Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Blaðsíða 9
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson 28.2. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9 Cristiano Ronaldo þakkar Kára fyrir leikinn á EM 2016. Portúgalska stórstjarnan komst hvorki lönd né strönd í leiknum. Kári segir þó að ekki megi líta af honum, hann þurfi að vera í gjörgæslu. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson boð kom frá Malmö FF sumarið 2015 þurfti ég ekki að hugsa mig tvisvar um.“ Hann sneri aftur til Bretlands tveimur árum síðar sem eftir á að hyggja voru mistök. „Eins og stundum voru þau félagaskipti gerð með hagsmuni landsliðsins að leiðarljósi. Heimir Hallgrímsson kom að máli við mig ári fyrir HM í Rússlandi og lýsti þeirri skoðun sinni að betra væri að hafa mig í sterkari deild en á Kýpur, þar sem ég hafði samið við Omonia. Þess vegna fór ég aftur til Aberdeen – orðinn tiltölulega gam- all. Tók meira að segja á mig launalækkun. Eins og mér þykir vænt um Aberdeen, bæði borgina og klúbbinn, þá fann ég strax að ég var vaxinn upp úr þessu. Þvílíkur hraði og djöfulgangur þarna í skosku deildinni. Og það var eins og við manninn mælt, ég byrjaði að meiðast aftur. En markmiðinu var náð, við komumst á HM og ég fékk að leika á stærsta sviðinu af þeim öllum. En eftir það var ég fljótur að koma mér burtu frá Skotlandi og lék síðasta árið í atvinnu- mennsku í Tyrklandi, þar sem rólegra var yfir öllu.“ Kári hefur leikið í Bandaríkjunum, Svíþjóð, Danmörku, Englandi, Skotlandi, Kýpur og Tyrklandi. Hvar ætli honum hafi liðið best? „Á Englandi, engin spurning. Það voru frá- bærir tímar. Breskt samfélag og menning á mjög vel við mig og allir mínir vinir gegnum knattspyrnuna, fyrir utan landsliðið, eru Eng- lendingar. Viðhorf þeirra til lífsins er svo skemmtilegt, bæði er húmorinn mjög líkur því sem maður á venjast hér heima og svo þarf bara svo mikið til að koma þeim úr jafnvægi. Eng- lendingar taka engu persónulega; væla ekki yfir nokkrum hlut og halda bara áfram með smjörið, sama á hverju gengur. Þarna lærði ég að velta mér ekki upp úr smáatriðum. Stjórarnir þarna eru auðvitað snaróðir, sérstaklega í neðri deild- unum, og margir myndu brotna undan því álagi en leikmennirnir sáu bara húmorinn í þessu og héldu áfram. „Life goes on, you know!“ Brjál- æðið í stjórunum gerði okkur leikmennina bara nánari.“ Kári flutti heim sumarið 2019 ásamt sam- býliskonu sinni, Hjördísi Perlu Rafnsdóttur, og syni þeirra, Mikael Atla, sem nú er þriggja ára. Hann segir það hafa verið góða ákvörðun. „Fyrstu tíu til tólf árin í atvinnumennskunni var ég ekkert að hugsa um að flytja aftur heim. Það var gaman að koma í frí á sumrin en síðan dreif maður sig bara aftur út í vinnuna. Síðustu fjög- ur ár ferilsins fórum við hins vegar að hugsa meira og meira um þetta, sérstaklega eftir að Mikael fæddist. Okkur langaði ekki að ala hann upp í ferðatösku en ég skipti oft um lið seinustu árin. Maður vill hafa stöðugleika og skipulag í kringum börnin sín og eins að þau fái að vera kringum stærri fjölskylduna. Það var mjög gott að koma heim; við töldum niður dagana í Tyrk- landi. Það var svo sem ekkert slæmt að vera þarna og vinnan vel launuð en maður brennur ekki beint fyrir einhverju tyrknesku liði sem maður hafði ekki heyrt nefnt áður en maður fékk tilboð þaðan.“ Hvað heitir það ágæta félag aftur? Jú, jú, þið eruð með ’etta. Gençlerbirligi. Kári var þó hvergi nærri hættur í fótbolta og við komuna heim kom aldrei nema eitt félag til greina – uppeldisfélagið Víkingur. „Ég opnaði aldrei á viðræður við aðra. Maður ætti örugg- lega meiri möguleika á titlum í Val eða KR en ég lét hjartað ráða för. Það er líka tífalt skemmtilegra að vinna titla með sínu félagi og það gekk eftir strax fyrsta sumarið, þegar við urðum bikarmeistarar. Það var algjört æv- intýri. Mér líður mjög vel í Víkingi og þykir vænt um strákana í liðinu en, eins og ég gat um áðan, þá gæti ég verið pabbi þeirra flestra. Þeir hlusta auðvitað misvel á mann, það er bara nátt- úran í þeim, en efniviðurinn er góður. Ég sé ekki eftir því að hafa komið heim í Víking.“ Talið berst að stöðu knattspyrnunnar hér heima og Kári segir dapran árangur liðanna á Evrópumótunum í fyrra áhyggjuefni. „Eina lið- ið sem átti möguleika var við en við töpuðum einum færri eftir framlengingu gegn Olimpija Ljublijana ytra. Mann langaði mest að gráta eftir þann leik. Þetta þarf að skoða mjög vel, ekki síst með hliðsjón af taktísku veikleikunum sem ég talaði um áðan. Fótboltinn hefur breyst mjög mikið síðan ég fór út, ekki bara hvað varð- ar tækni og taktík. Harkan var meiri hér áður en inn á milli voru menn með gæði sem gerðu út um leiki. Ætli það hafi ekki verið bein afleiðing enska boltans eins og hann var í gamla daga. Leikurinn milli Skagans og Vals, þegar dóm- arinn var með hljóðnemann, kemur upp í hug- ann, þar sem kappar á borð við Sigurð Jónsson og Sævar Jónsson tókust á og gáfu ekki þuml- ung eftir. Það er með ólíkindum að menn hafi staðið uppréttir eftir þessa leiki. Íslenski bolt- inn er áferðarfallegri í dag, teknískari og skemmtilegri fyrir áhorfendur en ætli við þurf- um ekki að finna eitthvert jafnvægi, milli hörku og mýktar.“ Hann segir alltaf gott að drengir og stúlkur fari utan í atvinnumennsku en veltir fyrir sér hvort betra geti verið að bíða aðeins með það skref. „Það er auðvitað einstaklingsbundið en í sumum tilvikum er of snemmt fyrir krakka að fara út fimmtán eða sextán ára. Til að koma til móts við þá þurfum við að bjóða upp á öflugt umhverfi hérna, þar sem þeir fá toppþjálfun en geta um leið haldið áfram og klárað stúdentinn og verið lengur með fjölskyldu og vinum áður en þeir halda út í hinn harða heim atvinnu- mennskunnar. Þetta er umræða sem ég myndi gjarnan vilja eiga við félögin og foreldrana sem þekkja börnin sín auðvitað best.“ Vivaldi, golf og MBA-nám Við vendum kvæði okkar í kross. Vínylplata í hillunni á bak við Kára vekur athygli mína en hún hefur að geyma hljóðritun á því merka verki Árstíðunum eftir Vivaldi. „Þessi er ómiss- andi fyrir leiki,“ segir Kári grafalvarlegur og teygir sig í gripinn. Síðan skellir hann upp úr. „Nei, nei. Konan mín á þetta; hún er að safna vínylplötum. Ég er ekki alveg þarna.“ – Hvað baukar þú helst utan knattspyrn- unnar? „Mér finnst mjög gaman að spila golf; ætli það sé ekki helsta áhugamálið. Mér þykir líka mjög dýrmætt að verja tíma með fjölskyldunni og finn vel hvað forgangsröðin breytist þegar barn kemur til sögunnar. Mér fannst á sínum tíma mikilvægt að mennta mig og þess vegna lærði ég viðskiptafræði á Bifröst meðfram knattspyrnunni; kláraði hana fyrir rúmum ára- tug. Tók mér gott frí frá námi eftir það en þegar við fluttum aftur til Aberdeen skráði ég mig í MBA-nám við Robert Gordon-háskólann og stefni á að ljúka því í sumar. Meðfram þessu hef ég svo verið í fjárfestingum ásamt Tryggva Björnssyni vini mínum og mun halda því áfram. Þannig að það er í mörg horn að líta.“ Fjölskyldan kann vel við sig í Garðabæ en þýðir það að sonurinn muni ganga í Stjörnuna? „Auðvitað myndi ég helst vilja að Mikael færi í Víking en það er ekki aðalatriðið, best er að hann fylgi félögum sínum. Sjálfur kem ég úr mikilli Valsfjölskyldu, Sigurður Egill og Dóra María Lárusbörn eru til dæmis náskyld mér, en samt kaus ég að fylgja æskuvinum mínum úr Fossvoginum í Víking og myndi ekki breyta því fyrir neitt.“ Kári hefur glímt við marga af bestu knatt- spyrnumönnum heims undanfarinn hálfan ann- að áratug eða svo og ekki er hægt að sleppa honum án þess að spyrja um þá erfiðustu. „Zlatan,“ segir hann strax, „Það er eiginlega ekki hægt að verjast honum. Hann er ekki bara stór og sterkur, heldur líka ótrúlega teknískur. Það má heldur ekki taka augun af Cristiano Ro- naldo. Hann þarf að vera í gjörgæslu allan tím- ann, annars vinnur hann metra og er kominn í færi. Messi komst ekkert áleiðis gegn okkur á HM en hann er, eins og við þekkjum, yfirleitt betri með Barcelona en landsliðinu. Xavi og Iniesta voru líka ótrúlegir; ég spilaði einu sinni á móti þeim á miðjunni hérna á Laugardalsvell- inum og var eins og krabbi allan leikinn, komst ekki nálægt þeim og dansaði bara hliðar saman hliðar. Snerpa þeirra og leikskilningur voru á allt öðru plani. En úrslitin voru frábær, 1:1. Em- il Hallfreðsson skoraði með flugskalla. Loks má ég til með að nefna Olivier Giroud. Hann er van- metnasti framherji í heimi; rosalega sterkur lík- amlega og með frábæra fyrstu snertingu. Það hlýtur að vera draumur að spila með honum og ótrúlegt að hann byrji ekki hvern einasta leik hjá sínu félagsliði.“ Heyrirðu það, Thomas Tuchel? Ertu ekki örugglega að lesa? Kári og félagi hans í miðri íslensku vörninni, Ragnar Sigurðsson, fagna sigrinum á Englendingum á EM í Frakklandi 2016. Þeir hafa oftar en ekki leikið sem einn maður fyrir íslenska landsliðið. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Kári fór og faðmaði vini sína í áhorfendastúkunni eftir sig- urinn á Englandi á EM 2016. Unnusta hans, Hjördís Perla Rafnsdóttir, kom svo aðvifandi og kyssti sinn mann. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Kári í leik gegn Nígeríu á HM í Rússlandi 2018. Morgunblaðið/Eggert ’Ég opnaði aldrei á við-ræður við aðra. Maðurætti örugglega meiri mögu-leika á titlum í Val eða KR en ég lét hjartað ráða för. Það er líka tífalt skemmti- legra að vinna titla með sínu félagi og það gekk eftir strax fyrsta sumarið, þegar við urðum bikarmeistarar. Það var algjört ævintýri. Kári gekk til liðs við uppeldisfélag sitt, Víking, 2019. Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.