktaki sem tapað hafði aleigunni, áður en hann vissi af, sökum spila- fíknar maka síns. Hann vann með sín jarðvinnslutæki dag og nótt en hún sá um bókhaldið þar til hún missti stjórnina. Aldrei heyrði ég þennan vin minn hallmæla konu sinni. Hann gerði sér grein fyrir því að hún hafði ekki stjórn á gjörðum sínum. En þungt var í honum gagnvart Rauða krossinum og öðrum stofnunum og samtökum sem hagnast höfðu á fíkn hennar. SÁÁ á heiður skilinn fyrir að hafa stigið út úr þessum rekstri. Við, sem viljum Rauða krossinum, Slysa- varnafélaginu Landsbjörg og Há- skóla Íslands allt hið besta, bíðum þess að hið sama gerist á þeim bæj- um. Og í dagblöðunum er nú spurt hvernig alþingismenn ætli að axla sína ábyrgð. Spilavítin eru sannar- lega starfrækt á ábyrgð ríkis- stjórnar og Alþingis. Beðið er svars. Morgunblaðið/Árni Sæberg Alma reiknar, Stefán skrifar og Egill spyr Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’Og í dagblöðunumer nú spurt hvern-ig alþingismenn ætliað axla sína ábyrgð Töfrar eldamennskunnar byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.