Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.2. 2021 KNATTSPYRNA FASTEIGNIR Fasteignablað Morgunblaðsins Efnistökin er t.d þessi: • Hvernig er fasteigna- markaðurinn að þróast? • Viðtöl við fólk sem elskar að flytja. • Hvernig gerir þú heimili tilbúið fyrir fasteignamyndatöku? • Viðtöl við fasteignasala. • Innlit á heillandi heimili. • Góðar hugmyndir fyrir lítil rými. Pöntun auglýsinga: Sigrún Sigurðardóttir 569 1378 sigruns@mbl.is Bylgja Sigþórsdóttir 569 1148 bylgja@mbl.is KEMUR ÚT 26. feb Þegar Hollendingurinn AndriesJonker var ráðinn yfirmaðurunglingaakademíunnar hjá Arsenal árið 2014 voru skilaboðin skýr: „Við viljum að helmingur meist- araflokksliðsins okkar samanstandi af uppöldum leikmönnum!“ Menn voru ekki í vafa um að hann væri rétti maðurinn í verkið en Jonker hafði áð- ur starfað fyrir hollenska knatt- spyrnusambandið, nokkur félög í heimalandinu, Wolfsburg og Bayern München í Þýskalandi og Barcelona á Spáni, þar sem hann var aðstoð- arknattspyrnustjóri frá 2002-03. Sumsé maður með skýra sýn og reynslu. Jonker einhenti sér í verkefnið; að styrkja akademíuna í Hale End, efla njósnanetið og bæta þjálfunina með það að markmiði að fjölga leik- mönnum sem ættu erindi í aðallið Arsenal. „Ivan Gazidis, þáverandi framkvæmdastjóri félagsins, út- skýrði fyrir mér að við gætum ekki keppt fjárhagslega við félög á borð við Chelsea og Manchester City og þess vegna yrðum við að laga okkur að þessu líkani. Ala sjálfir upp fleiri leikmenn í hæsta gæðaflokki.“ Jonker rifjar upp að guðfaðir al- sparksins (h. totaalvoetbal), Rinus heitinn Michels, fyrrverandi þjálfari Ajax, Barcelona og hollenska lands- liðsins, hafi sagt sér að í hópi hundrað ungra leikmanna væru að jafnaði tveir frábærir; fimmtán góðir og aðrir fimmtán sem gætu orðið atvinnu- menn í íþróttinni ef allt félli með þeim. Auðvelt var að heimfæra þetta á akademíuna hjá Arsenal þegar Jon- kers kom til starfa. Iwobi kom á óvart Leikmennirnir sem honum þótti bera af voru Reiss Nelson og Marcus McGuane, báðir fæddir 1999. Sá fyrr- nefndi hefur verið viðloðandi aðallið Arsenal síðustu árin en ekki fest sig í sessi. McGuane gekk hins vegar til liðs við Barcelona árið 2018 (fyrsti Englendingurinn á eftir Gary Line- ker) en var seldur til Nottingham Forest í fyrra. Hann er nú í láni hjá Oxford United í C-deildinni. Ekki er alltaf auðvelt að sjá hverjir komi til með að ná í gegn. Jonker bjóst til dæmis alls ekki við því að Alex Iwobi yrði fyrsti unglingurinn til að brjótast inn í aðallið Arsenal á hans vakt. „Þegar ég kom var hann ekki 100% heill. Hann lék með hnéhlíf og var aðeins of þungur. Ég spurðist fyrir um hann og fékk þau svör að hann væri bara að spila vegna meiðsla annarra og væri líklega á för- um frá félaginu. En Arsène Wenger vantaði aukamenn á æfingu, Iwobi stóð sig vel og var boðið að koma aft- ur. Hann náði líka fullri heilsu og los- aði sig við hnéhlífina. Mikið var um meiðsli hjá aðalliðinu á þessum tíma og að því kom að Iwobi fékk tækifær- ið. Og nýtti það og leit aldrei um öxl. Frábært hjá honum,“ segir Jonker sem lét hengja treyju með nafni Iwobis upp á vegg í Hale End – öðr- um til innblásturs. Iwobi, sem er níg- erískur landsliðsmaður, var seldur til Everton haustið 2019 fyrir 34 millj- ónir sterlingspunda. Ainsley Maitland-Niles kom fast á hæla Iwobis en báðir höfðu þeir kom- ið kornungir til Arsenal, Iwobi átta ára og Maitland-Niles sex ára. Mait- land-Niles hefur leikið yfir 100 leiki fyrir Arsenal og fimm landsleiki fyrir England. Hann er nú í láni hjá WBA í úrsvalsdeildinni. Þetta er þeirra heimur Síðan opnuðust allar flóðgáttir; Joe Willock, Eddie Nketiah, Emile Smith Rowe, Bukayo Saka og Folarin Ba- logun hafa allir sett mark sitt á aðallið Arsenal á síðustu tveimur til þremur árum. „Þeir hafa allir alist upp í Hale End og unna félaginu. Þetta er þeirra heimur og þeir vilja hvergi leika knattspyrnu nema hjá Arsenal. Í því eru fólgnir miklir möguleikar fyrir fé- lagið enda hafa allir þessir piltar get- una til að hjálpa Arsenal að ná ár- angri í nálægri framtíð. Auðvitað veit enginn hvar þeir verða eftir fimm ár en það er eigi að síður undravert að svona margir leikmenn hafi skilað sér á svona stuttum tíma upp úr ung- lingaliðinu. Þetta er mögnuð kyn- slóð.“ Að sögn Jonkers hefur hver þess- ara pilta sinn karakter og gefa þarf sumum meiri tíma en öðrum. Hann nefnir Joe Willock sem dæmi. „Hann var í U16-liðinu þegar ég kom og ég sá strax að hann hafði hæfileika. Á móti komu agavandamál. Ekkert stórvægilegt, eins og að mæta of seint á fund og ef eitthvað kom upp á virtist Joe alltaf eiga aðild að málum. Þess vegna færði ég hann upp í U18-liðið; hélt hann myndi breytast innan um eldri stráka en það gerðist ekki. Að því kom að aðrir í starfsliðinu sögðu að við ættum klárlega að láta hann fara. Ég þráaðist hins vegar við og fór að taka hann á séræfingar, stundum með þrekþjálfara. Við æfðum á und- arlegustu tímum sólarhringsins og Joe virtist hafa gaman af þessu; tjáði mér að séræfingarnar hefðu gert sig betri. Eftir þetta komst hann á beinu brautina og hefur bætt sig mikið eftir að ég fór. Í ljósi þess sem ég hef lýst þá gerir það mig mjög stoltan.“ Willock hefur leikið 78 leiki fyrir Arsenal í öllum keppnum en var lán- aður til Newcastle United í úrvals- deildinni um daginn. Rauf netmöskvana Bukayo Saka vakti snemma athygli Jonkers. „Hann var stór og sterkur vinstri-vængmaður sem hljóp án fyr- irhafnar fram hjá öllum og rauf net- möskvana með skotum sínum. Við spurðum okkur hvort hann hefði bara þessa yfirburði vegna stærðar sinnar eða hvort hann væri í raun og veru góður leikmaður. Freddie Ljungberg færði hann í stöðu vinstri-bakvarðar og hann hefur staðið sig reglulega vel þar. Allir eru stoltir af honum.“ Saka, sem er enn bara nítján ára, hefur slegið rækilega í gegn hjá Ars- enal síðustu tvö tímabilin; átti flestar stoðsendingar allra leikmanna að- alliðsins á liðinni leiktíð þegar hann lék mest sem vinstri-bakvörður. Það er til marks um fjölhæfnina að hann hefur aðallega leikið á hægri vængn- um á þessari leiktíð. Þá lék hann sína fyrstu landsleiki fyrir England síð- asta haust. Jonker er heldur ekki hissa á vel- gengni Emile Smith Rowe sem komið hefur eins og stormsveipur inn í lið Arsenal á þessu tímabili. „Hann hefur verið hjá félaginu frá unga aldri og veit upp á hár hvernig hann á að leika; í grundvallaraatriðum er eng- inn munur á hans hlutverki, hvort sem hann er að spila með unglingalið- unum eða aðalliðinu.“ Vinnusemi og rétt viðhorf Eddie Nketiah er ekki sama nátt- úrubarnið, að dómi Jonkers, en við- horfið sé hans helsta vopn. „Það var ekki sjálfgefið að við héldum honum á sínum tíma en létum hann njóta vaf- ans. Og hann hefur bætt sig jafnt og þétt enda ótrúlega vinnusamur. Ég hef alltaf hvatt Eddie til að hafa trú á sér og vinna vel. Ég er mjög stoltur af hans vegferð,“ segir Jonker en Nke- tiah er markahæsti leikmaðurinn í sögu U21-árs liðs Englands, hefur skorað 16 mörk í 14 landsleikjum. Gamla metið átti maður að nafni Alan Shearer. Andries Jonker hætti hjá Arsenal árið 2017 til að taka við liði Wolfsburg í Búndeslígunni. Hann þjálfar nú SC Telstar í heimalandi sínu. „Þetta er mögnuð kynslóð“ Hollenski þjálfarinn Andries Jonker fékk á sínum tíma það hlut- verk að efla ung- lingaakemíuna hjá Ars- enal og skila fleiri leikmönnum upp í að- allið félagsins. Það hef- ur svo sannarlega tekist. Í samtali við Sunnu- dagsblaðið segir hann frá þessari vegferð og kynnum sínum af Alex Iwobi, Bukayo Saka, Joe Willock og fleirum. Arthur Renard info@arthurrenard.nl AFP Andries Jonker var yfir akademíunni hjá Arsenal árin 2014-17. AFP Bukayo Saka og Emile Smith Rowe hafa náð vel saman hjá Arsenal að undanförnu enda búnir að leika knattspyrnu saman frá unga aldri.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.