Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Blaðsíða 17
hyglisvert að sjá að einungis tók nokkra mánuði að
koma sér upp bóluefni gegn henni, og miðað við tak-
mörkuð afköst hennar hér (þar sem tveir og hugsan-
lega þrír eru taldir hafa látist hennar vegna, allir með
erfið undirliggjandi skilyrði) hefur varla verið eins
yfirþyrmandi þrýstingur á bóluefni og nú er.
Þá var sagt
Fréttir sem birtust hér og víða eru athyglisverðar og
ekki síst það sem haft er eftir „sérfræðingum“:
„Svínapest fer nú sem eldur í sinu um Suðaustur-Asíu
og hefur milljónum svína verið slátrað í Kína og Víet-
nam. Svínapestin breiðist hratt út og enn sér ekki fyr-
ir endann á faraldrinum. Sérfræðingar segja þetta
stærsta svínapestarfaraldur í sögunni og óttast að
baráttan gegn útbreiðslu sjúkdómsins sé töpuð.
Svínapestin er ekki hættuleg mönnum en hún á
rætur að rekja til Afríku. Faraldurinn hófst í Kína í
ágúst, þar sem finna má helming allra svína í heim-
inum. Sjúkdómurinn barst til Víetnam í janúar.
Í Kína hefur meira en milljón svínum verið slátrað
til að hindra útbreiðslu sjúkdómsins samkvæmt frétt
The Guardian. Engin bóluefni eru til við veikinni.“
Árið 2011 rifjaði „RÚV“ upp svínapestina tveimur ár-
um fyrr: „Fyrir tveimur árum óttuðust heilbrigðis-
yfirvöld um allan heim að H1N1-inflúensufaraldur
væri að brjótast út – það er svínaflensan svokallaða.
Lyfjaframleiðendur kepptust við að þróa bóluefni við
sjúkdómnum. Þegar það tókst loks lagði starfsfólk
lyfjaverksmiðja nótt við dag til að framleiða nægjan-
legt bóluefni til að koma í veg fyrir faraldurinn, sem
sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
óttuðust að yrði sérlega skæður. Svínaflensu-
faraldurinn var með vægara móti og fjölmargir tröss-
uðu að láta bólusetja sig. Norðmenn keyptu um það
bil 5,6 milljónir bóluefnisskammta fyrir andvirði átta
og hálfs milljarðs íslenskra króna. Á fréttavef Verd-
ens gang kemur fram að enn séu til 2,9 milljónir
skammta af lyfinu Panemrix. Ljóst er að þeir verða
aldrei notaðir, þannig að ekkert annað er til ráða en
að eyða þeim. Lyfjaskammtarnir eru metnir á rúm-
lega fjóra milljarða króna.“ Eitthvað var málum
blandið um pest og mannfólk í þessum fréttum. Og
nefndir fjórir milljarðar voru bara í litla Noregi og
má reyndar þegar margfalda þá tölu.
Búið í maí síðastliðnum
Í sumarbyrjun síðasta árs töldu menn veiruna komna
á seinustu metra og töldu tíma kominn á að útdeila
riddarakrossum fálkaorðunnar á sigurstund! Og við
vorum fæst búin að venja okkur á að nota grímur á
þessum punkti. Því sérfræðingar á heimsvísu gáfu út
yfirlýsingar um að almenningur ætti ekki að sækjast
eftir grímum því að gagnsemi þeirra væri mjög vafa-
söm. Síðar kom á daginn að þessar vísindalegu yfir-
lýsingar voru ekki gefnar út í bláinn. Það var einfald-
lega metið svo að þær væru nauðsynlegar ætti
yfirvöldum á hverjum stað að lánast að framleiða
nægjanlega margar grímur fyrir það góða starfsfólk
sem mest þyrfti á þeim að halda.
Lítill vafi er þó á því, að hefði sannleikurinn verið
sagður þá hefði almenningur stillt sig um grímusöfn-
un á meðan baráttufólk í innsta hring fengi forgang.
Það var allra hagur. Síðasta sérkennilega atvikið í
sérkennilegum grímudansleik var spánný yfirlýsing
helsta sérfræðilega yfirmanns Bandaríkjanna í bar-
áttunni við veiruna um að fólk þyrfti helst að vera
með þrefalda grímu til að hún kæmi að nægjanlegu
gagni. Hann og Biden yfirmaður hans voru þó báðir
bara með einfalda grímu þegar þeir gáfu út þennan
nýja þriggjagrímu veruleika, enda vilja þeir báðir
hafa málið einfalt núna, þótt þeir hafi verið tvöfaldir
áður og báðir jafnvel þrefaldir í roðinu þegar mikið lá
við.
Morgunblaðið/Eggert
’Þannig er talað um breska afbrigðið ogbætt við að það sé sérlega útsmogið. Bretar sjálfir tala um það þannig. Og enginnsegir að þeir séu að beita sjálfa sig rasisma.
En kannski hafi stimplarar ekki haft
hgmyndaflug til þess. En jafnvel við, sem
minnst vitum, teljum víst að breska afbrigðið
hefði aldrei orðið til, ef formóðirin, kórónu-
veiran sjálf, hefði ekki komið sér til Bretlands
frá Kína með viðkomu þar sem millilent var.
14.2. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17