Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Side 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Side 12
L íklega ættum við ekki að halda upp á eins árs afmæli vágestsins sem lagt hefur heiminn á hliðina. En á þessum tímamótum er fróðlegt að horfa til baka og skoða áhrif veirunnar og hvaða lærdóm má draga af árinu. Blaðamaður Sunnudagsblaðsins fór á stúfana og ræddi við fólk sem veiran hafði meiri áhrif á en okkur hin, þótt vissulega færi enginn jarðarbúi varhluta af henni. Þrír viðmælendur hafa áður komið í viðtal en hafa nú allt aðra sýn en áður, þar af eru tvær konur sem fengu Covid og súpa enn seyðið af því. Már Kristjánsson fræðir okkur um hvað læknar hafa lært og talar um bóluefnin og framtíðina. Einnig er rætt við hjúkrunarfræðing í rakningarteyminu og ljósmyndara Landspítalans. AFP Eitt ár með veirunni Í dag, sunnudag, er eitt ár frá því að fyrsta kórónuveirusmitið greindist á Íslandi. Af því tilefni lítur Sunnudagsblaðið yfir farinn veg og ræðir við fólk sem hefur reynslu af veirunni á einn eða annan hátt. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is KÓRÓNUVEIRAN 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2021 Eftir að hafa unnið sem sjálfboðaliði í far-sóttarhúsinu hafði ég skráð mig í bak-varðasveitina af því ég er hjúkrunar- fræðingur þótt ég hafi aldrei starfað sem slíkur. En ég gróf upp hjúkrunarleyfið og setti mig á listann. Það var nú kannski af því að ég er svo stjórnsöm að eðlisfari að mér fannst að þessi faraldur þyrfti á mér að halda. Er ekki annars hollt fyrir miðaldra húsmæður að henda sér aðeins í vinnuna?“ segir Helga Sverrisdóttir og hlær. Kveðin í herinn Helga var kölluð til í rakningarteymið strax um miðjan mars 2020, en teymið er skipað bæði hjúkrunarfræðingum og lögreglumönn- um sem vinna í nánu samstarfi við Covid- göngudeild og farsóttarhús. Í teyminu er unn- ið við að rekja smit, hringja í fólk og setja í ein- angrun og sóttkví, sem og leysa ýmis vandamál sem upp koma varðandi veiruna. „Mér leið eins og væri verið að kveða mig í herinn. Ég var spurð hvort ég gæti komið í 100% vinnu, og líka um páskana. Ég tók vinnunni og það teygðist nú aðeins úr og ég hef verið í þessu síðan. Þessi tími hefur verið ótrú- lega fróðlegur og lærdómsríkur,“ segir Helga. „Við vinnum á vöktum, kvölds og morgna og um helgar. Við sjáum þegar ný jákvæð sýni detta inn í sameiginlegan grunn og tökum þá hvert einasta tilfelli og greinum hvort þarf að setja fólk í sóttkví. Við höfum þá samband við fólk til að fá það til að rekja ferðir sínar. Oft vissi fólk ekkert hvar það hafði smitast en um leið og það rakti ferðir sínar vissum við oft hvaðan smitið kom. Það voru margir staðir sem voru „heitir“. Oft þegar mikið var að gera sáum við alls kyns mynstur og stundum vissi maður nánast fyrir fram hvar fólk hefði smit- ast,“ segir hún og segir að smitrakningarappið hafi stundum komið sér vel, en flestir hafi get- að rakið ferðir sínar. „Við gátum ekki rakið alveg öll smit en næstum öll. Sum smit gátum við líka rakið seinna eftir raðgreiningum, fólk sem hafði ver- ið á sömu stöðum en var ótengt.“ Fólk í Covid-rómantík „Þegar mest var að gera voru allt að sjö hjúkr- unarfræðingar á vakt og fjórir lögreglumenn og oft var fólk á vakt frá níu á morgnana til ell- efu á kvöldin til að komast yfir smit dagsins. Stundum var brjálað að gera en það var líka gaman. Það gerðist auðvitað oft margt spaugi- legt,“ segir hún. „Sumir voru kannski búnir að vera með ein- hverjum sem þeir áttu ekkert að vera með. Fólk sem átti alveg að vita betur. Maður lenti í alls konar,“ segir Helga og segir hafa komið upp tilvik þar sem manneskja í einangrun hafi laumast til að heimsækja kærastann eða kær- ustu. Þá hafi fólk fengið ávítur. „Stundum var fólk svolítið lúpulegt.“ Setti líf fólks á hvolf Þau eru ófá símtölin sem Helga hefur hringt og margir sem hún hefur sent í sóttkví. Helga segir langflesta hafa sýnt mikið æðruleysi og brugðist vel við. Sum símtölin hafi þó tekið á. „Ég skal alveg viðurkenna til dæmis að þeg- ar ég þurfti að setja hárgreiðslukonu í sóttkví alla vikuna fyrir jól að ég var alveg að fara að gráta. Ég var að setja líf fólks gjörsamlega á hvolf og það var ekkert auðvelt. En ekkert af þessu hefur verið auðvelt,“ segir Helga og nefnir að í einstaka tilviki hafi fólk brugðist illa við. „Það var kostur að í teyminu væru bæði hjúkrunarfræðingar og lögreglumenn því það reyndist frábær blanda. Stundum þurfti blíðar hjúkrunarfræðings- raddir og stundum ákveðnar lögreglu- raddir.“ Hvað var erfiðast við starfið? „Þegar það kom upp hópsmit á Landakoti, Eyrar- bakka og Reykja- lundi. Það var mjög þungbært. Jákvæðu sýnin hrúguðust inn, frá aðstandendum, starfsfólki og sjúklingum. Þá þurfti maður líka að setja viðkomandi aðila í einangrun, veikt fólk sem var kippt burt úr öll- um aðstæðum og því fólki fannst það al- gjörlega hjálparvana. Þetta fólk þurfti þá að horfa upp á vinnustaðinn sinn eða heimili að- standenda sinna í algerri upplausn og starfs- fólkið á sjúklinga sína mikið veika. Þarna kom- umst við næst því að missa tökin á faraldrinum. Þessi helgi gleymist aldrei,“ segir Helga. „Svo var ég að vinna á aðfangadag og þurfti að setja menntaskólastrák í sóttvarnahús klukkan hálfsex. Það var ekki auðvelt fyrir mömmuhjartað.“ Allir jafnir gagnvart Covid Helga segist í gegnum vinnuna hafa kynnst ís- lensku þjóðfélagi með öllu sínu litrófi. Kór- ónuveiran fer ekki í manngreinarálit og þurfti Helga að tala jafnt við bágstatt fólk sem þau betur efnuðu, útlend- inga og Íslendinga, konur sem karla. „Mannlífið er þarna í sinni tærustu mynd. Ég þurfti að setja bláfátæka erlenda verkamenn og fólk sem bjó við erfiðar félags- legar aðstæður í sóttkví. Og ég þurfti líka að setja forseta Íslands í sóttkví! Það eru allir jafnir gagnvart Covid,“ segir Helga. Helga nefnir einnig að oft hafi hún þurft að senda fólk í sóttkví eða einangrun sem var við- kvæmt fyrir. „Það er mikið sjokk að greinast með Covid og kemur eins og þruma úr heiðskíru lofti. Sumir voru að ganga í gegnum skilnað, aðrir voru með langveik eða einhverf börn. Sumt fólk var bara bugað fyrir og það bætti ekki á að fá svona fréttir. Það gat verið mjög erfitt og þá fannst því gott að eiga sínar hjúkkur að,“ segir Helga og segir að í seinni bylgjum hafi verið mikið rætt um langtímaáhrif sem gerði fólk mikið hræddara við kórónuveiruna. Vonast til að verða rekin „Ég var stundum mjög leið yfir líðan og að- búnaði fólks. Aðstæður fólks eru víða erfiðar; ekki síst meðal erlends vinnuafls. Ég sá líka mikla fátækt og upplifði það að fyrir suma var tilhugsunin að vera lokaður inni með sínum nánustu óbærileg. Ég hef orðið vitni að öskr- um, látum og hótunum í gegnum símann, og þess vegna var svo gott að hafa líka lög- reglumenn í teyminu. Við höfum stundum þurft að senda lögreglubíl á staði til að meta hvort það þyrfti að grípa til aðgerða.“ Undanfarið hefur verið rólegt hjá Helgu, enda hefur aðeins þurft einn úr teyminu á vakt þar sem engin smit hafa greinst í vel yfir mán- uð. Helga er því á bakvakt og vonar að hún þurfi ekki að snúa aftur til starfa. Hún segist munu sakna vinnufélaganna en ekki veir- unnar. „Þetta er eina starfið sem maður vonast til að verða rekinn úr,“ segir hún og bætir við að lokum: „Ég hef sjálf verið heppin og mín fjöl- skylda og höfum við hvorki smitast né lent í sóttkví. Mig langar ekkert að fá þetta!“ HELGA SVERRISDÓTTIR Helga segir árið með rakningarteyminu hafi verið afar lærdómsríkt en erfitt. Morgunblaðið/Árni Sæberg Setti forsetann í sóttkví ’Ég skal alveg viðurkenna tildæmis að þegar ég þurfti aðsetja hárgreiðslukonu í sóttkvíalla vikuna fyrir jól að ég var al- veg að fara að gráta. Ég var að setja líf fólks gjörsamlega á hvolf og það var ekkert auðvelt.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.