Morgunblaðið - 10.03.2021, Side 16

Morgunblaðið - 10.03.2021, Side 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2021 ✝ Ingibjörg Berg-sveinsdóttir fæddist í Reykjavík 4. ágúst 1933 og lést á hjúkrunarheim- ilinu Seltjörn 21. febrúar 2021. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Jóhannsdóttir, skáldkona frá Brautarholti, f. 21. júní 1892, d. 29. september 1970 og Bergsveinn Jónsson, kaupmaður og síðar um- sjónarmaður Sundhallarinnar í Reykjavík f. 17. september 1893, d. 18. október 1969. Systur henn- ar voru Guðrún (Rúna) f. 20. mars 1921, d. 7. júní 1945 og Guðbjörg f. 30. september 1928, d. 17. júlí 2016. Eftirlifandi uppeldissystir hennar er Steinunn Jónsdóttir f. 24. ágúst 1943, dóttir Rúnu. Ingibjörg útskrifaðist frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1950 og stundaði nám við Nor- ræna lýðháskólann í Kungälv 1951-1952. Ingibjörg giftist Magnúsi Er- lendssyni, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra og fyrrverandi forseta bæjarstjórnar á Seltjarn- arnesi 26. nóvember 1955. Magn- ús er fæddur í Reykjavík 10. maí Fannar Jónsson, f. 1985. 3) Berg- lind, f. 1968; maki: Hákon Sig- ursteinsson, f. 1965. Börn þeirra: a) Jakob Hákonarson, f. 1995; sambýliskona: Ella Dís Thor- arensen, f. 1995; sonur: Sig- ursteinn Starri Thorarensen Jak- obsson, f. 2019; b) Melkorka Hákonardóttir, f. 2001; og c) Inga Lind Hákonardóttir, f. 2007. Ingibjörg starfaði m.a. á skrif- stofu Kvenfélagasambands Ís- lands og hún var ritstjóri Hús- freyjunnar til fjölda ára. Árið 1985 stofnaði Ingibjörg fyrir- tækið Bergís og rak það með eig- inmanni og Rúnu dóttur þeirra í 15 ár, þegar þau hjón seldu fyrir- tækið til Rúnu. Ingibjörg var virk í félagslífi. Hún var m.a. formaður barna- verndarnefndar og síðar formað- ur leikskólanefndar Seltjarn- arness á árunum 1966-1974. Ingibjörg var einn af stofn- félögum Soroptimistaklúbbs Sel- tjarnarness og síðar heið- ursfélagi klúbbsins. Eftir að Ingibjörg hætti fastri vinnu tók hún til við að yfirfara óunnin handrit sem móðir henn- ar hafði skilið eftir sig og vann úr þeim ljóðabókina Tilfinningar, sem kom út 2002 og hefur nú selst í 5.700 eintökum. Útför Ingibjargar fer fram frá Seltjarnarneskirkju í dag, 10. mars 2021, klukkan 15. Slóð á streymi: https://shor.by/ IngibjorgBergsveinsdottir Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat/ 1931, sonur hjónanna Erlends Þorbergssonar verslunarstjóra, f. 11. september 1899, d. 14. ágúst 1992 og Sólveigar S. Péturs- dóttur húsfreyju, f. 4. desember 1901, d. 27. ágúst 1984. Ingi- björg og Magnús bjuggu fyrst í Reykjavík, en flutt- ust á Seltjarnarnes 1963, og bjuggu lengst af á Sævargörðum 7 eða frá ársbyrjun 1973. Þar áttu þau heimili þar til Ingibjörg þurfti að flytja á Seltjörn vegna veikinda sumarið 2019; Magnús býr þar enn. Börn Ingibjargar og Magnúsar eru: 1) Erlendur, f. 1956; maki: Carla Magnússon de Jong, f. 1964. Börn þeirra: a) Linda Magnússon, f. 1993; maki: Agnar Þórður Úlfs- son, f. 1991; sonur: Tómas Emil Agnarsson f. 2020; og b) Stefán Magnússon, f. 1996. 2) Guðrún (Rúna), f. 1961. Sambýlismaður: Ólafur J. Straumland, f. 1959. Börn Rúnu: a) Magnús Ingi Svein- björnsson, f. 1986; sambýliskona: Hilary Schaadt, f. 1988; og b) Birgitta Rún Sveinbjörnsdóttir, f. 1992; sambýlismaður: Rúrik Elsku Inga mín. Ég er stödd í Hollandi, að undirbúa jarðarför beggja foreldra minna, þegar ég fæ símhringingu með fréttum um að þú, elsku tengdamamma mín, sért líka dáin. Auðvitað vissum við að endirinn var nærri þar sem þú varst búin að vera með þennan hræðilega sjúkdóm, alzheimer, í mörg ár. Sársaukinn að missa þig er mikill en minningarnar eru góðar. Við hittumst fyrst í Hollandi 1986 og höfðum strax nóg að tala um. Samræður okkar fóru þá fram á ensku en ef við náðum ekki alveg að tjá okkur á ensku notaðir þú dönsk eða sænsk orð á milli og ég hollensk orð, sem virkaði oftast mjög vel fyrir okkur. Í hvert skipti sem þið Magnús komuð í heim- sókn til okkar Erlends í Hollandi gerðum við eitthvað skemmtilegt eins og að hlusta á djasstónlist í Delft eða fara út að borða í Bruss- el í Belgíu. 1989 fluttum við Er- lendur til London og komuð þið oft að heimsækja okkur þar. Við eyddum góðum stundum saman að ferðast um í enskri sveitasælu eða skreppa á pöbbinn. 1998 flutt- um við svo til Íslands með börnin okkar, Lindu og Stefan, og þá kynntist ég enn betur hversu góð, hlý og kraftmikil kona þú varst. Sonur okkar og barnabarn þitt, Stefan, greindist með dæmigerða einhverfu tveggja ára gamall og náðir þú alltaf einstöku sambandi við hann. Við eigum dásamlegt myndband af ykkur saman þar sem þið hlæið innilega út af ein- hverju sem á milli ykkar fór og enginn annar skildi. Stefan hefur alltaf átt erfitt með að tjá sig en hann elskaði þig mikið og hann tróð oft mynd af þér inn í mynd- rænu dagskrána sína, til að tjá að hann vildi hitta ömmu sína. Þú varst heiðursfélagi í Sor- optimistaklúbbi Seltjarnarness. Frá stofnun klúbbsins 1977 lagðir þú þig fram um að hjálpa og styðja við aðra. Þú tókst saman ljóðabók- ina „Tilfinningar“ með ljóðum eft- ir mömmu þína, Guðrúnu Jó- hannsdóttur. Soroptimistaklúbb- ur Seltjarnarness gaf svo bókina út 2002. Um 5.700 bækur hafa ver- ið seldar og allur ágóði af sölu bók- arinnar hefur runnið og rennur enn til styrktar verkefnum í þágu einhverfra og fatlaðra barna. Til dæmis kostaði klúbburinn nám- skeið hjá sálfræðingi fyrir um 100 foreldra barna sem voru nýgreind með einhverfu; Reykjadalur sum- arbúðir fyrir fötluð börn fékk góð- an styrk og keyptur var heitur pottur fyrir íbúðakjarna fyrir ein- hverfa í Grafarholti og borgað fyr- ir uppsetningarkostnað. Allt var þetta þér að þakka, Inga mín. Ég er mjög stolt af verkum þínum! Það er margt annað sem kemur upp í hugann, eins og hversu góð- ur kokkur þú varst, mikil bissnesskona og hversu snemma þú hugsaðir um umhverfismál. Þú talaðir gegn plastnotkun löngu áð- ur en sú umræða varð almenn og sagðir að allt þetta plast gæti ekki verið gott fyrir okkur. Og þú hafð- ir rétt fyrir þér! Hvíldu í friði, elsku Inga mín, þú verður áfram í hjarta okkar. Þín tengdadóttir, Carla Magnússon – de Jong. Elsku besta amma okkar. „Það eru sko ekki allir sem eiga svona ömmu!“ sagðir þú 83 ára, vel á leið komin með alzheimer, að dansa og syngja eins og enginn væri að horfa. Orð sem við öll viljum meina að séu dagsönn. Við viljum rifja upp allt dýrmæta veganestið sem þú gafst okkur inn í lífið. Eftir nokkuð langa baráttu við þennan sjúkdóm sem þú óttaðist hvað mest ertu farin. Eins erfitt og það er að kveðja bestu ömmu í heimi er þó gott að vita að þú sért orðin frjáls úr líkamanum og getir loksins orðið aftur þú sjálf. Það er sárt að rifja upp síðustu ár, á meðan stórir áfangar og mikilvæg kaflaskil áttu sér stað í lífi okkar. Áfangar sem við vorum vön að fá að upplifa með þér. Trú- lofanir, giftingar, útskriftir, ólétt- ur og seinna fæðingar langömmu- barna og áframhaldandi þróun fjölskyldunnar sem slíkrar. Þú varst þarna, en á sama tíma varstu það ekki. Þú varst vön að sjá alltaf til þess að áföngum yrði fagnað, enda er auðvelt að segja að þú hafir ver- ið límið sem hélt fjölskyldunni eins náinni og raun ber vitni. Sú sem bjó til tilefni til að hittast, fagna, dansa og syngja saman. Þú hefur þó heldur betur kennt okkur hvernig eigi að halda skemmtileg afmæli, páskaboð, jólaboð, nú eða bara tilefnislaus fjölskylduboð sem við munum halda fast í. Við munum halda áfram að baka ömmuuppskriftirnar og við skul- um svo sannarlega sjá til þess að allir borði nú aðeins meira, „það er nóg til frammi“. Mikka mús-dollan með namminu sem við öll vissum af, gestrisnin og ástin, tilhlökkun- in að koma aftur í hlýjuna til þín, það var svo auðvelt að tala við þig. Grín og húmor einkenndu þig. Þú hafðir húmor fyrir sjálfri þér sem gaf þér frelsi til að taka lífið ekki of alvarlega og leyfðir þér að gera mistök til að læra af. Þvílíkt sjálfstraust og eiginleiki sem er okkur barnabörnunum til fyrir- myndar. Þegar við rifjum upp góðar minningar um stundirnar með þér ertu oftar en ekki skelli- hlæjandi og með alla aðra hlæj- andi í kringum þig. Í gegnum allt, fram að síðustu stundu. Þegar þú áttir orðið erfitt með að lesa á klukku sagðir þú: „Æ, veistu, ég hef hvort sem er aldrei verið neitt „akkúrat“ hvað varðar klukkuna. Ég hef alltaf mætt bara rúmlega eða um það bil hvort sem er.“ Þú tókst okkur öllum nákvæm- lega eins og við vorum og sýndir áhugasviðum okkar áhuga. Þú leyfðir okkur að fara í þá átt sem við vildum með hvatningarorðum og bros á vör. Þú hafðir svo gott lag á því að fá okkur til þess að ganga út með þá tilfinningu að við værum flottust í heiminum og gætum afrekað allt sem okkur dreymdi um. Þú horfðir á karaktereinkenni okkar myndast og spáðir fyrir um hvað við mynd- um koma til með að gera. Merki- legt er að þú hafðir sjálf orð á því að þú hefðir ekki stefnt að neinu nema að verða góð mamma og síð- ar amma. Við getum lofað þér því, að sem amma varstu fullkomin. Persónuleiki þinn, ást þín og umhyggja, vitneskja og lífs- reynsla, amma okkar og vinkona. Þú fylgir okkur alla ævi. Takk fyr- ir að hafa verið nákvæmlega eins og þú varst. Magnús Ingi, Birgitta, Linda, Jakob, Stefan, Melkorka og Inga Lind. Fyrrverandi tengdamóðir mín til tveggja áratuga, Ingibjörg Bergsveinsdóttir, er látin. Margs er að minnast, einkum glaðværð- ar, væntumþykju, stjórnsemi, fé- lagslyndis og einstaks heimilis- halds. Já það voru mörg matarboðin og veislurnar sem ég tók þátt í á Sævargörðum 7 á Sel- tjarnarnesi. Þið Magnús áttuð fjölmennan vinahóp sem maður fékk að kynnast í gegnum árin. Ættingjar, æskuvinir, nágrannar og allt Sjálfstæðisflokksfólkið úr bæjarpólitíkinni á Nesinu. Ég man nöfn eins og Bubba systir og Halldór; Gógó og Steini en þið Gógó unnuð saman sem ritstjórar tímaritsins Húsfreyjunnar; Þóra og Bjössi fyrrverandi nágrannar sem bjuggu á neðri hæðinni á Meló; Siddý og Diddó hjá Z braut- um og gluggatjöldum; Unnur og Hermann danskennari; Valur hjá Eimskip og Erna og svo mætti lengi telja. Man þegar fjölskyldur okkar hittust í fyrsta sinn, Rúna flutt til mín í Lyngmóa 11 Garðabæ. En það leið ekki nema skammur tími þar til við fluttum á Nesið, fyrst í Nýjabæ. Svo byggðum við með Byggung á Austurströnd 8 og síðast á Lambastaðabraut 1. Við Rúna giftum okkur í Dóm- kirkjunni 7. júlí 1984 og var veisl- an auðvitað haldin í Félagsheimili Seltjarnarness. Skömmu áður hafðir þú verið á ferðalagi á Snæ- fellsnesi og borðað þá frábæran mat hjá Rúnari Marvins á Búðum. Það kom því ekki annað til greina en að Rúnar væri fenginn í bæinn og heilsteikti hann fylltan kola fyr- ir 100 manns, eitt stykki á hvers manns disk. Ég man hvað hann var þreyttur og sveittur eftir mat- seldina þ.e. kokkurinn. Svo fæddust börnin. Magnús Ingi hinn 1. maí 1986, já á sjálfan verkalýðsdaginn. Smá fyndið, þið verandi svona meira til hægri í pólitíkinni, en hann ánægður því það var alltaf frí og skrúðganga á afmælisdaginn hans. Já svo var það dagurinn sem ég hringdi í þig og tilkynnti að það væri fædd stúlka. Man vel ánægju- og gleði- grátinn hjá þér því Birgitta Rún fæddist á afmælisdaginn þinn, 4. ágúst, 1992. Mikil lukka. Svo gerist lífið, við Rúna skiljum 2000 og þá minnka tengslin. Við hittumst reyndar af og til í afmæl- um barnanna og öðrum viðburðum þeim tengdum. Hitti þig síðast í úr- skriftarveislu Birgittu Rúnar sum- arið 2017 en þá varstu búin að vera að berjast við þann hræðilega sjúk- dóm alzheimer. Þú greinilega þekktir mig ekki, en lékst það vel að þú vissir hver ég væri og hvísl- aðir svo að mér „ég þekki sko þessa“ og bentir á dótturdóttur þína, með sama afmælisdaginn. Takk fyrir allar gjafirnar, öll matarboðin, öll jólin og áramótin og allar veislurnar og ánægju- stundirnar. Takk fyrir að vera yndisleg tengdó og yndisleg amma barnanna okkar Rúnu. Takk fyrir allar hláturstundirnar, þar sem mismæli þín komu við sögu, bíllinn var kominn inn í ís- skáp og mjólkin inn í bílskúr og þú sagðir í ræðu „thank you for this lovely woman“, þegar þú ætlaðir að segja „evening“. Ég á fullt af myndum og myndböndum frá þessum árum sem munu halda uppi minningunni um þig. Takk! Magnús, Rúna, Elli og Bessý og börnin mín Magnús Ingi og Birgitta Rún ásamt öðrum afkom- endum og tengslafólki; risastórt samúðarknús frá mér. Sveinbjörn Fjölnir Pétursson. Ingibjörg Bergsveinsdóttir  Fleiri minningargreinar um Ingibjörgu Bergsveins- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, SVEINBJÖRN HAFLIÐASON lögfræðingur, Eiðistorgi 5, Seltjarnarnesi, lést á Landspítalanum 5. mars. Að ósk hins látna fer útförin fram í kyrrþey. Anna Huld Lárusdóttir Eydís Kristín, Þórunn og Anna Sveinbjarnardætur og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, SIGRÍÐUR EIRÍKSDÓTTIR, Hólmatúni 1, Álftanesi, lést fimmtudaginn 4. mars á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 19. mars klukkan 13. Allir velkomnir en einnig verður streymt frá athöfninni. Björg Eyjólfsdóttir Sigurður H. Sigurz Erna Þórarinsdóttir Hróðmar G. Eydal Hrefna Þórarinsdóttir Hlynur Þorleifsson systur, barnabörn og barnabarnabarn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLAFÍA HELGADÓTTIR, Lóa, Ölduslóð 26, Hafnarfirði, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut föstudaginn 5. mars. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 12. mars klukkan 13. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Einnig verður athöfninni streymt á https://youtu.be/wDc7buoBc9c Helga Þóra Ragnarsdóttir Magnús Pálsson Birna Katrín Ragnarsdóttir Björn Ingþór Hilmarsson barnabörn og barnabarnabarn Elsku hjartans mamman okkar og tengdamamma, NANNA HÁLFDÁNARDÓTTIR, lést í faðmi barnanna sinna sunnudaginn 7. mars. Útför auglýst síðar. Börn og tengdabörn Móðir okkar, AUÐUR HALLDÓRSDÓTTIR, lést laugardaginn 6. mars. Ingólfur H. Eyfells Ólafur Lúðvíksson Ástkær faðir minn, sonur okkar og bróðir, MIKAEL MÁR PÁLSSON, Hamrahlíð 9, Reykjavík, lést þriðjudaginn 2. mars. Hann verður jarðsunginn í Háteigskirkju fimmtudaginn 18. mars klukkan 13. Aðalrós Freyja Mikaelsdóttir Jódís H. Runólfsdóttir Páll I. Pálsson Páll Jónsson Sigurrós Svavarsdóttir Auður María Pálsdóttir Thor Jochumsen Jón Gauti Pálsson Unnur Rán Reynisdóttir Daníel Már Pálsson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HELGA GUÐRÍÐUR FRIÐSTEINSDÓTTIR, Hlíðarhúsum 3-5, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 28. febrúar. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn 12. mars klukkan 13. Kristján Halldórsson Ásdís Kristjánsdóttir Guðmundur Björgvinsson Albert Kristjánsson Jóna Hálfdánardóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.