Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Síða 22
Bolla, bolla!
Bolludagurinn er á mánudag og kætast þá margir.
Við tökum flest forskot á sæluna og brögðum á
bollum um helgina og því er tilvalið að spreyta
sig á bakstrinum og prófa eitthvað nýtt!
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2021
BAKSTUR
8-10 BOLLUR
VATNSDEIGS-
BOLLUR
100 g smjör
2 dl vatn
2 dl hveiti
2 egg
Látið smjör og vatn
saman í pott og hitið
þar til blandan er
byrjuð að sjóða. Tak-
ið þá pottinn af
hellunni og bætið
hveiti saman við og
hrærið þar til mynd-
ast hefur deigkúla.
Setjið deigið í hræri-
vél og látið á minnsta
hraðann, svo mesti
hitinn fari úr deiginu.
Á meðan látið þið
eggin saman í skál og
léttþeytið. Hellið
þeim svo smátt og
smátt út í deigblönd-
una á litlum hraða.
Notið 2 matskeiðar
til að móta ca. 8-10
bollur. Látið á ofn-
plötu með smjör-
pappír og setjið inn í
ofn á 180°C á blæstri í
20-25 mín. og opnið
ekki ofninn fyrr en að
þeim tíma liðnum.
OREO-FYLLING
5 dl rjómi, þeyttur
1 box Philadelphia-
rjómaostur
1 dl púðursykur
1 tsk. vanillusykur
10 Oreo-kex, mulin
Setjið rjóma, rjóma-
ost, púðursykur og
vanillu saman í skál
og hrærið saman þar
til blandan er orðin
létt í sér. Bætið
muldu Oreo saman
við með sleif. Látið
fyllinguna í bolluna.
MILKA-GLASSÚR
200 g Milka-súkkulaði
2 msk. síróp
2 msk. rjómi
Bræðið allt saman í
potti. Kælið lítillega
og setjið yfir boll-
urnar.
Frá grgs.is, í sam-
starfi við gerum-
daginngirnilegan.is.
Bollur með Oreo-rjóma
og Milka-glassúr
VATNSDEIGSKAKA
180 g smjör
360 ml vatn
200 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
¼ tsk. salt
3-4 egg (160 g)
Hitið ofninn í 180°C.
Hrærið saman hveiti, lyftiduft
og salt í skál og geymið.
Hitið saman vatn og smjör í
potti þar til smjörið er bráðið og
blandan vel heit (gott að leyfa að
sjóða í að minnsta kosti eina mín-
útu) og takið þá af hellunni.
Hellið hveitiblöndunni saman
við smjörblönduna og hrærið/
vefjið saman við með sleif þar til
allir kekkir eru horfnir og blandan
losnar auðveldlega frá köntum
pottsins.
Flytjið blönduna yfir í hrærivél-
arskálina og hrærið á lægsta hraða
með K-inu og leyfið hitanum
þannig að rjúka aðeins úr blönd-
unni.
Pískið á meðan eggin saman í
skál og setjið þau saman við í
litlum skömmtum og skafið niður
á milli. Best er að vigta blönduna
því egg eru misstór og nota aðeins
160 g af henni til þess að deigið
verði ekki of þunnt.
Setjið bökunarpappír á ofn-
plötu, teiknið stóran hring á miðj-
una (t.d. með matardisk). Teiknið
síðan annan lítinn hring inn í hann
(t.d með morgunverðarskál).
Setjið bolludeigið í sprautupoka
og klippið stórt gat á endann (um
5 cm) og sprautið í hring á milli
hringjanna sem þið teiknuðuð (at-
hugið að deigið mun lyfta sér um
að minnsta kosti helming á alla
kanta).
Bakið í 50-60 mínútur eða þar
til toppurinn og botninn er orðinn
vel gylltur. Ekki opna þó ofninn
fyrr en í fyrsta lagi eftir 40 mín-
útur til að kíkja undir.
Kælið bollukökuna og skerið
hana síðan í sundur áður en þið
fyllið hana.
HINDBERJAFYLLING
700 ml rjómi
2 msk. flórsykur
1 krukka hindberjasulta frá St. Dalfo-
ur (284 g)
250 g Þristur (saxaður smátt)
fersk hindber
Þeytið saman rjóma og flórsykur
þar til rjóminn er stífþeyttur.
Blandið sultunni og Þristinum
varlega saman við með sleif þar til
bleikur og fallegur hindberjarjómi
hefur myndast.
Sprautið eða smyrjið á milli, rað-
ið hindberjum hér og þar í rjómann
og setjið efri hlutann ofan á.
LAKKRÍSBRÁÐ OG SKRAUT
300 g Bingókúlur
80 ml rjómi
fersk blóm
Bræðið kúlur og rjóma saman í
potti við vægan hita þar til kekkja-
laus lakkrísbráð hefur myndast.
Kælið þar til lakkrísbráðin fer
að þykkna (hrærið reglulega í
henni til að finna áferðina) og
smyrjið þá yfir bollukökuna.
Skreytið að lokum með fersk-
um blómum.
Frá gotteri.is.
Bollukaka með hindberja-
fyllingu og lakkrísbráð
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Nýja Tokyo línan
komin í sýningasal