Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Side 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2021 08.00 Strumparnir 08.20 Blíða og Blær 08.40 Víkingurinn Viggó 08.55 Adda klóka 09.15 Mia og ég 09.40 Lína langsokkur 10.05 Lukku láki 10.30 Ævintýri Tinna 10.50 It’s Pony 11.20 Angry Birds Stella 11.25 Are You Afraid of the Dark? 12.10 Nágrannar 14.00 Supernanny US 14.45 Impractical Jokers 15.05 All Rise 16.00 Trans börn 16.50 60 Minutes 17.35 Víglínan 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.40 Sportpakkinn 18.50 Ísland í dag 19.05 Tónlistarmennirnir okkar 19.30 The Great British Bake Off 20.30 Years and Years 21.35 Two Weeks to Live 22.00 Briarpatch 22.45 Coyote 23.35 Shameless 00.30 Humans 02.55 Supernanny US 03.40 Impractical Jokers 04.00 Are You Afraid of the Dark? ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4  93,5 N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Valdir kaflar úr Glett- um; 2. Þáttur 20.30 Tónlist á N4 21.00 Valdir kaflar úr Glett- um; 2. Þáttur 21.30 Tónlist á N4 Endurtek. allan sólarhr. 17.00 Lífið er lag (e) 17.30 Karlmennskan (e) 18.00 Helgarjóga 18.30 Atvinnulífið 19.00 Karlmennskan 19.30 Heima er bezt 20.00 112 – saga síma- númers (e) 20.30 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 21.00 Fiskbúar (e) 21.30 Sjónin (e) 22.00 112 – saga síma- númers (e) 10.00 The Block 12.00 Dr. Phil 14.15 The Bachelor 15.35 Það er komin Helgi 17.00 The King of Queens 17.20 Everybody Loves Ray- mond 17.45 Vinátta 18.15 Með Loga 18.45 Hækkum rána 20.00 The Block 21.20 Law and Order: Special Victims Unit 22.10 Your Honor 23.10 Cold Courage 24.00 Station 19 00.45 The Resident 01.30 The Rookie 02.15 Blue Bloods 03.00 Snowfall 03.45 Síminn + Spotify 07.00 Fréttir. 07.03 Hringsól. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Á tónsviðinu. 09.00 Fréttir. 09.03 Svona er þetta. 10.00 Fréttir. 10.05 Veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Lága- fellskirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Lestin. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Strokið um strengi: Sin- fóníuhljómsveit Ís- lands 65 ára. 17.00 Sunnudagskonsert. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Loftslagsdæmið. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Ameríski draumurinn – staða svartra og bar- átta þeirra. 20.35 Gestaboð. 21.30 Fólk og fræði. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Á reki með KK. 23.10 Frjálsar hendur. 07.44 Kalli og Lóa 07.56 Poppý kisuló 08.06 Lalli 08.13 Kúlugúbbarnir 08.36 Nellý og Nóra 08.43 Flugskólinn 09.05 Hrúturinn Hreinn 09.12 Múmínálfarnir 09.34 Kátur 09.36 Konráð og Baldur 09.49 Sjóræningjarnir í næsta húsi 10.00 Sjö heimar, ein reiki- stjarna – með ensku tali 10.50 Tónatal – brot 11.00 Silfrið 12.10 Eltiganga karla 13.00 Sjö heimar: Á tökustað 13.50 Á götunni 14.25 Eltiganga kvenna 15.05 Brun karla 17.10 Síðasti séns 17.40 Landakort 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 Baráttan – 100 ára saga Stúdentaráðs 18.35 Menningin – samantekt 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir á sunnudegi 19.40 Veður 19.50 Landinn 20.25 Fyrir alla muni 21.00 Um Atlantsála 22.00 Lítil þúfa – Lover Rock 23.10 Elton John lætur allt flakka 12 til 16 Þór Bæring Besta blandan af tónlist á sunnudegi og létt spjall með Þór Bæring. Hækkaðu í gleðinni með K100. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 með Dj Dóru Júlíu. Einn vinsælasti plötusnúður landsins kynnir 40 vinsælustu lög landsins á hverjum einasta sunnudegi. Tónlistinn er eini opinberi vinsældalisti landsins. 18 til 00 K100 tónlist Besta tónlistin dunar í allt kvöld. Þórunn Erna Clausen gaf á dög- unum út plötu sem inniheldur lög sem samin voru upp úr sorginni og áfallinu sem hún varð fyrir þegar eiginmaður hennar heitinn, Sigurjón Brink, varð bráðkvaddur fyrir tíu árum. Platan kom út á Spotify og heitir tiltillag þess My darkest place. Þórunn mætti til þeirra Loga Bergmanns og Sigga Gunnars í Síðdegisþáttinn og sagði þeim frá vinnslu plötunnar. Hún segir lögin á plötunni vera bland af popp-, rokk- og ballöðutónlist. Flest lögin séu eftir hana en einnig komi aðrir höfundar að lögunum. „Þetta eru lög sem urðu til í kjölfarið á því að ég missti hann Sjonna, þannig að þetta eru lög sem voru samin á bilinu 2011-2015. Þrjú þeirra hafa komið út með öðrum flytj- endum en koma núna í mínum flutningi og svona „akústískari“ útgáfur af þeim,“ segir Þórunn meðal ann- ars í viðtalinu sem nálgast má í heild sinni á K100.is. Persónuleg plata um sorgina og áfallið –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is BÍLA-SÉRBLAÐ BÍLA fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 16. febrúar 2021BLAÐ Chick Corea er allur. Coreavar einn mesti djasspíanistisinnar kynslóðar og leitaðist við að fara nýjar leiðir og nema nýj- ar lendur í tónlist sinni. Hann gat verið jöfnum höndum íhugull og angurvær eða spilað af fítonskrafti. Helsti vettvangur hans var rafmagn- aður bræðingur djass og rokks og þar var hann sannkallaður braut- ryðjandi. Hingað kom hann árið 2012 og lék í Hörpu ásamt víbrafón- leikaranum Gary Burton. Hann fékk fjölda viðurkenninga á ferlinum. Co- rea lést úr krabbameini. Hann var 79 ára gamall. Síðustu orðin hvatning til annarra Í tilkynningu um andlátið á síðu hans á Facebook sagði í færslu á fimmtudag að meinið hefði greinst nýlega. Færslunni fylgdi orðsending sem Corea skrifaði fyrir andlátið, 9. febrúar. „Ég vil þakka öllum þeim samferðamönnum mínum sem hafa hjálpað til við að láta elda tónlistar- innar loga glatt,“ skrifaði hann. „Það er von mín að þeir sem hafa snert af þrá til að spila, semja, koma fram eða annað láti af því verða. Ef ekki fyrir sjálfa sig, þá fyrir okkur hin. Heimurinn þarf ekki bara á fleiri listamönnum að halda, það er líka einfaldlega bráðskemmtilegt.“ Corea var ötull lagahöfundur og leiddi fjölda hljómsveita. Meðal verka hans eru lögin Spain, 500 Mi- les High og La Fiesta. Hann var í hópi hæfileikaríkra píanóleikara þar sem Herbie Hancock og Keith Jar- rett koma upp í hugann. Má segja að þeir séu þrír áhrifamestu píanóleik- arar 20. aldarinnar. Ferill hans spannar rúmlega hálfa öld. Corea stimplaði sig rækilega inn á áttunda áratugnum þegar djass- bræðingurinn var í algleymingi. „Okkar verkefni er að fara út á meðal fólks og vera mótefni gegn stríði og öllu því myrka sem gerist á plánetunni jörð,“ sagði hann í út- varpsþættinum Jazz Night in Am- erica á útvarpsstöðinni NPR árið 2018 þegar hann var spurður um hlutverk listamannsins. „Við eigum að fara og minna fólk á að það býr yfir sköpunargáfu.“ Armando Anthony Corea fæddist í Chelsea Massachusetts 12. júní 1941 og er fjölskylda hans af ítölsk- um uppruna. Faðir hans lék á trompet og fór fyrir danshljóm- sveitum og sonurinn fór snemma að spila á píanó og fékk áhuga á bebop- tónlist. Hann lék einnig á trommur og kom fram þegar hann var í menntaskóla. Hann hóf tónlistarnám í Columbia-háskóla og Juilliard, en tónlistarlífið í New York seiddi og hann hætti náminu eftir nokkra mánuði til að helga sig alfarið spila- mennsku. Á sjöunda áratugnum vann hann með meisturum á borð við Stan Getz og Herbie Mann. Seinna kom hann í stað Herbie Hancock í hljómsveit Miles Davis og hafði sín áhrif á tíma- bili þegar tónlist trompetleikarans var jafnt og þétt að verða rafmagn- aðri. Lék hann meðal annars með honum á tímamótaplötunni Bitches Brew. Á sviðinu með Miles notaði Corea auk rafmagnspíanós hljóðgervla, sem þá voru sjaldséðir. Hann stofnaði hljómsveitina Circle, sem starfaði frá 1970 til 1971, til að fá útrás fyrir tilraunaþrá sína. Þar fór hann að nota píanóið meira eins og slagverk og fara ofan í það til að slá á hörpustrengina. Hann var einn af stofnendum hljómsveitarinnar Return to For- ever árið 1971. Þar var rafmagns- hljóðfærum blandað saman við óraf- mögnuð og rómönsk áhrif slæddust inn í bræðinginn. Er það sennilega hans þekktasta hljómsveit og átti kjarni hennar, Corea, bassaleikarinn Stanley Clarke, gítarleikarinn Al Di Meola og trommuleikarinn Lenny White, magnaða spretti. Gaf út hátt í 90 plötur Þótt hann hefði markað sér bás með notkun rafmagnaðra hljóðfæra sneri hann aldrei baki við píanóinu og í lok áttunda áratugarins fór hann í magnað tónleikaferðlag með Han- cock þar sem þeir léku saman á svið- inu á tvo flygla. Corea gekk í vísindakirkjuna á áttunda áratugnum. Hann gaf út hátt í 90 plötur á ferlinum, allt frá rafdjassi til klassískrar tónlistar. Hann var tilnefndur til Grammy- verðlaunanna 67 sinnum, hlaut þau í 23 skipti og er það oftar en nokkur annar djasstónlistarmaður. „Köllun mín hefur alltaf verið að koma á framfæri gleði sköpunar- innar alls staðar sem ég gat,“ sagði Corea í sínum hinstu orðum, „og að hafa gert það með öllum þeim lista- mönnum, sem ég virði og eru mér kærir, hefur fyllt líf mitt af auði.“ kbl@mbl.is Chick Corea ásamt Gary Burton á tónleikum í Hörpu vorið 2012. Morgunblaðið/Kristinn DJASSPÍANISTINN CHICK COREA LÁTINN Vildi miðla gleði sköpunarinnar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.