Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Síða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Síða 19
Einlæg gleði skín úr hverju andliti eftir úrslit í Skrekk árið 2019 en þá sigraði Hlíðaskóli. Morgunblaðið/Hari „Ég hef tvisvar tekið þátt í Skrekk og bæði skiptin voru frábær. Ég lærði svo margt sem ég hefði ekki getað lært í skólanum með bók í hendi,“ segir Kári Freyr Krist- insson, nemi í 2. bekk í Versló, áður nemi í Árbæjarskóla. „Í dag er ég í stjórn Skrekks. Það má segja að Skrekkur hafi elt mig upp í menntaskóla. Þetta var svo skemmtilegt. Ég verð enn spenntur á haustin þegar Skrekkur er að byrja,“ segir hann. „Árbæjarskóli vann bæði árin sem ég tók þátt, en hann hefur unnið þrisvar sinnum. Ég hef sjaldan verið jafn stoltur og þegar við unnum Skrekk.“ Sjaldan verið eins stoltur 28.2. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Hlupu allsber af gleði „Þessi viðburður skiptir krakkana rosalega miklu máli og ég veit að krökkunum í Garðabæ og Hafnarfirði finnst leiðinlegt að fá ekki að taka þátt,“ segir Harpa Rut og útskýrir að Skrekkur átti þrjátíu ára afmæli árið 2020 en sökum kórónuveirunnar þurfti að fresta Skrekki í fyrra. Búið er að færa Skrekk 2020 til nokkrum sinnum. „Þetta er fjórða dagsetningin. Við erum að halda Skrekk 2020 í mars 2021 og munum svo halda Skrekk 2021 í nóvember. Núna vegna kór- ónuveirunnar hefur félagslíf krakkanna verið takmarkað og það var fallegt þegar ein stelpa í 10. bekk, sem er að taka þátt í síðasta sinn, sagði að Skrekkur væri ljósið í myrkrinu í Covid.“ Harpa Rut segir að mikið stolt fylgi því að vinna Skrekk. „Ég man þegar ég var að kenna í Austur- bæjarskóla og krakkarnir unnu Skrekk að þau fóru upp í Hallgrímskirkju og hlupu allsber í kringum kirkjuna. Þau fríkuðu svo mikið út því þetta var svo mikil gleði,“ segir Harpa Rut og hlær. Ekkert nema jákvætt Síðastliðið haust kom út meistararitgerð um Skrekk og áhrif þátttöku á unglinga. Höf- undur er Jóna Guðrún Jónsdóttir, aðjunkt við Háskóla Íslands. Ber ritgerðin nafnið: Að vekja listina í sjálfum sér: ávinningur nemenda af þátttöku í Skrekk, hæfileikakeppni grunn- skóla Reykjavíkurborgar. Jóna Guðrún vann rannsókn um Skrekk ásamt Rannveigu Björk Þorkelsdóttur, dósent hjá HÍ, og skrifuðu þær grein um niðurstöður sínar í Netlu, rannsóknarriti Háskóla Íslands. Jóna Guðrún segir Skrekk hafa afar jákvæð áhrif á unglinga sem skilar sér meðal annars í auknu sjálfstrausti og betri félagslegum tengslum. „Krakkarnir valdeflast með því að fá að ráða sjálf verkefninu. Sjálfstraust þeirra eflist og með þessari samvinnu efla þeir hver annan til frekari afreka. Vinnuandinn er mjög jákvæður og krakkarnir þjálfast í að vinna saman, hlusta á hver annan og taka tillit. Niðurstöður rann- sóknarinnar voru mjög jákvæðar, en við töl- uðum við nemendur, kennara og skólastjórn- endur,“ segir Jóna Guðrún. „Félagsleg tengsl eflast mikið. Þau taka margt jákvætt með sér út í lífið,“ segir Jóna Guðrún og segist nú halda áfram að rannsaka áhrif Skrekks. „Næst er að kanna hvaða áhrif Skrekkur hefur á skólabraginn.“ Harpa Rut tekur í sama streng og segir allt jákvætt við Skrekk. „Niðurstöður Jónu Guðrúnar styðja það sem ég hef séð og það er að Skrekkur hefur bara jákvæð áhrif á krakkana. Þeir tala um hvernig þeir fara út fyrir þægindarammann og sjá að þeir geta meira en þeir trúðu að þeir gætu gert. Þeir eru að kynnast krökkum úr öðrum árgöngum sem þau hefðu annars ekki gert og eru að eignast vini til lífstíðar. Þau eru búin að rífast og hlæja og gráta saman og kom- ast svo að sameiginlegri niðurstöðu og enda síðan á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu. Það er magnað.“ Krakkarnir í Klettaskóla hafa tekið þátt í Skrekk þrisvar og verða nú með í fjórða sinn. Ljósmynd/Anton Bjarni Morgunblaðið/Hari Krakkarnir í Austurbæjarskóla lögðu mikla vinnu í búninga árið 2012 eins og sjá má. Morgunblaðið/Hari Árbæjarskóli sigraði í Skrekk árið 2017 og gleðin var að vonum mikil. Kári Freyr Kristinsson

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.