Morgunblaðið - 10.03.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.03.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2021 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins (NATO) undir stjórn norska flughersins er nú í fullum gangi. Alls eru hér um 130 manns og fjórar orrustuþotur af gerðinni F-35, ein fullkomnasta vél sinnar tegundar í heiminum. Tron Strand undirofursti leiðir norska hópinn. Í um- fjöllun norska hersins um verkefnið kemur meðal annars fram að æfingar við Ísland hafi gengið vel fyrir sig og að mikilvægt sé fyrir norska flugmenn að æfa við ólíkar að- stæður aðildarríkja NATO. Þannig megi best tryggja varnir og getu bandalagsins. Er þetta í annað skipti sem Norðmenn taka þátt í loftrýmisgæslu hér með F-35- orrustuvélar. „Við höfum sýnt fram á að Noregur hefur einnig getu til að sinna verkefnum með F-35 utan landa- mæra Noregs,“ sagði hann í umfjölluninni. Þá fékk flugsveitin nýverið viðurkenningu frá NATO eftir að hafa staðist strangar kröfur bandalagsins um skjót viðbrögð við óvæntri ógn. Prófið var haldið hér. Til hliðar má sjá mynd af merki sem norskur hermað- ur ber á hægri upphandlegg. Er um að ræða loftrýmis- gæslumerki frá því í fyrra, en búið er til nýtt merki fyrir hvern leiðangur. Þá urðu kjörorðin „Þetta reddast“ fyrir valinu þar sem Norðmenn voru í fyrsta sinn með F-35 ut- an Noregs, en á norsku segja menn „Det ordner seg“. Hernaðarmáttur Norskar F-35 sjást hér við sprengjuheld flugskýli NATO á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Vélarnar munu sinna gæslu út þennan mánuð, en verkefnið er mikilvægur þáttur í þjálfun orrustuflugmanna. Bandalaginu mikilvægt  Einhverjar fullkomnustu orrustuþotur heims standa vaktina við landið  Fengu nýverið viðurkenningu NATO Ljósmynd/Norski herinn Þetta reddast Smá húmor í bland við alvöru. Ljósmynd/Norski herinn Framkvæmdir eru í fullum gangi við stígagerð við Rauðavatn og er áætl- að að þeim ljúki í maí. Umferð gang- andi og hjólandi verður aðskilin frá hestaumferð við vatnið. Verkefnið felst í gerð göngu- og hjólastígs, ásamt færslu reiðstígs, sunnan og austan við Rauðavatn, og jarðvegs- skiptum þar sem þörf er á því. Fyrirtækið Jarðval annast fram- kvæmdir. Göngu- og hjólastígurinn verður þriggja metra breiður og malbik- aður en reiðstígurinn verður fjög- urra metra breiður með malarslit- lagi. Stígarnir verða upplýstir með snjalllýsingarbúnaði m.t.t. orku- sparnaðar og öryggis. Það þýðir m.a. að hægt verður að dimma lýsinguna á nóttunni til að forðast ljósmengun. Enn fremur verður gert nýtt hesta- gerði í stað þess sem nú er á svæð- inu. Viðspyrnuverkefni Verkið er hluti af áætlun um að flýta fjárfestingarverkefnum Reykjavíkurborgar með það að markmiði að veita viðspyrnu við at- vinnuleysi af völdum kórónufarald- ursins, samkvæmt upplýsingum frá borginni. aij@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tveir stígar Áætlað er að stígagerðinni við Rauðavatn ljúki í maí. Göngu- og reiðstígar aðskildir við Rauðavatn  Upplýstir með snjalllýsingarbúnaði Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við sjáum ekki að það myndi virka að banna innflutning á svona búnaði. Erfitt yrði að framfylgja slíku banni. Betra er að vekja athygli fólks á að kaupa ekki vörur nema þær uppfylli kröfur og fá fagmenn til að setja þær upp,“ segir Sigurður Sigurðarson, sérfræðingur á sviði rafmagnsör- yggis hjá Húsnæðis- og mannvirkja- stofnun (HMS) um viðbrögð við hættum sem geta stafað af snjall- búnaði á heimilum. Ólöglegur búnaður Helgi Þórður Þórðarson, raf- virkjameistari og kennari við Raf- tækniskólann, varaði við kaupum á snjallbúnaði á netinu og að fólk setti hann sjálft upp. Það gæti valdið tjóni á heimilum. Sigurður segir að HMS hafi ekki fengið kvartanir eða tilkynningar um bruna eða slys vegna slíks bún- aðar. Hann segir þó að búnaður til að fjarstýra ljósum, þvottavélum og fleiri tækjum sé mikið auglýstur á netinu, meðal annars á sölusíðum í Kína. Oft sé þetta ódýr búnaður sem ekki hafi verið prófaður og uppfylli ekki kröfur og staðla og því ólögleg- ur hér á landi. Fólk freistist þó oft til að kaupa slíkan búnað vegna þess hversu ódýr hann er og hann berist hingað óhindrað í gegnum póstinn og tollinn. Spurður um hættuna segir Sig- urður: „Ef búnaðurinn uppfyllir ekki staðla, til dæmis lágspennureglu- gerðina sem er Evróputilskipun um rafvörur, þá er hann ekki ætlaður fyrir almenning. Í flestum tilvikum er fólk sjálft að tengja þetta og við gerum líka athugasemdir við það. Vinna í rafmagnstöflu á einungis að vera unnin af löggiltum rafverktaka. Menn eru kannski að kaupa tæki á 1.000 til 2.000 krónur til að smella inn og stýra með símanum. Því finnst kannski óþarfi að fá iðnaðar- mann sem getur jafnvel verið erfitt og dýrt að fá. Ef búnaðurinn er fjar- stýrður er hægt að brjótast inn í hann og geta þá aðrir kveikt eða slökkt á honum og valdið þannig skemmdum. Einnig geta óviðkom- andi ræst innbyggðar myndavélar og fylgst með fólki, til dæmis börn- um.“ Segir hann að dæmi um slíkt hafi komið upp í öðrum löndum. Sigurður hefur ekki trú á að bann við innflutningi slíks búnaðar sé gagnlegt úrræði. Erfitt yrði fyrir póstinn og tollinn að hafa eftirlit með því. Hins vegar sé sjálfsagt að vekja athygli fólks á að kaupa ekki vörur nema þær uppfylli kröfur og fá fag- menn til að setja búnaðinn upp. Kaupi prófaðar vörur sem uppfylla kröfur  Hvatt til þess að fagmenn setji upp snjallbúnað AFP Snjallt Óhætt getur verið fyrir fólk að setja saman snjallleikföng en ef tengja þarf í rafmagnstöflu er skynsemi og skylda að kalla til fagmann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.