Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2021 HEILSA STOFNAÐ 1953Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380 Sofðu betur í hreinum rúmfötum Sigrún Ágústsdóttir er mikiðnáttúrubarn. Í raun elskar húnað vera úti í náttúrunni; að upplifa hana og njóta. Hún hefur alla tíð verið dugleg að hreyfa sig og í dag stundar hún meðal annars göngur, skíði og sjósund sér til heilsubótar. Sigrún er sjötug að aldri og starfar sem leikskólakennari í Mosfellsbæ. Hluti af starfi hennar í dag felur í sér að fara með börnin í göngutúra og kenna þeim að njóta umhverfisins. „Ég er sérlega lánsöm með leik- skólastjóra á mínum leikskóla því hún tók mjög vel í þá beiðni mína að fara með börnin út í göngutúra. Við förum í fjallgöngur, skógarferðir, upp með ánni og ýmsar fleiri áhugaverðar leið- ir þar sem við skoðum náttúruna og heilsum upp á hunda, hesta og hænur ásamt því góða fólki sem á vegi okkar verður,“ segir Sigrún. „Börnin verða slakari í þessari úti- veru. Þau taka betur eftir umhverfinu og læra að hlusta. Það er ekki óalgengt að þau stoppi og biðji um að fá að hlusta. Þetta er ómetanleg samvera.“ Mikilvægt að upplifa að maður hafi nægan tíma Sigrún er einnig í öðrum sérverk- efnum fyrir bæinn er varða börn og stuðning við þau. „Í öllum mínum verkefnum, hvort sem er persónulega eða faglega, leit- ast ég við að gera lífið betra. Ég er já- kvæð að upplagi, gef mér rými og heimild til að njóta og tek mig ekki alltof alvarlega,“ segir hún og hlær. Henni finnst nauðsynlegt að vera opin fyrir tækifærum dagsins. Að vera ekki of niðurnjörvuð þannig að hún geti tekið á móti vinum, farið í sjósund, göngu eða hvað sem upp kemur með stuttum fyrirvara. „Þetta er allt spurning um við- horfið fyrir tímanum. Að upplifa að maður hafi nægan tíma, því þá hefur maður nægan tíma.“ Reglur og fastir vanar eiga ekki upp á pallborðið hjá henni í dag. Hún segist stundum eiga erfitt með að vakna á morgnana, sér í lagi ef hún hefur vakað fram eftir, sem hún bendir á að sé kannski af því að henni finnst gott að sofa á morgnana og það sé bara í góðu lagi. „Góð heilsa fyrir mér er að líða vel í eigin skinni, andlega jafnt sem líkam- lega, og að geta gert það sem hug- urinn vill. Ég þakka fyrir að vera virk í lífinu, að geta gert það sem mér finnst bæði skemmtilegt og hollt.“ Sigrún er með það viðhorf að hreyfing sé ekki skylda heldur hreyfir hún sig af því hana langar til þess og hefur þörf fyrir það. Hún segir að þá morgna sem hana langar að vakna snemma fari hún í sund og syndi þá 1.000 m áður en hún heldur til vinnu. Ekki af því það sé eitthvað sem hún verði að gera heldur sé það þá eitthvað sem hana langar að gera. „Hreyfing og heilnæmur matur eru mér mikilvæg. Mér finnst til dæmis mjög gaman að elda mat frá grunni. Þannig hlúi ég að heilsu minni og nýt mín. Ég borða hreinan mat, gæti að vítamínum og öðrum næring- argjöfum til að kroppurinn haldi í við hugann og veiti mér áfram þá gleði að geta verið virk í lífinu. Ég hef þó aldr- ei upplifað mig þannig að ég setji mig og heilsuna í fyrsta sæti heldur hef ég einfaldlega verið að gera það sem mér finnst skemmtilegt. Mér finnst til dæmis sælgæti oft skemmtilegt og þegar ég borða það nýt ég þess líka.“ Samvera og góðar stundir Sigrún á stóra fjölskyldu; þrjú börn, tengdabörn og fjórtán barnabörn. Hún veit fátt skemmtilegra en að fá þau öll tuttugu talsins í mat og segir hún það veita sér mikla gleði. Eins er ömmuhlutverkið henni mjög mik- ilvægt. „Það er fátt skemmtilegra en þeg- ar barnabörnin koma og gista og eru mér til ánægju og yndisauka. Ég hef alltaf lagt mikið upp úr samveru með börnunum mínum og barnabörnum. Jólagjöfin til barnabarnanna var til dæmis tímar í myndlist. Ég var svo heppin að finna kennara sem vildi taka hópinn í myndlistartíma; við vor- um á aldrinum fjögurra ára til sjötugs í tímanum. Sú samvera var einstök,“ útskýrir Sigrún með hlýju brosi. Henni finnst mikilvægt að for- eldrar séu góðar fyrirmyndir barn- anna sinna því eins og málshátturinn segir þá læra börnin það sem fyrir þeim er haft. Í raun séu hlutirnir ekki miklu flóknari en það. „Ég var lánsöm að geta verið heima með börnunum mínum og fór ekki að vinna fyrr en þau voru orðin stálpuð. Það var mikilvægur tími bæði fyrir mig og börnin, alveg ein- staklega skemmtilegur tími. Að geta haft drekkutíma fyrir þau og vini þeirra, rætt við þau og hlustað var dásamlegt.“ Spennandi verkefni Sigrún segir það einnig mikilvægt að eiga góðar vinkonur og þar sé hún lánsöm því hennar séu einstaklega vandamálalausar og til í að gera skemmtilega hluti eins og að hoppa í sjóinn, eiga saman spilakvöld, fara í bústað, á skíði, fjórhjól, kajak og margt fleira. „Lífið er skemmtilegt og það er al- veg óþarfi að flækja það. Ég hef alltaf val og hef valið að gera mér gott, njóta fjölskyldunnar, vinkvennanna, rækta andann og gera skemmtilegar hreyfingar,“ segir hún. Sigrún kann margar góðar sögur af því að vera amma og hefur hún það fyrir sið að reyna að segja ekki nei við barnabörnin. „Vegna þessa hef ég verið fengin í alls konar áhugaverð verkefni. Ég man sem dæmi eitt sinn að barna- barnið mitt, þá fjögurra ára, kom heim til mín þar sem ég bjó stutt frá heimili hans. Hann var með nokkrum vinum sínum og þeir voru að leita að góðum markmanni. Ég sagði að sjálf- sögðu já og stóð í marki hjá þeim og þeir skemmtu sér bara held ég jafn vel og amman.“ Sálin eldist ekki þótt líkaminn þroskist Sigrún er á því að sálin eldist ekki þótt líkaminn þroskist og því sé ákveðin kúnst að halda líkamanum í lagi til að geta gert það sem sálin þrá- ir að gera. Besta leiðin til þess sé að fara af stað, prófa hlutina og halda alltaf áfram þótt efasemdir komi upp og takmörkuð geta sé stundum fyrir verkefnin. Rétt eins og þegar hún steig inn í að vera markmaður á sín- um tíma fyrir strákana. Hún kann fleiri sögur af sér með börnunum úti að ganga þegar þau hefur dreymt um að gera hluti í nátt- úrunni sem hún hefur kannski ekki gert áður. Ef hún segir já og fer með þau á staðinn er oft ótrúleg skynsemi á bak við beiðnirnar hjá börnunum. Stundum eru draumarnir þannig að hvorugur aðili þorir að láta verða af því, svo sem að stökkva niður foss, en stundum geta líka litlir krakkar þráð að klappa sem dæmi hesti og þá er gott að hafa trausta manneskju með sér sem kann að njóta alls þess sem náttúran og dýrin hafa upp á að bjóða. Það kann Sigrún betur en margir aðrir. Stefán Sigurðsson, Ragna Sara Jónsdóttir, Sigrún Ágústsdóttir, Eva María Jóns- dóttir, Hildur Pétursdóttir, Hjörleifur Jónsson og Sigurpáll Scheving. Morgunblaðið/Árni Sæberg „Góð heilsa er að líða vel í eigin skinni“ Það er eitthvað við Sigrúnu Ágústsdóttur sem heillar. Það er eins og hún hafi fundið töframeð- alið sem fólk leitar að. Leiðina til að eldast fallega í sátt við náttúruna, menn, konur og ekki síst börn. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Sigrún sér ekki gagn í því að flækja lífið.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.