Morgunblaðið - 10.03.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2021
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Elísabet 2. Bretadrottning lýsti því
yfir í gærkvöldi að sér og allri bresku
konungsfjölskyldunni þætti miður að
barnabarn hennar, Harry prins, og
Meghan, eiginkona hans, hertogahjón
af Sussex, hefðu átt erfiða tíma að
undanförnu. Sagði hún jafnframt að
ásakanir þeirra um rasisma innan
fjölskyldunnar yrðu teknar mjög al-
varlega og fjallað um þær innan vé-
banda konungsfjölskyldunnar. Sagði
enn fremur í tilkynningu drottning-
arinnar að Harry, Meghan og Archie,
sonur þeirra, yrðu ávallt höfð í mikl-
um metum innan fjölskyldunnar.
Yfirlýsingin kom í kjölfar þess að
breskir fjölmiðlar greindu frá því að
umtalað viðtal bandarísku sjónvarps-
konunnar Opruh Winfrey við Harry
og Meghan hefði leitt til krísufunda
innan fjölskyldunnar, þar sem hátt-
settir meðlimir hennar munu hafa
rætt hvort og þá hvenær væri rétt að
svara þeim ásökunum sem hertoga-
hjónin báru þeim á brýn. Var fjöl-
skyldan sögð undir miklum þrýstingi
um að bregðast við.
Í viðtalinu sökuðu þau konungsfjöl-
skylduna meðal annars um rasisma
og að hafa ekki stutt nægilega við
Meghan þegar hún glímdi við sjálfs-
vígshugsanir. Viðtalið þykir hafa
skaðað ímynd bresku konungsfjöl-
skyldunnar umtalsvert.
Ríkisarfinn, Karl Bretaprins, var
hins vegar fámáll um viðtalið er hann
heimsótti bólusetningarstöð í norð-
vesturhluta Lundúna, en það var
fyrsta opinbera embættisverk hans
frá því viðtalið birtist.
Þá neitaði Boris Johnson forsætis-
ráðherra að tjá sig um málið, en
Verkamannaflokkurinn hefur krafist
rannsóknar á ásökunum hjónanna, en
þau sögðu meðal annars að háttsettur
ættingi í fjölskyldunni hefði haft
áhyggjur af því hversu dökka húð
fyrsta barn þeirra, Archie, fengi. Var
tekið sérstaklega fram að hvorki
Elísabet né Filippus, maður hennar,
hefðu átt hlut að máli.
Bretar skiptast í tvö horn
Áætlað er að um 11,1 milljón Breta
hafi horft á viðtalið þegar það var sýnt
í fyrrakvöld í Bretlandi, og benti
könnun YouGov til þess að Bretar
hefðu skipst nokkuð í tvö horn eftir
aldri varðandi það hvort þeim þættu
ásakanir hertogahjónanna trúverð-
ugar eður ei. Þannig þóttu um 61%
fólks á aldrinum 18-24 ára sem tók
þátt í könnuninni sem konungsfjöl-
skyldan hefði komið illa fram við
Harry og Meghan, en um helmingur
fólks yfir 65 ára aldri taldi að þau
hefðu fengið „sanngjarna meðferð“.
Thomas Markle, faðir Meghan,
varði hins vegar konungsfjölskylduna
í viðtali, en feðginin hafa ekki talað
saman um árabil. Sagðist Thomas,
sem er hvítur, vona að spurningin um
hörundslit Archie hefði bara verið
„heimskuleg spurning“ frekar en
merki um rasisma.
AFP
Krúnan í vanda Forsíður allra helstu dagblaða Bretlands voru undirlagðar
fregnum af viðtalinu í gærmorgun, en það var sýnt í Bretlandi í fyrrakvöld.
Krísufundir hjá krúnunni
Elísabet drottning sendir frá sér yfirlýsingu vegna viðtalsins við Harry og Meg-
han Ásakanir um rasisma „teknar mjög alvarlega“ Skiptar skoðanir Breta
Öryggissveitir í Búrma fóru húsa á
milli í leit að mótmælendum gegn
herforingjastjórninni í borginni
Jangon, stærstu borg landsins, í
fyrrinótt. Sögðu sjónarvottar við
AFP-fréttastofuna að hermenn og
lögregla hefðu farið herbergja á
milli í þeirri von að klófesta þar
mótmælendur, og einbeittu þeir
sér sérstaklega að húsum, þar sem
búið var að hengja upp fána til
stuðnings Aung San Suu Kyi, leið-
toga réttmætra stjórnvalda í land-
inu.
Mótmælendur höfðu komið sam-
an í San Chaung-hverfi Jangon á
mánudaginn til þess að krefjast
þess að Suu Kyi yrði látin laus úr
haldi, en lögreglan ákvað um
kvöldið að loka götur hverfisins af,
þannig að um 200 mótmælendur
komust ekki heim til sín. Voru um
40 mótmælendur handteknir í að-
gerðum lögreglu yfir nóttina, en
hinir komust undan.
Hluti þeirra sem króaðir voru af
voru konur sem vildu mótmæla í
tilefni af alþjóðlegum baráttudegi
kvenna, og kallaði Antonio
Guterres, framkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna, eftir því að
stjórnvöld í Búrma, sem einnig er
þekkt sem Mjanmar, myndu fara
eins mildilega að mótmælendunum
og mögulegt væri, og helst leyfa
þeim að fara heim til sín án þess
að þeir væru beittir ofbeldi eða
handteknir.
Ráðast að fjölmiðlum
Áætlað er að um 60 manns hafi
verið myrtir af öryggissveitum frá
því að herinn rændi völdum í byrj-
un febrúar, en þrír mótmælendur
létust á mánudaginn.
Þá mun herinn hafa gert rassíur
í höfuðstöðvum ýmissa óháðra fjöl-
miðla í gær og handtekið þar
starfsfólk og afturkallað útgáfu-
leyfi þeirra.
Gerðu húsleit hjá
mótmælendum
200 manns króaðir af í Jangon
AFP
Búrma Ekkert lát hefur verið á
mótmælum síðustu vikur.
Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur
sent hundana sína tvo, Champ og
Major, aftur til heimilis síns í Wilm-
ington í Delaware, en Major mun
hafa bitið eða glefsað í einn af líf-
vörðum forsetans. Ekki var gefið
upp hvort hann hefði fengið áverka
við bitið.
Biden-hjónin fengu Major árið
2018 á sínum tíma frá hunda-
athvarfi, en hann átti erfitt með að
venjast lífinu í Hvíta húsinu. Var at-
vikið því talin ástæða til þess að
senda báða hunda, sem eru af
þýsku fjárhundakyni, aftur á kunn-
uglegri slóðir. Ekki er vitað hvenær
eða hvort þeir munu eiga aftur-
kvæmt í Hvíta húsið.
BANDARÍKIN
AFP
Hundarnir Major og Champ áttu erfitt
með að venjast Hvíta húsinu.
Ekkert hundalíf
í Hvíta húsinu
Geimferðastofn-
anir Rússa og
Kínverja sam-
þykktu í gær að
reisa sameigin-
lega bækistöð á
tunglinu.
Er stöðin
hugsuð til rann-
sókna á tunglinu,
en ekki hefur
verið ákveðið hvort hún verði reist
á yfirborði þess eða á sporbaug.
Sagði í tilkynningu Rússa einnig að
hún myndi standa öðrum þjóðum til
boða, en ekki er víst hvenær stöðin
verður fullkláruð.
Bæði ríki hafa mikinn áhuga á
könnun tunglsins, en Kínverjar
sóttu jarðvegssýni af tunglinu í des-
ember síðastliðnum. Var það í
fyrsta sinn í 40 ár sem slík sýni ber-
ast til jarðar.
RÚSSLAND OG KÍNA
Stefna að sameigin-
legri tunglstöð
Tunglið
Charles Michel, forseti leiðtogaráðs
Evrópusambandsins, sagði í gær að
sambandið myndi aldrei nota bólu-
efni gegn kórónuveirunni „í áróð-
ursskyni“, og hét því um leið að sam-
bandið myndi gefa umframbirgðir
sínar til fátækari ríkja.
Þá gagnrýndi Michel Rússa og
Kínverja harkalega fyrir að hafa
„skipulagt mjög takmarkaðar en vel
auglýstar aðgerðir til að veita öðrum
bóluefni.“
Ummæli Michel féllu sama dag og
framleiðendur rússneska bóluefn-
isins Spútník 5 kröfðust þess að evr-
ópska lyfjastofnunin EMA bæðist
afsökunar á ummælum Dr. Christu
Wirthumer-Hoche, stjórnarfor-
manns stofnunarinnar, en hún hafði
varað við því að aðildarríki sam-
bandsins veittu of snemma leyfi fyr-
ir notkun Spútník-efnisins, og líkti
því raunar við „rússneska rúllettu“.
46 ríki hafa nú þegar veitt efninu
leyfi, þar á meðal Ungverjaland,
Tékkland og Slóvakía. EMA er hins
vegar enn að fara yfir bóluefnið, en
ritrýnd rannsókn sem birt var í Lan-
cet bendir til þess að það sé með
svipaða virkni og önnur bóluefni sem
þróuð hafa verið gegn veirunni.
Neitar fyrir þjóðernishyggju
Michel vísaði um leið á bug ásök-
unum um „bóluefnaþjóðernis-
hyggju“ innan ESB, þrátt fyrir að
sambandið hefði látið stöðva útflutn-
ing bóluefnis AstraZeneca til Ástr-
alíu í síðustu viku.
Sagði hann bæði Bretland og
Bandaríkin hafa gripið til útflutn-
ingsbanns, bæði á bóluefnum og hrá-
efnum til bóluefnagerðar. Tals-
maður bresku ríkisstjórnarinnar
hafnaði þeim ummælum Michel í
gær og sagði Breta aldrei hafa
stöðvað útflutning bóluefnis.
Noti ekki bóluefni „í áróðursskyni“
Framleiðendur Spútník 5 krefjast
afsökunarbeiðni frá lyfjastofnuninni
AFP
Bóluefni Framleiðendur Spútník 5-
bóluefnisins vilja afsökunarbeiðni.