Morgunblaðið - 10.03.2021, Blaðsíða 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2021
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 22. mars
Páskablað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn
26. mars
Girnilegar uppskriftir af veislumat
og öðrum gómsætum réttum
ásamt páskaskreytingum,
páskaeggjum, ferðalögum
og fleira.
50 ára Sigurður er
Garðbæingur en býr á
Sauðárkróki. Hann er
kjötiðnaðarmeistari að
mennt frá Iðnskólanum
í Reykjavík og Mennta-
skólanum í Kópavogi.
Sigurður er vara-
slökkviliðsstjóri á Sauðárkróki og er for-
maður skíðadeildar Tindastóls.
Maki: Ingibjörg Ásta Sigurðardóttir, f.
1974, hjúkrunarfræðingur á HSN.
Börn: Karen Ósk, f. 1994, Birna María, f.
2000, Ása María, f. 2005, og Haukur
Rafn, f. 2006. Barnabörnin eru orðin tvö.
Foreldrar: Rafn Guðmundsson, f. 1950,
fv. bifreiðarstjóri, búsettur í Reykjavík, og
Hrafnhildur Oddný Sturludóttir, f. 1949,
d. 2003, húsmóðir.
Sigurður
Bjarni Rafnsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Viðræður skila miklum og hag-
nýtum árangri í dag. Rétt er að nota tæki-
færið til að endurskipuleggja heimilið.
20. apríl - 20. maí
Naut Hringdu í foreldra þína og aðra þér
nána í dag. Vertu opinn fyrir því að kaupa
þau verkfæri sem flýtt geta fyrir endur-
bótum á heimilinu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Reyndu að vera jákvæður í dag,
jafnvel þótt þú hittir fólk sem krefst
greiðslu fyrir eitthvað. Vertu flippaður í
kvöld og þú eignast vin.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Samræður við vini munu gegna
þýðingarmeira hlutverki en endranær í lífi
þínu á næstu vikum. Leggðu meiri áherslu
á líkamsrækt, þannig geturðu haldið þér sí-
ungum, hvað sem árunum líður.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér líður eins og tilfinningabrunnur
þinn sé á þrotum. Kafaðu undir yfirborð
hlutanna til þess að fá fram hvað þeir þýða
í raun og veru.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú gætir fyllst efasemdum um eitt-
hvað í dag. Betur sjá augu en auga og aðrir
geta bent á hliðar sem þér voru huldar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þótt þú eigir erfitt með samskiptin við
þína nánustu, skaltu muna að sjaldan veld-
ur einn þá tveir deila. Mundu líka að aðgát
skal höfð í nærveru sálar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu þér ekki til hugar koma
að þú vitir allt um starf þitt. Samstarfs-
maður mun koma þér á óvart með lausn á
ákveðnu vandamáli.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gefstu ekki upp á því að leggja
góðum málstað lið þótt baráttan sé hörð
og þér finnist lítið miða áfram.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér finnst hlutirnir ekki ganga
nógu hratt fyrir sig og getur aðeins sjálfum
þér um kennt. Settu saman áætlun og
haltu þig við hana.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Samstarfsmaður þinn á í stöð-
ugum vandræðum með verkefni sem snert-
ir þig. Láttu það ekki tefja fyrir þér þó aðrir
standi ekki undir væntingum í dag.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Kannski er fátt spennandi sem bíð-
ur þín í dag, en þetta er samt frábær dagur.
Ekki láta hug fallast því vinur mun koma
þér á óvart.
eru verkefni hans aðallega á verk-
stæðinu heima á Rein. „Ég vinn
hálfan daginn og svo eru ýmsar við-
gerðir hingað og þangað. Ég er að
vinna í Söginni líka þegar á þarf að
halda,“ segir Stefán.
Árið 1999 keyptu Stefán, Gunn-
laugur sonur hans og Trésmiðjan
Rein ehf. Sögina, sem starfrækt var
S
tefán Óskarsson fæddist
á Hveravöllum í Reykja-
hverfi 10. mars 1941.
Foreldrar hans bjuggu á
Reykjarhóli, sem er
næsti bær við Hveravelli, og ólst
hann þar upp í stórum systkina-
hópi. Barnaskólaganga hans var
þrír mánuðir á ári frá 10 ára aldri
en farskóli var í sveitinni á þeim
tíma. Sem barn vann hann almenn
sveitastörf á búi foreldra sinna. Frá
11 ára aldri fór hann á sumrum
sem léttadrengur í Langavatn, en
þar bjuggu þrjú fullorðin systkini.
Þar fór hann ungur að keyra drátt-
arvél þar sem ekkert systkinanna
hafði tileinkað sér það.
Stefán fór í Laugaskóla og lauk
þar gagnfræðaprófi. Að því loknu
fór hann í Iðnskólann á Húsavík og
á samning hjá Trésmiðjunni Borg
þar sem hann lærði húsasmíði. Í
fyllingu tímans fékk hann svo
meistararéttindi í greininni. Á
yngri árum stundaði Stefán ýmsar
íþróttir s.s. sund, skíði, frjálsar
íþróttir og einnig er hann allgóður
bridsspilari.
Starfsferillinn
Að námi loknu fluttist Stefán
ásamt fjölskyldu í Reykjahverfi.
Þar byggði hann íbúðarhúsið Rein
og trésmíðaverkstæði í landi
Reykjarhóls. Hóf hann þar rekstur
í eigin nafni sem síðar varð Tré-
smiðjan Rein ehf. Fyrstu árin var
þjónusta við bændur í forgangi en
fljótlega komu önnur verkefni inn á
borðið, skólabyggingar, verkefni
fyrir Landsvirkjun, byggingar fyrir
heilbrigðisþjónustu og bygging bað-
lóna bæði í Mývatnssveit og á
Húsavík svo fátt eitt sé upptalið.
Fyrsta stóra verkefni Stefáns var
endurbygging Grenjaðarstaðar-
kirkju 1964-1965, síðan þá hefur
hann sinnt ýmsum verkefnum fyrir
þjóðkirkju og Þjóðminjasafn. Um
árabil rak Trésmiðjan Rein einnig
steypustöð.
Trésmiðjan Rein hefur starfað
óslitið frá 1963 til dagsins í dag.
Fyrstu árin var reksturinn smár en
óx mjög er árin liðu. Trésmiðjan
Rein var gerð að einkahlutafélagi
1996, en þá kom yngsti sonurinn,
í Höfðatúni í Reykjavík. Þeir fluttu
framleiðsluhluta fyrirtækisins norð-
ur í Stóru-Reyki í Reykjahverfi.
Verslun og sölustarfsemi Sagar-
innar er rekin á Smiðjuvegi í Kópa-
vogi. Gunnlaugur er fram-
kvæmdastjóri Sagarinnar.
Stefán gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum í þágu samfélagsins, hann
var í hreppsnefnd í 24 ár og þar af
18 ár sem oddviti. Stefán hefur alla
tíð verið áhugasamur um atvinnulíf
og tekið þátt í stofnun ýmissa nýrra
fyrirtækja á svæðinu.
Á seinni árum vaknaði áhugi
hans á skógrækt og gerðu hann og
Gunnlaugur sonur hans samning
við Norðurlandsskóga um ræktun
nytjaskóga í landi Reykjarhóls og
er Stefán skógræktarbóndi í dag.
„Ég er nýlega byrjaður að gróð-
ursetja, við erum með 50-60 hekt-
ara, það á eftir að gróðursetja æði
mikið en ég vonast til að geta fylgt
þessu eftir líka.“
Fjölskylda
Eiginkona Stefáns er Aðalbjörg
Gunnlaugsdóttir, f. 18.6. 1943, hús-
móðir og bókari, þau eru búsett í
Stefán Óskarsson húsasmíðameistari – 80 ára
Fjölskyldan Systkinin Gísli, Gunnlaugur, Steinunn Ósk, Hulda, Sigmar og Stella auk Stefáns og Aðalbjargar.
Stofnaði öflugt fyrirtæki
Hjónin Aðalbjörg og Stefán, en þau hafa verið gift í 59 ár.
Sigmar, inn í fyrirtækið. Síðan þá
hefur dóttursonurinn Arnþór Hauk-
ur komið inn sem hluthafi. Kyn-
slóðaskipti hafa orðið í stjórnun
fyrirtækisins og hefur Sigmar tekið
við sem framkvæmdastjóri og sér
um daglegan rekstur sem er núna í
Víðimóum á Húsavík. Stefán vinnur
ennþá hjá fyrirtækinu en seinni ár
30 ára Haukur ólst
upp á Þórshöfn á
Langanesi en býr í
Reykjavík. Hann er á
öðru ári í klassískri
hljóðfærakennslu í
Listaháskóla Íslands.
Haukur er klassískur
gítarleikari og nam við Menntaskóla í
tónlist. Hann vinnur einnig á Hofinu, sem
er sértæk félagsmiðstöð. Haukur er
markvörður hjá Knattspyrnufélaginu
Mjöðm.
Systkini: Þórður Ragnar Þórðarson, f.
1980, og Bryndís Þórðardóttir, f. 1988.
Foreldrar: Líney Sigurðardóttir, f. 1957,
grunnskólakennari á Þórshöfn, og Þórð-
ur Þórðarson, f. 1955, jarðverktaki. Þau
eru búsett á Þórshöfn.
Haukur
Þórðarson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is