Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Page 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Page 8
ÚTTEKT 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2021 Á heildina litið skynja ég mikinn metnað í grunnskólum og kær- leika og umhyggju kennara fyrir nemendum. Ég tel að allir séu að reyna að gera sitt besta og það á líka við um skólastjórnendur, mennta- og menn- ingarmálaráðuneytið, Menntamálastofnun og þá sem koma að skólastarfi almennt. En það er ekki þar með sagt að „besta“ fólkið sé endilega í réttum stöðum því við vitum að það þarf sterka leiðtoga til að breyta, þegar breytinga er þörf.“ Þetta segir Þorgrímur Þráinsson rithöfundur en í fjórtán ár hefur hann markvisst boðið nem- endum í 10. bekk upp á fyrirlesturinn, Verum ástfangin af lífinu, skólum að kostnaðarlausu. Mörg fyrirtæki sýna þó samfélagsábyrgð í verki og undanfarin ár hafa N1 og Brim sýnt Þorgrími traust og stutt við bakið á honum og um leið skólum landsins. Árlega nær hann að hitta um 4.600 nemendur og því hafa yfir 60.000 hlýtt á fyrirlesturinn sem tekur breytingum frá ári til árs. „Ég held líka að langflestir foreldrar séu að gera sitt besta en það hefur eigi að síður verið ákveðin lenska að varpa mestri ábyrgð yfir á skólana. Þótt umræðan síðustu misseri hafi snú- ist um vanda drengja í skólakerfinu, hvernig megi bæta um betur og hvar ábyrgðin liggi, kýs ég að horfa á heildarmyndina, orsök og afleið- ingu, og marga litla hluti sem geta skipt sköp- um, allt frá því að barnið tekur fyrsta andar- dráttinn. Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi!“ Að dómi Þorgríms erum við heppin að búa á Íslandi og þótt víða í samfélaginu sé blússandi metnaður, drifkraftur og frumkvæði leynist líka agaleysi, leti, röng forgangsröðun, einkavina- væðing, skortur á hugrekki og leiðtogum. Hann kveðst sjálfur hafa verið hluti af þessu vanda- máli og vissulega séum við ósátt við niðurstöður kannana á stöðu sumra nemenda. Enn eimi af þeirri hugsun að allt muni reddast af sjálfu sér. Þegar spjótin beinast að okkur hætti okkur til að fara í vörn og þrjóskan taki yfir. Hann segir að fólk í valdastöðum ætti oftar að leita til þeirra sem hafa verið í grasrótarvinnu áratug- um saman. Sannur leiðtogi fagni gagnrýni og virki þá í kringum sig sem vita betur. Foreldrar leggi meira á sig „Við foreldrar berum fyrst og fremst ábyrgð á velferð barna okkar og verðum að bregðast við, leggja meira á okkur ef við teljum skólann ekki standa sig nógu vel. Skoðanir okkar mótast af okkar eigin reynslu, hvernig komið er fram við börnin okkar í skólanum og annars staðar og við höfum, án efa, rétt fyrir okkur að einhverju leyti. Við fullorðna fólkið vitum að mesta glíman í lífinu er glíman við okkur sjálf. Stundum er álagið, stressið og hraðinn svo mikill að við bug- umst og treystum því að aðrir taki við keflinu. Við verðum öll að vera á vaktinni og hjálpast að.“ Þorgrímur segir þá staðreynd að í kringum 13.000 tilkynningar berist til barnaverndar- nefnda árlega vera ákveðinn áfellisdóm yfir samfélaginu. „Það eru 35 tilkynningar á dag! Það sem birtist á samfélagsmiðlum endur- speglar ekki þetta ástand en á þeim virðist allt vera í lukkunnar velstandi. Vanlíðan er falin og vandamál blasa ekki við en við verðum að tala um hvorutveggja, hvort sem þau lúta að okkur sjálfum eða börnunum.“ Hann segir brýnt að setja börnum mörk, þau þurfi reglur og aga, ekki síst að temja sér sjálfs- aga en við fullorðna fólkið höfum oftar en ekki verið of upptekin og því haft minni tíma fyrir börnin. Fjölmargar fjölskyldur séu reglulega í vanda en þá ætti að vera tími til að forgangs- raða upp á nýtt. Sumir séu guðslifandi fegnir þegar þeir fái andrými á meðan barnið hangir í símanum eða tölvunni. „En það sorglega er að þegar þau festast í þessum græjum klukkutím- um saman er verið að ræna þau lífinu.“ Raunverulegt líf er alls ekki það sem blasir almennt við á samfélagsmiðlum unga fólksins, að dómi Þorgríms. Hann skorar á foreldra að horfa á heimildarmyndina „Social dilemma“ á Netflix. „Þegar Instagram og Snapchat, og hvað þetta allt heitir, fór á flug í kringum 2009 jókst sjálfsskaði 10-14 ára stúlkna í Bandaríkj- unum um 189% og sjálfsmorðstíðni sama ald- urshóps um 151% fram til ársins 2017.“ Þorgrímur segir vegferð hvers einstaklings stjórnast af sjálfsmyndinni. Við foreldrar gæt- um spurt okkur hvað við gerum daglega til að þess að hjálpa börnum okkar að styrkja sjálfs- myndina, efla sjálfstraustið, skapa traust til þess að barnið treysti okkur fyrir því sem hrjáir það. Skólasamfélagið ætti að spyrja sömu spurninga en sumir nemendur verða utangátta í skólanum, af ýmsum ástæðum. Kannski skorti áskoranir og kveikjur við hæfi sem tengjast áhugamálum þeirra. Fimm lykilþættir „Reynslan segir mér að fimm lykilþættir skipta mestu máli hjá börnum: Dagleg kröftug hreyf- ing, hollur matur, nægur svefn, félagsleg virkni og læsi. Læsi er eitt mikilvægasta lýðheilsumál þjóðarinnar. Er ekki líklegt að þar liggi einmitt hundurinn grafinn, vandi drengja? Vísinda- greinar hafa sýnt fram á að nemandi þurfi að skilja 98% orða í texta til að ná samhenginu, skilja efnið. Ef rúmlega 34% drengja geta ekki lesið sér til gagns, segir það sig ekki sjálft að orðaforðinn er dapur? Hvað ætlum við foreldrar að gera í því? Bíða eftir að skólinn bjargi börn- unum? Kennarar eru að leggja sig fram en þeir eru flestir með yfir tuttugu ólíka nemendur í bekk í skóla án aðgreiningar,“ segir Þorgrímur. „Er nýtt orð límt á ísskápinn (á vegg eða skrifað í stílabók) á degi hverjum og rætt við börnin um þýðingu orðsins? Er orðaveggur í skólastofunni sem nemendur fylla út ef þeir skilja ekki nýtt orð í kennslustund? Það að læra fimm ný orð á dag, utan skólastofunnar, þýðir 1.825 ný orð á ári. Liggur það ekki í augum uppi að lesskilningur myndi batna verulega ef þessu væri sinnt af kostgæfni?“ En hvaða bækur, texta, eiga börnin að lesa? „Í bókinni Bókahvíslarinn eftir kennarann Donalyn Miller, sem kennd hefur verið í 6. bekk (12 ára krakkar) í Bandaríkjunum í áratugi, segir að það skipti öllu máli að börn lesi bækur sem tengjast áhugamálum þeirra. Hennar nem- endur lásu flestir 40 bækur á ári. Af hverju þurfa allir nemendur að lesa Gísla sögu Súrs- sonar eða Engla alheimsins eða Tár, bros og takkaskór? Jú, hugsanlega til að ræða um sam- félagsmál, geðheilbrigðismál eða þau gildi sem verkin endurspegla. Myndi það frekar kveikja neista ef nemendur fengju að lesa bækur sem þá langaði virkilega að lesa, eins og Donalyn Miller bauð sínum nemendum upp á? Í kjölfar þess hækkuðu einkunnir hennar nemenda veru- lega, í samanburði við aðra bekki, af því orða- forði nemendanna varð miklu betri. Þar af leið- andi jókst lesskilningur og sjálfstraustið.“ Þorgrímur spyr um samfélagslega ábyrgð ríkisfjölmiðla hvað læsi varðar, og annarra fjöl- miðla. Ef vá sé fyrir dyrum, eins og augljóst er með vanda drengja, hvers vegna verja ríkisfjöl- miðlar ekki örfáum mínútum af auglýsingatím- anum á hverjum degi í að halda okkur for- eldrum við efnið með hvatningu og áskorunum? „Við foreldrar þurfum að láta minna okkur á hvað skiptir mestu máli – uppeldi barna okkar, ást og kærleikur. Covid-19 hefur tröllriðið sam- félaginu og það bitnar mest á börnum og ungu fólki, eins og dæmin sanna. Og fjölmiðlar upp- lýsa okkur reglulega um stöðu mála til að hjálpa okkur. Ef brotabrot af auglýsingatíma fjölmiðla færi í hvatningu til foreldra, væri um samfélags- lega ábyrgð að ræða. En flestir eru stikkfrí. Hverjir eiga að lesa fjölmiðla framtíðarinnar?“ Lært mikið af Hermundi Þorgrímur segir ekkert launungarmál að hann hann hafi lært heilmikið af Hermundi Sig- mundssyni, prófessor í lífeðlislegri sálfræði við Háskólann í Þrándheimi og Háskólann í Reykjavík. Hann vitni sífellt í vísindagreinar og fræðimenn sem eiga fleiri hundruð birtar vísindagreinar að baki. Með dugnaði og þraut- seigju hafi honum tekist, ásamt Tryggva Hjaltasyni, að fá Vestmannaeyjabæ til liðs við sig og stofna rannsóknarsetur í Vestmanna- eyjum undir yfirskriftinni Kveikjum neistann – áhugahvöt og árangur. „Þetta hefði aldrei orðið að veruleika nema vegna þess að Hermundur og Tryggvi sýndu dugnað og þrautseigju og ekki síst Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri sem sá tækifæri til þess að Vestmannaeyjar yrðu í fararbroddi og fyrirmyndarsamfélag. Þetta eru leiðtogar sem fengu Samtök atvinnulífsins, Há- skóla Íslands og mennta- og menningar- málaráðuneytið með sér í lið. En frumkvæðið kom frá einstaklingum sem höfðu ástríðu fyrir því að það þurfti að taka á vandanum. Þeir sem sinna grasrótinni, eru á gólfinu, vita hvað þarf að bæta. Harry Truman, 33. forseti Bandaríkj- anna, sagði eitt sinn: „Það er með ólíkindum hverju þú færð áorkað í lífinu ef þér stendur á sama um hver fær heiðurinn af því!““ Þorgrímur bendir á, að vísindin segi að fyrstu 1.000 dagarnir í lífi barnsins skipti mestu máli. „Hvað gerum við fyrstu þrjú árin í lífi barnsins til að búa það undir það sem koma skal? Rann- sóknir sýna að við ættum að nefna um 1.200 orð við barnið á hverjum einasta degi frá fæðingu, við eigum sífellt að tala við barnið. Ég hafði ekki hugmynd um þetta þegar mitt föðurhlutverk hófst.“ Og hvernig hreyfum við börnin þessa fyrstu 1.000 daga til að þau ánetjist því að hreyfa sig kröftuglega, daglega þegar fram líða stundir? Hvaða þekkingu höfum við foreldrar á því hvers konar hreyfing örvar þær heilastöðvar sem skipta mestu á þessum árum? Að sögn Þor- gríms skora leikskólar á Íslandi hátt í saman- burði við aðra leikskóla í Evrópu hvað varðar faglegt starf samkvæmt nýlegri úttekt. Það sé mikil viðurkenning en í úttektinni var hvergi minnst á mikilvægi skipulagðrar hreyfingar. Strákar oft stikkfrí Hann segir að það skólafólk, sem hann hafi rætt við undanfarin ár, virðist vera sammála um að það vanti dugnað og þrautseigju í fjölmarga drengi og vitanlega líka stúlkur; að nemendur gefist of fljótt upp þegar á móti blæs. Eflaust séu ástæðurnar margvíslegar en hann hafi leitað svara í skólum landsins og svörin séu fjölþætt. Morgunblaðið/Árni Sæberg Heil kynslóð er í húfi! „Ef við ætlum að standa okkur vel í því að ala upp heilbrigðar og bjartar kynslóðir, kostar það skýra sýn, framkvæmdavilja og fjármagn. Og foringja!“ segir Þorgrímur Þráinsson rithöfundur um vanda drengja og skólakerfisins yfirhöfuð. Honum virðist að drengi vanti hlutverk, hugsanlega heima við og í skólanum. Þá velti áhugi barna oft meira á kennaranum en námsefninu. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Við foreldrar berum fyrst ogfremst ábyrgð á velferð barnaokkar og verðum að bregðast við,leggja meira á okkur ef við teljum skólann ekki standa sig nógu vel. „Ég held að langflestir foreldrar séu að gera sitt besta en það hefur eigi að síður verið ákveðin lenska að varpa mestri ábyrgð yfir á skólana,“ segir Þorgrímur Þráinsson.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.