Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Page 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Page 14
KÓRÓNUVEIRAN 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2021 Ég áttaði mig strax á því aðþarna var stór atburður áferðinni og að skrásetja þyrfti hann í myndum. Á sama tíma var ljóst að ekki væri hægt að hleypa fjöl- miðlum eða neinum utanaðkomandi inn á spítalann og var það því á mín- um herðum, og kvikmyndatöku- manns spítalans, að skrásetja í myndum ástandið,“ segir Þorkell Þorkelsson ljósmyndari Landspít- alans. Friðhelgi sjúklings „Starfið breyttist eiginlega á einni nóttu. Ég var ekki mikið að mynda Covid-veikt fólk þótt ég sæi það allt í kringum mig. Við vorum að skrásetja starfið en hlutverk spítalans er auð- vitað að vernda sjúklinga, þannig að ég var ekki vaða ofan í fólk með myndavélina þegar það var á við- kvæmasta tímabili í lífi sínu. Ég var að reyna að ná því sem var að gerast án þess að rjúfa þau helgu vé sem friðhelgi sjúklingsins er. Þetta var línudans; að mynda nóg án þess að vera byrði á starfsfólkinu,“ segir Þor- kell og segist varla hafa tekið sér frí í ár. „Þetta hefur reynt talsvert á, það er aldrei alveg hlé. En ég er alls ekki að kvarta!“ Alveg hættur að sjá Þorkell þurfti gjarnan að klæðast fullum hlífðarbúningi og segir oft hafa verið erfitt að athafna sig við myndatökur. „Svo þurfti maður að setja mynda- vélina í plastpoka og þar af leiðandi sá maður ekki vel í gegnum linsuna. Svo ertu með hlífðargleraugu sem hjálpa ekki og þar að auki grímu sem veldur því að gleraugun móðast. Þarna er maður alveg hættur að sjá. Ég þurfti bara svolítið mikið að giska og reiða mig á reynsluna mína sem blaðaljósmyndari,“ segir Þorkell og segist ekki hafa verið hræddur um að smitast. „Ég vissi auðvitað að það væri möguleiki. Ég þurfti að huga að eigin öryggi og þeirra í kringum mig um leið og ég var að uppfylla mína skyldu að skrásetja vinnuna og miðla henni til umheimsins í formi frétta,“ segir Þorkell og segir starfsfólkið hafa staðið sig frábærlega. „Það sýndi allt það besta sem í því ÞORKELL ÞORKELSSON Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari Landspítalans, og Ásvaldur Kristjánsson, kvikmyndatökumaður Landspítalans, þurftu oft að klæðast hlífðarbúningi við vinnu sína nú í faraldrinum. Þorkell skellti í eina sjálfu í spegli til að sýna aðstæður. Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson Álagið var alltumlykjandi Það er svo ótrúlega margt semvið höfum lært á þessu ári,“segir Már Kristjánsson, yf- irlæknir á smitsjúkdómadeild Land- spítalans, þegar hann er beðinn um að líta til baka yfir kórónuveiruárið. „Við höfum séð betur hvað veiru- sýking getur verið erfið fyrir líkam- ann. SARS-CoV-2 er eins og kvef- veira en hingað til höfum við þekkt kórónuveirur eftir að þær hafa í raun misst öll bitjárnin. Þær eru greinilega mjög skæðar fyrst þegar þær koma úr dýraríkinu og í mannfólkið og við þá mjög næm fyrir þeim,“ segir Már. „Hluti fólks sem smitast getur far- ið mjög illa út úr veikindunum, eins og gögnin sýna. Fimmti hver sem smitaðist af kórónuveirunni varð illa veikur og af þeim var fjórðungur fár- veikur eða lést.“ Viðvarandi taugaeinkenni Langtímaáhrif veirunnar eru að koma í ljós eftir því sem tíminn líður, að sögn Más. Hann segir að fólki sem finni fyrir einkennum löngu eftir smit sé beint til heilsugæslunnar en þeim sem voru mjög alvarlega veikir hafi verið vísað til lungnalækna í eftirfylgni og í rann- sóknarskyni. „Örfáir hafa komið til okkar á göngudeild með einkenni sem rekja megi til Covid-veikinda og svo eru talsvert margir sem farið hafa í endurhæfingu á Reykjalund. Oft er það fólk sem var hvað veikast; fólk sem lenti á gjörgæslu,“ segir Már. „En jafnvel þó að fólk hafi ekki ver- ið mikið veikt, þá eru margir sem fá lotubundin einkenni. Fólk er kannski sæmilegt í nokkra daga en verður svo afar þreytt, og jafnvel með heilaþoku, næstu daga,“ segir Már og útskýrir að margar aðrar veirur geti einnig valdið ýmsum heilsufarslegum vandamálum, jafnvel svo mánuðum skiptir. „Þetta einskorðast ekki við Covid, en gerist líka eftir Covid-sýkingu. Við köllum þetta Post Viral Fatigue, eða þreytuheilkenni í kjölfar veirusýk- ingar. Það lenda ekki allir í þessu, en við vitum ekki hve margir það eru. Það er ábyggilega vanmetið hjá okk- ur hversu mikil áhrif veiran hefur inn í taugakerfið,“ segir Már og nefnir að Víðir Reynisson hafi einmitt nefnt ný- lega að hann væri enn með bragð- og lyktarskynstruflun. „Það er klárlega taugaeinkenni; einhver starfræn truflun. Nokkrir hafa viðvarandi taugaeinkenni, þótt þau muni ganga til baka hjá þorra fólks.“ Lyf, reynsla og þekking Bjuggust þið við færri tilvikum af Co- vid eða fleiri? „Okkar stærsti ótti var að lenda í því sem mörg lönd lentu í, að fá yfir- fyllingu á okkar getu. Það gerðist ekki, og alls ekki í seinni bylgju. Þá voru fleiri einstaklingar sem greind- ust heldur en í fyrri bylgjunni, en færri sem þurftu að leggjast á gjör- gæslu. Að vísu létust fleiri þá, en það tengdist Landakoti. Það var sá hópur sem við vorum alltaf að reyna að verja, en tókst ekki sem skyldi,“ segir Már og segir ný og betri lyf hafa skipt sköpum síðasta haust. „Í fyrstu bylgju vorum við að nota lyf sem í tilraunaglösum virtust hjálpa en svo kom á daginn að voru gagnslaus. En í sumar fengum við sértæk veirulyf, eins og Remdesivir, og aukna þekkingu á beitingu bæði veirulyfja og bólguhemjandi lyfja. Kerfið okkar var smurðara, en í fyrstu bylgju þurftum við að leika þetta af fingrum fram. Ég tel að nýju lyfin og þekkingin hafi hjálpað okkur að glíma við veiruna í seinni hlut- anum,“ segir Már og segir marga hafa velt fyrir sér hvort veiran hafi verið mildari í haust en í vor. „Ég held það hafi ekki verið tilfellið því í þeim svæsnu tilvikum sem við sáum dró veiran ekkert af sér. En að geta komið í veg fyrir að fólk lenti inni á spítala eða á gjörgæslu, fyrir tilstilli göngudeildarinnar var okkar stærsti sigur.“ Fram úr björtustu vonum Talið berst að bólefnum sem nú streyma til landsins og eru frá hinum ýmsu lyfjafyritækjum, eins og Pfizer, Moderna og AstraZeneca. Hefur þú fulla trú á öllum þessum tegundum? „Já. En þau eru mismunandi og hafa mismunandi eiginleika. Ég er mjög hlynntur þessum kjarnsýru- bóluefnum, eins og þeim frá Pfizer og Moderna,“ segir Már og segir slík bóluefni búin til á grunni mikillar reynslu og þekkingar. „Þessi sértæku bóluefni sem RNA kjarnsýrubóluefni eru, opna dyr inn í gríðarlegar framfarir í bólusetn- ingum og meðferð ýmissa sjúkdóma þegar til lengri tíma er litið. Við erum að upplifa mjög merkilega tíma hvað það varðar,“ segir Már og segir ótrú- legt hversu fljótt tókst að búa til bólu- efni við Covid. „Þetta fór fram úr okkar björtustu vonum. Þegar ég var spurður fyrir ári síðan hvenær kæmi bóluefni, svaraði ég að það myndi taka mörg ár, kannski áratugi. Það voru einhverjir sem þekktu betur fræðasviðið sem sögðu að þetta gæti gerst á einu ári. Ég hafði miklar efasemdir um það. En það gerð- ist, og það gerðist fyrir tilstilli sam- stillts átaks mjög margra aðila. Vísindasamfélagið, viðskiptasamfélagið og eftirlitsaðilasamfélagið lögðust öll á eitt að flýta ferlinu, án þess að gefa af- slátt af öryggiskröfunni. Og það tókst. Sumir spyrja þá, er þetta ekki bara einhver tilraunamennska? En það er það ekki. Það er verið að byggja á ára- tuga langri reynslu. Helsta vand- kvæðið var að við höfðum ekki reynslu af svona massabólusetningu með kjarnsýrubóluefni,“ segir Már. „Svo eru til margar tegundir sem ekki eru RNA-kjarnsýrubóluefni, eins og AstraZeneca. Það er mjög gagnlegt fyrir einstaklinga undir 65 ára aldri með hraust ónæmiskerfi en virðist hafa minni virkni í eldra fólki. Við munum nota það fyrir yngra fólk- ið þar sem það er afar áhrifaríkt.“ Gott rannsóknartækifæri Már bindur miklar vonir við heilsu- rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar og segir að þegar öll kurl verði komin til grafar geti sú rannsókn varpað skýru ljósi á afleiðingar kórónuveir- unnar. „Þessi rannsókn er enn í gangi og búið að bjóða öllum sem voru í fyrstu MÁR KRISTJÁNSSON Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítala, segist aldrei hafa getað ímyndað sér að bóluefni kæmi svona fljótt á markaðinn sem raun bar vitni. Morgunblaðið/Ásdís Munum fá svona veirur oftar en sjaldnar ’Við köllum þetta PostViral Fatigue, eðaþreytuheilkenni í kjölfarveirusýkingar. Það lenda ekki allir í þessu, en við vitum ekki hve margir það eru. Það er ábyggi- lega vanmetið hjá okkur hversu mikil áhrif veiran hefur inn í taugakerfið.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.