Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Síða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.2. 2021
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS
Maður af albönskum upp-runa var skotinn til banaúti á götu í Rauðagerði
aðfaranótt sunnudags og bar atvika-
lýsing með sér öll einkenni aftöku.
Var um það rætt að þar hefði átt
sér stað uppgjör í undirheimum,
tengt fíkniefnaverslun. Fyrir utan
mjög nauma fréttatilkynningu gat
lögreglan ekkert um það sagt.
Fjárfestingasjóður á vegum Gold-
man Sachs samdi um kaup á meiri-
hluta hlutafjár í Advania og hefur
verið hætt við skráningu félagsins á
hlutabréfamarkað í Svíþjóð. Adv-
ania er upplýsingatæknifyrirtæki,
reist á grunni Einars J. Skúlasonar
(EJS) og Skýrsluvéla ríkisins og
Reykjavíkurborgar (SkÝRR).
Aðilar vinnumarkaðarins eru á einu
máli um að ákvæði um fjarvinnu
verði að finna í næstu kjarasamn-
ingum, en flestir búast við því að
hún verði áfram snar þáttur í starf-
semi margra vinnustaða eftir að
heimsfaraldrinum linnir.
Flutningur á krabbameinsskimun
frá Krabbameinsfélaginu til hins
opinbera hefur seinkað skimun
verulega, búið til biðlista og ógreind
sýni hrannast upp. Engum að óvör-
um nema Svandísi Svavarsdóttur
heilbrigðisráðherra.
Tvær Boeing MAX-þotur Iceland-
air komu til landsins úr geymslu á
Spáni, en þær hafa verið endur-
bættar nokkuð eftir að hafa verið
kyrrsettar fyrir um einu og hálfu
ári. Gert er ráð fyrir að þær verði
aftur teknar í notkun með vorinu,
en svo á eftir að koma í ljós hvort
fólk vill ferðast með þeim.
Ferðaþjónustan er með markaðs-
herferð erlendis, sem á að höfða
sérstaklega til bólusetts fólks, eink-
um þá í Bretlandi, þar sem fjórð-
ungur þjóðarinnar hefur þegar ver-
ið bólusettur og vonast er til að
þorri landsmanna verði bólusettur
áður en apríl er allur.
Krapaflóð lokuðu vegum á Austur-
landi og rýma þurfti hús á Seyðis-
firði vegna snjóflóðahættu.
Rannsókn morðsins í Rauðagerði
hélt áfram og enn gat lögreglan
ekkert um það sagt. Á félagsmiðlum
fóru hins vegar alls kyns hviksögur
á kreik, myndum af ætluðu fórnar-
lambi, ætluðum morðingja og jafn-
vel morðvopninu var þar dreift, en
lögregla gat ekkert sagt.
Veitingahúsaeigendur voru lögregl-
unni gramir af öðrum ástæðum, en
þeir segja lögreglu mistúlka sótt-
varnareglur að geðþótta og fara
fram með hótunum við veitinga-
húsaeigendur, sem séu í ákaflega
þröngri stöðu fyrir.
Nýjustu vonir Svandísar Svavars-
dóttur heilbrigðisráðherra standa
til þess að 190.000 manns verði
bólusettir fyrir lok júní, sem kynnt
var sem mikill áfangasigur. Ekki
eru nema tvær vikur síðan ráðherra
fullvissaði Alþingi um að þá yrði bú-
ið að bólusetja þorra þjóðarinnar.
Landssamband smábátasjómanna
lýsti yfir vanþóknun á drónaeftirliti
Fiskistofu, þar sem með því sé ekki
jafnræði um landhelgisbrot milli
smábáta og stærri skipa fjarri landi.
Landsvirkjun og Rio Tinto náðu
samkomulagi í deilu sinni, sem á að
tryggja að rekstur álversins í
Straumsvík haldi áfram enn um
sinn. Í því felst m.a. að fyrirtækið
dragi kvörtun sína til Samkeppnis-
eftirlitsins til baka. Ekki fylgdi sög-
unni hvort neytendur vörpuðu önd-
inni léttar.
Vel gekk á rjómauppistöðulón og
smjerfjöll þjóðarinnar á bolludag.
Íslenskur athafnamaður á hinum
leynda lyfjamarkaði var úrskurð-
aður í gæsluvarðhald vegna
Rauðagerðismálsins. Lögregla
sagðist ekkert geta sagt.
Í opinbera lyfjageiranum hafa
hins vegar borist fleiri tilkynn-
ingar til Lyfjastofnunar um lyfja-
skort á dögum kórónuveirunnar
en áður. Á hinn bóginn hefur ekki
skort lífsnauðsynleg lyf.
Fasteignasalar hafa vart undan
við að sýna og selja fasteignir
þessa dagana, sem beri bæði vott
um húsnæðiskreppu og hitt að
vextir séu orðnir svo lágir í bönk-
um, að sparifé sé betur varðveitt
og ávaxtað í steinsteypu og báru-
járni.
Sveitarfélög gera ráð fyrir mun
verri afkomu á þessu ári en í
fyrra og að um 22 milljarða króna
halli verði á rekstri þeirra í ár.
Þar er hins vegar víða gert ráð
fyrir því að spýta í byssuna til
mótvægis við kórónukreppuna,
svo ráðgerðar eru langtímalán-
tökur á rúmum 60 milljörðum.
Öskudagur var víðast með öðru
sniði en vanalega, en börnin náðu
samt að syngja sér inn fyrir got-
teríi víðast hvar, þótt það gerðist
að miklu leyti innan veggja skóla.
Vetrarfrí í skólum og ágæt veð-
urspá urðu til þess að allt seldist
upp í námunda við skíðasvæði fyrir
norðan og margir lögðu land undir
dekk.
Þjóðkirkjan er orðin nokkurs konar
launhelgi, enda messur fyrir bí og
umsækjendur um prestaköll njóta
nafnleyndar. Eru þannig allar for-
sendur til þess – dragist plágan á
langinn – að prestar geti þjónað
söfnuðum án þess að sóknarbörnin
viti vel hverjir þeir eru.
Fréttablaðið sagði forsíðufrétt af
verkalýðsleiðtoganum Ragnari Þór
Ingólfssyni, þar sem aðallega virt-
ust uppi áhöld um hvort hann veiddi
lax á stöng eða í net.
Í Norðausturkjördæmi bar Óli
Halldórsson sigurorð af þingflokks-
formanninum Bjarkeyju Olsen
Gunnarsdóttur í forvali Vinstri
hreyfingarinnar – græns framboðs.
Sprengidagur fór vel fram um land
allt með miklu áti á feitu keti og
kolvetnasúpu. Sem sigldi í kjölfar
bolludags og fór fyrir nammidegi.
Þrátt fyrir þá kjötkveðjuhátíð sást
ekki á salatbarnum í Hagkaup að
ásókn í föstumat hefði aukist að
ráði.
Rannsókn Rauðagerðismálsins
hélt áfram og voru fleiri hnepptir í
gæsluvarðhald vegna þess. Lög-
regla sagðist ekkert geta sagt um
hana.
Hins vegar fannst tölvupóstur frá
lögreglunni þar sem það var játað
að gestir vínveitingahúsa mættu
víst klára úr glösum sínum allt
fram til klukkan ellefu á kvöldin,
en Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlög-
regluþjónn telur það rangan skiln-
ing hjá sínum mönnum. Hinar
drekkandi stéttir verði að hvolfa í
sig síðasta glasinu klukkan 21.59.
Rannsóknarverkefni hjartadeildar
Landspítalans og SidekickHealth á
fjareftirliti með hjartasjúklingum,
þar sem snjalltækni er notuð, gefur
góða raun, en það hefur sennilega
nú þegar afstýrt einu dauðsfalli.
Enn var haldið áfram við að rann-
saka Rauðagerðismálið af miklum
móð, verður að gera ráð fyrir, en
lögregla kvaðst ekkert geta sagt
um málið.
Í alþjóðlegri könnun kemur fram
að Ísland þyki með öruggustu lönd-
um í Evrópu hvað glæpi áhrærir.
Íslendingar hafa tekið við sér í
kaupum á bitcoin en mánaðarlega
nema þau hundruðum milljóna
króna og fara hækkandi.
Fram kom í fréttum að Þorsteini
Má Baldvinssyni væri svefnsamt
þrátt fyrir dagskrá Ríkissjónvarps-
ins. Bætist hann þá í hóp tugþús-
unda sem er svefnsamt vegna dag-
skrár Ríkissjónvarpsins.
Heilbrigðisyfirvöld gáfu ávæning
um að eitthvað myndi mjatlast inn
af bóluefni til landsins á komandi
vikum.
Íslendingar eru í fremstu röð Evr-
ópuþjóða hvað varðar heim-
ilissorp. Að magni, frekar en gæð-
um.
Hæstiréttur staðfesti dóm yfir sjá-
anda. Óljóst er af hverju hann
áfrýjaði dómnum.
Flugvirkjar voru mjög óhressir
með gerðardóm í kjaradeilu sinni
við Landhelgisgæsluna. Gerð-
ardómur komst að því að flug-
virkjar væru ekki of góðir til þess
að kaupa sitt eigið kampavín á al-
mennu farrými á ferðum sínum
fyrir gæsluna á milli landa.
Lögreglan gat
ekkert sagt
Gríðarleg gæsla vopnaðra lögregluþjóna var við bakdyr Héraðsdóms Reykjavíkur þegar fjallað var um gæsluvarðhalds-
beiðnir í Rauðagerðismálinu, en alls höfðu níu manns verið handteknir vegna þess, flestir af erlendu bergi brotnir.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
14.2.-19.2.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is