Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Síða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2021 LESBÓK GLÆPIR Fjórða serían af bresku glæpaþáttunum Unfor- gotten hóf göngu sína á ITV í Bretlandi í vikunni. RÚV hef- ur sýnt fyrri seríur og þessi hlýtur að skjóta bráðlega upp kollinum á skjám landsmanna. Sem fyrr er gamalt og óleyst mál í brennidepli. Rannsóknarlögreglumaðurinn Sunny Khan hefur rannsókn eftir að sundurlimað lík kemur í leit- irnar en grunur leikur á að það hafi verið geymt í frysti svo áratugum skiptir. Vinnufélagi hans, Cassie Stuart, hefur látið af störfum hjá lögreglunni til að sinna öldruðum föður sínum sem þjáist af elliglöpum en snýr fljótt aftur af tæknilegum ástæðum, eins og það er orðað í kynningu á þáttunum. Það eru sem fyrr Nicola Walker og Sanjeev Bhaskar sem fara með aðalhlutverkin í Unforgotten. Sundurlimað lík í frysti Nicola Walker leikur Cassie Stuart. AFP SÖKNUÐUR Leik- og sjónvarpskonan Va- lerie Bertinelli kveðst upplifa sorgarskömm eftir að fyrrverandi eiginmaður hennar, gít- arleikarinn Eddie Van Halen, féll frá síðasta haust. Ástæðan sé sú að þau hafi skilið árið 2007 og bæði komið sér upp nýjum maka eftir það. „Þetta er undarlegt. Sorgarskömm er eitthvað sem ég hélt að myndi aldrei henda mig,“ sagði hún í sjónvarpsþættinum Today. „Ég þekkti manninn í fjörutíu ár og hann er faðir bestu gjafar sem ég hef fengið, sonar okkar. Ég elskaði hann enn, þótt það hafi verið öðruvísi ást, og sakna hans. Og ég má það. Hann lék stórt hlutverk í mínu lífi.“ Upplifir sorgarskömm út af Van Halen Valerie Bertinelli er m.a. sjónvarpskokkur. AFP Chris Cornell söng í Soundgarden. Cornell stefnir Soundgarden DÓMSMÁL Vicky Cornell, ekkja Chris Cornell, hefur stefnt eftirlif- andi meðlimum rokkbandsins Soundgarden, Kim Thayil, Ben Shepherd og Matt Cameron, vegna tilboðs sem þeir gerðu henni í hlut bónda hennar í útgefnu efni bands- ins. Henni þykir tilboðið, sem var innan við 300 þúsund Bandaríkja- dalir, andvirði um 38 milljóna króna, alltof lágt enda hafi þrí- menningarnir fengið mun hærra tilboð sjálfir frá óháðum aðila. Þeir hafna því enda sé rétturinn á efninu ekki til sölu. Lögmaður Cornell sakar þá félaga um græðgi en þeir segjast á móti hlakka til að mæta fyrir rétt, þar sem hið sanna muni koma í ljós. Þá segjast þeir spenntir fyrir því að leggja lokahönd á sein- ustu plötu Soundgarden. Það fór ekkert á milli mála aðhún var glötuð. Maður sá þaðá svo til hverjum einasta degi. Hún var þess hvorki umkomin að bjarga sér sjálf né að fá aðstoð við það frá öðrum.“ Leikstjórinn John Huston orðaði þetta ekki svona fyrr en í blaðaviðtali tuttugu árum seinna en flestum sem unnu með Marilyn Monroe að síðustu kvikmyndinni sem hún lauk við, The Misfits, árið 1960 gerðu sér grein fyr- ir því að einn bjartasti loginn í Holly- wood væri að brenna út. Það var regla fremur en undantakning að Monroe mætti seint og illa til vinnu – ef hún lét þá sjá sig yfir höfuð. Og þegar hún var á staðnum var hún gjarnan undir áhrifum áfengis, lyfja eða hvors tveggja. „Sú var tíðin að leikarar voru reknir fyrir að mæta of seint,“ var haft eftir mótleikara hennar í myndinni, gamla brýninu og sjálfum „konungi Hollywood“, Clark Gable. Það var víst engin huggun harmi gegn að nafnið á karakter hans í myndinni var Gay, eða Glaði. Hermt er að Sir Laurence Olivier hafi elst um fimmtán ár við að leik- stýra og leika á móti Monroe í The Prince and the Showgirl árið 1956. Hann reytti víst hár sitt og skegg yfir ófagmennskunni og kjánalátunum í stjörnunni sem lét bíða lon og don eftir sér og þegar hún var á svæðinu var hún stöðugt að fara yfir handritið með leiðbeinanda sínum og trún- aðarvinkonu, Paulu Strasberg úr Ac- tors Studio, fyrir framan agndofa leikstjórann. Línurnar gleymdust auðveldlega við tökur á The Misfits, sem var svo sem ekki nýtt vandamál. Billy Wilder leysti það við gerð Some Like It Hot árið 1959 með því að skilja eftir texta- miða hér og þar í leikmyndinni sem Monroe gat svo lesið. Það er svo sem ekkert einsdæmi, Marlon Brando viðurkenndi í endurminningum sín- um að hann hefði kunnað þessu fyr- irkomulagi vel. Það stafaði þó meira af leti en óreglu, auk þess sem Brando hélt því fram að setningar yrðu alltaf eðlilegri ef leikarinn væri að sjá þær í fyrsta sinn meðan myndavélin rúllaði en ef hann hefði lært þær utanbókar. Lögð inn á spítala Fleira kom til hjá Huston og félögum við gerð The Misfits, svo sem steikj- andi hitinn í eyðimörkinni í Nevada, sem gjarnan sló í 40 gráður yfir há- daginn, auk þess sem Monroe stóð í skilnaði við Arthur Miller sem ein- mitt skrifaði handritið að myndinni. Í miðjum klíðum þurfti að stöðva tökur í tvær vikur meðan Monroe lagðist Eitthvað varð undan að láta Á ýmsu gekk við gerð seinustu kvikmyndanna sem Marilyn Monroe lék í, sérstaklega The Misfits og Something’s Got To Give, enda stjarnan djúpt sokkin í fen áfengis og róandi lyfja. Hún féll frá áður en hægt var að ljúka þeirri síðarnefndu. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sir Laurence Olivier leiðbeinir Monroe við gerð The Prince and the Showgirl í Lundúnum sumarið 1956. Þá strax var stórstjarnan orðin erfið í samstarfi. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.