Morgunblaðið - 10.03.2021, Síða 1

Morgunblaðið - 10.03.2021, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 0. M A R S 2 0 2 1 Stofnað 1913  58. tölublað  109. árgangur  ERLENDIR FJÁRFESTAR VILJA VINDORKU GÆÐI UMFRAM FJÖLDA MYNDA ÓVÍST HVAÐA LEIKMENN VERÐUR HÆGT AÐ VELJA ÞÝSKIR DAGAR 25 LOKAKEPPNI EM U21 22-23VIÐSKIPTAMOGGINN Smitum fjölgar að nýju  Smit utan sóttkvíar  Sitjum með krosslagða fingur, segir Kári Stefánsson yfirlæknis. Þar af voru tvö lítillega jákvæð og eru þau því mögulega gömul. Smitrakningarteymi hefur hafið vinnu við að rekja smitin. Hátt í þrjátíu iðkendur heilsu- ræktarinnar World Class fóru í sóttkví eftir að iðkandi sem sótt hafði ræktina í Laugum í hádeginu á föstudag reyndist smitaður. Meirihluti starfsmanna Íslenskrar erfðagreiningar fór í skimun við kór- ónuveirunni á mánudagsmorgun og síðan heim til sín í kjölfarið. Þetta var ákveðið eftir að í ljós kom að einn þeirra sem greindust með smit um helgina býr með starfs- manni á rannsóknarstofu í húsnæði ÍE, að sögn forstjórans Kára Stef- ánssonar. Lítið mál sé fyrir fyrir- tækið að skima alla starfsmennina. „Við sitjum heima hjá okkur með krosslagða fingur og vonum að þessi pest hafi ekki dreift sér aftur,“ segir Kári um smitin sem hafa komið upp að undanförnu. Freyr Bjarnason freyr@mbl.is Tvö innanlandssmit voru greind á mánudag þar sem hvorugur þeirra sem greindust var í sóttkví. Að auki reyndust þrjú sýni jákvæð á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær, að sögn Karls G. Kristinssonar MSjö þúsund bólusettir … »4 Boeing 737-MAX-9-vél Icelandair sem ber ein- kennisstafina TF-ICB hefur staðið óhreyfð á bílastæði Boeing í Renton í Bandaríkjunum í tvö ár. Innan skamms verður flughæfni vélarinnar tryggð og stefnt er að því að ferja hana til nýrra heimkynna í aprílmánuði þar sem hún verður tekin inn í flota Icelandair. Vélin er nefnd Kirkjufell eftir hinu glæsta fjalli Grundfirðinga sem grasivaxið teygir sig 463 metra til himins. Ljósmynd/Peter Schneider-@swissschneider Kirkjufellinu verður flogið heim í apríl  Íslensk bílaum- boð hafa orðið fyrir áhrifum af skorti á hálfleið- urum en þeir eru notaðir til að stjórna marg- víslegum tækni- búnaði í bifreið- unum. „Það má segja að þetta séu afleidd áhrif af Covid-19. Bíla- framleiðendur gerðu ráð fyrir ákveðnum samdrætti í bílasölu vegna faraldursins snemma á síð- asta ári, sem kannski raungerðist ekki. Það þýddi að þau tiltölulega fáu fyrirtæki sem framleiða hálf- leiðara fóru að selja vörur sínar til hátæknifyrirtækja sem greiða hærra verð. Það verður til þess að framleiðsla á bílum fer að hökta,“ segir Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju, við ViðskiptaMoggann. Hálfleiðaraskortur hefur áhrif á Íslandi Veira Nýjum bílum og varahlutum seinkar. Lagt er til að mörk öryggissvæðis ratsjárstöðvarinnar á Gunnólfsvík- urfjalli verði útvíkkuð úr 93,5 hekt- urum í 771 hektara í frumvarps- drögum utanríkisráðuneytisins um breytingar á varnarmálalögunum. Er tilefnið sagt mega rekja til undirbúningsvinnu vegna mögu- legrar uppbyggingar stórskipa- hafnar í Finnafirði. Skv. upplýs- ingum utanríkisráðuneytisins í gær eru engin áform um að ráðast í framkvæmdir eða uppbyggingu í tengslum við þessar fyrirhuguðu breytingar á varnarmálalögum. Um sé að ræða endurskilgreiningar marka öryggissvæðisins. „Stór hluti þess svæðis sem ör- yggissvæðið færist yfir er í brattri fjallshlíð með takmarkað gildi fyrir skipulagsmál sveitarfélagsins en skiptir máli varðandi samfellu við gildandi öryggissvæði. Með breyt- ingunni er hægt að tryggja að áfram verði tekið tillit til öryggis- hagsmuna og þjóðréttarlegra skuldbindinga við áframhaldandi skipulagsvinnu á svæðinu,“ segir í svari ráðuneytisins. Samtök hern- aðarandstæðinga velta upp þeirri spurningu í umsögn, hvort mark- miðið sé að eyrnamerkja land til uppbyggingar framtíðarher- skipahafnar. omfr@mbl.is »12 Ljósmynd/Landhelgisgæslan Gunnólfsvíkurfjall Ein af fjórum ratsjárstöðvum loftvarnakerfisins. Öryggissvæðið stækki um 677 hektara  Tilefnið rakið til undirbúningsvinnu vegna stórskipahafnar í Finnafirði Æfingar norska hersins, sem stund- ar loftrýmisgæslu hér á landi um þessar mundir, hafa gengið vel. Alls eru hér um 130 manns og fjór- ar orrustuþotur af gerðinni F-35. Norska flugsveitin fékk nýverið viðurkenningu frá NATO eftir að hafa staðist strangar kröfur banda- lagsins um skjót viðbrögð við óvæntri ógn. Fór prófið fram hér á landi. Á meðfylgjandi mynd er ein þotan við flugskýli NATO á Kefla- víkurflugvelli nýverið en loftrýmis- gæslunni lýkur í lok mars. »10 Ljósmynd/Norski herinn NATO verðlaunar norska herinn  Mjög þétt smáskjálftavirkni hófst þegar klukkuna vantaði um korter í sjö í gærkvöldi við Fagradalsfjall. Jókst virknin þegar líða fór að mið- nætti. Mældist skjálfti um 4 að stærð upp úr klukkan ellefu og fleiri riðu yfir í kjölfarið. „Það er ekki rétt að segja að þetta sé órói, þetta er mjög þétt smáskjálftavirkni og nú þurfum við aðeins að sjá hvernig þetta þróast,“ sagði Elísabet Pálmadóttir náttúru- vársérfræðingur í samtali við mbl.is í gærkvöldi. Yfirgripsmikið net mæla fylgist með hræringum á Reykjanesskaga. »6 Morgunblaðið/Eggert Fagradalsfjall Kvika kraumar undir niðri. Mjög þétt smá- skjálftavirkni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.