Morgunblaðið - 03.03.2021, Page 4

Morgunblaðið - 03.03.2021, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2021 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Spurningar um jarðfræði og nátt- úruvá eru hluti af yfirstandandi verkefni sem snýst um að meta hvort Hvassahraun á Reykjanesskaga henti fyrir flugvöll. Veðurstofan svarar spurningum um jarðfræði og náttúruvá á svæðinu. Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra sagði að ýmsir fleiri þættir verði einnig metnir. „Veðurmælingar hafa verið stundaðar frá áramótum við tvö möstur. Undirbúningur flugpróf- ana og prufuflugs hefur einnig verið í gangi. Það hefur verið samið bæði við Veðurstofu Íslands og Háskólann í Reykjavík um þetta,“ sagði Sigurð- ur Ingi. Hann kvaðst telja mikilvægt að halda þessari vinnu áfram. Þörf fyrir tvo flugvelli „Þetta mat er hluti af fyrri hluta rannsóknarverkefnisins og á að ljúka ekki seinna en 2023. Gert er ráð fyrir áfangaskýrslu Veðurstof- unnar um náttúruvána jafnvel fyrir lok þessa árs og lokaskýrslu strax á næsta ári,“ sagði Sigurður Ingi. Hann sagði að við gætum spurt okk- ur hvers vegna verið sé að að leita eftir flugvelli í Hvassahrauni. „Það er unnið samkvæmt þeirri staðhæfingu að það þurfi tvo flug- velli á suðvesturhorninu til að tryggja flugöryggi. Þess vegna hafa menn verið að leita að valkosti við Reykjavíkurflugvöll. Verkefnið mun svara ákveðnum spurningum,“ sagði Sigurður Ingi. Hann sagði að at- burðarásin sem nú stendur yfir á Reykjanesskaga hafi ef til vill hrist ryk af einhverjum upplýsingum sem höfðu rykfallið. Þar á meðal því að hraun þekja Reykjanesskagann og að þar og víðar á Íslandi hafi menn byggt á hraunum. Þar hafi runnið hraun og það geti gerst aftur. Verði niðurstaðan sú að áhættan sé of mik- il í Hvassahrauni þá höfum við Reykjavíkurflugvöll. „Það hefur komið fram í yfirlýs- ingum og meðal annars í samstarfi við Reykjavíkurborg að Reykjavík- urflugvöllur verður þar í óbreyttri mynd þar til annað jafn gott eða betra flugvallarstæði finnst,“ sagði Sigurður Ingi. Isavia segir að við eldgos verði 220 km hring umhverfis eldstöðina strax lokað fyrir flugumferð. Brjótist út jarðeldar á Reykjanesskaga verður því ekki flogið til eða frá Keflavík- urflugvelli fyrr en Veðurstofa Ís- lands og samstarfsaðilar hafa gefið út spá um öskusvæði. Við útgáfu ös- kuspárinnar er lokunarhringurinn tekinn af. Eftir það ákveða flugrek- endur hvort þeir vilja fljúga í gegn- um öskuspársvæðið. Sigurður Ingi sagði þetta undir- strika mikilvægi þess að geta verið með flugsamgöngur til og frá land- inu víðar en á Suðvesturhorninu. Hann benti á að nú séu millilanda- flugvellir á fjórum stöðum á landinu, þar af tveir utan suðvesturhornsins. Sigurður Ingi rifjaði upp að bæði flugvellirnir á Akureyri og Egils- stöðum hafi verið notaðir þegar hér voru eldgos fyrir um áratug. Meta líkur á náttúruvá  Hvassahraun skoðað sem flug- vallarkostur Morgunblaðið/Árni Sæberg Hvassahraun Nú er verið að meta hvort svæðið hentar fyrir flugvöll. Snorri Másson snorrim@mbl.is Kjartan Már Kjartansson, bæjar- stjóri í Reykjanesbæ, sendi bæjarbú- um bréf í gær þar sem hann ítrekaði að bæjaryfirvöld væru að fylgjast vel með framvindunni í jarðskjálftavirkni við Fagradalsfjall. „Tónninn í þessu hjá mér er bara: Öndum rólega, við skulum ekki vera að búa til meira mál úr þessu en efni og aðstæður gefa til- efni til samkvæmt því sem sérfræð- ingar segja,“ sagði Kjartan Már í samtali við Morgunblaðið í gær. Ljóst var af bréfi hans að kallað hefði verið eftir upplýsingum frá yfirvöldum og almannavörnum, enda hefur komið fram að möguleiki sé á eldgosi og þar með gasmengun á svæðinu. Óánægju hefur gætt í Facebook- hópum íbúa vegna þess sem einhverj- ir hafa talið skort á upplýsingum. „Mér finnst ósköp eðlilegt að fólk hafi áhyggjur af þessu en það sem við er- um að segja er að við höfum þær líka, sem búum líka hér og erum að ves- enast í þessu alla daga. Okkur er alveg jafnmikið annt um eigin heilsu og öðr- um og hér er enginn að fela neitt eða segja ekki allan sannleikann. Svona er bara staðan og svo getur hún verið breytt eftir klukkustund, við vitum ekkert um það,“ sagði Kjartan. Hann tók einnig fram að bæjaryfirvöld vissu ekki meira en fram kemur í fjölmiðl- um hverju sinni. Í bréfinu, sem Kjart- an birti í Facebook-hópi Reykjanes- bæjar, sagði að ef til mögulegrar gasmengunar kæmi, yrðu viðbrögðin kynnt rækilega fyrir öllum á svæðinu. „Kannski væri bara best að fólk færi hvergi en héldi sig innan dyra heima með lokaða glugga,“ skrifaði Kjartan. Ef rýma þyrfti staði myndi þá líklega gefast til þess góður tími. Eins og bæjarstjórinn víkur að í bréfi sínu, eru meiri líkur en minni á að mögulegt gos verði í flokki lítilla eða meðalstórra gosa. Hraunflæðið yrði að hans sögn varla svo mikið að það ylli skemmdum á innviðum, þó að vissulega sé erfitt að spá fyrir um það. Jarðfræðingar hjá Veðurstofunni sögðu við Morgun- blaðið í gærkvöldi að gert væri ráð fyrir að kvikuinnskot hefði orðið á svæðinu, en það þýddi ekki að það leiddi til goss á endanum. Algengara er að kvikan storkni áður en til þess komi. Björgunaraðgerðir í hrauninu Tveir jarðvísindamenn frá Veður- stofunni lentu í ógöngum á jarð- skjálftasvæðinu í gær þegar þeir fóru þangað til mælinga á gasi. Blaðamað- ur og ljósmyndari Morgunblaðsins höfðu beðið þeirra í von um viðtal um niðurstöður mælinganna en það næsta sem þeir vissu var að björg- unarsveitin hafði verið ræst út til að leita vísindamannanna. Þeir fundust að lokum, enda með GPS-tæki. Annar þeirra var fluttur með þyrlu til Reykjavíkur. „Öndum rólega“  Bæjarstjóri Reykjanesbæjar biðlaði til íbúa að halda ró sinni  Ef til goss kæmi yrðu aðgerðir kynntar rækilega í tæka tíð Morgunblaðið/Eggert Við Keili Frá aðgerðum björgunarsveitamanna við Keili í gær, eftir að tveir jarðvísindamenn lentu í ógöngum. Skjálftahrina á Reykjanesskaga Guðni Einarsson gudni@mbl.is Mikil jarðskjálftavirkni er þar sem mesta þenslan er í jarðskorpunni á Reykjanesskaga, að sögn Halldórs Geirssonar, jarðeðlisfræðings og dósents við Háskóla Íslands. Þar undir treðst kvika í lóðréttum gangi. Halldór sat fund vísindaráðs al- mannavarna í gær. Þá voru tvö jarð- skjálftasvæði virk en mesta virknin var á milli Keilis og Fagradalsfjalls. Einnig var töluverð skjálftavirkni hjá Trölldadyngju. „Þessi gangur er í raun að losa um gamla spennu í jarðskorpunni og það verður hellingur af jarðskjálft- um við það. Svo þegar búið er að losa um spennuna getur kvikan runnið eitthvað áfram. Það er spurning hvað verður ef kvikan fer nær yfir- borðinu,“ sagði Halldór. Bergið í efsta hluta jarðskorp- unnar er venjulega svo mikið brotið að það heldur illa spennu. Þess vegna getur verið lítil jarðskjálfta- virkni þótt kvika sé á ferðinni í grynnsta hluta jarðskorpunnar. Ný gögn vantar til að gera sér betur grein fyrir lögun og staðsetn- ingu gangsins. Nýrrar gervitungla- myndar sem von er á í dag er því beðið með eftirvæntingu. Halldór sagði líkön benda til þess að gang- urinn geti mögulega verið á 2-5 km dýpi, þótt töluverð óvissa sé um neðri mörkin. „Þetta er ekki alveg í yfirborðinu því þá færum við að sjá yfirborðssprungur en þær eru ekki komnar fram,“ sagði Halldór. Gliðnun hélt áfram í gær milli Fagradalsfjalls og Keilis og virðist hún halda áfram á tiltölulega jöfnum hraða. Hún virðist hafa byrjað á mjög svipuðum tíma og jarðskjálfta- virknin, að sögn Halldórs. Gliðnunin er mæld með GPS-tækjum og gervi- tunglamyndum. GPS-tækin skrá og senda upp- lýsingar um hreyfingar jarðskorp- unnar þar sem þau eru staðsett. Uppsetning fleiri GPS-tækja á svæðinu hefst í dag. Ef kvikugang- urinn færist til þá er ekki víst að af- lögunin sem það veldur verði einmitt þar sem GPS-stöðvarnar eru. Þess vegna eru ratsjármyndir úr gervi- tunglum svo mikilvægar en þær og GPS-gögnin hafa rímað vel saman. Einnig á að taka drónamyndir af yfirborðinu til þess athuga hvort merki sjáist um færslur eða sprungumyndanir. Vísindaráðið fundar aftur síðdegis í dag. Morgunblaðið/Eggert Á Reykjanesskaga Gliðnun milli Fagradalsfjalls og Keilis hélt áfram í gær. Grannt er fylgst með ganginum  Kvikugangur ef til vill á 2-5 km dýpi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.