Morgunblaðið - 10.03.2021, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 10.03.2021, Qupperneq 15
MINNINGAR 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2021 ✝ Kristín Bjarna-dóttir fæddist í Reykjavík 14. apríl 1922. Hún lést á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Grund 28. febrúar 2021. Foreldrar henn- ar voru Guðrún Guðmundsdóttir húsmóðir, f. 21. mars 1894 á Úlfars- felli í Mosfellssveit, d. 27. ágúst 1989, og Bjarni Þórðarson, véla- maður og bifreiðarstjóri, f. 16. nóvember 1888 á Efra-Seli á Stokkseyri, d. 29. mars 1975. Systkini Kristínar voru Sigríður og Ásgeir, bæði látin. Kristín giftist 21. október 1944 Guðmundi Guðjónssyni, hús- gagnasmið og óperusöngvara, f. 3. mars 1922 í Reykjavík, d. 11. apríl 2016. Foreldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir húsmóðir, f. 14. mars 1893 á Melum á Kjal- arnesi, d. 21. júní 1986, og Guð- jón Ólafur Jónsson trésmíða- meistari, f. 19. desember 1890 í Oddsparti í Þykkvabæ, d. 22. ágúst 1978. Börn Kristínar og Guðmundar eru: 1) Guðrún, f. 29.4. 1945, íþróttakennari, gift Grétari J. Hrólfur og Högni. Þau skildu. Sambýliskona Gylfa er Irpa Sjöfn Gestsdóttir, f. 1973. Börn hennar eru Alexander, Andrea og Aðal- heiður. 3) Erna, f. 6.6. 1958, söng- kennari og kórstjóri, gift Krist- jáni Viggóssyni, f. 8.5. 1956, framhaldsskólakennara. Börn þeirra: a) Berglind, f. 1989, sam- býlismaður hennar er Hallvarður Ásgeirsson, f. 1975. b) Hlynur, f. 1995, og c) Valgerður, f. 1998. Sonur Kristjáns er Einar Örn, f. 1983. Kristín var fædd og uppalin í Reykjavík. Æskuslóðirnar voru við Laugaveginn og í Haga á Grímsstaðaholti. Hún gekk í Mið- bæjar- og Ingimarsskóla. Nám lá vel fyrir henni og naut hún alla tíð lesturs bóka. Kristín stundaði fimleika með Fimleikaflokki Ár- manns og lærði ung kjólasaum. Kristín og Guðmundur bjuggu í Reykjavík alla tíð utan eitt ár sem þau dvöldu í Köln vegna söngnáms Guðmundar. Kristín var flink hannyrðakona og list- hneigð, sótti námskeið í málun og mörg vatnslitaverk eftir hana prýða heimili afkomendanna. Þau hjón ferðuðust mikið og voru útivistarfólk. Sælureitur þeirra á efri árum var sumarbú- staðurinn í Grímsnesinu. Útförin fer fram frá Fossvogs- kirkju í dag, 10. mars 2021, klukkan 15. Slóð á streymi: https://tinyurl.com/hnz7v46t Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat/ Unnsteinssyni, f. 5.11. 1941, fv. skóla- stjóra. Börn þeirra: a) Fjóla, f. 1968, gift Helga Hafsteini Helgasyni, f. 1969. Börn þeirra: Ásta Karen, sambýlis- maður hennar er Fi- lip Polách, Lilja Dögg, sambýlis- maður hennar er Steinn Erlendsson og Haukur Steinn, sambýliskona hans er Kolfinna Birkisdóttir. b) Kristín, f. 1971, gift Arnari Frey Guðmundssyni, f. 1971. Börn þeirra: Guðrún Herdís, sambýlis- maður hennar er Orri Jónsson, Tómas Orri og Hjördís Ylfa. c) Unnsteinn, f. 1974, kvæntur Auði Aðalbjarnardóttur, f. 1979. Börn þeirra: Grétar Björn, Unnur Birna og Eva. 2) Hafsteinn, f. 22.4. 1947, tónlistarmaður, kvæntur Helgu Gylfadóttur, f. 8.1. 1949, lögg. sjúkranuddara. Börn þeirra: a) Guðmundur, f. 1972, kvæntur Hjördísi Einars- dóttur, f. 1973. Börn þeirra: Snæ- dís Helga, móðir hennar er Anna Þóra Ísfold Rebekkudóttir, Logi, Aron og Sigrún Hafdís. b) Gylfi, f. 1974, var kvæntur Helgu Björk Haraldsdóttur, synir þeirra eru Elskuleg móðir mín, Kristín Bjarnadóttir, lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund þann 28. febrúar síðastliðinn 98 ára gömul. Við fjölskyldan syrgjum hana og samgleðjumst henni allt í senn. Hún var svo mikill hluti af okkur og stór þátttakandi í öllu sem við gerðum, en hennar tími var kominn og hún fékk sína lang- þráðu hvíld. Við dáðumst að dugn- aði hennar og seiglu og við nutum kærleika hennar og hennar góða jafnaðargeðs. Hún var svo skemmtileg. Hún náði sínum háa aldri með reisn og var annt um sjálfstæði sitt. Hún lifði svo fallega og af ákveðinni hógværð. Listin að lifa í núinu flæktist ekki fyrir henni og ekki eltist hún við verald- lega hluti. Alltaf hafði hún tíma til að hlusta á og styðja sína og hvetja ef á þurfti að halda. Samlíf foreldra minna var fal- legt og kærleiksríkt og hún ann- aðist pabba af ást og virðingu síð- ustu árin hans. Það var henni erfitt þegar hann fór á hjúkrunar- heimili síðustu mánuðina sem hann lifði. Mamma var heilsuhraust allt þar til halla fór undan fæti síðasta eitt og hálfa árið. Það var samt alltaf stutt í brosið og léttu lundina og hún sönglaði svo skemmtilega þegar henni leið vel. Það gerði hún alla tíð. Við gátum alltaf hlegið saman og fengum oft hlátursköst af litlu tilefni. Það breyttist ekkert og var svo skemmtilegt! Það hefur alltaf verið svo mikil tónlist í kringum okkur í fjölskyldunni og mamma naut tónlistar af heilum hug fram á síðasta dag. Sérstak- lega fannst henni gaman að hlusta á söng og þá helst Mumma sinn. Ég og fjölskyldan sendum inni- legar þakkir til starfsfólks Grund- ar sem annaðist mömmu af mikilli umhyggju og kærleika. Elsku mamma mín, hafðu þökk fyrir allt og allt. Minning þín lifir í hjörtum okkar að eilífu. Þín Erna og fjölskylda. Hvað sem öðru líður, þá gengur tíminn sinn taktfasta gang. Við fæðumst og deyjum og okkur er skammtað mislangt æviskeið. Tengdamóðir mín sem lögð er til hinstu hvílu í dag náði að verða níutíu og átta ára gömul. Hún hélt góðri heilsu allt fram á síðustu ár en síðustu mánuðina var ljóst að hverju dró. Það var dýrmætt fyrir afkomendur hennar að fá að njóta samvista með henni svona lengi. Hún gat miðlað svo miklu og hafði frá svo mörgu að segja eftir langt og gæfuríkt líf. Hún upplifði einar þær mestu breytingar sem hafa orðið hjá okkar þjóð. Foreldrar hennar, sem voru af rótgrónum sunnlenskum ættum, voru fædd nokkru fyrir aldamótin 1900. Þau upplifðu frostaveturinn mikla og spænsku veikina og móðir hennar mundi vel konungskomuna 1907 og sá er Friðrik áttundi Danakon- ungur og Hannes Hafstein komu ríðandi að Þjórsárbrúnni. Sunn- lensku sveitirnar voru foreldrum hennar hugleiknar og þar áttu þau vinum að mæta. Ung kynntist Kristín vinafólki og ættingjum þeirra í sveitinni og þar mynduð- ust ævilöng vináttubönd. Kristín hafði mikla ánægju af heimsókn- um í sveitina og minntist þeirra oft. Árið 1944 giftist hún Guð- mundi Guðjónssyni, húsgagna- smið og söngvara. Þau höfðu kynnst ung í skóla. Hjónaband þeirra var alla tíð einstaklega ást- ríkt og ekki leyndi sér væntum- þykjan og virðingin sem þau báru hvort fyrir öðru. Kristínu var margt til lista lagt. Hún lærði ung kjólasaum og allar hannyrðir léku í höndunum á henni. Í dag hefði hún líklega orðið fatahönnuður en þá voru aðrir tímar. Síðar fór hún á námskeið í málun og vatnslitaverk hennar prýða nú mörg heimili afkomend- anna. Þau hjónin voru mikið úti- vistarfólk, fóru um langt árabil í sund nánast daglega, stunduðu göngur og fóru á gönguskíði. Ung voru þau bæði í fimleikum, Kristín í Fimleikaflokki Ármanns og tók þátt í fimleikasýningum. Þau ferð- uðust mikið innanlands og utan. Í margar veiðiferðir var farið, bæði með vinum, samstarfsfólki og fjöl- skyldunni þar sem unga fólkinu voru þá gjarnan kennd réttu handtökin. Í margar utanlands- ferðir fóru þau í tengslum við söng Guðmundar og dvöldu í eitt ár í Köln er Guðmundur var þar í söngnámi Heimilið var gestkvæmt. Þau voru góð heim að sækja og alltaf var mikil gleði ríkjandi og mikið hlegið. Margra góðra samveru- stunda er að minnast núna er litið er yfir farinn veg. Kristín var bók- elsk, las mikið og margar ánægju- legar bókastundir áttum við. Kristín hafði mikla ánægju af allri ræktun og það var því mikið gleðiefni fyrir hana er þau höfðu fest sér land í Grímsnesinu. Þar byggðu þau sér fallegan sumarbú- stað og þar gat Kristín sinnt rækt- unaráhuga sínum. Trén voru vinir hennar og hún kunni á þeim góð skil. Kristín fylgdist vel með afkom- endum sínum og lét sér annt um velferð þeirra. Guðmundur féll frá 2016. Söknuður hennar var mikill, þó ekki væru höfð um það mörg orð. Hann var alltaf nálægur í minningunni og söngur hans ylj- aði marga stund. Löngu og far- sælu lífi er lokið. Við þökkum sam- fylgdina. Blessuð sé minning þín. Grétar J. Unnsteinsson. „Mikið er gaman að sjá ykkur öll,“ sagði hún brosandi og maður fann undir eins hlýjuna og vænt- umþykjuna frá ömmu Kristínu. Það var rólegt og gott að koma til ömmu. Langömmubörnin sóttu líka í að koma með; spjalla við ömmu, fá kræsingar og dunda sér með spil á gólfteppinu. Sjálf hafði hún alltaf nóg fyrir stafni, las mik- ið og prjónaði en gestir voru alltaf velkomnir. Hún lagði frá sér prjónana, lækkaði í útvarpinu og var fljót að hella upp á kaffi og bjóða fleiri en eina sort með. Það var skemmtilegt að spjalla við hana því hún var stálminnug og hafði frá ýmsu að segja. Það var þó oftar að hún spurði frétta og sýndi því áhuga sem við vorum að fást við. Hún fylgdist vel með samfélaginu og dæmdi ekki þá sem lifðu lífinu öðruvísi en hún sjálf. Þegar amma fékk okkur litla í heimsókn í Bólstaðarhlíðina lét hún okkur gjarnan fá blað og blýant til að teikna meðan hún fann til fyrir okkur lungamjúkt brauð með miklu smjöri og ban- anasneiðum. Það var gaman þeg- ar hún gaf sér tíma til að setjast niður með okkur að teikna því hún var listagóður teiknari, nokkuð sem fékk svo að njóta sín þegar hún fór að mála myndir á efri ár- um. Að teikna hjá ömmu var að- eins öðruvísi en að gera það heima því blýantarnir voru ekki yddaðir heldur tálgaðir. Amma var nægju- söm og nýtin, til hvers að kaupa sérstakt verkfæri til að ydda blýanta þegar vel var hægt að gera það með beittum hníf. Okkur eru minnisstæðar ára- mótaveislurnar sem hún hélt fyrir stórfjölskylduna í fjöldamörg ár. Á boðstólum voru rjúpur eða gæs sem afi Guðmundur hafði veitt. Amma hafði í mörg horn að líta. Hún var kokkurinn og sá til þess að öllum liði vel en lét þó lítið á sjálfri sér bera. Við erum afar þakklátir fyrir þær góðu stundir. Amma Kristín ætti að vera fyrirmynd okkar kynslóðar. Hún var glaðlynd, nægjusöm og um- burðarlynd. Hún var sönnun þess að gleði og hamingja fást ekki með því eignast sífellt meira. Hún tók aldrei bílpróf, fór ekki til útlanda á hverju ári og bjó alla sína ævi í fjölbýli. Hún lét gömlu hlutina duga þótt nýtt væri í boði. Þrátt fyrir það – eða kannski vegna þess – var hún sáttari en við hin. Guðmundur og Gylfi. Kristín Bjarnadóttir  Fleiri minningargreinar um Kristínu Bjarnadótt- ur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Pétur ÞórirHugus sjúkra- liði fæddist í Reykjavík 7. maí 1962. Hann lést á líknardeildinni í Kópavogi 24. febr- úar 2021. Foreldrar hans voru Edda Guðrún Tryggvadóttir, f. 20. október 1935, d. 16. janúar 1996, og Kent Hugus. Systkini Péturs samfeðra eru Todd Hugus og Paula Hugus. Pétur kvæntist Sigríði Hafdísi Sigurðardóttur árið 1994. Þau slitu samvistum. Sonur þeirra er Davíð Örn Hug- us, f. 1994. Pétur kvæntist Kristínu Ólavíu Sigurðar- dóttur 25. júlí 2016. Dóttir hennar er Pálína Guðrún Harðardóttir, f. 1985. Sambýlis- maður hennar er Ísak Jarl Þór- arinsson, f. 1984. Útför Péturs fer fram frá Fossvogs- kirkju í dag, 24. mars 2021, klukkan 13. Slóð á streymi: https://www.sonik.is/petur Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat/ Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Elsku Pétur. Ekki óraði mig fyrir því hvílíkt ævintýri líf mitt yrði þegar okkar kynni hófust, en þú varðst brátt minn besti vinur og sálufélagi. Með samhentu átaki tókst okkur að skapa okkur einstaklega fallegt og gjöfult líf. Við settum strax tvær reglur í okkar hjónabandi og stóðum við þær: Annars vegar að okkar í millum væru engin leyndarmál og hins vegar að fara aldrei ósátt að sofa. Þær gáfust vel. Það var okkur líka mikil gæfa að fá Davíð son þinn til okkar. Þú varst stolt- ur af honum og Ínu minni. Marga trausta vini áttir þú sem voru þér mikils virði. Þegar þú fékkst áhuga á ein- hverju var það krufið til mergjar. Meðal hugðarefna þinna voru heilsurækt og hollusta, að ógleymdum fræðunum um eðli alheimsins, en þó ekki síst mann- rækt í víðri merkingu og einkum voru kenningar Búdda þér hug- leiknar. Þú bjóst yfir meira æðruleysi en aðrir er ég hef kynnst. Ótal dýrmætar minningar á ég frá samveru okkar, bæði tengdar ferðalögum og kyrrðinni heima. Alla hluti vildir þú vel gera. Þú munt ávallt lifa í hjarta mínu. Þín Kristín. Pétur Hugus, fyrrverandi vinnufélagi minn, er látinn, langt um aldur fram. Við unnum saman á sambýli í Reykjavík í nokkur ár; vinnustað þar sem allir ganga í öll verk, hvort sem það er umönnun íbúa, eldamennska eða þrif. Pétur var rólyndur og skap- góður maður, tók öllu með stó- ískri ró, sem virkaði vel á íbúa. Helst að hann væri dálítið stríð- inn, hafði mikið gaman af því að bregða manni, sérstaklega þar sem slíkt tókst alltaf í mínu til- felli, sama hversu vel ég ætlaði að vera á varðbergi. Þetta var þó alltaf í góðu og hlátur á eftir. Pétur lést eftir erfið veikindi þar sem hann sýndi einstakt æðruleysi og alltaf glaður og ró- legur að sjá. Svo átti hann frá- bæra eiginkonu sem studdi hann með ráðum og dáð. Guð blessi minningu Péturs, hann gerði mig að betri mann- eskju. Innilegar samúðarkveðjur til Kristínar eiginkonu hans, Davíðs sonar hans og annarra aðstand- enda og vina. Þórey. Veruleikans eðli innsta öldufaldi líkist – sagt er, undarlegt er í það minnsta á okkur sumt af því sem lagt er. (M.S.) Ekki fer hjá því að manni finn- ist ofangreind orð eiga við enn einu sinni, nú þegar hraustur maður í blóma lífsins veikist skyndilega af þungbærum og ólæknandi sjúkdómi og er hrifinn frá okkur. Mannleg samskipti lágu vel fyrir Pétri Þóri Hugus. Hann var leitandi og skemmtilegur. Meðal helstu persónueinkenna hans voru húmor, hreinlyndi og æðru- leysi sem raunar skein jafnan úr svipmóti hans. Og það til hinstu stundar. Pétur var drengur góð- ur og prúðmenni sem gott var að kynnast. Það er furðu fátt sem við mennirnir skiljum í gangi tilver- unnar. Altént virðist hún ekki alltaf beint mjúkhent. En þó að okkur finnist undarlegt, hve mannlífinu fylgja iðulega þungar byrðar, þá er hitt samt einnig undarlegt að í brimrótinu, óreið- unni og óskiljanleikanum er sem finna megi huggunarmátt sem veitt geti dýrmætan styrk. Megi fjölskyldu og vinum Péturs tak- ast það. Magnús Skúlason. Pétur Þórir Hugus Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ARNFRÍÐUR SNORRADÓTTIR, lést á Hrafnistu Laugarási miðvikudaginn 3. mars. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. mars klukkan 15. Ættingjar og vinir eru velkomnir í athöfnina en gestir eru beðnir að hafa með sér á blaði nafn, kennitölu og símanúmer. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á Miklatorgi Hrafnistu fyrir einstaka aðhlynningu og alúð í hennar garð. Útförinni verður streymt á https://livestream.com/luxor/arnfridur Elda Faurelien Oddný Þórisdóttir Ragnar Karlsson Snorri Þórisson Erla Friðriksdóttir Soffía J. Þórisdóttir Baldur Dagbjartsson Ragna B. Þórisdóttir Gylfi G. Kristinsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VIGGÓ BRYNJÓLFSSON, Skagaströnd, sem lést á sjúkradeild HSN á Blönduósi fimmtudaginn 4. mars, verður jarðsunginn frá Hólaneskirkju laugardaginn 13. mars klukkan 13. Vegna aðstæðna verða einungis nánasta fjölskylda og vinir viðstödd en hægt verður að nálgast streymi frá athöfn á facebooksíðu Skagastrandarprestakalls. Brynjar Viggósson Svanlaug Aðalsteinsdóttir Guðbjörg Viggósdóttir Magnús B. Jónsson Víkingur Viggósson Sesselja Hauksdóttir Vigdís H. Viggósdóttir Vilhelm Þórarinsson Fannar J. Viggósson Erna B. Hreinsdóttir Kolbrún B. Viggósdóttir Guðmundur Hilmarsson Valdimar Viggósson Sigurbjörg Agnes Sævarsd. Arnar Ó. Viggósson Guðrún E. Helgadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA ÞORGEIRSDÓTTIR frá Seyðisfirði, lést á Landsspítalanum í Fossvogi mánudaginn 8. mars. Útför auglýst síðar. Margrét Jónsdóttir Árni Kristinn Magnússon Jónas P. Jónsson Anna Maren Sveinbjörnsdóttir Kristján Jónsson Birna Guðmundsdóttir Unnur Jónsdóttir Þórður Þórisson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.