Morgunblaðið - 26.03.2021, Page 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021
GLEÐILEGA PÁSKA - SJÁUMST Í BÍÓ SEM ALLRA FYRST
FRANCESMcDORMAND
MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO
PEOPLE’S CHOICE AWARD
TORONTO FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
GOLDEN LION BEST FILM
VENICE FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
EVENING STANDARD
THE GUARDIAN
TOTAL FILM
THE DAILY TELEGRAPH
TIME OUT
EMPIRE
BESTA MYNDIN
BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI
Frances McDormand
BESTI LEIKSTJÓRI
Chloé Zhao
6
ÓSKARS
TILNEFNINGAR
MEÐAL ANNARS
®
VIÐ MÆTUM AFTUR
15. APRÍL
EÐA FYRR EF AÐ COVID LEYFIR.
Risa Páskaknús á ykkur öll og
hlökkum til að hitta alla í bíó aftur.
VÆ
NT
AN
LEG
Í B
ÍÓ
VÆNTANLEG Í BÍÓ
ÓSKARS-
TILNEFNINGA
MYNDIRNAR
MÆTA AFTUR
Myndlistarmaðurinn Derek Mun-
dell opnaði 13. mars sýningu í Gall-
erí Göngum í Háteigskirkju. Heiti
sýningarinnar er Úr alfaraleið og
er hún opin á skrifstofutíma á virk-
um dögum en á morgun, laugardag,
verður Derek á staðnum og spjallar
við gesti frá kl. 13 til 16. Tíu gestir
geta sótt sýninguna samtímis að
viðhöfðum sóttvörnum.
Derek sýnir 32 vatnslitamyndir
bæði á vatnslitapappír og á Yúpó-
plastpappír. Viðfangsefnið er aðal-
lega íslenskt landslag en líka
nokkrar ljóðrænar abstraktmyndir.
„Ég flutti til landsins fyrir hart-
nær 50 árum en áttaði mig strax á
því að íslenskt landslag var gjör-
ólíkt hinu breska. Hér eru mikil víð-
erni og litbrigði allt önnur en ég
var vanur. Það tekur tíma að venj-
ast nýju landi; kannski ekki fimm-
tíu ár en mörg samt!“ segir hann.
„Ég hef notað vatnslitina til að
nálgast landið á minn hátt. Til
dæmis á sýningu fyrir fjórum árum
tók ég loksins ástfóstri við hrjóstr-
ugt hraunlandslag og mosabreiður.
En nú held ég lengra úr alfaraleið
með verkin mín. Sum eiga þau upp-
runa sinn í ljósmyndum og skissum
af ákveðnum stöðum á landinu en
önnur eru minningar, ímyndaðir
staðir og sjónhendingar sem verða
til í huganum en rata svo á papp-
írinn.“
Derek er sannkallaður sérfræð-
ingur í meðferð vatnslitamiðilsins.
„Ég hef núna málað með vatnslitum
í 35 ár,“ segir hann og kveðst hríf-
ast af því óvænta sem vatnslitir
bjóða upp á.
„Eftir að ég hætti að kenna árið
2018 þá ákvað ég að stofna Vatns-
litafélag Íslands. Mér fannst vanta
vettvang fyrir fólk sem hefði áhuga
á vatnslitamálun, til að koma sam-
an, skiptast á hugmyndum og halda
saman árlegar sýningar. Það var
mikið gæfuspor,“ segir Derek. Co-
vid hefur nú haft áhrif á starfsem-
ina en félagið stefnir samt að því að
vera í sumar með námskeið með er-
lendum vatnslitamálara og annað í
haust með íslenskum. Frá byrjun
stefndi Derek líka á að bjóða upp á
vettvang þar sem félagar gætu hist
og málað saman og það hefur geng-
ið vel. „Við komum vikulega saman
í Kópavogi til að mála saman og
hálfsmánaðarlega í Gerðubergi.
Það gerist eitthvað töfrandi þegar
fólk málar saman og ber saman
bækur sínar,“ segir hann. efi@mbl.is
„Nálgast landið
á minn hátt“
- Vatnslitamyndir Dereks Mundells
Listamaðurinn Derek Mundell á sýningu sinni í Gallerí Göngum. Margar
vatnslitamynda hans eru mjög stórar, vel á annan metra á breidd.
Blokkin á heimsenda eftir Arndísi
Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnu
Bjarnadóttur og Grísafjörður:
Ævintýri um vináttu og fjör eftir
Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur eru til-
nefndar til barna- og unglinga-
bókmenntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs 2021 fyrir Íslands hönd.
Landsbundnar dómnefndir tilnefna í
ár samtals 14 verk til verðlaunanna,
en sameiginleg norræn dómnefnd
velur vinningshafa ársins og verða
verðlaunin afhent í Kaupmannahöfn
2. nóvember í tengslum við þing
Norðurlandaráðs.
Frá Álandseyjum er tilnefnd
skáldsagan Nattexpressen eftir
Karin Erlandsson sem Peter Berg-
ting myndlýsir. Frá Danmörku er
tilnefnd skáldsagan Vulkan eftir
Zakiyu Ajmi og framtíðarsagan Den
rustne verden, 3 – Ukrudt eftir
Adam O. Frá Finnlandi eru til-
nefndar myndabókin Mitt bottenliv
– av en ensam axolotl eftir Lindu
Bondestam og skáldsagan Kesäm-
yrsky eftir Siiri Enoranta. Frá Fær-
eyjum er tilnefnd skáldsagan Sum
rótskot eftir Marjun Syderbø Kjel-
næs. Frá Grænlandi er tilnefnd
myndabókin Aima Qaqqap Arnaalu
eftir Bolöttu Silis-Høegh. Frá Nor-
egi eru tilnefndar skáldsögurnar
Min venn, Piraten eftir Ole Kristian
Løyning sem Ronny Haugeland
myndlýsir og Aleksander den store
eftir Peter F. Strassegger. Frá sam-
íska málsvæðinu er tilnefnd Joða-
šeaddji Násti eftir Kirste Paltto sem
Laila Labba myndlýsir. Frá Svíþjóð
eru tilnefndar myndabókin Jag och
alla eftir Ylvu Karlsson sem Sara
Lundberg myndlýsir og skáldsagan
De afghanska sönerna eftir Elin
Persson.
Valdeflandi lestrarupplifun
Íslensku dómnefndina skipa
Helga Ferdinandsdóttir, Markús
Már Efraím og Halla Þórlaug Ósk-
arsdóttir, sem er varamaður. Í um-
sögn dómnefndar um bók Arndísar
og Huldu segir: „Þó umfjöllunar-
efnin í Blokkin á heimsenda séu há-
pólitísk – náttúruvernd, samfélag og
stjórnarfar – er frásögnin öll út frá
sjónarhóli barna. Dröfn er sterk,
hugrökk og gagnrýnin á umhverfi
sitt. Hún greinir breyskleika for-
eldra sinna og samfélagsins, sem
gerir lestrarupplifunina einstaklega
valdeflandi fyrir barn.“
Í umsögn um bók Lóu segir:
„Grísafjörður dregur fram mikil-
vægar spurningar um aukna fjar-
lægð milli fólks, kynslóða og ná-
granna. Setjum við sjálfum okkur
mörk sem erfitt er að stíga yfir? Er
einhvern tímann hentugt að fá fólk í
óvænta heimsókn? Þetta er nær-
gætin umfjöllun um einangrun og
einmanaleika, sem getur hrjáð bæði
yngri og eldri kynslóðina, en sýnir
líka leiðir til að mæta þessari ógn
með hjartahlýju og kærleik. Í frá-
sögninni er ákall til lesendahópsins
um að láta sig annað fólk varða jafn-
vel þó að mann langi miklu meira að
slappa af yfir teiknimyndum.“
Barna- og unglingabókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs voru
fyrst veitt árið 2013. Þau eru yngst
fimm verðlauna ráðsins sem ætlað er
að auka áhuga á bæði norrænu
menningarsamfélagi og samstarfi.
Allar nánari upplýsingar um verð-
launin má nálgast á vefnum:
norden.org. Allar tilnefndar bækur
ársins eru aðgengilegar á frummál-
unum á bókasafni Norræna hússins.
Þar má einnig nálgast allar vinnings-
bækur frá upphafi. Skrifstofa hvorra
tveggja bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs hefur verið til húsa
í Norræna húsinu frá 2014.
silja@mbl.is
Ljósmyndir/norden.org
Hugmyndaríkar Hulda Sigrún Bjarnadóttir og Arndís Þórarinsdóttir.
Blokkin og Grísa-
fjörður tilnefnd
- Tilnefningar til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs 2021 - Samtals eru 14 verk tilnefnd í ár
Fjölhæf Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir.