Morgunblaðið - 26.03.2021, Blaðsíða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021
Steinunn Gunnlaugsdóttir hlaut í
gær styrk úr Sjóði Richards Serra
og er hún tíundi myndlistarmað-
urinn sem hlýtur þá viðurkenningu.
Sjóðurinn var stofnaður í tilefni af
gjöf hins heimskunna bandaríska
skúlptúrista Richards Serra á
myndverkinu Áfangar í Viðey en það
var sett upp í tengslum við Lista-
hátíð í Reykjavík árið 1990. Viðtak-
endur gjafarinnar voru Listahátíð í
Reykjavík, Listasafn Íslands og
Reykjavíkurborg.
Markmið Sjóðs Richards Serra er
að efla höggmyndalist á Íslandi með
því að veita ungum myndhöggvurum
sérstök framlög til viðurkenningar á
listsköpun þeirra.
Stjórn Sjóðs Richards Serra skipa
nú myndlistarmennirnir Eygló
Harðardóttir og Hekla Dögg Jóns-
dóttir og Harpa Þórsdóttir, safn-
stjóri Listasafns Íslands, sem er for-
maður sjóðsins. Það var samdóma
álit þeirra að Steinunn sé verðugur
fulltrúi þessarar viðurkenningar. „Í
verkum hennar sjáum við það stór-
tæka svið sem skúlptúrinn býr yfir
sem listmiðill, bæði hvað fjölbreytta
efnisnotkun varðar og til hug-
myndalegrar framkvæmdar. Verk
Steinunnar endurspegla mikilvægi
skúlptúrsins sem listmiðils í okkar
samtíma,“ segir í tilkynningu.
Steinunn fæddist í Reykjavík árið
1983, útskrifaðist úr Listaháskóla
Íslands árið 2008 og tók þátt í opnu
listnámi menningarstofnunarinnar
Ashkal Alwan í Beirút í Líbanon vet-
urinn 2013-2014. Nýlega var hún til-
nefnd sem myndlistarmaður ársins,
fyrir verkið sitt Litla hafpulsan, sem
sett var upp í Reykjavíkurtjörn árið
2018 sem hluti af Cycle Music And
Art – Þjóð meðal þjóða.
Steinunn kveðst afar ánægð með
að hljóta styrkinn og er þakklát koll-
egum í stjórn sjóðsins sem völdu
hana. Hún segir að sér þyki Serra
frábær listamaður og það hafi verið
fallega gert hjá honum að gefa verk-
ið Áfanga og vilja styrkja upprenn-
andi eða starfandi íslenska mynd-
höggvara. „Mér finnst það til
eftirbreytni,“ segir hún. „Og mér
finnst gleðilegast við þennan sjóð
hvað það er falleg hugsun að baki.“
En hvernig mun styrkurinn nýt-
ast Steinunni?
„Ég ætla að nýta hann til að búa
til verk úr steinsteypu sem mig hef-
ur lengi langað til að gera. Ég ætla
því að láta styrkinn renna beint í
steypu!“ segir hún glaðhlakkalega.
Þegar hún er spurð að því hvort
það verk sé fyrir ákveðna sýningu
segir hún veirufaraldurinn hafa
raskað mörgum áætlunum.
„Það eru margar áætlanir í skýj-
unum og ég veit ekkert hvað verður
um þær margar. Það er meðal ann-
ars sýning í Aþenu og mér finnst lík-
legt að af henni verði. Svo þarf mað-
ur af lifa og ég er nýbúin að eignast
barn sem þarf líka að sinna!
En ég mun áfram vinna að minni
myndlist, hvað sem gerist í kjölfarið
á Covid.“
Steypan sem Steinunn hyggst
nota kallast með áhugaverðum hætti
á við verk Serra, sem vinnur helst í
iðnaðarefni eins og stál en hefur líka
skapað verk úr blýi. Áfangar í Viðey
er úr stuðlabergi og einstakt á hans
ferli sem eina verkið sem hann hefur
skapað úr grjóti. efi@mbl.is
Styrkurinn rennur beint í steypu
- Steinunn Gunnlaugsdóttir hlaut styrk úr Sjóði Richards Serra - Er tíundi myndhöggvarinn sem
hlýtur viðurkenninguna - Sjóðurinn var stofnaður í tilefni af gjöf Serra á Áföngum sem er í Viðey
Ljósmynd/Sigurður Gunnarsson
Lukkuleg Steinunn Gunnlaugsdóttir fagnaði í Listasafni Íslands. Með henni er stjórn Sjóðs Richards Serra.
Tilkynnt hefur verið um tilnefningar til Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna 2021 fyrir hið
fordæmalausa tónlistarár 2020 en verðlaunin
verða afhent 14. apríl.
Flestar tilnefningar hlýtur Bríet Ísis Elfar
fyrir plötuna Kveðja, Bríet en hún er tilnefnd
til sjö verðlauna. Ingibjörg Turchi og Auður fá
næstflestar tilnefningar, sex talsins, Ólafur
Arnalds fær fimm og þau GDRN, Hjaltalín og
Ásgeir fjórar. Um 120 flytjendur og hópar eru
tilnefndir í ár. Eftirfarandi eru tilnefningar í
flestum flokkum en listann má sjá í heild á vef
Íslensku tónlistarverðlaunanna, á iston.is.
Popp, rokk, raftónlist,
rapp og hipp hopp
- Plata ársins – Popp
Tilnefningar: Bríet– Kveðja, Bríet; GDRN –
GDRN; Hjaltalín – Hjaltalín; JFDR – New
Dreams; Ásgeir – Sátt
- Plata ársins – Rokk
Tilnefningar: Skoffín – Skoffín hentar íslensk-
um aðstæðum; Sólstafir – Endless Twilight of
Codependent Love; Auðn – Vökudraumsins
fangi; Celebs – Tálvon hinna efnilegu; Dream
Wife – So When You Gonna …
- Plata ársins – Rapp og hipp hopp
Tilnefningar: Cyber – Vacation; JóiPé & Króli
– Í miðjum kjarnorkuvetri; Logi Pedro – Undir
bláu tungli
- Plata ársins – Raftónlist
Tilnefningar: Ultraflex – Visions of Ultraflex;
gugusar – Listen To This Twice; Mikael Lind –
Give Shape to Space; Moff & Tarkin – Man of
the Match; Volruptus – First Contact
- Lag ársins – Popp
Tilnefnd eru: Esjan – Bríet; Think About
Things – Daði Freyr; Vorið – GDRN; Það bera
sig allir vel – Helgi Björns; Stundum – Moses
Hightower
- Lag ársins – Rokk
Tilnefnd eru Haf trú – HAM; Visitor – Of Mon-
sters and Men; Eldborg – Auðn; Prince –
Mammút; Kraumar – Celebs
- Lag ársins – Rapp og hipp hopp
Tilnefnd eru Ungi Besti & Milljón – Vera Ill-
uga; Auður og Floni – Týnd og einmana; JóiPé
x Króli – Geimvera; Cyber – calm down; Logi
Pedro – Ef Grettisgata gæti talað
- Lag ársins – Raftónlist
Tilnefnd eru Inspector Spacetime – Hvað sem
er; Ólafur Arnalds – Loom (með Bonobo); JFDR
– Think Too Fast; Ultraflex – Full of Lust;
Kuldaboli – Ískaldur veruleikinn
- Textahöfundur ársins
Tilnefnd eru Bríet Ísis Elfar; Jóhannes
Bjarki Bjarkason, Andri Ólafsson & Stein-
grímur Karl Teague; Einar Georg Einarsson,
Júlíus Aðalsteinn Róbertsson og Ásgeir
Trausti Einarsson; Benedikt H. Her-
mannsson
- Lagahöfundur ársins
Tilnefnd eru Pálmi Ragnar Ásgeirsson;
Hjaltalín; Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir;
Auðunn Lúthersson; Moses Hightower
- Söngvari ársins
Tilnefndir eru Högni Egilsson;
Jón Jónsson; Auðunn Lúthersson; Ásgeir
Trausti Einarsson; Matthías Matthíasson
- Söngkona ársins
Tilnefndar eru Jófríður Ákadóttir; Guðrún Ýr
Eyfjörð; Jelena Ciric; Rakel Mjöll Leifsdóttir
- Tónlistarflytjandi ársins
Tilnefnd eru Bríet; Auður; HAM; Daði Freyr;
Bubbi Morthens
- Bjartasta vonin
Tilnefnd eru Kristin Sesselja; Inspector
Spacetime; skoffín; gugusar; Salóme Katrín
Sígild og samtímatónlist
- Plata ársins
Tilnefndar eru: Elfa Rún Kristinsdóttir –
Baroque Violin Sonatas; Víkingur Heiðar
Ólafsson – Debussy-Rameau; Peter Máté –
John Speight, Solo Piano Works; Halldór
Smárason – STARA: Music of Halldór Smára-
son; Páll Ragnar Pálsson – Atonement
- Tónverk ársins
Tilnefnd eru: Finnur Karlsson – Accordion Con-
certo; Hafdís Bjarnadóttir – Sumar; Bára Gísla-
dóttir – VÍDDIR; Hugi Guðmundsson – BOX,
konsert fyrir harmónikku og lírukassa; Snorri
Sigfús Birgisson – Konsert fyrir hljómsveit
- Söngkona ársins
Tilnefndar eru: Álfheiður Erla Guðmundsdóttir;
Hallveig Rúnarsdóttir; Heiða Árnadóttir; Her-
dís Anna Jónasdóttir; Sigríður Ósk Kristjáns-
dóttir
- Söngvari ársins
Tilnefndir eru: Elmar Gilbertsson; Kristinn Sig-
mundsson; Stuart Skelton; Sveinn Dúa Hjör-
leifsson; Sverrir Guðjónsson
- Tónlistarflytjandi ársins
– Einstaklingar
Tilnefnd eru: Anna Guðný Guðmundsdóttir;
Elfa Rún Kristinsdóttir; Víkingur Heiðar Ólafs-
son; Halla Steinunn Stefánsdóttir; Sæunn Þor-
steinsdóttir
- Tónlistarflytjandi ársins – Hópar
Tilnefnd eru: Sinfóníuhljómsveit Íslands; Bar-
okkbandið Brák; Elektra Ensemble; Strok-
kvartettinn Siggi; Cantoque Ensemble
Djass- og blústónlist
- Plata ársins
Tilnefndar: Melismetiq Live – Melismetiq;
Make – Monoglot; Meliae – Ingibjörg
Turchi; hits of – hist og; Four Elements –
Haukur Gröndal og Frelsissveit Íslands
- Tónverk ársins
Tilnefnd eru: Geneva – Ari Bragi Kárason;
Svörður – Agnar Már Magnússon; Þú varst
ástin mín – Sigurður Flosason; Four Ele-
ments – Haukur Gröndal; I don’t want to
sleep – Mikael Máni Ásmundsson og Kristín
Birgitta Ágústsdóttir
- Lagahöfundur ársins
Tilnefnd eru: Ingibjörg Elsa Turchi; Sig-
urður Flosason; hist og (Eiríkur Orri Ólafs-
son, Róbert Reynisson og Magnús Trygva-
son Eliassen); Mikael Máni Ásmundsson;
Þórir Úlfarsson (Thor Wolf)
- Tónlistarflytjandi ársins
– Einstaklingar
Tilnefnd eru: Haukur Gröndal; Sigurður
Flosason; Leifur Gunnarsson; Andrés Þór;
Stína Ágústsdóttir
- Tónlistarflytjandi ársins – Hópar
Tilnefnd eru: Frelsissveit Íslands; Ingibjörg
Turchi og hljómsveit; hist og; Brim; Sölvi
Kolbeinsson & Magnús Trygvason Eliassen
Önnur tónlist: Opinn flokkur,
þjóðlaga- og heimstónlist,
kvikmynda- og leikhústónlist
- Plata ársins – Kvikmynda- og leik-
hústónlist
Tilnefndar eru: Defending Jacob – Atli Örv-
arsson og Ólafur Arnalds; Thin Ice – Biggi
Hilmars; We’re Here – Herdís Stefánsdóttir;
The Vasulka Effect – Hugar; Chasing the
Present – Snorri Hallgrímsson
- Plata ársins – Kvikmynda- og þjóðlaga-
tónlist
Tilnefndar eru: Brek – Brek; Elín Hall –
Með öðrum orðum; Baggalútur – Kveðju
skilað; Jelena Ciric – Shelters one; Ásgeir
Ásgeirsson – Persian path
- Plata ársins – Opinn flokkur
Tilnefndar eru: The Ghost Choir – The Ghost
Choir; Ólafur Arnalds – some kind of peace;
Red Barnett – Astronauts; K.óla – Plast-
prinsessan; Gyða Valtýsdóttir – Epicycle II
- Lag/Tónverk ársins – Opinn flokkur
Tilnefnd eru: Gyða Valtýsdóttir og Úlfur
Hansson – Morphogenesis; Ólafur Arnalds –
Defending Jacob Theme; Magnús Jóhann –
Sálmur fyrir Sollu systur; Kira Kira – We
The Feels; Red Barnett – Astronaut
Bríet tilnefnd til flestra verðlauna
- Um 120 einstaklingar og hópar tilnefndir til Íslensku tónlistarverðlaunanna í ár - Bríet er
tilnefnd til sjö verðlauna - Ingibjörg Turchi og Auður tilnefnd til sex, Ólafur Arnalds til fimm
Morgunblaðið/Eggert
Vinsæl Bríet Ísis Elfar
er vinsæl eins og endur-
speglast í mörgum til-
nefningum sem tónlist
hennar og flutningur
hlýtur að þessu sinni.