Morgunblaðið - 26.03.2021, Side 15

Morgunblaðið - 26.03.2021, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021 Gígar Vindátt snerist þannig í gær að nýtt sjónarhorn skapaðist á gígana sem skvetta upp glóandi hrauninu í Geldingadölum. Um miðjan dag var lítill vindur og blá móðan steig til himins. Árni Sæberg Það er áleitin spurning hvort frjáls- borinn maður geti haft vald á eigin mál- um. Þannig eru mannréttindi fólgin í því að hver fái að vera svo heimskur sem hann vill. Það eru mannréttindi að taka lán og það eru mann- réttindi að eiga frjáls- an sparnað. Það er stjórn- arskrárbundin skylda að stjórnvöld geri þegnum sínum kleift að vernda verðgildi frjáls sparnaðar. Það kann að vera að umboðs- lausir verkalýðsrekendur geti tek- ið sér vald til að ákveða lánskjör annarra en ég frábið mér afskipti verkalýðsrekenda af mínum lána- málum. Það er skerðing á mínum mannréttindum. Enn frekar sem aldur færist yfir mig, að lánstími á mínum lán- um eigi að laga sig að duttlungum þessa umboðslausa fólks. Vandi verkalýðsrekenda er sá að þegar þeir byrja að ljúga af vanþekkingu sinni og fara með bull og fleipur, þá er erfitt að segja satt á eftir. Áleitin spurning Það er einnig áleitin spurning á hvern veg verkalýðsrekendur í einu stéttarfélagi geta ákveðið lánskjör félaga í öðru og óskyldu stéttarfélagi, eða þeirra sem standa utan stéttarfélaga. Af hverju á mannvitsbrekkan forseti ASÍ að ákveða lánskjör hjá félaga í BSRB eða BHM? Er félögum í BSRB og BHM of gott að vera fífl, ef svo ber undir! Hvern varð- ar slíkt? „Rétt eiga menn á að stofna stéttarfélög og stéttarfélaga- sambönd í þeim tilgangi, að vinna sameiginlega að hagsmunamálum verkalýðsstéttarinnar og launtaka yfirleitt.“ Svo er það orðað í vinnulöggjöfinni. Það felur ekki í sér að verkalýðsrekendur geti tek- ið sér vald til hagstjórnar á heim- ilum. Hvað með lánasamninga? Lán er samningur milli tveggja aðila, lánveitanda og lán- taka. Báðir aðilar lánasamningsins bera réttindi og skyldur. Að auki gilda almennt samþykktar reglur margföldunar og deil- ingar þar sem breyti- stærðirnar eru: - Höfuðstóll og gjald- miðill - Lánstími í dögum, mánuðum eða árum - Gjalddagar og skilmálar. - Vextir, eða ávöxtun á ári - Dýrleiki láns er metinn af ávöxtun Ef vextir eru breytilegir, þá er eðlilegt að breytileikinn sé ekki ákvarðaður af lánveitandunum án ytri tilvísunar. Það er ástæða til að staldra við hugtakið vexti. Vextir eru gjald fyrir afnot af fjármagni. Gjaldið tekur mið af almennu vaxtastigi á fjármálamarkaði, áhættulausum vöxtum, áhættu og verðbólgu. Að auki eru nokkrir aðrir þættir sem skipta takmörkuðu máli. Hinir áhættulausir vextir eru taldir vera vextir á lánum sem rík- issjóður tekur. Áhætta tekur mið af greiðslugetu og aðstæðum lán- taka. Verðbólga er sú sama, hvort heldur ríkissjóðir, fyrirtæki eða einstaklingar eiga í hlut. Vaxtakjör og verðtrygging Algengasti breytileikinn í vaxta- kjörum er verðbólga. Vaxtakjör allra lána taka mið af verðbólgu. Orðfærið á íslenskum fjármálamarkaði er með því vit- lausasta sem um getur. Enda eng- um of gott að vera heimskur! Lán þar sem vaxtakjör eru ákvörðuð með hlutlægri mælingu verðbólgu eru talin „verðtryggð“. Lán þar sem breytileiki vaxta er ákvarðaður af lánveitanda eru tal- in „óverðtryggð“! Allt tal um „óverðtryggð“ lán er þvæla úr munni lýðsleikja og rugludalla. Algengasta dæmi um verðtrygg- ingu eru lán á áfengi yfir helgi þar sem endurgreiða á með sams kon- ar áfengi. Verðbreyting á áfengi yfir helgi hefur engin áhrif á það hve miklu áfengi skuli skilað. Umboðsvandi lánveitanda Lántaki getur ekki ætlast til að lánveitandi gangi á rétt umbjóð- enda sinna um sameiginlegan sparnað til lífeyris, að endur- greiðsla lánsins rýri rétt umbjóð- endanna, væntanlegra lífeyris- þega, um væntan lífeyri vegna skyldubundins sparnaðar. Þá er forsenda fyrir skylduaðild að líf- eyrissjóðum brostin. Það hefur enginn heimild til að úthluta annarra manna gæðum að geðþótta. Frumvarp um lánstíma Fjármála- og efnahagsráðherra lætur sig hafa það að bera fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um „vexti og verðtrygg- ingu“ nr. 38/2001. Frumvarpið virðist fram borið til að standa við fyrirheit í ein- hvers konar samkomulagi „aðila vinnumarkaðarins“. Ég er á vinnu- markaði og ég hef aldrei framselt til nokkurs aðila rétt minn til að ákvarða sjálfur lánstíma á lánum mínum, sem ég geri með sam- komulagi við lánveitanda minn. Ég óska aðeins eftir því að lánveitandi minn bjóði sanngjarnan og viðráð- anlegan lánstíma. Ef ég vil taka lán til 40 ára til bílakaupa, þá er það mitt mál. Það er mál lánveit- andans að veð til tryggingar lán- inu haldi verðgildi sinu sem veð- trygging út lánstímann. Ef lánveitandinn veitir mér þá sanngirni að heimila mér að greiða aukagreiðslur eftir efnum mínum og ástæðum, þá þarf ég ekki að lúta duttlungum verkalýðsrekenda um lánstíma. Aldurstengdur lánstími Svo á að aldurstengja lánstíma. Hvað með aldurstengda mis- munun? Þeir sem eldri eru þurfa að lúta kröfum verkalýðsrekenda um styttri lánstíma en þeir sem eru ungir! Hvað segja Samtök aldr- aðra um slíka forsjárhyggju og of- stopa? Sá er þetta ritar hefur allt- af álitið það upphaf allrar vellíðunar að vera ekki að skipta sér af því hvert aðrir ætla og hvað aðrir gera. Og svo er hverjum manni alls ekki of gott að vera svo heimskur sem hann vill! Vitsmunir verkalýðsrekenda bæta þar engu um. Þar sem alla virðist varða svo mjög um þjóðarhag, þá er rétt að benda á að jöfn greiðslubyrði á löngum tíma veldur ekki sveiflum á fjármálamarkaði. Það er ört vax- andi hópur sem hefur einstakan áhuga á peningastefnu Seðlabank- ans og framkvæmd hennar! Ef til vill er ætlan ríkisstjórnar- innar að hækka andlag til erfða- fjárskatts. Aldurstenging bætir ekki velferð eldri borgara. Skuldir eða skuldleysi er ákvörðun ein- staklingsins en ekki ráðherra eða verkalýðsrekenda. Áhrif á greiðslubyrði Greiðslubyrði lána tekur mið af lánstíma. Því styttri lánstími, því þyngri greiðslubyrði. Það kann að verða sæla eftir að endurgreiðslu lýkur. Verkalýðsrekendur, for- sætisráðherra og fjármálaráðherra varðar ekkert um það hvenær þegnar njóta sælu. Það kann að vera að einhverjir vilji dreifa sæl- unni á langan tíma, án afskipta annarra. Það er gert með löngum lánstíma. En þá má einnig spyrja: Hafa lánveitendur skaðað umbjóðendur sína með löngum lánstíma til lán- taka? Þeim er þetta ritar er ekki kunnugt um neina slíka rannsókn. Í umsögn Samtaka fjármálafyr- irtækja kemur slíkur skaði ekki fram. Seðlabankinn kannast ekki við nein áhrif lánstíma á virkni peningamálastefnu. Og hefur hver sem er ekki leyfi til að vera skynsamari en í fyrra? Ólíkindi Það er með miklum ólíkindum að fjármála- og efnahagsráðherra skuli bera fram á vettvangi Al- þingis það frumvarp, sem hér til umræðu. Samtöl ráðherra við verkalýðsrekendur geta aldrei bundið vilja Alþingis. Sérstaklega þegar samtalið varðar að mestu aðra en þá sem verkalýðsrekendur þykjast hafa umboð fyrir. Verka- lýðsrekendur geta aðeins samið um kaup og kjör, og þrifnað á vinnustöðum. Önnur mál geta ver- ið umræðuefni til ábendingar. Efni frumvarpsins felst að mestu í afnámi mannréttinda hjá heiðvirðu fólki, þar sem samingar heiðvirðs fólks hafa dugað. En eins og skáldið segir í Kraft- birtingarhljómi guðdómsins: „Öll skáld eru helvítis ræflar og óbóta- menn, nema hann Hallgrímur heit- inn Pétursson.“ Gleðilega páska! Eftir Vilhjálm Bjarnason » Það er með miklum ólíkindum að fjár- mála- og efnahags- ráðherra skuli bera fram á vettvangi Al- þingis það frumvarp, sem hér til umræðu. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Mannréttindi á fjármálamarkaði Lánstími Vextir á ári Ársgreiðsla Hækkun greiðslubyrði með styttum lánstíma Verðtryggt jafngreiðslulán 40 ár 2,50% 39.800 25 ár 2,50% 54.300 36% Lánstími Vextir á ári Ársgreiðsla á fyrsta ári Verðtryggt lán með jöfnum afborgunum 40 ár 2,50% 50.000 25 ár 2,50% 65.000 30% Samanburður á greiðslubyrði lána Ársgreiðsla af 1.000.000 kr. láni miðað við lánstíma

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.