Morgunblaðið - 03.03.2021, Blaðsíða 23
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2021
Albert Guðmundsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, er í liði umferð-
arinnar hjá hollenska netmiðlinum AD,
eftir frammistöðu sína með AZ Alkma-
ar gegn Feyenoord. Þar var Albert
mjög áberandi í stöðu sóknartengiliðs
hjá AZ sem vann leikinn 4:2.
Blakkonan Tinna Rut Þórarins-
dóttir er á leið til uppeldisliðsins
Þróttar í Neskaupstað og mun leika
með því út tímabilið. Tinna fór frá
Þrótti til Svíþjóðar síðasta sumar og
lék með Lindesberg í úrvalsdeildinni í
vetur. Liðið hefur lokið keppni og Aust-
urfrétt skýrði frá því að samkomulag
hefði verið gert um að Tinna færi heim
og léki með Þrótti sem er í baráttu um
að komast í úrslitakeppnina um Ís-
landsmeistaratitilinn.
Flest bendir til þess að seinni leikur
Liverpool og RB Leipzig í sextán liða
úrslitum Meistaradeildarinnar í fót-
bolta fari fram í Búdapest, rétt eins og
fyrri leikurinn sem Liverpool vann 2:0.
Sá seinni átti að fara fram á Anfield,
en það myndi kosta Þjóðverjana tíu
daga í sóttkví að fara til Englands.
Leikurinn fer fram 10. mars.
Víkingar í Ólafsvík hafa samið við
tvítugan enskan knattspyrnumann
fyrir komandi tímabil. Hann er fram-
herji, heitir Kareem Isiaka og kemur
úr unglingastarfi Charlton í London.
Aron Pálmarsson
landsliðsfyrirliði í
handbolta verður
áfram í röðum
Spánarmeist-
ara Barce-
lona, sam-
kvæmt frétt
Catalunya
Radio í gær.
Samningur
hans við félagið
rennur út í sumar
en Aron kom til
Barcelona frá
Veszprém árið
2017 og hefur
verið þar í stóru
hlutverki.
Eitt
ogannað
1. deild kvenna
Tindastóll – Grindavík ......................... 62:59
Stjarnan – Hamar/Þór ......................... 62:67
Njarðvík – ÍR........................................ 67:50
Staðan:
Njarðvík 9 8 1 685:495 16
ÍR 9 8 1 598:456 16
Grindavík 9 5 4 625:591 10
Stjarnan 9 4 5 604:563 8
Tindastóll 10 4 6 540:619 8
Fjölnir B 9 4 5 605:567 8
Vestri 10 3 7 556:729 6
Hamar-Þór 9 3 6 533:603 6
Ármann 8 2 6 463:586 4
Evrópudeildin
Anadolu Efes – Valencia .................... 99:83
Martin Hermannsson skoraði 4 stig, gaf
3 stoðsendingar og tók eitt frákast hjá Val-
encia á 16 mínútum.
Meistaradeild Evrópu
Sassari – Zaragoza.............................. 83:95
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 4 stig,
tók 6 fráköst, gaf 1 stoðsendingu og varði 4
skot hjá Zaragoza á 15 mínútum.
NBA-deildin
Orlando – Dallas ............................... 124:130
Philadelphia – Indiana ..................... 130:114
Chicago – Denver ............................. 112:118
New Orleans – Utah......................... 129:124
San Antonio – Brooklyn ........... (frl) 113:124
Houston – Cleveland .......................... 90:101
Portland – Charlotte ........................ 123:111
Brescia hafði betur gegn Cosenza á
heimavelli í ítölsku B-deildinni í fót-
bolta í gærkvöldi, 2:0. Birkir
Bjarnason og Hólmbert Aron Frið-
jónsson byrjuðu báðir á vara-
mannabekk Brescia en sá fyrr-
nefndi lét til sín taka.
Birkir kom inn á sem varamaður
í hálfleik og það tók hann aðeins
fjórar mínútur í seinni hálfleik að
skora fyrsta mark leiksins. Hólm-
bert Aron kom inn á sem varamað-
ur á 75. mínútu. Brescia er í 13. sæti
deildarinnar með 30 stig eftir 26
leiki.
Birkir snöggur
að skora
Morgunblaðið/Eggert
Mark Birkir Bjarnason skoraði
fyrra mark Brescia í gærkvöldi.
Therese Johaug frá Noregi fékk sín
önnur gullverðlaun á heimsmeist-
aramótinu í norrænum greinum
þegar hún sigraði í 10 km skíða-
göngu í Oberstdorf í Þýskalandi í
gær. Hún gekk vegalengdina á
23:09,8 mínútum. Frida Karlsson
frá Svíþjóð varð önnur á 24:04,0
mínútum. Johaug hefur þar með
unnið samtals 12 gullverðlaun á
heimsmeistaramótum á ferlinum.
Gígja Björnsdóttir hafnaði í 76.
sæti af 88 keppendum í göngunni í
gær á 30:15,2 mínútum en hún var
með rásnúmer 85.
Tólftu gullverð-
laun Johaug
AFP
Sigursæl Therese Johaug hefur
unnið tvenn gullverðlaun núna.
lífi atvinnumannsins. Þegar það
gengur vel og liðið er að vinna leik-
ur allt í lyndi en þegar það gengur
illa og liðið tapar er allt ómögulegt.
Það fór allt í panik hjá félaginu síð-
asta haust, rýnt í öll smáatriði og
þrátt fyrir að ég hafi spilað ágæt-
lega var þjálfarinn óánægður með
allt sem ég gerði. Ég gaf líf og sál í
þetta, spilaði meiddur um tíma, en
samt alltaf eitthvað sem hann fann
að. Ég varð þreyttur á því og það
var í raun bara kornið sem fyllti
mælinn hjá mér persónulega. Heilt
yfir fékk ég nóg af atvinnumennsk-
unni og pólitíkinni í kringum hana.
Í kjölfarið á þessu fékk ég skila-
boð frá forráðamönnum félagsins
um að þeir ætluðu sér að skera
niður allan kostnað. Þeir sömdu við
tvær nýjar hægriskyttur sem voru
samanlagt ódýrari kostur en ég
einn. Þegar ég fékk þessar fréttir
þá var í raun ekki í boði að vera
áfram í Esbjerg þar sem liðin hér í
kring eru vel mönnuð í hægri-
skyttustöðunni. Þá kom heimfar-
arhugurinn sterkur inn enda vor-
um við ekki spennt fyrir því að
flytja með tvo krakka á skólaaldri í
aðra borg og byrja nýtt líf þar fyr-
ir eitt til tvö ár í viðbót í Dan-
mörku.“
Í takti í Vestmannaeyjum
Rúnar er uppalinn hjá Fram í
Safamýrinni og ræddi við uppeldis-
félag sitt um hugsanlega endur-
komu í Framhúsið.
„Þegar tilboðið frá ÍBV dúkkaði
upp sáum við fram á að geta haldið
þessu handboltalífi aðeins áfram.
Ég get aðeins einbeitt mér áfram að
handboltanum þar, utan Reykjavík-
ur, sem heillaði mig, og konunni
minni fannst það spennandi líka
enda höfum við alltaf verið í
Reykjavík. Þetta var ákveðin fram-
lenging á handboltalífinu sem okkur
fannst virkilega spennandi. Ég
ræddi lengi við mitt uppeldisfélag
Fram og það kom vel til greina að
semja í Safamýrinni en að lokum
varð ÍBV fyrir valinu.
Konan mín bjó til hálfs á Íslandi
á síðasta ári þar sem hún var í
starfsnámi og hún var því aðeins
búin að prófa Reykjavíkurlífið eftir
ellefu ár erlendis. Það er ákveðin
keyrsla sem fylgir því að vera í
Reykjavík þegar kemur að leik-
skóla, vinnu og öðru því tengdu.
Þetta snerist því líka um það hvort
við værum að horfa á pakkaðan dag
með fullri dagskrá frá klukkan átta
til átta á kvöldin eða þriggja tíma
æfingu yfir daginn og búið.
Vestmanneyjar gátu boðið okkur
upp á rólegt fjölskylduvænna líf og
okkur fannst það góða blanda að
vera nær fjölskyldu okkar en í Dan-
mörku en samt í sama takti og við
þekkjum frá árunum í atvinnu-
mennskunni.“
Einstakt að vinna B-deildina
Tólf ár í atvinnumennsku er lang-
ur tími en Rúnar er hvergi nærri
hættur þótt hann sé á heimleið.
„Eftir á að hyggja þá horfi ég
sáttur til baka og eins og einhver
sagði þá er alltaf ástæða á bak við
allt. Ég hefði alveg verið til í að fara
tveimur árum fyrr til Danmerkur
og kannski hefði ég átt að sleppa
því að framlengja samning minn við
Hannover á sínum tíma. Á sama
tíma var góð ástæða fyrir því að ég
ákvað að framlengja þar enda ný-
stiginn upp úr öðrum krossbands-
slitum á stuttum tíma og með ný-
fætt barn í þokkabót.
Þegar maður er kominn á seinni
hluta ferilsins tekur maður ákvarð-
anir með hag fjölskyldunnar fyrir
brjósti. Níu ár í Þýskalandi er hell-
ings tími og hann var mjög
skemmtilegur á stórum köflum. Það
eru ekki margir sem ná svona
mörgum árum í þýsku 1. deildinni
með góðum liðum eins og Rhein
Neckar-Löwen og Füchse Berlín.
Eins var tíminn með Bergischer
frábær og að vinna B-deildina með
félaginu var einstök tilfinning.
Ég er hins vegar hvergi nærri
hættur í handboltanum og ætla mér
ennþá stóra hluti þannig að ég er
ekki alveg tilbúinn að gera upp fer-
ilinn enn sem komið er,“ sagði Rún-
ar í samtali við Morgunblaðið.
Fékk nóg eftir tólf ár
í atvinnumennsku
Stórskyttan Rúnar Kárason hefur skrifað undir þriggja ára samning við ÍBV
DANMÖRK
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Rúnar Kárason fékk nóg af atvinnu-
mennsku síðasta haust en hann
skrifaði undir þriggja ára samning
við handknattleikslið ÍBV um síð-
ustu helgi.
Rúnar, sem er 32 ára gamall,
mun ganga til liðs við Eyjamenn
þegar samningur hans við danska
úrvalsdeildarfélagið Ribe-Esbjerg
rennur út næsta sumar.
Örvhenta skyttan hélt út í at-
vinnumennsku árið 2009 og hefur
leikið með þýsku liðunum Füchse
Berlín, Bergischer, Grosswallstadt,
Rhein-Neckar Löwen og Hannover-
Burgdorf á atvinnumannsferli sín-
um, ásamt Ribe-Esbjerg.
„Ég er búinn að ganga með það í
höfðinu núna frá því síðasta vor
hvort það væri kannski kominn tími
til þess að snúa aftur heim til Ís-
lands,“ sagði Rúnar í samtali við
Morgunblaðið.
„Það var öllu skellt í lás í Dan-
mörku síðasta vor þegar kór-
ónuveirufaraldurinn skall á og þá
fór maður að leiða hugann að því
hvað maður ætti mikið eftir í Dan-
mörku. Ég var nýbúinn að fram-
lengja samning minn um eitt ár við
Ribe-Esbjerg þar sem ég og fjöl-
skyldan mín vorum spennt fyrir
því að vera áfram í Esbjerg. Síð-
asta haust byrjaði ég tímabilið
mjög vel og heilt yfir hef ég spilað
vel á tímabilinu á meðan það hefur
ekki gengið nægilega vel hjá lið-
inu. Þjálfarinn byrjaði með eitt-
hvert vesen þegar það fór að
ganga illa og þá ákvað ég í raun að
það væri kominn tími á að snúa
heim.
Ég heyrði í nokkrum íslenskum
liðum og það stóð líka til boða að
vera áfram úti og spila. Að endingu
fannst okkur mest spennandi í
stöðunni að koma heim enda bæði
konan og börnin mjög spennt fyrir
því. Þetta stoppaði mest á mér
enda atvinnumannslífið ekki langt
en mér hefur samt tekist að vera
erlendis í tólf ár. Ég hef fengið að
stjórna ferðinni í gegnum tíðina en
þegar ég var sjálfur kominn á þann
stað að koma heim þá var í raun
aldrei neitt annað í stöðunni,“
bætti Rúnar við.
Gaf líf og sál í verkefnið
Rúnar er sjöundi markahæsti
leikmaður dönsku úrvalsdeild-
arinnar á tímabilinu með 114 mörk
og í fjórða sæti yfir þá stoðsend-
ingahæstu en Ribe-Esbjerg er í ní-
unda sæti deildarinnar með 18
stig.
„Það skiptast á skin og skúrir í
Morgunblaðið/Eggert
Landsliðið Rúnar Kárason á eitt hundrað landsleiki að baki en hefur ekki leikið með landsliðinu frá 2018.