Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2021 BAKSTUR 18 BOLLUR 1 msk kardimommu- kjarnar 3 dl mjólk 1 pakki þurrger 1½ dl sykur ½ tsk salt 150 g smjör, við stofu- hita 1 egg 10-12 dl hveiti egg til að pensla með flórsykur til að dusta yfir bollurnar Myljið kjarnana úr kardimommunum fínt í morteli. Setjið mjólk- ina í pott, muldu kardi- mommurnar út í og hitið upp í 37°C. Setjið ger í skál og leysið upp með mjólk, smjöri, sykri, salti og eggi. Bæt- ið þá hveitinu út í smátt og smátt og hnoðið deigið þar til það verður slétt og sprungulaust. Því næst er deigið látið hefast undir klút á hlýjum stað í 40-60 mínútur eða þar til það hefur tvöfaldast. Þá eru hnoðaðar ca 18 bollur sem er raðað á ofn- plötu klædda bökunar- pappír. Látið bollurnar hefast undir klút í ca 45-60 mínútur til við- bótar. Því næst eru þær penslaðar með eggi og bakaðar við 200°C í um það bil 10 mínútur eða þar til þær eru gull- inbrúnar. Látið þær kólna á grind. FYLLING 400 g möndlumassi (sjá uppskrift neðar) 8 dl rjómi, þeyttur MÖNDLUMASSI 250 g möndlur (af- hýddar) 2½ dl sykur mjólk, ca 1 msk Myljið möndlurnar mjög fínt í mat- vinnsluvél. Bætið sykri út í og keyrið blönd- una áfram í 5-7 mín- útur þar til massinn verður sléttur. Bætið út í smá skvettu af mjólk þannig að mass- inn verði dálítið blaut- ur og haldist saman. (Í stað þess að gera möndlumassa er líka hægt að nota 400 g af marsípani rifið niður og blandað við ca 1 dl mjólk.) Skerið toppinn af bollunum og skerið smá dæld í neðri hluta þeirra. Þar er settur möndlumassi, því næst er settur þeyttur rjómi, bollunni lokað og flórsykur svo sigt- aður yfir. Frá eldhus- sogur.com. Sænskar semlur 12-16 BOLLUR Þessi er fyrir nammigrísina! 12-16 vatnsdeigsbollur (keypt eða bökuð, sjá uppskrift annars staðar í grein) FYLLING 500 ml rjómi 2 dl smátt saxað Nóa kropp 1 dl smátt saxaðir Nóa perluhnappar 2 msk. ljúffengt súkkulaðikrem (upp- skrift hér að neðan) Stífþeytið rjómann, blandið tveim- ur matskeiðum af ljúffenga súkku- laðikreminu varlega saman við, saxið Nóa kropp og Nóa perlu- hnappa og blandið varlega saman við rjómann. Skerið bollurnar í tvennt og sprautið rjómafyllingunni á milli. LJÚFFENGT SÚKKULAÐIKREM 250 g Nóa rjómakúlur 2,5 dl rjómi Bræðið rjómakúlurnar í rjóman- um við vægan hita, dýfið lokunum í súkkulaðikremið og skreytið með söxuðum perluhnöppum. SKRAUT 1 poki Nóa perluhnappar Skreytið með perluhnöppunum og njótið! Nammibolla 15-18 STYKKI 180 g smjör 360 ml vatn 200 g hveiti 1 tsk. lyftiduft ¼ tsk. salt 3-4 egg (160 g) Hitið ofninn í 180°C. Hrærið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál og geymið. Hitið saman vatn og smjör í potti þar til smjörið er bráðið og blandan vel heit; takið þá af hellunni. Hellið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna og hrærið/ vefjið saman við með sleif þar til allir kekkir eru horfnir og blandan losnar auðveldlega frá köntum pottsins. Flytjið blönduna yfir í hrærivél- arskálina og hrærið á lægsta hraða með K-inu og leyfið hitanum þannig að rjúka aðeins úr blönd- unni. Pískið eggin saman í skál og setjið þau saman við í litlum skömmtum og skafið niður á milli. Best er að vigta blönduna því egg eru misstór og nota aðeins 160 g til þess að deigið verði ekki of þunnt. Setjið deigið í sprautupoka með um 1,5 cm breiðum stút og sprautið 15 cm lengjur á bök- unarpappír með gott bil á milli. Bakið í 27-30 mínútur, lengj- urnar eiga að vera orðnar vel gylltar og botninn líka, ekki opna þó ofninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur til að kíkja undir eina. FYLLING 600 ml rjómi 2 msk. flórsykur 15 g fínmalað skyndikaffiduft 125 g saxað Toffifee (1 pakki) Þeytið saman rjóma, flórsykur og skyndikaffiduft. Vefjið söxuðu Toffifee saman við og fyllið lengjurnar með kaffi- rjóma. SÚKKULAÐIGLASSÚR OG SKRAUT 100 g brætt smjör 210 g flórsykur 2 msk. Cadbury-bökunarkakó 2 tsk. vanilludropar 3 msk. uppáhellt kaffi Toffifee Hrærið saman bræddu smjöri, flórsykri, bökunarkakói, van- illudropum og kaffi þar til slétt og falleg súkkulaðibráð hefur mynd- ast. Smyrjið súkkulaðiglassúr á lengjurnar og skreytið með Toffi- fee og brúðarslöri. Frá gotteri.is. Vatnsdeigslengjur með kaffirjóma ALLA sunnudaga MILLI 12 OG 16

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.