Morgunblaðið - 10.03.2021, Page 21

Morgunblaðið - 10.03.2021, Page 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2021 Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 11-16 VÖNDUÐ LJÓS Í ÚRVALI Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HANN ER MÆTTUR AFTUR!” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera aldrei aftur einmana. ÉG ER AÐ HÁMHORFA ÚT Í TÓMIÐ ÉG NÁÐI MÉR Í ÞETTA TÖFRATEPPI Í PERSÍU! HVAÐ GERIR ÞAÐ? ÞEIR SEGJA AÐ ÞAÐ FLJÚGI! Ó… ÉG VAR AÐ VONA AÐ ÞAÐ VÆRI SJÁLFHREINSANDI! „ATHUGAÐU AÐ SÍMTALIÐ KANN AÐ VERA HLJÓÐRITAÐ. ÞÚ MUNT FÁ SAMBAND VIÐ NÆSTA LAUSA JARÐSKJÁLFTAFRÆÐING.” FLÓÐ- BYLGJU- VAKT Rein í Reykjahverfi, Norðurþingi. Foreldrar Aðalbjargar voru hjónin Gunnlaugur Sigurðsson, f. 4.8. 1908, d. 24.7. 1973, bóndi og bókari, og Guðbjörg Huld Magnúsdóttir, f. 2.7. 1910, d. 29.4. 2006, húsmóðir og verkakona. Þau bjuggu á Bakka í Kelduhverfi til 1964 og síðan í Reykjavík. Börn Stefáns og Aðalbjargar eru: 1) Gísli, f. 2.6. 1962, húsasmiður, maki: Guðný Ágústa Guðmunds- dóttir, f. 10.1. 1966, húsmóðir, bú- sett í Vogum á Vatnsleysuströnd, þau eiga fimm börn og tíu barna- börn; 2) Gunnlaugur, f. 8.10. 1963, húsasmíðameistari, maki: Dóra Ár- mannsdóttir, f. 3.5. 1964, kennari, búsett á Húsavík, þau eiga fjóra syni og tvö barnabörn; 3) Steinunn Ósk, f. 17.10. 1964, bókari og bóndi, maki: Birgir Valdimar Hauksson, f. 10.11. 1962, bóndi, búsett í Mý- vatnssveit, þau eiga þrjú börn og fimm barnabörn; 4) Guðbjörg Hulda, f. 2.5. 1968, íþróttakennari, maki: Birgir Magnússon, f. 30.3. 1967, vélamaður, búsett í Hafnar- firði, þau eiga þrjú börn; 5) Sigmar, f. 8.2. 1972, húsasmíðameistari, maki: Karólína Skarphéðinsdóttir, f. 6.11. 1972, kennari, búsett á Húsavík, þau eiga tvær dætur; 6) Stella, f. 7.10. 1979, sjúkraþjálfari, maki: Flavio Cesaro Do Buora, f. 31.10. 1975, rekstrarhagfræðingur, búsett í Sviss, þau eiga þrjár dætur. Systkini Stefáns eru Svanhildur, f. 1.1. 1939, bús. á Patreksfirði, Tryggvi, f. 18.3. 1942 bús. á Þverá í Reykjahverfi, Erla, f. 15.8. 1943, bús. í Ekru í Öxarfirði, Fanney, f. 12.10. 1953, bús. í Holti í Reykja- hverfi, og Rúnar, f. 10.10. 1956, bús. í Hrísateig í Reykjahverfi. Foreldrar Stefáns voru hjónin Óskar Sigtryggsson, f. 29.9. 1914, d. 13.2. 1998, bóndi og smiður, og Steinunn Stefánsdóttir, f. 8.10. 1914, d. 18.8. 2012, bóndi og hús- móðir. Stefán Óskarsson Ingibjörg Helga Bjarnadóttir húsfreyja í Melrakkadal Kristmundur Meldal Guðmundsson bóndi í Melrakkadal í Víðidal Guðrún Kristmundsdóttir húsfreyja á Smyrlabergi Stefán Jónsson bóndi Smyrlabergi á Ásum,A-Hún. Steinunn Stefánsdóttir bóndi og húsfreyja á Reykjarhóli Helga Gísladóttir húsfreyja í Sauðanesi Jón Jónsson bóndi í Sauðanesi á Ásum Sigríður Jakobína Jónatansdóttir húsfreyja á Fljótsbakka í Reykjahverfi Jónas Kristjánsson bóndi á Fljótsbakka Ásta Lovísa Jónasdóttir húsfreyja á Stóru-Reykjum Sigtryggur Hallgrímsson bóndi á Stóru-Reykjum í Reykjahverfi Sigríður Ósk Kristjánsdóttir húsfreyja í Brekknakoti Hallgrímur Jónatansson bóndi í Brekknakoti og Holtakoti í Reykjahverfi Úr frændgarði Stefáns Óskarssonar Óskar Sigtryggsson bóndi og smiður á Reykjarhóli í Reykjahverfi Á Boðnarmiði yrkir GuðmundurArnfinnsson „Landið mun rísa“: Birtist vorið bjarta brátt mun sunnanáttin hlý að moldu hlúa hljóma fuglarómar. Ferðamenn sem forðum fjáðir gulli stráðu gestahús vor gista gleðjumst því að nýju. Nokkru áður orti Atli Harðarson: Stynja hús og hriktir allt -hugans bú má sorgir erja- versna þúsund- þó mun -falt þegar Múspellssynir herja. Helgi Ingólfsson yrkir, – „Tíðin“: Biblían er besta svar, á böli ýmsu lumar: Lífskæð veira, landskjálftar og lúsmýið í sumar. Gos varð í Kröflu. Egill Jónasson kvað: Letra á töflur landins ris, leysa öfl úr hömlu. Hundrað djöflar helvítis hrista Kröflu gömlu. Egill var spurður, hvort Þing- eyingar væru montnari en aðrir. Hann svaraði: Þingeyskt mont er orðað oft, okkur þetta lítið skaðar. Mér finnst vera líka loft en, – lyktarverra annars staðar. Helgi R. Einarsson segir, að þessi hafi orðið óvart til, – „Saltfiskur“: Skelfing er erfitt að skilja skynsemi þeirra og vilja, sem staðreyndum neita og störfin svo veita. „Lífið er saltfiskur, Lilja.“ Hjálmar Freysteinsson orti og kallaði „Frægð“: Bráðmyndarlegur var Barði, mörg blómarós agndofa starði, en frægast þó er að hann fjölgaði sér eins og kanína í kirkjugarði. Kristján Karlsson kvað: Skáldkonan Ólöf í Ásum stökk alklædd frá dýrustu krásum og lengst út í eyjar en allsberar meyjar sér undu við ljóð heima á Gásum. Hermann Jóhannesson orti: Oft verða þeir loðnir um lófana sem leiðast í slagtog við þjófana. En ekki er þó greið til gróða sú leið og áhættusöm fyrir óvana. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Það vorar og gróandi í loftinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.