Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Síða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Síða 29
ýmsu vanur, enda byggi hann í New York og þar væri oft ansi kalt. Hann kvaðst einnig vera vel upplagður fyrir tónleikana enda líf hans og yndi að koma fram á sviði. Ofhlaðnar útsetningar Morgunblaðið sendi að vonum sinn allra besta popppáfa, Árna Matt- híasson, á vettvang til að herma af tónleikunum. Synd væri að segja að Árni væri í hópi dyggustu aðdá- enda Kjöthleifs en hann lýsti tón- list hans með þessum orðum: „Kannski mætti kalla hana synfó- níurokk, sem markast þá af of- hlöðnum útsetningum og lang- dregnum milliköflum.“ Ekkert vantaði þó upp á stuðið og stemninguna á tónleikunum. Gefum Árna aftur orðið: „Sviðs- framkoma Meat Loaf var greini- lega vel til þess fallin að ná til áheyrenda og það gekk eftir. Þó fólst hún ekki í öðru en að strunsa fram og aftur á sviðinu og glenna sig framan í hljóðfæraleikara og áheyrendur. Einna mesta hrifningu vakti þegar hann hristi sig og skók og var hann í svitabaði áður en langt um leið. Stúlkurnar tvær sem voru til skrauts gerðu einnig sitt til að auka á sefjunina og mikla hrifn- ingu vakti þegar Meat Loaf gerði sig líklegan til að afklæða aðra þeirra, sem lét sér það vel lynda. Hápunktur tónleikanna var, eins og við mátti búast, tuttugu mínútna útgafa af Paradise By the Dashbo- ard Light. Þar kom sér vel leik- reynsla Meat Loaf, en stór hluti lagsins fólst í æsilegum faðmlögum hans og annarrar systranna. Eftir það náði æsingurinn ekki eins hátt, enda áheyrendur farnir að þreytast og margur orðinn móður af hita- svækjunni sem var niðri í sal. Var enda alltaf verið að bera unglinga í öngviti baksviðs.“ Skiljið flöskuna eftir heima! Tónleikarnir voru umdeildir enda var ölvun víst mun meira áberandi en á tónleikum a-ha og Europe. Það varð til þess að lögreglan bannaði tónleikahald í Reiðhöllinni eftir klukkan 19 á kvöldin. Bobby Harrison ritaði grein í Morg- unblaðið, þar sem hann við- urkenndi að gagnrýnin væri rétt- mæt en misráðið væri eigi að síður að setja slíkt bann. „Ég vil hvetja alla þá sem tón- leika sækja í framtíðinni að skilja flöskuna eftir heima. Með því vinna þeir tvennt. Þeir njóta þess betur sem tónlistarmennirnir hafa fram að færa auk þess sem þeir munu þá sanna, eins og á tónleikum „Europe“ og „A-Ha“, að þeir geti komið saman og skemmt sér á heil- brigðan hátt,“ skrifaði hann. Cock Robin lenti heilu og höldnu í lok nóvember og fékk eftirfarandi kynningu í Morgunblaðinu. „Cock Robin þykir ein efnilegasta popp- hljómsveit sem frá Bandaríkjunum hefur komið í seinni tíð, en hljóm- sveitina skipa þau Peter Kings- bery, sem leikur á hljómborð og syngur, og Anna LaCazio, sem leikur einnig á hljómborð og syng- ur.“ Ekki birtist umsögn um tón- leikana í Morgunblaðinu; ef til vill hefur Árni Matthíasson ennþá ver- ið að jafna sig eftir Kjöthleifinn. Hins vegar virðist aðsóknin hafa valdið vonbrigðum ef marka má Ragnheiði og Ásthildi sem slógu á þráðinn til Velvakanda: „Við grát- biðjum Bobby og Tony um að halda áfram að fá erlenda tónlistarmenn til landsins þó tónleikar Cock Rob- in í Reiðhöllinni hafi ekki verið bet- ur sóttir. Þá skorum við á yfirvöld að aflétta banni á tónleika í Reið- höllinni eftir kl. 19, því það var að öllu leyti þessu banni að kenna að tónleikarnir voru svona illa sóttir.“ Í fyrrnefndri grein í Morgun- blaðinu talaði Harrison um tónleika Boy George í desember og end- urtók það í samtali við Andrés Magnússon, umsjónarmann Rokk- síðunnar, upp úr miðjum nóv- ember. Það yrðu þá jólatónleikar. Þeim tónleikum seinkaði þó fram í apríl 1988 og voru haldnir í Laug- ardalshöllinni. Aðsókn olli miklum vonbrigðum en aðeins um 3.000 manns mættu. Eins gengu tón- leikar Status Quo í Reiðhöllinni illa sama ár. Þar með lauk ferli Bobbys Harrisons sem tónleikahaldara á Íslandi. Meat Loaf í öllu sínu veldi, allmörgum árum eftir að hann kom til Íslands. AFP 14.2. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 ENDURKOMA Bandaríska stór- leikkonan Michelle Pfeiffer hefur haft til þess að gera hægt um sig undanfarin ár en fer þó með aðal- hlutverkið í nýrri gamanmynd sem frumsýnd var fyrir helgina, French Exit. Þar leikur hún ekkju sem neyðist til að flytja frá New York til Parísar ásamt syni sínum þegar sjóðirnir sem auðugur eiginmaður hennar skildi eftir tæmast. Og þá fyrst byrjar ballið. Lucas Hedges leikur soninn en myndin byggist á skáldsögu Patricks DeWitts. Pfizer brást en ekki Pfeiffer Michelle Pfeiffer á langan feril að baki. AFP BÓKSALA 3.-9. FEBRÚAR Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Málsvörn Jóns Ásgeirs Einar Kárason 2 Aprílsólarkuldi Elísabet Jökulsdóttir 3 Úr myrkrinu Ragnheiður Gestsdóttir 4 Snerting Ólafur Jóhann Ólafsson 5 Stol Björn Halldórsson 6 Náðu tökum á þyngdinni Sóley Dröfn Davíðsdóttir 7 Karamazov-bræðurnir Fjodor Dostojevskí 8 Múmínálfarnir – stóra flipabókin 9 Sombína og draugurinn Barbara Cantini 10 Yfir höfin Isabel Allende 1 Múmínálfarnir – stóra flipabókin 2 Sombína og draugurinn Barbara Cantini 3 Litla stafabókin Valgerður Bachmann 4 Syngdu með Láru og Ljónsa Birgitta Haukdal 5 Öflugir strákar – trúðu á sjálfan þig Bjarni Fritzson 6 Vertu þú! Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir 7 Blokkin á heimsenda Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir 8 Veður – lífsspeki Bangsímons Walt Disney 9 Íslandsdætur Nína Björk Jónsdóttir 10 Minecraft 3-Bardaga-handbók Allar bækur Barnabækur Í nýlegu viðtali lagði María Elísa- bet Bragadóttir það að jöfnu að skrifa og lesa, sjálf væri hún fyrst og fremst lesandi. Hvað sem öðru líður var smá- sagnasafn Maríu Herbergi í öðrum heimi einn helsti gullmoli jóla- bókaflóðsins og kannski fólst gald- urinn í því trausti sem höfundur auðsýndi getu almenns lesanda til að brúa bil hins ósagða. Öll erum við jú höfundar þess söguþráðar sem við iðulega spinnum úr brota- kenndum upplifunum hversdags- ins. Áþekkar hugleiðingar um eðl- islæga sókn í samfellu fylgdu mér gegnum lestur síðustu vikna þótt þar væru fræðirit í meirihluta en ekki fagurbók- menntir. Fyrst var það Fuglinn sem gat ekki flogið en í leitinni að örlög- um síðustu geir- fuglanna tekst Gísla Pálssyni listavel að tvinna saman ólíka þræði um leið og hann kveikir vangavelt- ur um skynjun okkar á náttúrunni í gegnum eigin sögur og annarra. Á svipuðum forsendum mæli ég með Silfurbergi þar sem feðgarnir Kristján Leósson og Leó Krist- jánsson sýna fram á einstakt mik- ilvægi þessa íslenska kristalls í þró- un náttúruvísindanna frá miðri 17. öld fram á þá tuttugustu. Frásögn- in dró upp lifandi mynd af per- sónum og leikendum en undir- strikaði í mínum huga ægivald ríkjandi hugmyndaheims þegar kemur að þeim viðfangsefnum sem fræðasamfélaginu þykir vert að sinna á hverjum tíma. Það er svo uppleggið í What is Real? eftir Adam Becker en fyrir áhugafólk um skammtafræði er þar um merka samantekt að ræða og einkum á þeim flokkadrátt- um sem framan af millistríðs- árunum hverfðust um persónu Niels Bohrs. Höfundur ýjar að því að arfsögnin um óskeikulleika hins danska vísindajöfurs hafi leitt til þess að enn í dag sé talin goðgá að spyrja þess hvað niðurstöður skammtafræðinnar gefi til kynna um eðli raunveruleikans. Skortur á heildstæðu kenningakerfi hefur þýtt að vísindaskáldsagnahöf- undar standa jafnfætis fræðafólki í sínum heilabrotum. Í augnablikinu er svo Álabók Patriks Svenssons á náttborðinu en í henni mætast mörg áðurnefnd stef. Sagnfræði- legir fróðleiks- molar blandast náttúrupplifunum tengdum dýrateg- und í bráðri út- rýmingarhættu. Ótrúlegast er þó hversu lítið við vitum um lífsferil álsins og mögulega höfum við ekki hitt á réttu spurningarnar. Mig grunar að fæstir reyfarar sem ég eignast í ár eigi eftir slá þessari bók við. Það er vissulega gjöfult að vera lesandi. KRISTINN STEFÁNSSON ER AÐ LESA Lítið vitað um líf álsins Kristinn Stef- ánsson er yfir- hugbúnaðar- hönnuður. Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is Verkfæralagerinn                     í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar  !  "!#$ á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af  % WorkPlus Strigar frá kr. 195

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.