Morgunblaðið - 03.03.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.03.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2021               Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Eldarnir rjúka út og endurprentun er væntanleg,“ segir Guðrún Vil- mundardóttir, forleggjari hjá bóka- útgáfunni Benedikt. Skáldsagan Eld- arnir – Ástin og aðrar hamfarir, eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur, vara- fréttastjóra á RÚV, kom út fyrir síð- ustu jól og fékk strax frábæra dóma og viðtökur. Í bókinni segir frá því þegar jarðskjálftar skekja Reykja- nesskaga og eldfjöll vakna til lífsins eftir hlé í 800 ár. Mörgu í þessari lýs- ingu þykir svipa til jarðhræringa suður með sjó síðustu daga. Lykil- persóna í bókinni er Anna Arn- ardóttir eldfjallafræðingur sem í hlutverki forstöðumanns Jarðvís- indastofnunar þarf að mæta stærsta verkefninu á starfsferli sínum við stjórn almannavarna. Ástin fléttast í þessa atburðarás og fleira gott. Sagan er frábær flétta „Textinn er fallegur og sagan frá- bærlega fléttuð. Þetta er einfaldega góð bók sem á við á öllum tímum en kannski sérstaklega núna,“ segir Guðrún Vilmundardóttir sem er nú að útbúa Eldana til prentunar í kilju- formi. Í slíkri útgáfu er bókin vænt- anleg um páskana. „Við prentuðum ríflegan skammt af bókum í harð- spjaldaútgáfu. Salan í haust var góð, þetta var ein best selda skáldsaga ársins, og svo rýkur hún út núna aft- ur, bæði í bókaverslunum og á bóka- markaðinum í Laugardal,“ segir út- gefandinn. „Eldarnir stoppa aldrei og margir eru á biðlista,“ segir Brynhildur Jónsdóttir, deildarstjóri þjónustu hjá Bókasafni Kópavogs. Safnið á alls 12 eintök af bókinni sem eru öll í útláni nú. Sama er á öðrum söfnum lands- ins, skv. því sem fram kemur á bóka- safnsvefnum gegnir.is. Þessi bók er einfaldlega sjóðandi heit og vænt- anlega til umræðu á kaffistofum, við eldhúsborðið og annars staðar. Um- brotin á Suðurnesjum eru mál mál- anna þessa stundina. Endalaust spurt „Eftir að jarðhræringarnar á Reykjanesskaga hófust í síðustu viku er endalaust spurt um Eldana. Bókin Spænska veikin eftir Gunnar Bjarna- son er þó það eftirsóttasta hjá okkur í dag. Báðar eiga þessar bækur, önnur skáldsaga og hin sagnfræði, sam- merkt að þar er fjallað um mál sem tengja má við líðandi stundu. Spænska veikin árið 1918 svarar til kórónuveirufaraldursins. Þetta segir okkur að bókmenntirnar geta verið lifandi veruleiki. Sjálf hallast ég raunar að því að Sigríður Hagalín sé skyggn, samanber sögu hennar, hvað þá ef fer að gjósa á Reykjanesskaga. Því fylgjumst við vel með, því þessar slóðir eru í augnsýn á Bókasafni Kópavogs á Borgarholtinu,“ segir Brynhildur Jónsdóttir. Ljósmynd/Sigfús Már Pétursson. Útgefandi „Eldarnir er góð bók sem á við á öllum tímum en sérstaklega nú,“ segir Guðrún Vilmundardóttir sem hér heldur á bókinni þar sem meðal annars er að finna kort með eldvirkum sprungusvæðum suður með sjó. Eldar í endurprentun  Reykjanessaga rýkur út hjá forleggjara  Ást og skjálft- ar í umtöluðu skáldverki  Bið eftir sjóðandi heitri bók Ekki er ljóst hvort varðskipið Týr komist í rekstur á ný í kjölfar bilana um borð. Jafnframt er óvíst hvort Landhelgisgæslan hafi fjármuni til að standa straum af óvæntum kostnaði við lagfæringu á varðskip- inu þar sem ekki var gert ráð fyrir útgjöldunum í rekstraráætlun eða fjárlögum. Eins og Morgunblaðið greindi frá í síðustu viku kom upp bilun í skrúfubúnaði Týs í janúar. Bilunin veldur því að önnur aðalvél skipsins er ónothæf. Landhelgisgæslan hef- ur upplýst að um er að ræða kostn- aðarsama viðgerð og að unnið sé að því að meta mögulegar leiðir til við- gerðar. Í skriflegu svari við fyrirspurn blaðamanns segir Ásgeir Erlends- son, upplýsingafulltrúi Landhelgis- gæslunnar, að umfang bilunarinnar hafi ekki verið ljóst í upphafi. „Við nánari skoðun í slippnum í Reykja- vík kom í ljós að vél sem stýrir skrúfubúnaði skipsins er illa skemmd. Við slipptökuna kom jafn- framt í ljós að tveir af tönkum skipsins eru mikið skemmdir sökum tæringar. Bilunin er því meiri en upphaflega var talið.“ Hann segir ekki liggja fyrir hver endanlegur kostnaður viðgerðanna sé, en gera megi ráð fyrir að hann hlaupi á tugum milljóna króna. gso@mbl.is Morgunblaðið/Sisi Varðskip Týr hefur verið í Slippn- um í Reykjavík að undanförnu. Ekki öruggt að Týr fari í rekstur á ný  Óvíst hvort fjár- munir séu til vegna óvænts kostnaðar „Reykjanesið skelfur og eld- gos er yfirvof- andi. Í raun og veru er ég alveg jafn hissa og allir aðrir á því hve nærri veru- leikanum skáld- sagan ætlar að fara,“ segir Sigríður Hagalín Björnsdóttir um sögu sína sem svo mikla athygli og umsögn hefur fengið síðustu daga. „Kannski fara hér saman rithöf- undur og fréttamaður; stundum dettur maður óvænt inn í atburða- rás og sagan verður til af sjálfu sér. Sjálf fylgist ég raunar bara með þessum atburðum núna úr fjarlægð, komin í tveggja mánaða leyfi frá fréttastofunni, sem ég ætla mér að nota meðal annars til ritstarfa. Og nú velti ég hreinlega fyrir mér hvort ég eigi framvegis að halda mig við sögur um liðna tíð í stað skáldverks sem virðist hreinlega ætla að verða spásögn.“ Fylgist nú með úr fjarlægð RITHÖFUNDUR OG FRÉTTAMAÐUR Sigríður Hagalín Björnsdóttir Slökkviliðs Akureyrar og var fólk boðað í smáum hópum, alls voru 24 bólusettir í einu og að því loknu var næsti hópur boðaður í sæti. Gert var ráð fyrir að fara langleið- ina með að klára þann hóp með þeim skömmtum sem bárust. Alls er um að ræða um 900 manns. Þegar var búið að bólusetja þann hluta hópsins sem býr á dvalarheimilum og eins hafði gott aðgengi og skipulagið er alveg til fyrirmyndar, segir Inga Berglind Birgisdóttir, yfirhjúkrunarfræð- ingur á Heilbrigðisstofnun Norður- lands. Alls bárust 720 skammtar af Pfizer-bóluefni á Norðurlandið í upphafi vikunnar og var það nýtt til að bólusetja íbúa 80 ára og eldri. Bólusetning fór fram í húsakynnum Guðni Einarsson Margrét Þóra Þórsdóttir „Bólusetningin gekk alveg glimrandi vel og það var fínasta stemning. Allir bara nokkuð glaðir,“ sagði Ragn- heiður Erla Erlendsdóttir, fram- kvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heil- ugæslu höfuðborgarsvæðisins. Í gær voru 1.828 einstaklingar fæddir 1939 eða fyrr bólusettir gegn Covid-19 í Laugardalshöllinni. Heldur fleiri mættu í bólusetn- inguna en reiknað hafði verið með. Sumir sem höfðu verið boðaðir í dag ákváðu að fylgja maka sínum sem átti bólusetningu í gær. „Þeir voru að sjálfsögðu boðnir velkomnir þannig að þetta gekk mjög vel,“ sagði Ragn- heiður. Bólusetningin gekk eins og í flæðilínu þar til alveg í lokin þegar varð smá töf á meðan reiknað var út hvað þurfti að blanda í margar sprautur til að klára daginn. Haldið verður áfram í dag við að bólusetja fólk úr sama aldurshópi og stendur bólusetningin frá klukkan 9-15. Skipulag til fyrirmyndar Um 400 manns, eldri en 80 ára, voru bólusettir á Akureyri í gær. „Þetta hefur allt gengið mjög vel, að sögn Ingu Berglindar einnig ver- ið farið í heimahús til þeirra sem ekki áttu heimangengt. Inga Berg- lind segir að góð samvinna hafi verið við viðbragðsaðila, lögreglu og slökkvilið sem lögðu fram lið sitt við bólusetninguna. Þá hafi sjálf- boðaliðar frá Rauða krossinum að- stoðað fólkið sem kom og vísað því veginn. Glimrandi gangur í bólusetningunni  Bólusett í Laugardalshöll og Slökkvistöð Akureyrar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Laugardalshöll Fleiri mættu í gær en reiknað hafði verið með. Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Skipulagið í slökkvistöðinni á Akureyri var gott og gekk allt vel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.