Morgunblaðið - 26.03.2021, Side 1
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Eldgos Engin alvarleg slys urðu í gær.
_ Lögreglan á Suðurnesjum lokaði
svæðinu við gosstöðvarnar í Geld-
ingadölum í gær vegna veðurs.
Björgunarsveitarmaður sem mbl.is
ræddi við í gærkvöldi sagði að
hálka hefði verið á nýrri leið sem
stikuð var að gosinu. Aðstæður
verða endurmetnar í dag. »6
Vonskuveður við
gosið í gærkvöldi
%!#&"$
"1$*!%'.% -%#
#&&1/!(0$)%,.+
("$.)# ,.'#!& *"#&.-%/++".
F Ö S T U D A G U R 2 6. M A R S 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 72. tölublað . 109. árgangur .
STYRKUR
NÝTIST Í VERK
ÚR STEYPU
MÆLT MEÐ
PÁSKAEGGI Í
FJALLGÖNGUR
PÁSKAR 32 SÍÐURSJÓÐUR RICHARDS SERRA 36
Omeprazol
Actavis 20mg14 og 28 stk.
Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka
efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast-
andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar,
varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi-
seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Markaðsleyfishafi:
Actavis Group PTC ehf.
T
e
v
a
0
2
8
0
6
2
Fermingarveislum, erfidrykkjum,
árshátíðum og afmælisveislum hefur
verið slegið á frest næstu vikurnar.
Veisluþjónustur sem Morgunblaðið
ræddi við eiga það sammerkt að áður
en stjórnvöld tilkynntu hertar að-
gerðir vegna kórónuveirunnar á mið-
vikudaginn ríkti bjartsýni á framtíð-
ina og bókunarstaðan var góð. Nú
hefur öllu verið aflýst. „Þetta er bara
svakalegt og þurrkar út viðskiptin.
Hlutirnir litu ótrúlega vel út næstu
tvær vikurnar í fyrsta skipti í langan
tíma,“ segir Rúnar Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Kokkanna. Hann met-
ur tjónið á vel yfir tíu milljónir króna.
Guðríður María Jóhannesdóttir,
framkvæmdastjóri Múlakaffis, segir
að öllum veislum hafi verið aflýst.
„Það var búið að panta vel fyrir
helgina. Það voru veislur fyrir hundr-
uð manna,“ segir Guðríður.
Andrea Þóra Ásgeirsdóttir, eig-
andi Veislunnar, segir aðspurð að við-
skiptavinir hafi ekki óskað eftir til-
færslu á dagsetningum. „Fólk var
mikið að reyna það fyrir ári þegar
samkomubannið var sett á þá. Fólk
var alltaf að flytja veislurnar á nýja
og nýja dagsetningu en svo gáfust
menn upp á því.“ »12
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hlaðborð Gleðskapur hvers konar
er í uppnámi vegna veirunnar.
Verkefna-
litlar veislu-
þjónustur
- Öllu aflýst og við-
skiptin þurrkuðust út
Gerð er grein fyrir uppgötvun á lyfi
sem notað er til að meðhöndla arf-
genga íslenska heilablæðingu í
grein íslenskra og bandarískra vís-
indamanna í tímaritinu Nature
Communications. Unnið er að klín-
ískri rannsókn sem lofar góðu, að
sögn Hákonar Hákonarsonar, for-
stjóra erfðarannsóknamiðstöðvar
barnaháskólasjúkrahússins í Fíla-
delfíu í Bandaríkjunum, og sagt
verður frá í vísindagrein síðar á
árinu. Þar kemur meðal annars
fram að lyfið geti haft jákvæð áhrif
á arfgengt minnisleysi.
Niðurstöður rannsóknarinnar
sýna að lyfið get-
ur komið í veg
fyrir framvindu
arfgengu ís-
lensku heila-
blæðingarinnar
hjá þeim sem eru
arfberar að
stökkbreytingu í
tilteknu geni.
Hér á landi er
vitað um 25 arfbera en Hákon segir
að samkvæmt upplýsingum úr ætt-
fræðigrunni Íslendinga séu mun
fleiri líklegir til að bera genið en
hafi ekki verið prófaðir. Vonast Há-
kon til að hægt verði að kanna
þetta betur með skimun hjá þeim ís-
lensku fjölskyldum sem vitað er að
hafa sjúkdóminn. Tilgangurinn er
að geta boðið fólkinu upp á með-
ferð. Unnið er að því að þróa
áhrifameira lyf á þessum grunni og
verður það sett á markað í fyllingu
tímans.
Til viðbótar gagnsemi lyfsins við
meðferð fólks með arfgenga ís-
lenska heilablæðingu kann það að
nýtast í meðferð við arfgengu
minnisleysi eða jafnvel alzheimer-
sjúkdómnum. Það verður rann-
sakað frekar. »10
Lyf við íslensku blæðingunni
- Getur einnig haft áhrif á arfgengt minnisleysi
Hákon Hákonarson
Oddur Þórðarson
Ómar Friðriksson
Sex kórónuveirusmit hafa greinst
utan sóttkvíar innanlands undan-
farna sjö daga. Undanfarinn mánuð
hafa tíu manns greinst með smit
utan sóttkvíar. Vegna þessarar þró-
unar hafa yfirvöld gripið til hertra
samkomutakmarkana í von um að
koma í veg fyrir að fjórða bylgja far-
aldursins fari af stað hér á landi.
Reglugerðinni, sem tók gildi
aðfaranótt fimmtudags, hefur nú
þegar verið breytt. Í gær var til-
kynnt að samkomutakmarkanir í
matvöru- og lyfjaverslunum miðuð-
ust nú við 100 manns í stað 50, eins
og upphafleg reglugerð heilbrigðis-
ráðherra kvað á um. Nýja reglugerð-
in tók gildi strax í gærkvöldi.
Leikskólar eru eina skólastigið
sem enn er opið, en Þórólfur Guðna-
son sóttvarnalæknir sagði á upplýs-
ingafundi almannavarna í gær að
engin rök væru fyrir því að loka leik-
skólum.
Landamærareglugerð seinkað
Gildistöku reglugerðar um för yf-
ir landamæri, sem taka átti gildi í
dag, hefur verið frestað til 6. apríl.
Frá þessu greindi stjórnarráðið í
tilkynningu í gær. Segir í henni að
ákvörðun um frestun sé tekin til að
svigrúm gefist til að rýna fram-
kvæmd á viðtöku vottorða svo hún
gangi snurðulaust fyrir sig og verði
í samræmi við ýtrustu varúðarráð-
stafanir. Sóttvarnalæknir hafi sent
tillögur um nánari leiðbeiningar um
viðurkenningu vottorða og séu þær
nú til skoðunar í heilbrigðisráðu-
neytinu.
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri
Vinnumálastofnunar, segir að at-
vinnulausir erlendir ríkisborgarar
sem hafi farið utan í atvinnuleit geti
ekki átt stóran hlut í þeim smitum
sem greinast á landamærum Ís-
lands. Það segir hún vera vegna
þess að hlutfall þess hóps af öllum
komufarþegum sé of lítið.
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, hafði lýst
yfir áhyggjum af þessu á miðviku-
dag og sagði stóran hóp smitaðra
koma frá Austur-Evrópu.
Sex utan sóttkvíar á viku
- Nýrri reglugerð breytt - Engin rök styðja lokun leikskóla að mati sóttvarna-
læknis - Fólk sem fer utan í atvinnuleit ekki sökudólgar, segir forstjóri VMST
MKórónuveiran herjar á … »4
Morgunblaðið/Eggert
Skimun Nokkuð margir hafa verið boðaðir í skimun við kórónuveirunni undanfarið vegna þeirra innanlandssmita sem greinst hafa á síðustu dögum.