Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Page 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Page 32
Í nýjasta þættinum af teiknimyndaseríunni Scooby-Doo And Guess Who?, sem frumsýndur var á sjónvarpsstöðinni Cartoon Network í vik- unni, skreppur söguhetjan í bílaferðalag eftir hinni goðsagnakenndu þjóðbraut Route 66 ásamt félögum sínum Fred, Velmu, Daphne og Shaggy. Þegar dularfullir og óprúttnir leðjumenn gera farartæki þeirra, Mystery Machine, upptækt eru Scooby-Doo og félagar skyndi- lega strandaglópar í eyðimörkinni. Hópurinn freistar þess að finna Wi-Fi í yfirgefnum matvagni, enda forgangsmál nú á tímum, og rekst þar á engan annan en Íslandsvininn og söngvara rokkbandsins Guns N’ Roses, Axl Rose. Hvern annan? Spennan eykst þegar Fred, Velma og Daphne hverfa sporlaust og það kemur í hlut Scooby, Shaggy og Axl að hafa upp á þeim og leysa ráðgátuna. Axl Rose talar sjálfur fyrir sinn karakter í þættinum eins og fyrri gestir, svo sem Whoopi Godlberg, Gigi Hadid og Morgan Freeman. Axl Rose í Laugardalnum sumarið 2018. Scooby-Doo var fjarri góðu gamni þá. Morgunblaðið/Valli Axlar ábyrgð með Scooby Scooby-Doo er sjón- varpsáhorfendum að góðu kunnur. Hann birtist fyrst á skján- um árið 1969. Reuters Sjálfur Axl Rose verður á vegi Scooby gamla Doo í glænýjum sjónvarpsþætti. SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2021 Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími 554 6969 lur@lur.is • lur.is LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL MADE INDENMARK Lama rúmin eru vönduð, falleg og þekkt fyrir að veita heilbrigðan og góðan svefn. Þau hafa verið framleidd í Danmörku síðan 1939. Hægt er að fá þau með eða án stillanlegum botni. Í boði eru þrír litir á áklæði og margar tegundir fóta og rúmgafla. Lama Premium rúmin eru með sérstakan mjóbaks- stuðning og meiri dýpt fyrir axlir. Ef þú vilt að öxlin detti meira ofan í dýnuna er Premium línan fyrir þig. „Íslendingum er margt til lista lagt, nú fyrir skömmu áttu fjór- ir landar vorir þátt í að slá með glæsibrag heimsmetið í kossa- fjölda. Þessi sögulegi atburður átti sér stað i bænum Covallis i Oregon-fylki í Bandaríkjunum.“ Með þessum orðum hófst frétt í Hlaðvarpanum í Morg- unblaðinu fyrir fjörutíu árum, 28. febrúar 1980. Metið var slegið á ástardegi þeirra Bandaríkjamanna eða Valentínusardeginum, sem er 14. febrúar. Þá tóku 1.100 pör sig saman og röðuðu sér í hjartalaga hring og kysstust samfleytt í tvær mínútur á íþróttaleikvangi ríkisháskólans í Oregon. Leikreglur voru frem- ur einfaldar, annar kyssarinn varð að vera nemandi í skól- anum, þar sem metið var sett í nafni hans. Eldra heimsmetið, sem skráð var í heimsmetabók Guinness, áttu nemendur úr ríkisháskólanum í Flórída, en þá kysstust 615 pör í eina mín- útu. „Hlaðvarpinn óskar hér með nemendum skólans til ham- ingju með árangurinn en þó að sjálfsögðu sérstaklega Íslending- unum fjórum.“ GAMLA FRÉTTIN Kossa- heimsmet Íslensku methafarnir í lopapeysum að heiman: Flosi Sigurðsson, Helga Kristinsdóttir, Sædís María Hilmarsdóttir og Guðlaugur Sigurgeirsson. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Courtney Love tónlistarkona Guðrún Gunnarsdóttir útvarps- og söngkona Emerald Fennell leikkona og leikstjóri

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.