Morgunblaðið - 03.03.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.03.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2021 UMHVERFISVÆNI RUSLAPOKINN Umhverfisvæna ruslapokann má nálgast í öllum helstu verslunum Hugsum áður en við hendum! Umhverfisvæni ruslapokinn er úr maíssterkju sem brotnar niður á nokkrum vikum án þess að valda skaða í náttúrunni. Umhverfisvæni ruslapokinn er með handföngum og passar vel í ruslatunnur á heimilum. Þýskaland, sem kemst næst þvíESB-ríkja, að teljast allt að því fullvalda ríki, á erfitt með að umbera bóluefnahneykslið mikið lengur.    Merkel kanslari,sem ætlar ekki að hlotnast sú aðdáunarverða út- ganga úr kanslara- embættinu, sem hún þráði, sætir nú harð- ari gagnrýni en hún er vön. Og það sést undir hælana á fleiri foringjum ESB-ríkja vegna klúðurs bú- rókratanna í Brussel með bóluefnin gegn veirunni vondu.    Það sem kyndir undir reiði þeirraer vaxandi fordæming kjósend- anna, þegar svo ríkulegir hagsmunir fólksins eru í húfi.    Austurríkismenn segjast ekki leng-ur geta bundið sig við dauðar bykkjur.    Páll Vilhjámsson skrifar:    Danmörk leitar til Ísraels í von umað fá nauðsynleg bóluefni í bar- áttunni við Kínaveiruna.    Evrópusambandið sem vill sam-evrópska bólsetningu fær þar með rauða spjaldið frá Dönum.    Einhverjir snillingar í íslenskaStjórnarráðinu bundu trúss sitt við ESB í bóluefnamálum.    Það ráðslag var ekki vel ígrundað.    Svo diplómatískt orðalag sé notað.“ Mette Frederiksen Tombóluefnið STAKSTEINAR Sebastian Kurz Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Niðurskurður verður fyrirskipaður á 925 kindum á bænum Vatnshóli í Húnaþingi vestra vegna riðu sem greinst hefur í sýni úr kind á bænum. Mun féð verða skorið fyrir sauðburð. Samkvæmt upplýsingum frá Mat- vælastofnun er ekki grunur um smit á nágrannabæjum enda hafi allir flutn- ingar fjár á milli bæja verið bannaðir þar sem sauðfjárveikivarnahólfið hefur verið skilgreint sem riðusvæði. Hugsanleg enduruppkoma Bóndinn á Vatnshóli hafði sam- band við Matvælastofnun út af veikri kind. Sýnið var greint á Tilraunastöð Háskóla Íslands á Keldum þar sem riða var staðfest. Búið er í Vatnsneshólfi. Í því hefur áður komið upp riða á einu búi á síð- ustu tuttugu árum. Í því tilviki og á Vatnshóli er möguleg enduruppkoma riðu sem þar kom upp rétt fyrir alda- mót. Tekið er fram í tilkynningu Mast að ekki sé talið að riðutilfellið nú tengist riðu sem greindist á fimm bæjum í Tröllaskagahólfi fyrir ára- mót. Ljóst er að niðurskurður verður fyrirskipaður á Vatnshóli, eins og regla er í baráttunni gegn riðuveiki í landinu. helgi@mbl.is Skorið verður niður á stóru fjárbúi  Riða greindist á fjárbúi í Húnaþingi vestra  Kom upp á sama bæ árið 1999 Morgunblaðið/Eggert Kind Vatnsneshólf er þekkt riðu- svæði og fara bændur gætilega. Helgi Vilhelm Jóns- son, hæstaréttar- lögmaður og löggiltur endurskoðandi, lést 2. mars sl. á Sólteigi, Hrafnistu, 84 ára að aldri, eftir erfiða bar- áttu við Alzheimer- sjúkdóminn. Helgi fæddist í Reykjavík 30. maí 1936, sonur hjónanna Jóns Sigurðar Helga- sonar stórkaupmanns og Hönnu Helgason og var næstelstur fjögurra systkina. Helgi lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands 1955 og kandídatsprófi frá lagadeild Há- skóla Íslands 1960. Hann öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir hér- aðsdómi 1961, löggildingu endur- skoðanda 1966 og málflutnings- réttindi fyrir Hæstarétti 1976. Að loknu laganámi starfaði Helgi á endurskoðunarskrifstofu Kolbeins Jóhannssonar og Co. þar til hann tók við stöðu skrif- stofustjóra borgarverkfræðings 1963 og var síðar borgarendur- skoðandi 1966-1975. Hann var einn stofnenda Endurskoðunar hf. (KPMG ehf.) 1975 og starfaði þar við endurskoðunar- og lög- mannsstörf til ársins 2001 en eft- ir það við einstök verkefni í félagi við dóttur sína, Hönnu Láru. Helga voru fal- in margvísleg trún- aðarstörf á starfs- ferli sínum; sat m.a. í ríkisskattanefnd 1968-1973 og 1980- 1992 og stjórn SKÝRR 1967-1980. Hann var formaður kjaradeilunefndar frá 1977-1985, formaður nefndar til að endur- skoða lög um Kjara- dóm 1992, formaður kauplagsnefndar og formaður samninganefndar Trygginga- stofnunar ríkisins árin 1983-2001. Helgi var formaður Stúdenta- félags Reykjavíkur 1976, í stjórn LMFÍ 1977-1982, þar af formaður frá 1981 og formaður FLE 1987- 1989. Helgi var mikill íþróttamaður. Hann lék með gullaldarliði KR í knattspyrnu og í landsliði Ís- lands. Hann spilaði einnig körfu- knattleik og handbolta í meist- araflokki. Eftirlifandi eiginkona Helga er Ingibjörg Jóhannsdóttir, dans- kennari og húsfreyja. Börn þeirra eru Hanna Lára, Anna Dóra, Jón Sigurður og Halla María. Andlát Helgi V. Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.