Morgunblaðið - 10.03.2021, Qupperneq 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2021
VIÐ LEITUM AÐ
LISTAVERKUM
Áhugasamir geta haft samband í
síma 551-0400
ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ
Rauðarárstígur 12-14 · 105 Reykjavík · sími 551 0400 · www.gallerifold.is
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Þetta er alveg nýtt rit sem í grunn-
inn þróaðist út frá Störu sem Sam-
band íslenskra myndlistarmanna
hefur gefið út síðustu ár. Lengi hef-
ur verið kallað eftir öflugu riti helg-
uðu myndlist, á forsendum mynd-
listarinnar. Við sem skipum
ritstjórn unnum áður að ritstjórn
Störu og sáum þar að þetta er hægt
en líka að það þurfti að koma fleir-
um að borðinu og nú hefur það
gerst,“ segir Starkaður Sigurðar-
son, ritstjóri nýs og myndarlegs
tímarits, Myndlist á Íslandi. Ritið
er 200 blaðsíður, fallega hannað,
ríkulega myndskreytt og fullt af
fjölbreytilegu efni um myndlist.
Það er tvímála, einnig á ensku og
kallast þá Art in Iceland. Auk SÍM
koma að útgáfunni Kynning-
armiðstöð íslenskrar myndlistar,
myndlistardeild Listaháskóla Ís-
lands, myndlistarráð og Listfræða-
félag Íslands. Ritstjórn skipa auk
Starkaðar þær Katrín Helena
Jónsdóttir og Sunna Ástþórsdóttir.
Starkaður segir þau í ritstjórn
hafa verið meðvituð um að innan
myndlistarsenunnar yrði til allra-
handa fjölbreytilegt efni sem væri
hægt sækja og setja fram í riti sem
þessu.
„Efnið þarf að vera fjölbreytilegt
og við þurfum að taka á og fjalla
um myndlistina út frá ýmsum
sjónarhornum. Þar er fjallað um
sýningar, sagt frá ýmsu á starfs-
vettvanginum og líka út frá list-
fræðinni. Ritið er þykkt og mikið af
efni að lesa og kynna sér. En við í
ritstjórn viljum fyrst og fremst að
efnið sé vandað og faglegt, og að
umfjöllunin hafi rými til að vera
krítísk og geti verið hluti af stærra
samtali. Þær stofnanir og samtök
sem koma að útgáfunni hafa líka
allar verið að leita sér að vettvangi
til að koma efni á framfæri og þetta
er sá vettvangur.“
Vill byggja yfir Listasafnið
Sem dæmi um efnið i þessu
fyrsta tölublaði Myndlistar á Ís-
landi er grein
Margrétar El-
ísabetar Ólafs-
dóttur um list-
fræðinginn Þóru
Kristjánsdóttur
og mótun Lista-
safns Reykjavík-
ur, rætt er við
ýmsa innan
myndlistar-
geirans um
ástandið á tímum Covid-19, Páll
Haukur Björnsson fjallar um yf-
irlitssýningu Ástu Ólafsdóttur í
Nýlistasafninu sem og starfsemi
RÝMD, nemendagallerís LHÍ,
Claire Paugam veltir fyrir sér leik-
gleði íslenskra listamanna, Daría
Sól Andrews ræðir við listamenn-
ina í hópnum Lucky 3 og svo má
finna alla umfjöllun myndlistarráðs
um Íslensku myndlistarverðlaunin
2021 sem afhent voru á dögunum
og alltaf eru að stækka í umfangi.
Þá er MáÍs-galleríið kynnt til leiks
í blaðinu með verkum fjögurra
listamanna, en lengsta efnið í ritinu
er viðtal sem Halla Harðardóttir
tók við Lilju Alfreðsdóttur,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, sem vekur athygli en ráð-
herra viðrar þar meðal annars hug-
mynd sína um ný húsakynni fyrir
Listasafn Íslands ásamt því að lýsa
yfir vilja til að styrkja Listasafnið
sem höfuðsafn á heimsmælikvarða,
en núverandi húsakostur sé um
margt óheppilegur. Lilja segir: „Í
stað bútasaums og lagfæringa vil
ég byggja nýtt og glæsilegt lista-
safn, þar sem listasögu Íslands
verði gerð góð skil. Núverandi
húsakostur býður ekki upp á slíkt,
né heldur sæmandi geymslurými
fyrir ómetanlegar menning-
arminjar. Ég sé fyrir mér safn ein-
hvers staðar við sundin, til dæmis á
Laugarnesi, sem verði þunga-
miðjan í íslensku myndlistarlífi og
kallist á við kraftmikið starf Lista-
safns Reykjavíkur og grasrót-
arstarfið í Marshall-húsinu. Mig
dreymir um samstarf eða jafnvel
sameiningu við Listasafn ASÍ og að
Fjallamjólk Kjarvals fái virðingar-
sess í anda Mónu Lísu.“
Vandaður vettvangur
„Það er mikilvægt að þeir sem
koma að útgáfunni fái þennan
vandaða vettvang til að koma fjöl-
breytilegu efni sem verður til hjá
þeim á framfæri en fólk veit líka að
við erum alltaf að leita að efni og
margar ábendingar bárust um
slíkt,“ segir Starkaður. „Þá höfum
við líka kallað eftir efni um mál sem
þarf að taka á en ritstjórnin þarf
vitaskuld að skapa áhugaverða,
vandaða og faglega heild úr öllum
þessum efnisþáttum.“
Ritstjórnin Sunna Ástþórsdóttir, Starkaður Sigurðarson og Katrín Helena Jónsdóttir eru í ritstjórn Myndlistar á
Íslandi og Starkaður ritstjórinn. „Lengi hefurverið kallað eftir öflugu riti helguðu myndlist,“ segir hann.
Á forsendum myndlistarinnar
Fyrsta tölublað nýs og veglegs tímarits um myndlist á Íslandi komið út 200
blaðsíður á íslensku og ensku Fullt af fjölbreytilegu efni um íslenska myndlist
Kápa tímaritsins
Myndlist á Íslandi.
„Innrás flundru í ferskvatni“ er
heiti sýningar sem verður opnuð kl.
17 í dag, miðvikudag, í glugga Gall-
erís Úthverfu á Ísafirði. Sýningin
er samstarfsverkefni Péturs Guð-
mundssonar myndlistarmanns á
Ísafirði og Theresu Henke, þýsks
doktorsnema sem hefur verið bú-
sett á Ísafirði frá 2016 og rann-
sakar innrás flundru í íslensk vötn.
Um er að ræða þá fyrstu í röð sjö
örsýninga undir yfirskriftinni CAR-
BON-KOLEFNI vísindi listanna –
listin í vísindunum.
Markmið verkefnisins er að leiða
saman fólk á vísinda- og listasvið-
inu til samvinnu um ýmis rannsókn-
arverkefni og miðla afrakstri sam-
vinnunnar til almennings með
sýningum og margvíslegum öðrum
miðlunarleiðum.
Flundrur Mynd í sýningarverkefni Péturs
Guðmundssonar og Theresu Henke.
Örsýning um
flundrur í Úthverfu
Í Bókakaffi
Gerðubergs í
kvöld, miðviku-
dagskvöld, milli
kl. 20 og 21.30
ræða rithöfund-
arnir Þóra Kar-
ítas Árnadóttir,
Kristín Svava
Tómadóttir og
Ófeigur Sigurðs-
son um grúsk í
skjölum og heimildum og skáld-
skapinn sem sprettur upp úr því.
Halla Þórlaug Óskarsdóttir leiðir
umræðurnar og spyr hvað við for-
tíðina sé svona heillandi og hvernig
best sé að vinna upp úr gömlum
raunveruleika og setja í samhengi
við hinn óskiljanlega samtíma: Er
samhengið tilbúningur höfunda?
Ræða grúsk í skjöl-
um og heimildum
Þóra Karítas
Árnadóttir
FLEY-kvintett Egils B. Hreins-
sonar kemur fram í Jazzklúbbnum
Múlanum í kvöld, miðvikudags-
kvöld, og minnist Horace Silver
(1928-2014). Tónleikarnir hefjast
kl. 20 og verða í Flóa í Hörpu.
FLEY-kvintettinn mun leika lög
bandaríska píanistans Horace Sil-
vers í upprunalegum útsetningum.
Má þar nefna lög svo sem Blowing
the blues away, Doodlin’, Filthy
McNasty, Juicy Lucy, Liberated
Brother, Peace, Senor Blues, Sist-
er Sadie, Song for my Father,
Soulville, St Vitus Dance og Stroll-
in’. FLEY-kvintettinn skipa Ari
Bragi Kárason á trompet, Jóel
Pálsson á saxófón, Egill Benedikt
Hreinsson á píanó, Gunnar
Hrafnsson á bassa og Matthías
M.D. Hemstock á trommur. Egill
hefur skrifað upp útsetningarnar
er byggjast á upprunalegum upp-
tökum Silvers frá 6. og 7. áratug
síðustu aldar.
Píanóleikarinn Egill B. Hreinsson
hefur útsett lög Horace Silver.
Flytja lög Horace
Silver í Múlanum
Þáttaröðin The Queen’s Gambit er
vinsælasta stutta sjónvarpsþáttaröð
sem Netflix hefur tekið til sýninga.
Nú hafa bandarískir söngleikja-
framleiðendur hug á að nýta sér
vinsældirnar og hafa tryggt sér
réttinn til að útfæra fyrir söng-
leikjasvið skáldsöguna með sama
heiti eftir Walter Tevis sem kom út
árið 1983. Sagan fjallar um mun-
aðarlausa stúlku sem verður skák-
meistari. Sam-
kvæmt The
Guardian liggur
ekki fyrir hvar
framleiðslufyrir-
tækið, sem hefur
sett upp ólíkar
sýningar, hyggst
setja The Queen’s
Gambit á svið eða með hvaða hætti,
en giskað er á í New York.
Söngleikur eftir The Queen’s Gambit
Úr þáttunum.