Morgunblaðið - 10.03.2021, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 10.03.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2021 Hæ sæti – hvað vilt þú borða! Bragðgott, hollt og næringar ríkt Smáralind, Kringlunni, Spönginni, Reykjanesbæ og Akranesi – dyrabaer.is ÚTSÖLUSTAÐIR: Byko, Selfossi | Garðheimar | Heimkaup |Dýrabær Saga myglunnar í Fossvogs-skóla er ömurleg hvernig sem á er litið. Verst er auðvitað að börn verða fyrir barðinu á þessum ófögnuði. Allir taka undir að börnin eigi að vera aðal- atriði í þessu sam- bandi og varla ætti að þurfa að efast um að samúðin sé hjá þeim. Verkin staðfesta það þó því miður ekki, en skrifast væntanlega á getuleysi og klúður frekar en eitthvað verra.    Viðbrögð borgarinnar við þvíþegar myglan kom upp voru ekki til fyrirmyndar og foreldrar kvörtuðu ítrekað undan því að of lítið væri gert og of seint.    En svo var ráðist í lagfæringarsem áttu að duga, en í des- ember í fyrra kom í ljós að þær gerðu það ekki. Sýnataka leiddi í ljós að enn var mygla í skólanum, en þeim upplýsingum var haldið frá foreldrum í rúma tvo mánuði, allt til loka febrúar síðastliðins.    Þetta eru auðvitað engin vinnu-brögð og í raun alger óhæfa. Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur og borgarfulltrúi Samfylkingar, við- urkenndi í samtali við Morgun- blaðið að ekki hefði verið staðið nógu vel að upplýsingagjöf til for- eldra og að gera þyrfti betur.    Slík viðurkenning er ágæt svolangt sem hún nær, en sú sorgarsaga sem myglumálið í Fossvogsskóla er kallar auðvitað á að borgaryfirvöld taki þessi mál föstum tökum. Foreldrar eiga ekki að þurfa að óttast að upplýs- ingum af þessu tagi sé haldið leyndum mánuðum saman. Skúli Helgason Ítrekað klúður vegna myglumála STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Tvö einkafyrirtæki lýstu áhuga á rekstri Öldrunarheimila Akureyrar þegar Sjúkratryggingar Íslands auglýstu reksturinn. Þetta eru Heilsuvernd og Umönnun sjálfs- eignarstofnun. Samkvæmt upplýs- ingum Sjúkratrygginga standa nú yfir viðræður við fyrirtækin á grund- velli rekstrargagna frá Akueyrarbæ, skv. upplýsingum Sjúkratrygginga. Heilsuvernd er einkarekið fyrir- tæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuvernd- arstörfum. Það rekur heilsugæslu- stöðina í Urðarhvarfi og fleira. Öldrunarheimili Akureyrarbæjar reka tvö hjúkrunarheimili, Hlíð og Lögmannshlíð, og þar eru 188 heim- ilismenn. Akureyrarbær sagði upp samningum um reksturinn á síðasta ári vegna mikils hallareksturs. Samningur rennur bráðlega út. Auk Akureyrarbæjar sögðu Vest- mannaeyjabær, Sveitarfélagið Hornafjörður og Fjarðabyggð upp samningum við ríkið um rekstur hjúkrunarheimila. Enginn sýndi áhuga á að taka við rekstrinum í Fjarðabyggð og Vestmannaeyjum og ákvað ríkið að færa hann undir heilbrigðisstofnanir ríkisins á við- komandi svæðum, og Vigdísarholt tók við rekstrinum í Vestmannaeyj- um. helgi@mbl.is Rætt við Heilsuvernd og Umönnun  Tvö einkafyrirtæki sýna áhuga á rekstri Öldrunarheimila Akureyrar Morgunblaðið/Margrét Þóra Lögmannshlíð Akureyrarbær rek- ur tvö hjúkrunarheimili á staðnum. Mikil óánægja er meðal tollvarða tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli vegna áhrifa af fyrirhugaðri kerfis- breytingu í kjarasamningi BSRB á vinnutíma og kjör þeirra. „Kjara- skerðing verður hjá öllum vakta- vinnustarfsmönnum tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli þrátt fyrir yfir- lýsingar af hálfu samningsaðila þess efnis að vaktavinnufólk verði ekki fyrir launaskerðingu,“ segir í álykt- un tollvarðanna. Tollverðirnir hafa um áratuga- skeið unnið tvískiptar vaktir á Kefla- víkurflugvelli en breytingarnar sem fyrirhugaðar eru á vinnutíma þeirra fela m.a. í sér að teknar verði upp þrískiptar vaktir, sem þeir gagnrýna harðlega, segja þær ekki fjölskyldu- vænar og vinnufyrirkomulagið yrði skref aftur á bak. Jens Guðbjörnsson, trúnaðar- maður tollvarða á Keflavíkur- flugvelli, segir að kosið hafi verið um samninginn. Atkvæði hafi fallið að jöfnu og samningurinn því tekið gildi. Margir sem starfa í flugstöð- inni séu í dagvinnu og þeir hafi feng- ið sína krónutöluhækkun en mikil óánægja sé meðal þeirra, sem ganga vaktir, með þær breytingar á vökt- unum sem voru í pakkanum sem vaktavinnufólkið fékk. Þótt vaktir styttist séu breytingarnar engu að síður mjög óhagstæðar fyrir toll- verði. „Við höfum alltaf verið á tólf tíma vöktum og þar af leiðandi verið með nokkurs konar fasta aukavinnu inni í töflunni. Nú er verið að taka upp þrískiptar vaktir þannig að við þurfum að mæta oftar hingað suður- eftir og við teljum þetta vera leiðin- legri vaktir. Það er ekki frágengið hvernig vaktirnar verða. Það er ver- ið að reyna að semja við tollstjóra um nýjar vaktir en það sem við höf- um séð er allt mjög slæmt. Það sama er uppi í lögreglunni, það er mikil ólga og óánægja með þetta þar,“ segir Jens. Hann segir einnig heil- mikla kjaraskerðingu felast í þess- um breytingum. omfr@mbl.is Tollverðir gagnrýna vinnutímabreytingu  Segja um kjara- skerðingu að ræða og skref aftur á bak Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í Leifsstöð Tollverðir gagnrýna hugmyndir um þrískiptar vaktir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.