Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Qupperneq 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Qupperneq 15
una. Ég er búinn að laga mig að því. Ég var til dæmis alveg búinn eftir jólin, leið eins og ég hefði staðið tólf tíma vaktir, þó ég hefði ekki gert neitt nema að elda fyrir fjölskylduna. Ég fæ líka reglulega kláðaköst og höfuðverk. Lyktarskynið jókst líka mánuðum saman sem var óþægilegt en hefur lagast aftur. Ég hefði fundið rakspíralyktina af þér út á bílaplan.“ Hann hlær. Jafnvægisskynið er heldur ekki eins og það var. „Ég get til dæmis ekki gengið niður stiga án þess að nota handrið, rekst stundum utan í fólk og má ekki sjá þröskuld án þess að rekast á hann. Annars er ég heppinn að meinið er hægra megin en ekki vinstra megin, þar sem vitsmunirnir, málið og annað er.“ Margt fleira hefur breyst á þessu rúma ári. Sjón og heyrn eru til dæmis farin að gefa sig aðeins hjá Óskari. „Það er víst algengt með þennan sjúkdóm en getur lagast aftur með tímanum. Ég fékk aftur leyfi til að keyra bíl í sumar en treysti mér ekki til þess í myrkri. Ég á líka svolítið erfitt með fjölmenna Zoom- fundi. Svo er það eiginlega undarlegasta hlið- arverkunin, handkuldi. Hendurnar á mér verða alltaf eins og frostpinnar skömmu eftir að ég vakna á morgnana og mér hlýnar ekki fyrr en um hádegi. Stundum fer ég í vettlinga en best þykir mér að sitja hreinlega á hönd- unum meðan þetta gengur yfir. Mér líður best þannig. Læknarnir hafa engar skýringar á þessu; heilinn er bara að senda röng skilaboð.“ Forðast áreiti og stress Persónuleikabreytingar geta fylgt krabba- meini við heila og Óskar hefur ekki farið var- hluta af því. „Konan mín segir að karakterinn hafi breyst hjá mér síðustu mánuði; ég sé kald- ari og beinskeyttari en áður. Hegði mér stund- um eins og að ég búi einn.“ – Finnurðu sjálfur fyrir þessu? „Já, ég geri það. Að einhverju leyti. Ég vona bara að þetta komi ekki niður á fjölskyldunni sem hefur verið mín stoð og stytta í þessu verkefni. Mestu máli skiptir að forðast áreiti og stress, þá gengur mér best að halda þessu niðri.“ Eiginkonan og börnin vinna nú hörðum höndum að því að setja á laggirnar nýjan veit- ingastað, Finnsson bistró, í Kringlunni. Stefnt er að opnun í apríl eða maí. ,,Ég hef rosalega gaman af því að fylgjast með og miðla minni þekkingu og reynslu. Krakkarnir vildu endi- lega láta staðinn heita Finnsson bistró því Finnsson var okkar fjölskyldunafn þegar við bjuggum erlendis. Mér fannst sú tilhugsun mjög óþægileg fyrstu tvo til þrjá mánuðina en féllst á nafnið eftir að vinir okkar bentu á að þetta væri fjölskyldufyrirtæki og ætti frekar að heita fjölskyldunafninu heldur en einhverju pink-ponk-nafni. Ég hlakka mikið til að opna þennan nýja stað með þeim og mun standa þar eins og heilsan leyfir.“ Enginn veit hversu lengi það verður en eftir að MRI-skanninn hafði gefið óbreytt ástand til kynna í nokkur skipti fékk Óskar verri fréttir eftir reglubundið eftirlit nú í byrjun febrúar. „Læknarnir sáu einhverja breytingu sem þeir voru ekki ánægðir með. Eitthvað virðist vera komið af stað. Við vitum ekki meira í augna- blikinu enda ekki hægt að rannsaka þetta bet- ur en læknarnir vilja nú fá mig í eftirlit á mán- aðarfresti í stað þriggja mánaða áður, til að geta fylgst betur með mér. Þetta sló okkur auðvitað aðeins út af laginu; ég átti ekki von á að fá þessar fréttir fyrr en eftir eitt eða tvö ár. Þetta var svolítið eins og að horfa á mína menn í Liverpool keppa við Manchester City um síð- ustu helgi. Ég hélt auðvitað að Liverpool myndi vinna og eftir að þeir jöfnuðu, 1:1, þá var ég ekki í vafa um að við næðum að minnsta kosti jafntefli. Þá gerðist hið ómögulega – það komu þrjú mörk í röð frá City. En svona er líf- ið.“ Mun aldrei gefast upp Óskar segir þessar fréttir þó engu breyta um sína afstöðu til verkefnisins sem hann hefur tekist á hendur. Eftir sem áður sé mikilvægt að setja sér markmið. „Ef eitthvað er, þá er ég bara ákveðnari í að standa mig enn betur. Ég er kominn með eitt ár og ætla mér að fara í tvö ár og síðan þrjú. Það kemur ekki til greina að gefast upp. Ég mun aldrei hætta að leita að kraftaverkinu og myndi glaður ganga berrass- aður niður Laugaveginn til að fá bata,“ segir hann glottandi. Hann hefur löngu valið sína nálgun; ætlar að glíma keikur við meinið með jákvæðnina að vopni. „Þetta er svo mikið undir okkur sjálf- um komið. Þegar kallið kemur og ég þarf að fara að sinna veislum annars staðar, þá get ég með góðri samvisku sagt: Ég gerði mitt besta!“ Völundur Snær Völundarson kokkur, Hafliði Ragnarsson bakari, Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, og Óskar. Myndin er tekin fyrir jólin 2019 þegar þremenningarnir voru að dæma í Kökukeppni Morgunblaðsins. Óskar í eldhúsinu á GOTT Reykjavík þremur tímum áður en hann fór á bráðamóttökuna. Óskar skömmu eftir uppskurðinn í janúar 2020. Óskar á spítalanum og María við sjúkrabeðinn. Morgunblaðið/Eggert Óskar í fataherberginu heima. Hann er forfall- inn áhugamaður um föt. Margir tengja Óskar Finnsson við Arg- entínu steikhús í miðbæ Reykjavíkur enda var hann lengi viðloðandi staðinn. „Ég byrjaði sem kokkur á Argentínu í október 1989. Þá um áramótin tókum við hjónin staðinn á leigu ásamt Kristjáni Þór Sigfússyni og Ágústu Magnúsdóttur og ári síðar keyptum við hann og rákum fram til ársins 2003, en þá fluttum við fjölskyldan til Bretlands og Kristján og Ágústa héldu áfram með Argentínu. En auðvitað var ég viðloðandi Argentínu í nokkur ár á eftir.“ Spurður hvers vegna fjölskyldan hafi flutt utan svarar Óskar því til að þau hafi langað til að víkka sjóndeildarhringinn og fá ennþá meira út úr lífinu. „Við höfðum velt þessu fyrir okkur um tíma en ákvörðunin var tekin á einu kvöldi heima í stofu. Hingað og ekki lengra, nú flytjum við út! Við hjónin sögð- um engum frá þessu til að byrja með, laumuðum okkur af og til út til London að kíkja á húsnæði. Sögðumst vera að fara á Herbalife-ráðstefnur.“ Hjónin áttu stórt einbýlishús í Selja- hverfinu sem þau seldu. Ekki þótti öllum það ráðlegt. „Faðir minn botnaði til dæmis ekkert í þessu. Hvað ætlarðu að gera ef þetta gengur ekki upp, drengur? spurði hann. En ég hafði þörf fyrir að upplifa heiminn og varð hreinlega að gera þetta.“ England varð fyrst fyrir valinu, bærinn Guildford, suður af Lundúnum. „Þar var frábært að vera,“ segir Óskar sem hafði í nógu að snúast í matreiðslunni. Og þau drukku breska menningu í sig af áfergju. „Það gekk meira að segja svo langt að þegar Vilhjálmur prins og Katrín giftu sig þá klæddum við Finnur sonur minn okkur upp á, mættum á staðinn og sáum þau aka hjá. Það verður alltaf ein- hver Breti í okkur.“ Leiðin lá til Barcelona árið 2011, þar sem fjölskyldan bjó til 2016. „Það var dásamlegt að vera þar líka. Við vorum ekkert á leiðinni heim, leið alveg ljóm- andi vel í stuttbuxum, en mér barst hins vegar mjög spennandi atvinnutilboð frá Íslandshótelum sem ég gat ekki hafnað. Segja má að Íslandshótel hafi keypt mig heim. Fyrir það er ég afar þakklátur því það var gaman að taka þátt í uppbygg- ingu fyrirtækisins og í ferðamannaupp- byggingunni almennt og síðast en ekki síst að fá tækifæri til að kynnast og vinna með fjölmörgu frábæru fólki.“ Óskar við eina frægustu hurð í heimi. Hann kunni afar vel við sig í Bretlandi. Nú flytjum við út! 14.2. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.