Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2021
KÓRUNUVEIRAN
Börnin sem sendu
umboðsmanni barna
svör höfðu ýmislegt
að segja og mörg
lýstu áhyggjum sín-
um og kvíða.
„En eitt af því sem
skiptir mestu máli
hjá mér er fjöl-
skyldan og mig lang-
ar að geta hitt ömmu
mína og afa án þess
að hafa samviskubit
yfir að ég sé að gera
eitthvað af mér.“
„Þessir Covid-
tímar eru búnir að
vera hræðilegir. Ég
hata þessa veiru
meira en allt, hún er búin að
skemma 2020 og svo olli hún
svo miklum kvíða því pabbi
minn er í miklum áhættuhóp.“
„Það skal ég segja þér að það
var ROOOOOOOOSA leið-
inlegt að vera inni í hálfan mán-
uð bara að leika mér með hund-
inum eða spila tölvuleiki.“
„Þar sem þetta er síðasta ár-
ið manns í grunnskóla hef ég
áhyggjur af því að þegar ég fer í
framhaldskóla muni mér ganga
illa og jafnvel ekki skilja neitt
þar sem við erum búin að missa
af svo mikilli kennslu. Þetta ger-
ir mig stressaða og ég er búin
að vera svolítið kvíðin yfir
þessu.“
„Á þessum tímum hef ég ver-
ið mjög hrædd um að einhver í
fjölskyldunni minni eða einhver
fjölskylduvinur fengi veiruna.“
Börn segja frá
Embættið safnaði frásögnum barna umhvernig það sé að vera barn á tímumkórónuveirunnar, bæði síðasta vor og
svo aftur í lok árs og fram í janúar. Við sendum
bréf til allra grunnskóla og fengum heilmikið
af svörum en það kom okk-
ur á óvart að við fengum
fleiri svör núna en í vor,“
segir Salvör Nordal, um-
boðsmaður barna.
„Börn höfðu frjálsar
hendur um hvernig þau
tjáðu sig og gerðu þau það
með því að skrifa, teikna
eða búa til myndbönd. Þau
töluðu um mjög margt; um
Covid, óttann við Covid og
allar breytingarnar sem
faraldurinn hefur haft í för
með sér. Niðurstöðurnar
voru á þann veg að börnum
hefur liðið mun verr í þess-
ari síðari bylgju en í vor.
Þessar takmarkanir í haust
hafa komið illa við mörg
börn,“ segir Salvör og segir
það ríma við niðurstöður frá Barnavernd-
arstofu og hjálparsíma Rauða krossins.
Innsýn í heim barna
„Börnin fengu nokkur atriði til að styðjast við
og voru spurð um líðan í skólanum, samskipti
við vini, líðan á þessum tímum og svo voru þau
spurð hvort þau vildu segja eitthvað frá fjöl-
skyldu sinni,“ segir Sigurveig Þórhallsdóttir,
lögfræðingur hjá umboðsmanni barna.
„Mörg börn svöruðu þessum spurningum en
önnur tjáðu sig frjálst,“ segir Sigurveig og seg-
ir þau hafa fengið 116 svör í vor og 287 núna.
„Með þessu fáum við innsýn í heim barna,
daglegt líf þeirra og líðan á tímum kórónuveir-
unnar en þetta er ekki vísindaleg könnun.“
Kvíði og einmanaleiki
Salvör og Sigurveig segja frásagnirnar öðru-
vísi nú en í vor. Í vor hafi börn gjarnan talað
um að þau upplifðu rólega tíma og minna
stress.
„En núna síðast var talsvert annar tónn og
miklu fleiri sem töluðu um kvíða, þunglyndi,
leiða og einmanaleika. Það voru áberandi um-
skipti,“ segir Sigurveig.
„Við getum í raun bara spáð í ástæðurnar en
það var auðvitað farið að reyna meira á heim-
ilin í haust en í byrjun faraldursins,“ segir Sal-
vör og segir efnahagsþrengingar sjálfsagt
spila inn í og atvinnuleysi foreldra. Þá hefur
komið fram að með samkomutakmörkunum og
lokunum hafi áfengisneysla færst frá börunum
og inn á heimilin sem hafi mögulega verið ein
skýring á auknu ofbeldi og vanrækslu barna
eins og kemur fram í tölum Barnaverndar.
„Svo var líka komin þreyta yfir ástandinu,
en sum nefndu að þetta hefði verið spennandi í
byrjun. En svo finna þau fyrir leiða vegna
ástandsins og sum óttuðust að það myndi aldr-
ei taka enda,“ segir Sigurveig.
Andleg líðan slæm
„Við höfum átt samtal við sóttvarnayfirvöld en
takmarkanir á staðnámi, ekki síst í framhalds-
skóla, hafa reynt mikið á börn og unglinga,“
segir Salvör.
„Með þessum frásögnum fáum við vísbend-
ingar um ástand sem við þurfum að bregðast
við með einhverjum hætti. Á síðustu árum hef-
ur komið ítrekað fram að íslenskum börnum
líður ekki nógu vel og margt bendir til að
ástandið á síðustu mánuðum hafi aukið vanlíð-
an þeirra enn meira. Nákvæmlega hvernig við
eigum að bregðast við er úrlausnarefnið á
næstunni en það er ljóst að kennarar og aðrir
sem vinna með börnum þurfa að átta sig á að
mörg börn geta átt erfiða tíma fram undan,“
segir Salvör.
„Við fylgjumst með þeim gögnum sem opin-
berir aðilar birta um stöðu barna en það skort-
ir talsvert á að til staðar sé miðlæg upplýs-
ingasöfnun til að hægt sé að fá heildarsýn yfir
áhrifin sem kórónuveirufaraldurinn hefur haft
á börn til þess að hægt sé að bregðast við,“
segir Salvör.
„Við getum ekki litið framhjá þessu þótt allt
bendi til þess að landið sé að rísa.“
Börnum líður verr
„En núna síðast var talsvert annar
tónn og miklu fleiri sem töluðu um
kvíða, þunglyndi, leiða og ein-
manaleika. Það voru áberandi um-
skipti,“ segir Sigurveig um líðan
barna nú í haust miðað við í vor.
Colorbox
Umboðsmaður barna
segir líðan barna hafa
versnað frá því í vor.
Faraldurinn er farinn að
taka sinn toll af börnum.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Salvör Nordal
Sigurveig
Þórhallsdóttir