Morgunblaðið - 26.03.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 26.03.2021, Qupperneq 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021 40 ára Brynjar er Reyk- víkingur en á ættir að rekja til Vestmannaeyja. Hann ólst upp í Háaleit- inu og á þeim slóðum og býr þar. Hann er hagfræðingur, með B.Sc.- og M.Sc.-gráðu frá Háskóla Íslands og stundaði einnig nám við Erasmus School of Economics í Rotterdam. Brynjar er hagfræðingur við Seðlabanka Íslands og er reglulegur pistlahöfundur í Viðskiptablaðinu. Hann hefur starfað við Oddfellowregluna í mörg ár. Áhugamál Brynjars eru stangaveiði, en mastersritgerð hans var um verðmæti stangaveiðisvæða á Íslandi. Maki: Svava Jóhanna Haraldsdóttir, f. 1982, hagfræðingur í Seðlabankanum. Dóttir: Sigurdís Ásta, f. 2013. Foreldrar: Ólafur Árni Traustason, f. 1959, kennari við Lækjarskóla í Hafnar- firði og ökukennari, búsettur í Reykjavík, og Guðrún Erna Gunnarsdóttir, f. 1960, aðalbókari hjá Kjöthúsinu, búsett í Kópa- vogi. Brynjar Örn Ólafsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þótt smáóreiða sé ekki skaðleg, eru hlutirnir fljótir að fara úr böndunum, þegar skriðan fer af stað. Settu markið hátt. 20. apríl - 20. maí + Naut Veltirðu vöngum yfir sömu spurning- unni aftur og aftur? Verður allt í lagi eftir breytingar? Styrktu þig í trúnni. Enginn er fullkominn og þá þú ekki heldur. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Stundum eiga menn það til að misskilja góðsemi þína. Stutt æfing getur verið alveg jafn áhrifarík og löng. Þú færð frábæra hugmynd. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú verður að líta upp úr vinnunni og horfa framan í heiminn stöku sinnum. Láttu það eftir þér að vera þú sjálf/ur og hafðu ekki óþarfa áhyggjur. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þótt nokkuð gusti um þig núna skaltu ekki láta það slá þig út af laginu. Mundu að þakka fyrir það sem þú hefur. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú ert að velta því fyrir þér hvort þú eigir að sýna meiri hörku í viðkvæmu máli. Farðu á námskeið ef þú getur, til að öðlast meiri færni á því sem þú hefur áhuga á. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þótt aðrir kunni að hafa réttu svörin ert það þú sem þarft að standa með þér og þinni ákvörðun. Veltu því fyrir þér hvað það er sem veitir þér gleði. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Ef þú hefur verið að bíða eftir tækifæri, áttar þú þig kannski á því að þannig virkar það ekki. Þú þarft að taka frumkvæði sjálf/ur. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Nú kemur til þinna kasta að leiða starfshóp sem á að leggja drög að nýju skipulagi. Hugrekkið vex hjá þér hægt og bítandi. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þetta er rétti tíminn til að fá smá rómantík inn í lífið. Þú veist hvenær á að spyrja réttu spurninganna. Láttu það eftir þér að fara í smá dekur. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Ágreiningur við vini eða hóp er líklegur. Gerðu ekkert sem þú sérð eftir eða sem getur skapað fjárhagsörðugleika. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Draumar gefa þér hugmyndir en vekja einnig hjá þér þrá. Mundu að horfa bjartsýnisaugum á umhverfið, það gerir allt betra. rænna útvarpsstöðva, Leikskálda- verðlauna Norðurlandaráðs, Grím- unnar og fleira. Hann hefur þýtt skáldsögur fyrir börn og fullorðna og mikinn fjölda leikrita, einkum úr þýsku en einnig úr öðrum tungumálum, unnið leik- gerðir, meðal annars Hamskipti eftir Franz Kafka sem Frú Emilía svið- setti undir titlinum Gregor. Hafliði er leikstjóri og leikstýrði verðlaunasýningunni Brimi eftir Jón Atla Jónasson hjá Vesturporti, sem ferðaðist víða um heim og hlaut verð- laun og viðurkenningar. Hann leik- stýrði Mein Kampf og Hetjum í Borgarleikhúsinu, Konunni áður í Þjóðleikhúsinu og 100 ára húsi hjá Emilíu árið 1986 ásamt Guðjóni Ped- ersen. Sýningar voru víðs vegar í Reykjavík, í Hlaðvarpanum þar sem veitingastaðurinn Tapas er nú, í bak- húsi við Laugaveg, í Skeifunni, í Listasafni Íslands. Öflugust var starfsemin samt í Héðinshúsinu við Seljaveg árin 1994-1996 þar sem svið- settur var fjöldi verka, meðal annars Macbeth, Kirsuberjagarðurinn og kammeróperan Rhodymenia Palm- ata. Síðast sýndi Frú Emilía einstakt leikrit Jóns Atla Jónassonar, 100 ára hús, í hersjúkratjaldi í Nauthólsvík. Farið var í leikferðir með sýningar bæði innan lands og einnig til Dan- merkur, Noregs, Finnlands, Portú- gal og Eistlands. Hafliði hefur starfað við flestallar leiklistarstofnanir landsins, einnig hjá RÚV, bæði í hljóðvarpi og sjón- varpi. Hann hefur haldið fjölda fyr- irlestra og erinda um leiklist á ráð- stefnum og samkomum ýmiss konar, innlendum sem erlendum, í hljóð- varpi, ritað greinar í dagblöð og tíma- rit, innlend og erlend. Hann hefur setið í ýmsum nefndum, í fjölda dóm- nefnda í leikritasamkeppnum og í dómnefndum fyrir Íslands hönd varðandi tilnefningar til verðlauna, m.a. Útvarpsleikritaverðlauna nor- H afliði Arngrímsson fæddist 26. mars árið 1951 í Reykjavík. Hann ólst upp í Odda á Rangárvöllum öll æskuárin þar til fjölskyldan flutti bú- ferlum til Reykjavíkur, þegar faðir hans var kosinn sóknarprestur í Háteigssókn. Hafliði vann við sveitastörf frá unga aldri, öll sumur allt til háskóla- ára, í fyrstu hjá Ágústi Guðmunds- syni, bónda á Stóra-Hofi á Rangár- völlum, en síðar hjá Sigurbirni Eiríkssyni stórhrossabónda. „Sveitin átti hug minn allan, ég ætlaði að verða bóndi.“ Hafliði starfaði mörg sumur við landmælingar hjá Lands- virkjun vítt og breitt um landið en fyrst og fremst á miðhálendinu. „Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, ætl- aði ég mér að verða læknir en námi lauk snögglega eftir að ég hafði starf- að sem sviðsmaður hjá Leikfélagi Reykjavíkur í Iðnó árin 1974-1975, í leikhússtjóratíð Frú Vigdísar Finn- bogadóttur. Ég rauk í skyndi til náms í leiklistarfræðum við háskólann í Vínarborg í Austurríki og lauk þar námi árið 1982.“ Hann kaus sér einn- ig hliðarfög, fjölmiðlafræði og leik- stjórn við leiklistarskólann Max- Reinhardt-Seminar. Hann dvaldi vet- urlangt í Stokkhólmi þar sem hann vann að doktorsverkefni. Strax við heimkomu árið 1983 gerðist hann meðlimur Stúdentaleikhússins, vann að verkefnavali og tók saman og stýrði ýmsum dagskrám í Félags- stofnun stúdenta sem þá var aðal- aðsetur þess. Hann hóf kennslustörf við Leiklist- arskóla Íslands árið 1985, kenndi leiklistarsögu, leikritalestur, og tók þar að auki að sér fjölda annarra verkefna fyrir skólann; ýmsa drama- túrgíska vinnu, þýðingar, textagerð o.þ.h. Hann stjórnaði námsferðum nemenda og vann að samskiptum við erlenda leiklistarskóla. Hann var í skólanefnd í átta ár og í undirbún- ingshópi um námskrá fræðakennslu við Listaháskóla Íslands. Fjölþættur leiklistarferill Hafliði stofnaði leikhúsið Frú Frú Emilíu. Sýningar hlutu tilnefn- ingar og verðlaun bæði hér á landi og erlendis en einnig hafa margar sýn- ingar sem Hafliði hefur komið að sem dramatúrg hlotið viðurkenningar af ýmsu tagi. „Starf dramatúrgs blasir ekki við leikhúsgestum enda fer starfið að mestu fram að tjaldabaki, við undirbúning og vangaveltur. Endalaus skoðun á hugsanlegum verkefnum framtíðar og úrvinnsla á þeim og ráðgjöf á báðar hendur.“ Þannig hefur Hafliði unnið aðlögun fjölda leikrita svo sem Rómeó og Júl- íu, Óþelló, Lé konung, Macbeth, Dal hinna blindu o.m.fl. Hafliði hefur starfað í Borgarleik- húsinu svo að segja sleitulaust frá árinu 1996 og verið náinn samstarfs- maður leikhússtjóranna Þórhildar Þorleifsdóttur, Guðjóns Pedersen, Magnúsar Geirs Þórðarsonar, Krist- ínar Eysteinsdóttur og nú síðast Brynhildar Guðjónsdóttur. „Spurt er hvað ég muni taka mér fyrir hendur í framtíðinni þar sem eins konar starfslok verða í tilefni dagsins. Svarið er ekki einfalt þar sem margar dyr hafa opnast, kitlandi dans, djamm og djús við sjóndeildar- hringinn. En fyrst og fremst er ég þakklátur fyrir að hafa orðið þeirrar Hafliði Arngrímsson, dramatúrg og leikstjóri – 70 ára Ljósmynd/Arnar Dan Við skírn Frá vinstri: Kristján Helgi, Pétur, Matthildur Guðrún, Sigríður Soffía, Sandra með Önnu Margréti, Sverr- ir, Sigþór, Hjalti, Hafliði Evert, Ísabella, Margrét og Hafliði gamli. Leikhúsið vísar veginn Hjónin Margrét og Hafliði í Hörpu. Til hamingju með daginn Hreinsum allar yfirhafnir, trefla, húfur og fylgihluti STOFNAÐ 1953 Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími 553 1380 40 ára Svandís er Reykvíkingur, ólst upp í Breiðholti og Kópa- vogi og býr í Selja- hverfi. Hún er með B.Sc.-gráðu í við- skiptafræði frá Há- skóla Íslands, M.Sc.- gráðu í eignastýringu frá Háskólanum í Reykjavík og próf í verðbréfaviðskiptum. Svandís er sviðsstjóri eignastýringar hjá Brú lífeyrissjóði. Hún er höfundur ritsins Lesið í markaðinn ásamt Sigurði B. Stef- ánssyni en þau eru jafnframt höfundar bókar sem kemur út í ár og fjallar um hlutabréf á heimsmarkaði. Svandís er formaður Félags markaðsgreinenda. Maki: Elmar Hallgríms Hallgrímsson, f. 1977, framkvæmdastjóri Samiðnar. Börn: Júlían Ríkarður, f. 2008, Ísabella Sif, f. 2011, og Alexandra Helga, f. 2016. Foreldrar: Ríkarður Rúnar Ríkarðsson, f. 1962, deildarstjóri hjá Linde, og Friðbjörg Sif Grjetarsdóttir, f. 1966, kennari í Álf- hólsskóla í Kópavogi. Þau eru búsett í Seljahverfi. Svandís Rún Ríkarðsdóttir Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.