Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Side 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2021 SÉRBLAÐ Fermingarblaðið hefur verið eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins. Fjallað verður um allt sem tengist fermingunni. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 8. mars. Fermingarblað Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 12. mars 08.00 Strumparnir 08.20 Blíða og Blær 08.45 Víkingurinn Viggó 08.55 Adda klóka 09.20 Mia og ég 09.40 Lína Langsokkur 10.05 Lukku láki 10.30 Ævintýri Tinna 10.55 It’s Pony 11.15 Angry Birds Stella 11.20 Are You Afraid of the Dark? 12.05 Nágrannar 12.25 Nágrannar 12.50 Nágrannar 13.10 Nágrannar 13.30 Nágrannar 13.55 Top 20 Funniest 14.35 Um land allt 15.15 Landnemarnir 15.50 Adela 16.10 BBQ kóngurinn 16.35 Um land allt 17.20 Víglínan 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.40 Sportpakkinn 18.50 Ísland í dag 19.05 Leitin að upprunanum 19.40 The Great British Bake Off 20.40 Finding Alice 21.30 Tell Me Your Secrets 22.20 Prodigal Son 2 23.05 Tin Star: Liverpool 24.00 Shameless ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4  93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Valdir kaflar úr Glettum – 4. Þáttur 20.30 Tónlist á N4 20.30 Íþróttabærinn Akureyri – Samantekt Endurt. allan sólarhr. 14.00 Omega 15.00 Joel Osteen 15.30 Charles Stanley 16.00 Trúarlíf 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 20.00 Mannamál (e) 20.30 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 21.00 Á Loðnuveiðum – með Lindu Blöndal (e) (e) 21.30 Heyrnin (e) Endurt. allan sólarhr.11.25 The Block 12.25 Dr. Phil 13.10 Dr. Phil 13.55 The Bachelor 15.15 Það er komin Helgi 16.35 The King of Queens 16.55 Everybody Loves Ray- mond 17.20 Dr. Phil 18.05 For the People 18.50 Hver drap Friðrik Dór? 19.30 Með Loga 20.00 The Block 21.20 Law and Order: Special Victims Unit 22.10 Your Honor 23.10 Cold Courage 24.00 Station 19 06.55 Bæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Hringsól. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Á tónsviðinu. 09.00 Fréttir. 09.03 Svona er þetta. 10.00 Fréttir. 10.05 Veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Digra- neskirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Lestin. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Úr tónlistarlífinu. 17.00 Sunnudagskonsert. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Þræðir: Mannsröddin. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Ástir gömlu meist- aranna. 20.35 Gestaboð. 21.30 Fólk og fræði. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Á reki með KK. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 00.05 Næturútvarp Rásar 1. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Refurinn Pablo 07.21 Úmísúmí 07.44 Kalli og Lóa 07.56 Poppý kisukló 08.07 Kúlugúbbarnir 08.30 Lautarferð með köku 08.36 Hæ Sámur – 40. þáttur 08.43 Flugskólinn 09.05 Hrúturinn Hreinn 09.12 Múmínálfarnir 09.34 Kátur 09.36 Konráð og Baldur 09.48 Sjóræningjarnir í næsta húsi 10.00 Daði og gagnamagnið 10.35 Attenborough: Furðudýr í náttúrunni 11.00 Silfrið 12.10 Grínari hringsviðsins 13.45 Bækur og staðir 13.50 Músíkmolar 14.05 Með sálina að veði – New York 15.05 Við getum þetta ekki 15.35 Menningin – samantekt 16.00 Liðasprettur 18.00 Táknmálsfréttir 18.10 KrakkaRÚV 18.11 Stundin okkar 18.35 Leitin að heimsmeti 18.50 Bílskúrsbras 18.55 Hljómskálinn V 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir á sunnudegi 19.40 Veður 19.50 Landinn 20.20 Flugslysið í Færeyjum 21.25 Lítil þúfa – Alex Wheathle 22.35 Land Guðs 00.15 Silfrið 9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og síðdegisþáttum K100. 13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring og besta tónlistin á sunnudegi. Þór er góður að þefa uppi það sem fjölskyldan getur gert sér til skemmt- unar á sunnudögum. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 Dj Dóra Júlía fer yfir 40 vinsælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista Íslands sem er unninn í samstarfi við félag hljóm- plötuframleiðenda. Viktoría Hermanns- dóttir hefur starfað í fjölmiðlum í rúm- an áratug. Um þessar mundir sér hún um sjónvarps- þáttinn Fyrir alla muni ásamt Sigurði Helga Pálmasyni. Viktoría mætti í Síðdegisþáttinn til þeirra Loga Bergmanns og Sigga Gunnars og ræddi þar við þá um vinnuna og hvernig það sé að búa með Sóla. Viktoría segir að munirnir í þáttunum séu aukaatriði en að sagan á bak við þá sé það sem veki mestan áhuga. Sjálf safnar hún ekki hlutum og ekki Siggi heldur. Spurð út í það hvernig sé að búa með Sóla sem á það til að vaða af stað í alls konar framkvæmdir á heimilinu en taka sér svo reglu- legar pásur segir Viktoría það áhugavert. Viðtalið við Viktoríu má nálgast í heild sinni á K100.is. Áhugavert að búa með Sóla París. AFP. | Á 200 síðum koma upp- ljóstranirnar um barnaníð aðeins fyr- ir á um tíu, en áhrifanna af þeim gæt- ir enn í Frakklandi rúmum sex vikum eftir útkomu bókarinnar La familia Grande (Stórfjölskyldan) eftir Ca- mille Kouchner. Bókin hristi í upphafi upp í sam- heldinni menningarelítunni á vinstri bakka Signu í París og í kjölfarið hef- ur lögregla hafið rannsókn nokkurra mála auk þess sem í Frakklandi fer nú fram annað uppgjör vegna kyn- ferðislegrar misnotkunar. Þremur árum eftir að #églíka- hreyfingin varð til þess að opna um- ræðuna um nauðganir í heiminum fer nú að nýju fram umræða um kynlíf, vald og samþykki og frásagnir fórn- arlamba streyma fram. Vikulega birtast uppljóstranir þar sem kastljósinu er beint að hinum ríku og valdamiklu, nú síðast fyrir viku þegar einn þekktasti sjónvarps- kynnir landsins, Patrick Poivre d’Ar- vor, var sakaður um nauðgun. Hann neitar öllum sakargiftum. Í vikunni var svo Gerard De- pardieu, einn þekktasti leikari Frakk- lands, ákærður fyrir nauðgun. „Ég er slegin yfir því sem er að gerast,“ sagði Kouchner í liðinni viku í sjónvarpsviðtali um bókina, sem hef- ur selst í 300 þúsund eintökum síðan hún kom út í byrjun janúar. „Ég átti alls ekki von á þessu.“ Hún sagði að sölu bókarinnar mætti rekja til #églíka-hreyfing- arinnar, en tiltók einnig aðra bók, sem kom út í fyrra, eftir Vanessu Springora þar sem hún lýsir því hvernig franski rithöfundurinn Gabr- iel Matzneff misnotaði hana. Matzeff hefur aldrei falið barnagirnd sína. „Ég vissi […] að það væri möguleiki að það yrði hlustað á mig, að kannski væri þetta rétti tíminn,“ sagði Kouc- hner í þættinum Le Quotidien. Neisti í púðurtunnu Í La familia grande rekur Kouchner, sem er 45 ára gamall lögmaður, líf sitt í fjölskyldu sem er sérlega vel tengd. Þar koma fyrir ættingjar úr skemmt- anabransanum, skilnaður, menning- arvitar og sólarfrí í Suður-Frakklandi. Kouchner er dóttir Evelyne Pisier, rithöfundar á vinstri vængnum, og Bernards Kouchners, eins stofnenda samtakanna Læknar án landamæra og fyrrverandi utanríkisráðherra. Foreldrar hennar skildu 1987 og móðir hennar gekk að eiga Olivier Duhamel, stjórnmálafræðing og son fyrrverrandi ráðherra, sem er vell- auðugur og varð ráðgjafi nokkurra forseta og áberandi í þjóðlífinu. Kouchner segir frá því að Duhamel hafi byrjað að misnota tvíburabróður sinn skömmu eftir að þau komust á táningsaldur. Þau sögðu frá þessu 20 árum síðar, en móðir þeirra og nánir vinir brugðust ekki við frásögnum þeirra. Eric Dupond-Moretti, dóms- málaráðherra Frakklands, segir að bókin hafi verið „neisti í púðurtunnu“ og Bruno Questel, þingmaður stjórn- arflokksins, líkti henni við hvellhettu. Questel kom fram í sjónvarpsviðtali í lok janúar þar sem hann sagði frá því að sér hefði verið nauðgað þegar hann var 11 ára. Árásarmaðurinn „var ekki úr fjölskyldunni heldur fjöl- skylduvinur þegar við vorum í fríi“. Frjálslyndi 7. áratugarins Duhamel er nú sjötugur. Hann á yfir höfði sér rannsókn vegna ásakananna og hefur sagt af sér margvíslegum ábyrgðarstöðum í fræðaheiminum og fjölmiðlum, þar á meðal stjórn klúbbsins Le Siècle, þar sem saman koma mánaðarlega helstu áhrifa- menn í frönsku samfélagi. Í yfirlýsingu lýsti hann ásökunu- num um sifjaspell gagnvart stjúpsyni sínum sem „persónulegum ásök- unum“, en hefur hvorki veitt viðtöl né komið fram opinberlega til að neita þeim af meiri krafti. Hluti af skýringunni á meintri mis- notkun og tregðu þeirra, sem vissu hvað gekk á til að stíga fram, hefur verið rakinn til viðhorfa á borgara- lega vinstri vængnum í París á sjö- unda áratugnum undir formerkj- unum „allt er leyfilegt“ og eiga rætur í ákveðnum frjálslyndishugmyndum. „Var samþykki? Á hvaða aldri byrj- aði þetta og var þetta endurgoldið með einhverjum hætti?“ spurði Alain Finkielkraut, vel þekktur heimspek- ingur og einn þeirra fáu, sem reynt hafa að verja Duhamel opinberlega, í viðtali á rásinni LCI í janúar. Þegar hann var minntur á að ásak- anarnirnar snerust um barnaníð stjúpföður svaraði Finkielkraut: „Þetta var táningur, það er ekki sami hluturinn.“ Orð Finkielkrauts ollu uppnámi og urðu til þess að hann var útilokaður frá LCI. Þau beindu einnig athyglinni að gildandi lögum í Frakklandi um misnotkun barna, kynferðislegt of- beldi og sifjaspell, sem lengi hefur verið barist fyrir að verði breytt. Samkvæmt núgildandi ákvæðum laganna þurfa saksóknarar að komast að þeirri niðurstöðu að einstaklingur undir lögaldri hafi ekki veitt sam- þykki fyrir kynlífi – það er sýna fram á að hann hafi verið neyddur, ógnað eða blekktur til kynlífs – til að leggja fram ákæru um nauðgun. Nú liggur frumvarp fyrir báðum deildum franska þingsins um að í fyrsta skipti í Frakklandi skuli miða við að reglan um samþykki eigi ekki við fyrr en 15 ára aldri sé náð þannig að hver sá sem hefði samfarir við ein- hvern undir 15 ára aldri eigi yfir höfði sér ákæru um nauðgun. Kápa bókarinnar eftir Camille Kouchner lætur ekki mikið yfir sér en hefur hrist upp í frönsku samfélagi. AFP ÆVIMINNINGAR LEIÐA TIL UPPGJÖRS Í FRAKKLANDI Kynferðisbrot og barnaníð valda ólgu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.