Morgunblaðið - 10.03.2021, Qupperneq 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
FRÁBÆR MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
sýnd með íslensKu, ensKu og pólsKu talı
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Þýskir kvikmyndadagar hefjast í
Bíó Paradís á föstudag, 12. mars,
og eru þeir nú haldnir í tólfta sinn í
samstarfi við Goethe-Institut Däne-
mark og þýska sendiráðið á Íslandi.
Dagarnir standa yfir til 21. mars og
verða allar myndir hátíðarinnar,
sex talsins, sýndar með enskum
texta og bæði í
bíóinu og á net-
leigu þess,
Heimabíó Para-
dís.
Ása Baldurs-
dóttir, dagskrár-
stjóri kvik-
myndahússins,
segir að hugs-
unin að baki há-
tíðinni sé, nú sem
fyrr, að minna sé
meira. Myndirnar séu sérstaklega
valdar á hátíðina og þær bestu sem
komið hafi út af þýskum bíómynd-
um á liðnu ári. „Þetta er okkar
vörumerki fyrir Þýska kvikmynda-
daga, að vera með það besta af
árinu, fáar myndir og þetta er fjöl-
breytt og æðislegt,“ segir Ása.
Stórmynd við opnun
Opnunarmyndin er stórmynd, að
sögn Ásu, Berlin Alexanderplatz
eftir leikstjórann Burhan Qurbani.
Handrit hennar er byggt á þekktri
og samnefndri skáldsögu Alfreds
Döblin og sagan færð til nútímans
þar sem innflytjandi frá Vestur-
Afríku er aðalpersóna. „Hún á
heima á hvíta tjaldinu, þetta er
mjög kvikmyndaleg upplifun að sjá
þessa karaktera, þessa sögu og alla
þessa mismunandi stíla í kvik-
myndahúsi,“ segir Ása. Qurbani
breyti sögunni með því að beina
sjónum að innflytjendum frá Afríku
í Þýskalandi og blandi auk þess
saman ólíkum stílum kvikmynda-
greina og vísi í þær.
Ása segir að myndin hafi verið í
keppni á Berlinale, alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Berlín, og sé þrjár
klukkustundir að lengd. „Fólk má
ekki fá kvíðakast yfir því, það er
ekkert vandamál,“ segir hún kímin
um tímalengdina og að fólk muni
ekki finna fyrir henni. Sagan sé það
marglaga og áhugaverð. „Þetta er
kvikmyndaupplifun sem þú gleymir
ekki í bráð,“ bætir Ása við um
myndina.
Endurupplifun og
samfélagsþjónusta
Við snúum okkur að næstu
mynd, Mein Ende. Dein Anfang.
eða Minn endir, þitt upphaf sem
snýst um „déjá vu“, þ.e. þegar okk-
ur finnst við hafa upplifað eða séð
eitthvað áður en finnst um leið að
upplifunin sé ný, svo vitnað sé í
svar á Vísindavefnum. Þetta er
fyrsta kvikmynd leikstýrunnar
Mariko Minoguchi og fjallar um
ungt par sem lendir í örlagaríkum
viðburði sem breytir lífi þess að ei-
lífu. „Það sem vakti athygli mína
var að hún er með mjög áhugavert
val á ungum upprennandi leikurum
sem hafa áður komið fyrir í gæða-
kvikmyndum frá Þýskalandi, list-
rænum gæðamyndum,“ segir Ása
um myndina. Sagan sé dramatísk
og erfitt að segja frá án þess að
spilla fyrir. Því verður það ekki
gert í þessu viðtali.
Þriðja kvikmyndin er Futur Drei
sem bönnuð er áhorfendum undir
18 ára aldri. Ása segir að þar sé
fylgt aldurstakmörkum í öðrum
löndum sem hafa sýnt myndina. Í
myndinni segir af Parvis, ungum
samkynhneigðum manni af írönsk-
um uppruna sem búsettur er í
Þýskalandi. Hann fremur minni
háttar afbrot og er dæmdur til að
sinna samfélagsþjónustu í flótta-
mannabúðum þar sem hann verður
ástfanginn af Amon nokkrum.
Myndin var frumsýnd á Berlinale í
fyrra og hlaut þar Teddy-
verðlaunin sem besta LGBTQ-
myndin. Ása segir myndina sýna fé-
lagslegan raunveruleika og auðvelt
að lifa sig inn í söguna sem sé bæði
rómantísk, dramatísk og kynþokka-
full.
Krimmi og fjölskylda á flótta
Fjórða myndin á dagskrá er
krimmi og nefnist Freies Land, eða
Frjálst land. „Að taka inn góða
glæpamynd er bara frábært,“ segir
Ása. Þegar sagan hefst er Berlínar-
múrinn nýfallinn og segir Ása að
myndin sé tilgerðarlaus og mjög
spennandi. Í myndinni rannsaka
tveir lögreglumenn hvarf systra í
afskekktum bæ þar sem allir virð-
ast hafa eitthvað að fela.
Fimmta kvikmyndin á dagskrá er
byggð á bók Judith Kerr, Þegar
Hitler stal bleiku kanínunni eða Als
Hitler das rosa Kaninchen stahl á
frummálinu. Leikstjóri myndar-
innar er Caroline Link sem tilnefnd
var til Óskarsverðlauna fyrir kvik-
mynd sína Beyond Silence. Gyð-
ingafjölskylda flýr Berlín þegar
nasistar eru í þann mund að kom-
ast til valda og hefur m.a. viðkomu í
Zürich, París og London.
Ása segir þetta fjölskyldumynd
sagða frá sjónarhorni ungrar stúlku
sem þurfi að flýja heimalandið.
Bleika kanínan sé tákn fyrir öryggi
og sakleysi barnæskunnar og
myndin einkar áhrifamikil.
Stjörnur leika tvíbura
Síðust en ekki síst er svo kvik-
myndin Schwesterlein eða Litla
systir en handritshöfundar hennar
og leikstjórar eru tvær konur,
Stéphanie Chuat og Véronique
Reymond, og þekktir og margverð-
launaðir leikarar í aðalhlutverkum,
þau Nina Hoss og Lars Eidinger.
Hoss leikur Lisu sem líður afar illa
yfir því að tvíburabróðir hennar
Sven, þekktur sviðsleikari, verður
sífellt veikari af krabbameini sem
virðist vera ólæknandi. Lisa
ákveður að reyna að koma honum
aftur í sviðsljósið með því að skrifa
sviðslistaverk fyrir hann. Myndinni
er lýst sem átakanlegri og drama-
tískri á vef Bíós Paradísar og að
hún láti engan ósnortinn.
„Þetta er með fallegri drama-
tískum kvikmyndum sem ég hef séð
síðustu árin,“ segir Ása um Litlu
systur og að gaman sé að sjá
hversu vel þau Hoss og Eidinger
nái saman.
Á vef Bíós Paradísar má finna
frekari upplýsingar um myndirnar,
sýningartíma og miðasölu og þar
má einnig finna hlekk á leiguna
Heimabíó Paradís. Viðtalið við Ásu
má finna í fullri lengd í kvikmynda-
hlaðvarpinu BÍÓ á mbl.is.
Opnunarmynd Úr Berlin Alexanderplatz sem byggð er á hinni rómuðu skáldsögu Alfreds Döblin frá árinu 1929.
Fáar, fjölbreyttar og frábærar
Sex kvikmyndir eru á dagskrá Þýskra kvikmyndadaga sem hefjast með stórmyndinni Berlin
Alexanderplatz „Kvikmyndaupplifun sem þú gleymir ekki í bráð,“ segir dagskrárstjóri um hana
Ása
Baldursdóttir