Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Qupperneq 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Qupperneq 29
spjarað sig býsna vel síðan, komst til dæmis á „Big Four“-túr með Metal- lica, Slayer og Megadeth um áratug síðar. Dan Spitz gítarleikari var genginn úr skaftinu á þessum tíma en hann er eini maðurinn, sem ég veit um, sem hætt hefur í þunga- rokki til að gerast úrsmiður. Dag- satt! Sem er auðvitað næsti bær við, úr málmi í málm og gler. Þið skiljið. Blúsaður málmur Eins og Anthrax nýtti miltis- brandsbylgjuna vel sér til fram- dráttar væri synd að segja að annað bandarískt málmband af sömu kyn- slóð, Tesla, hafi náð að stinga í sam- band en samnefndur rafbílafram- leiðandi hefur sem kunnugt er farið með himinskautum á umliðnum ár- um og misserum. Hversu oft heyr- um við orðið „Tesla“ í viku hverri? Og hversu margir tengja það við málmband? Réttið vinsamlegast upp hönd ef þið hafið yfir höfuð heyrt þess getið! Það er sem ég hélt. Hafi menn einhvern tíma klikkað á raf- stuði, þá á það við hér! En jú. Til er gamalgróið málm- band sem heitir Tesla. Á heimasíðu bandsins kemur fram að það sé gjarnan skilgreint sem þunga- málmband en blúsmálmur eigi þó mun betur við. Sérstaklega er mönn- um í mun að skilja sig frá glysbylgj- unni, sem tröllreið rokkheimum á ní- unda áratugnum. „Textar bandsins eru einnig á skjön við vinsæl þemu í þungamálmi, einkum við upphaf fer- ilsins á níunda áratugnum. Annað sem greindi Tesla frá samtíma- mönnum sínum var klæðnaðurinn, ermabolir og gallabuxur, sem var í hróplegu ósamræmi við glysbönd þess tíma, sem voru auðþekkt á miklu hárinu, leðurbuxunum og áberandi farða,“ segir þar orðrétt. Bara til að afstýra misskilningi. Fram kemur að Tesla hafi verið sett á laggirnar í Sacramento í Kali- forníu árið 1985. Þess vegna sætir tíðindum að stofnendurnir, Brian Wheat, bassaleikari með meiru, og Frank Hannon gítarleikari eru á öðrum stað sagðir hafa verið í band- inu frá 1981. Skýringin er sú að Tesla hét upphaflega City Kidd en það ágæta nafn þótti aldrei hæfa hljómnum nægilega vel. Þess vegna stakk einhver úr umboðsteyminu upp á Tesla eftir hinum merka serb- nesk/bandaríska uppfinningamanni og verkfræðingi Nikola Tesla. Það var slegið á staðnum enda á ferðinni maður sem liðsmenn Mötley Crüe, Slaughter og Ratt gætu ekki mögu- lega hafa heyrt getið. Söngvarinn Jeff Keith, trymbill- inn Troy Luccketta og gítarleikar- inn Tommy Skeoch bættust í hópinn 1984 og þannig skipuð var Tesla reiðubúin að herja á heimsbyggðina. Fyrsta breiðskífan, Mechanical Resonance, kom út hjá Geffen Records 1986 og féll í býsna frjóa jörð. Þar var að finna smelli á borð við Modern Day Cowboy og Little Suzi. The Great Radio Controversy kom 1989 og gekk enn betur; ball- aðan Love Song komst inn á topp-10 á bandaríska lagalistanum og Heaven’s Trail (No Way Out) og The Way It Is nutu einnig lýðhylli. Þriðja breiðskífan, Psychotic Supper, kom út 1991 og gekk einnig prýðilega. Þar má finna lög eins og What You Give, Stir It Up og Song & Emotion, tregafullan minningaróð til vinar þeirra Steve Clark, gítarleikara Def Leppard, sem þá var nýlátinn úr áfengissýki. Tesla hitaði upp fyrir Leppard á hinum fræga Hysteria- túr. Þar segir meðal annars: Then he starts to play. Suddenly the pain slowly fades away. Tattered, torn and frayed, There’s a place within his heart He’d always saved for song and emotion. Know he’s got to his dyin’ day, Song and emotion. Þegar Bust a Nut kom út 1994 var rokklandslagið breytt og Tesla dott- in úr tísku. Það fundu menn og leystu bandið upp tveimur árum síð- ar. Eins og svo oft fór þá félaga þó að klæja í fingurna á ný og Tesla kom aftur saman aldamótaárið 2000 og hefur starfað óslitið síðan. Skeoch hætti vegna óreglu 2006 og Dave Rude leysti hann af hólmi. Hinir fjórir eru enn á sínum stað. Tesla hefur sent frá sér fjórar breiðskífur frá aldamótum, þá síðustu 2019, Shock. Hún þykir blúsuð og þrungin eftirsjá. Ef til vill eftir rafstuði sem aldrei varð? Jeff Keith á tónleikum með Tesla 2004. Það er nýjasta myndin sem til er af honum á AFP. Segir sína sögu. AFP 21.2. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Hristum þetta af okkur L augarnar í Rey k javí k w w w. i t r. i s 2m Höldumbilinu og sýnum hvert öðru tillitssemi REYNSLA „Þetta var yndislegt hlutverk; sú sem ég leik er sterk, viðkvæm, fyndin og hefur áhrif á fólk … allt sem konur eru og allt sem mig hefur langað til að leggja af mörkum á hvíta tjaldinu. Ég hef alltaf reynt að leika konur með sterkan persónuleika á ferli mín- um,“ segir ítalska stórleikkonan Sophia Loren í samtali við breska blaðið Independent. Eftir langt hlé er hún aftur í aðalhlutverki í kvik- mynd, The Life Ahead, sem sonur hennar Edoardo Ponti leikstýrir. Allt sem konur eru Sophia Loren er orðin 86 ára. AFP BÓKSALA 10.-16. FEBRÚAR Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Augu Rigels Roy Jacobsen 2 Nornaveiðar Max Seeck 3 Snerting Ólafur Jóhann Ólafsson 4 Álabókin Patrik Svenson 5 Aprílsólarkuldi Elísabet Jökulsdóttir 6 Málsvörn Jóns Ásgeirs Einar Kárason 7 Karamazov-bræðurnir Fjodor Dostojevskí 8 Stol Björn Halldórsson 9 Fuglabjargið Birnir Jón/Hallveig 10 Vertu úlfur Héðinn Unnsteinsson 1 Fuglabjargið Birnir Jón/Hallveig 2 Harry Potter og fanginn frá Azkaban J.K. Rowling 3 Sombína og Draugurinn 4 Syngdu með Láru og Ljónsa Birgitta Haukdal 5 Litla stafabókin Valgerður Bachmann 6 Múmínálfarnir – stóra flipabókin 7 Svefnfiðrildin Erla Björnsdóttir 8 Orri óstöðvandi – bókin hennar Möggu Messi Bjarni Fritzson 9 Þín eigin undirdjúp Ævar Þór Benediktsson 10 Hundmann – taumlaus Dav Pilkey Allar bækur Barnabækur Meðfram námsbókunum hef ég gaman af því að lesa skáldskap og þá oft bækur sem gerast á fram- andi slóðum og á öðrum tíma. Í fyrra las ég til dæmis bókina Sæluvímu eftir bandaríska rithöf- undinn Lily King. Sæluvíma segir frá þremur mannfræðingum, hjónunum Nell og Fen, og Andrew sem þau komast í kynni við þegar þau starfa öll þrjú við mannfræði- rannsóknir á ættbálkum sem búa við ána Sepik í Nýju-Gíneu. Úr verður ástarþríhyrningur með spennandi atburðarás. Bók- in byggist á atburðum úr ævi bandaríska mannfræðingsins Margaret Mead en er ekki að fullu sannsöguleg. Önnur skemmtileg bók sem ég las í fyrra var Hundakæti en það er útgáfa Þorsteins Vil- hjálmssonar á dagbókum Ólafs Davíðssonar frá árunum 1881- 1884. Ólafur skrif- aði stærstan hluta dagbókanna þeg- ar hann var nemi í Mennta- skólanum í Reykjavík og þær veita skemmtilega innsýn inn í daglegt líf menntaskólanema á þessum tíma. Af dagbókunum að dæma virðist ein helsta dægrastytting ungs fólks hafa verið stöðugir göngutúrar og lestur á raunsæistímaritum. Þegar Ólafur skrifar um nám sitt í skólanum, t.d. í grísku og latínu, er það helst til að sýna hversu fljótt (í klukkustundum) hann hafi náð að lesa hina og þessa kviðu Hómers. Þorsteinn vekur sérstaklega athygli á þeim stöðum sem voru áður ritskoð- aðir í fyrri útgáfu af dagbók- unum en Ólafur lýsir einnig tilfinn- ingum sínum gagn- vart yngri skóla- bróður. Sem nemi í forn- fræði verð ég svo að sjálfsögðu að nefna The Secret History eftir Donnu Tartt sem varð metsölubók þegar hún kom út í Bandaríkjunum árið 1992. Bókin hefur verið í uppáhaldi hjá mér síðan ég las hana fyrst fyrir nokkrum árum en í henni segir frá Richard Papen sem hefur nám í Hampden College á Nýja- Englandi. Þar kemst hann í klíku fimm forn- fræðinema við há- skólann. Sagan hefst á morði eins þeirra og lesandi sér atburðina sem leiða til morðsins eftir því sem líður á bókina. Að lokum er Snerting eftir Ólaf Jóhann Ólafsson sú bók sem ég las seinast. Hana hafa ef- laust margir lesið nýlega en ég mæli hiklaust með henni fyrir þá sem hafa ekki gert það þar sem hún er grípandi og vel úr garði gerð. SÓLVEIG HRÖNN ER AÐ LESA Bækur sem gerast á framandi slóðum og á öðrum tíma Sólveig Hrönn Hilmarsdóttir er BA-nemi í latínu og grísku við Háskóla Íslands.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.