Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2021
LESBÓK
EFI Rex Brown, bassafanturinn úr Pantera, slær úr og í
varðandi mögulega endurkomu hins goðsagnakennda
málmbands í samtali við vefritið Eonmusic. Aðallega þó
úr. Bandið lagði upp laupana í illu fyrir tæpum tuttugu
árum og síðan er helmingur þess fallinn frá, bræðurnir
Dimebag gítarleikari og Vinny Paul trymbill. Eftir
standa Brown og söngvarinn umdeildi Philip Anselmo.
Unnusta Dimebags, Rita Haney, hefur hvatt þá til að
koma saman ásamt gítarleikaranum Zakk Wylde en
Brown hendir þeirri hugmynd út í hafsauga. Wylde
verði aldrei með. „Jafnið ykkur á því!“ Hann viður-
kennir þó að ekki vanti tilboðin og fullyrðir að Pantera
myndi kjaftfylla stærstu leikvanga heims. „Án hinna
tveggja myndi það þó aldrei hljóma eins.“
Pant ’era með!
Rex gamli
Brown.
AFP
VATNASKIL Bandaríska söngkonan Nancy Sinatra
segir erkismellinn These Boots Are Made for Walk-
in’ hafa gjörbreytt lífi sínu þegar hann kom út ár-
ið 1965. „Ég stóð í skilnaði, 24 ára gömul og í
áfalli; hafði ekki hugmynd um hver ég var,“ seg-
ir hún í viðtali við breska blaðið The Independ-
ent. Hún var staðráðin í að breyta ímynd sinni
og lagið og ekki síður myndbandið gerðu það
svo um munaði. Skyndilega var hún komin
með túberað ljóst hár og í smápilsi. Sinatra
segir að fárið hafi komið sér í opna skjöldu.
„En ég var nógu klár til að færa mér það í
nyt. Allt small saman og úr varð ný per-
sóna.“
Goðsögnin
Nancy Sinatra
er orðin áttræð.
AFP
Europe var á toppnum árið 1987.
Leið yfir
smádömurnar
STUÐ Tónleikar Europe í Laugar-
dalshöll í byrjun júlí 1987 vöktu
mikla lukku enda sænsku glysrokk-
ararnir sjóðheitir á þeim tíma.
Andrés Magnússon, umsjónar-
maður Rokksíðunnar í Morgun-
blaðinu, var svo vinsamlegur að
birta textann við vinsælasta lag Eu-
rope, The Final Countdown, í heild
sinni á síðunni enda gúgl bara fjar-
stæðukennt rugl á þessum árum. Á
sjötta þúsund manns fyllti Laugar-
dalshöllina og stemningin var mik-
il. „Ég held að það sé farið að líða
yfir smádömurnar hérna í hrönn-
um,“ sagði húsvörðurinn í samtali
við Morgunblaðið. „Það er hoppað,
klappað og öskrað í takt við músík-
ina,“ bætti hann við.
Ég datt fyrir tilviljun inn í eld-gamlan þátt af Poppkorni ádögunum en Ríkissjónvarpið
hefur verið að endursýna þá goð-
sagnakenndu seríu undanfarna
mánuði. Svo sem nafnið gefur til
kynna var Poppkorn tónlist-
arþáttur, þar sem heitustu lögin og
myndböndin voru kynnt þjóðinni í
bland við spjall og spé.
Þegar mig bar að garði var árið
1987 og tekið að hausta. Lögin í
þættinum hringdu engum bjöllum
en skyndilega birtist kunnuglegt
andlit á skjánum, breski tónlistar-
maðurinn Bobby Harrison, sem bjó
hér á landi um skeið á níunda ára-
tugnum. Hann var mættur, ásamt
öðrum manni, Tony Sandy, í viðtal
hjá Ragnari Halldórssyni, öðrum
umsjónarmanni Poppkorns. Tilefnið
var umfangsmikið tónleikahald á
vegum fyrirtækis þeirra félaga,
Split hf., um þær mundir. Norrænu
popp- og rokktröllin a-ha og Eu-
rope voru þá nýbúin að heiðra
landann með nærveru sinni og von
var á rokkgoðinu Kjöfhleifi (Meat
Loaf), nýstirnunum í Cock Robin
og sjálfum Boy George.
Europe og a-ha höfðu troðið upp
í Laugardalshöllinni en hinum lista-
mönnunum hafði verið stefnt í
Reiðhöllina í Víðidal sem Harrison
var hinn ánægðasti með enda væri
sú góða höll engu síðri en Wembley
Arena – bara aðeins minni. Nei, ég
er ekki með óráði. Maðurinn sagði
þetta í raun og veru í Poppkorni.
Ég bjó á Akureyri á þessum ár-
um og meira hefði þurft til að ég
ómakaði mig suður enda enginn af
þessum listamönnum beinlínis minn
tebolli. Allir nutu þeir þó lýðhylli
og býsna merkilegt verður að telj-
ast að tekist hafi að stefna þeim
öllum hingað upp á skerið á sama
almanaksárinu. Ég mundi eftir
heimsóknum a-ha og Europe en
verð að viðurkenna að ég þurfti að
fletta komu Kjöthleifs upp í göml-
um og heiðgulum Mogga.
Og jú, jú, kappinn stakk svo
sannarlega hér við stafni í október
1987. Í samtali við blaðamann við
komuna til landsins kvartaði Kjöt-
hleifur undan jökulnæðingnum hér
við nyrstu voga en sagðist þó vera
Kvartaði
undan jökul-
næðingnum
Árið 1987 var mikið tónleikaár hér í fásinninu,
þökk sé Bobby Harrison sem flutti vinsæla lista-
menn hingað inn í akkorði ásamt Tony Sandy, það
er a-ha, Europe, Meat Loaf og Cock Robin.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Ný persóna steig upp úr stígvélunum
Trymbillinn og söngvarinn
Bobby Harrison var áberandi í
íslensku tónlistarlífi á níunda
áratugnum. Hann fæddist í
Bretlandi árið 1939 og er lík-
lega frægastur fyrir að hafa
verið um tíma meðlimur í
Procol Harum á sjöunda ára-
tugnum. Harrison mun hafa
komið hingað fyrst sumarið
1980 og var mjög virkur fram
yfir 1990, einkum í blúslífi landans. Hann starfrækti m.a. böndin
ASIA og Solid Silver og vann með Mezzoforte, Stefáni S. Stef-
ánssyni, Þóri Baldurssyni, Sverri Stormsker og fleirum.
Ferill Harrisons sem tónleikahaldara var til þess að gera stuttur
en auk þeirra sem hann náði að flytja inn hafði kappinn áform um
að bóka Elton John, Heart, Whitesnake og Def Leppard, að því er
fram kom í samtali við Rokksíðuna í Morgunblaðinu 1987. Það
gekk þó ekki eftir. Á glatkistan.com kemur fram að Harrison hafi
flutt til Bretlands árið 1990 en verið hér með annan fótinn til 1993.
Síðan hafi lítið til hans spurst.
Lék með Procol Harum
Bobby Harrsion ásamt Meat Loaf 1987.
FASTEIGNIR
Fasteignablað
Morgunblaðsins
Efnistökin er t.d þessi:
• Hvernig er fasteigna-
markaðurinn að
þróast?
• Viðtöl við fólk sem
elskar að flytja.
• Hvernig gerir þú
heimili tilbúið fyrir
fasteignamyndatöku?
• Viðtöl við
fasteignasala.
• Innlit á heillandi
heimili.
• Góðar hugmyndir
fyrir lítil rými.
Pöntun auglýsinga:
Sigrún Sigurðurdóttir
569 1378
sigruns@mbl.is
Bylgja Sigþórsdóttir
569 1148
bylgja@mbl.is
KEMUR ÚT
26.
feb