Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Blaðsíða 2
Hvað er að frétta?
Ég var að leika aðalhlutverkið í þætti sem
heitir Hver drap Friðrik Dór? og er svokall-
að „mockumentary“, eða plat-heimildar-
mynd. Við erum í eins konar hliðarheimi að
rannsaka meint andlát söngvarans. Strák-
arnir í Snark skrifuðu handritið og hringdu í mig
þegar ég var enn í leiklistarskólanum og spurðu
hvort ég hefði áhuga á svona skrítnu og steiktu verk-
efni. Ég sló til.
Hvað ertu búinn að vera lengi í tökum?
Við höfum verið í tökum í eitt og hálft ár. Ég er búinn að
vera andvaka upp á síðkastið því ég trúi varla að þetta sé í
höfn og sé að fara í loftið.
Er þá Friðrik Dór látinn í þáttunum?
Fólk þarf að sjá þættina til að komast að því. Það má ekki
uppljóstra of miklu.
Eru þættirnir fyndnir?
Ég vona það! Þetta á að vera fyndið drama, eða spennugrín.
Leikur Friðrik Dór í þáttunum?
Já, og Jón Jónsson.
Gerðist eitthvað skondið í tökum?
Þetta gekk að mestu eins og smurð vél. Það var reyndar skrítið að
taka upp í Norrænu í Færeyjum. Það voru allir að furða sig á hvað
væri í gangi. Svo vorum við nánast búin að yfirtaka Þórshöfn því í
miðjum Covid-faraldri vorum við þeir einu á ferðinni í bænum.
Verður framhald?
Já, það gæti verið og þá verður jafnvel tekið upp í fleiri löndum.
Morgunblaðið/Ásdís
VILLI NETO
SITUR FYRIR SVÖRUM
Hver drap
Friðrik Dór?
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2021
Það vita ekki margir – og þið hafið kannski hljótt um það – en tvö af mín-um helstu áhugamálum eru mannanöfn og sverð. Sverð heilluðu mig snemma og ég skylmdist mikið sem barn, á
engjum og í rjóðrum. Með þokkalegum árangri. Ég get sagt ykkur allt um
Grásíðu, sem var dvergasmíði og beit á allt sem fyrir var, og önnur fræg
sverð úr sögunni, svo sem Dragvandil sem Ketill hængur úr Hrafnistu tók af
Gusi Finnakonungi dauðum. Síðar þóttist ég hafa himin höndum tekið þegar
ég hitti einn fremsta skylmingakappa Bretlands á níunda áratugnum, Bruce
Dickinson. Eini heimsfrægi maðurinn sem ég hef látið ljósmynda mig með.
Því miður var hvorugur okkar með sverð á myndinni.
Mannanöfn hafa einnig verið mér hugleikin frá blautu barnsbeini og þá
ekki síst þau sem skera sig úr. Ég er
líka mikill áhugamaður um undir-
flokka eins og viðurnefni, sumum
samferðarmönnum mínum til ama.
Í þessu ljósi þarf ekki að koma á
óvart að þátturinn Síðasta konungs-
ríkið, sem Ríkissjónvarpið sýnir nú á
þriðjudagskvöldum, sé í miklu uppá-
haldi hjá mér. Ekki nóg með að
menn skylmist þar eins og enginn sé
morgundagurinn (það á raunar bók-
staflega við um margar persón-
urnar), heldur eru nöfn manna með
allra tilkomumesta móti.
Aðalsöguhetjan, Danabaninn Útráður af Bebbanborg, er einn mesti kappi
sjónvarpssögunnar; með afbrigðum vígfimur og alltaf skrefi á undan óvild-
armönnum sínum, bæði í hreyfingum og hugsun. Eins konar James Bond
níundu aldarinnar. Sverðið leikur í höndunum á honum. Fyrir kemur að ég
þykjustuskylmist með Útráði í stofunni heima, hundinum til mikillar undr-
unar. Ætli hann líti ekki svo á að um helgiathöfn af einhverju tagi sé að ræða.
Alltént truflar hann mig aldrei.
Nýjasta persónan, sem kynnt var til sögunnar í Síðasta konungsríkinu, er
verðandi brúður Játvarðs, krónprins Vestur-Saxa. Hún heitir því mik-
ilfenglega nafni Álffljóð. Fljóðin flæða raunar um allt í þáttunum en tilvon-
andi mágkona Álffljóðs heitir síst lakara nafni, nefnilega Aðalfljóð. Mergjað
nafn og óskiljanlegt hvers vegna ekkert slíkt er að finna í þjóðskrá. Við
brenndum líka af dauðafæri þegar við klikkuðum á því að nota nafnið sem
titil meðan fegurðarsamkeppnir voru enn í tísku hér í fásinninu. Unnur
Steinsson, aðalfljóð Íslands, hljómar margfalt betur en Unnur Steinsson,
fegurðardrottning Íslands. Ekki satt?
Annars er Játvarður þessi sonur Alfreðs mikla konungs Vestur-Saxa (sem
í raun og sann var til) en hann er sonur Aðalúlfs konungs. Bræður Alfreðs
ríktu allir á undan honum, Aðalbaldur, Aðalbert og Aðalráður. Hvert nafnið
er öðru betra og bersýnilega lítið um aukamenn í þessari ætt.
Í nafni sverðsins
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Fyrir kemur að égþykjustuskylmist meðÚtráði í stofunni heima,hundinum til mikillar
undrunar.
Lilja Þormar
Nei, ekki beint, en eftir að ég las
bókina hennar Sigríðar Hagalín þá
veit maður að ýmislegt getur gerst.
SPURNING
DAGSINS
Hræðist
þú jarð-
skjálfta?
Emil Aron Sigurðarson
Já, svona stóra.
Eir Ólafs
Mér finnst þeir ekkert þægilegir en
er ekki hrikalega hrædd við þá.
Hreiðar Snær Elíasson
Nei. Alls ekki.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Þorkell Þorkelsson
Hver drap Friðrik Dór?-serían kom í heild sinni inn í Sjónvarp
Símans Premium fimmtudaginn 25. febrúar. Hver drap Friðrik
Dór? er fyrsta sjónvarpsþáttaframleiðsla Snark.
STIGA
ST5266 P
40 ár
á Íslandi
Hágæða
snjóblásarar
Fjölbreytt úrval
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
VETRARSÓL er umboðsaðili
Gulltryggð gæði